Tíminn - 29.04.1966, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 29. apríl 1966
TÍMINN
í SPEGLITÍMANS
Farah Diba keisarafrú í Iran
getur ekki farið til Parísar
þetta vorið til þess að endur-
nýja fatabirgðir sínar, þar sem
hún á von á þriðja barni sínu.
En tízkufrömuðir Parísarborg
ar hafa ekki hugsað sér að
láta Farah ganga illa til fara g
þrátt fyrir það og nú hefur |
tízkukóngurinn Lavin sént I
aðstoðarmann sinn og hægri I
hönd til Iran ásamt fjórum sýn
ingarstúlkum , tíu fatakistum
og nokkrum hattaöskjum.
Um síðustu helgi var tekið
í notkun í París fyrsta Hilton
hótelið, sem reist hefur verið
í París. Var hótelið opnað við
mikla viðhöfn og var hinn 78
ára gamli hótelkóngur Hilton
viðstaddur, en þetta er 78. hót
elið, sem Hilton eignast. Við
þetta tækifæri sagði Hilton:
— Nú hefur hálfrar aldar
draumur minn rætzt. Ég kom
fyrst til Parísar 1918 þegar ég
var amerískur hermaður og
mér hefur alltaf verið hlýtt til
Frakklands síðan.
Yul Brynner ætlar nú að
fara að leika í kvikmynd í
Frakklandi og leitar nú að
hótelherbergjum handa sér og
fjölskyldu sinni í París. í
kvikmynd þessari, sem hann
ætlar að fara að leika í á
hann að leika þýzkan herfor-
ingja og setti Yul það skil-
yrði, að tízkukóngurinn Lan
vin teiknaði herforingjabún-
inginn, sem hann á að bera í
kvikmyndinni og stígvélin á
maður að nafni Löb að gera,
en hann gerir skó fyrir Elíza
betu Englandsdrottningu.
Ensk kona, frá Froggart, sem
er 28 ára gömul hefur nú
alið — í þriðja sinn á fjór
um árum — tvíbura. Brezkir
læknar segja þetta geti ekki
átt sér stað nema einu sinni af
milljón skiptum. Eftir að fyrstu
tvíburarnir fæddust tryggði
Foggart faðir þeirra fjölskyld
una gegn fleiri tviburum og
þegar næstu tvíburar fæddust
fékk hann um 14 þúsund ís-
lenzkra króna frá tryggingun
um. Nú óskar hann eftir þvi
að fá um 100 þúsund.
Frú Wilson eiginkona enska
forsætisráðherrans hefur nú
ákveðið að fylgja duttlungum
tízkunnar og fara að klæðast
stuttu tízkunni. í viðtali við
Daily Express lét frá Wilson
sem er 50 ára þau orð falla,
að hún hygðist stytta pilsin á
kjólum þeim, sem hún kem
ur fram í opinberlega um tvo
sentimetra til þess að fylgja
tízkunni.
Fyrir s-kömmu kom upp sá
orðrómur, að Adolf Hitler ætti
dóttur, sem fæddist árið 1937.
Móðir hennar var fræg íþrótta-
kona í Þýzkalandi og fékk
meira segja Olympíuverðlaun-
in. Dóttirin, sem var nefnd
Gisella ætlar nú að fara að
gifta sig og ekki eru allir
vissir um það, að Hitler pabbi
hefði orðið neitt hrifinn af
þeim ráðahag því hinn væntan
legi eiginmaður er Gyðingur og
er rithöfundur að nafni Phil-
ippe Mervyn. En Gisela segir:
— Ég er fædd til þess að elska
en ekki til þess að hata.
Fyrir skömmu gaf hún út
endurminngar sínar, sem hún
nefndi „Adolf Hitler, faðir
minn“. Er þessi bók fyrsta
bókin, sem kemur út hjá
bókaútgáfu, sem væntanlegur
eiginmaður hennar er nýbúinn
að setja á stofn.
★
Christian Modest, konungur
sígauna í Evrópu, lézt fyrir
skömmu og var grafinn með
mikilli viðhöfn í belgíska bæn-
um Sint-Ulriks. Hundruð síg
auna komu að gröfinni til þess
að kasta fatnaði, skartgripum,
peningum og ýmsum verðmæt
um á kistu hans.
★
Alltaf öðru hverju eru farn
ar mótmælagöngur gegn kjarn
orkusprengjum og fyrir stuttu
var ein mótmælaganga af því
tagi farin í Briissell og tóku
þátt í henni um 12.000 manns.
f göngu þessari varð vart mik
ils áróðurs gegn Bandaríkjun
um og meðal spjalda sem borin
voru var það sem hér sést á
myndinni.
Enda þótt kvikmyndin „Þrjú
andlit konunnar", sem Soraya
fyrrverandi keisaradrottning
lék aðalhlutverkið, hafi ekki
fengið sem bezta dóma kvik-
myndagagnrýnenda hefur Sor
aya ekki hugsað sér að gefast
upp á kvikmyndabrautinni og
er nú komin til London til þess
að ræða væntanleg hlutverk.
Þegar kvikmyndaframleiðand
inn Dino De Laurentis gerði
kvikmyndasamninginn við
hana, hafði hann fyrst í huga
að láta hana leika prinsessu
sem var Múhameðstrúar, síð
ar Katrínu miklu Rússadrottn-
★
★
ingu, því næst alþjóðlegan
kvennjósnara, því næst konu
Karlamagnúsar, því næst
ítalska prinsessu, sem var ást
fanginn í bandarískum her-
manni því næst eiginkonu Aga
Khan og loks fann hann hlut-
verk, sem honum fannst henni
hæfa og var það í myndinni
Þrjú andlit konunnar.
En Soraya segir eftir þetta
allt: Ég sé sjálfa mig fyrir
mér í hlutverki eins og Grace
Kelly í kvikmyndum Alfreds
Hitchock.
Þessi mynd er tekin af Jacq
ueline Kennedy í London fyrir
stuttu og tók þá þessi litli syst-
ursonur hennar á móti henni á
flugvellinum. Heitir hann Anth
ony Radziwill og er sonur Lee
Radziwill prinsessu systur Jacq
ueline. Jacqueline var að koma i'
frá Spáni og ætlar að dveljast B
nokkra daga hjá systur sinni í i
London áður en hún heldur til f
Bandaríkjanna aftur.
~ ------------ g
3
Á VÍÐAVA^GI
Slys á slys ofan.
íhaldsblöðunum reynist örð
ugt að finna slysalausa fyrir-
sögn á ræðu þá, sem Birgir ís-
leifur flutti á „á fundi borg-
arstjóra“ í Sjálfstæðishúsinu á
dögunum. Vísir hafði þau orð
úr ræðunni að fyrirsögn, að
borgin væri „sköpunarverk
borgaranna“ og það minnti
menn hastarlega á, að borgar-
stjórnendur eru alltaf langt á
eftir borgurunum með þá
þætti, sem þeir eiga að byggja
af borginni, og er það mest ó-
gert enn, svo að það er mikið
sannmæli, að sú borg, sem við
blasir nú, sé að mestu eða
öllu „sköpunarverk borgar-
anna“ en ekki stjórnendanna.
Morgunblaðið birtir svo
ræðu Birgis ísleifs f gær og
ætlar ekki að detta í sömu fal!
gryfju og Vísir og velur fyrir
sögnina: „2500 ÍBÚÐIR
BYGGÐAR í BORGINNI Á S.
L. FJÓRUM ÁRUM‘ö. En hér
varð slys á slys ofan — Moggi
féll líka í gryfju. Gerum nú
ráð fyrir, að það sé rétt frá
hermt, að byggðar hafi verið
2500 íbúðir á síðustu fjórum
árum, eða 625 íbúðir á ári.
En það minnir aðeins á það,
að hagfræðingur borgarinnar
taldi nauðsynlegt að byggja a.
m. k. 660 íbúðir á ári að meðal
tali þann áratug, sem nú er að
líða. Þessi fyrirsögn minnir því
aðeins á, að íhaldið hefur ekki
einu sinni náð því marki,
sem borgaryfirvöid hafa
sjálf reiknað út að væri
nauðsynlegt og vantar 150
—200 íbúðir upp á á
þessu tímabili. En hér stóð þó
ekki á borgurunum. Þeir þurftu
og vildu byggja miklu fleiri
íbúðir, en fengu ekki lóðir eða
aðra eðlilega fyrirgreiðslu, auk
þess sem dýrtíðin batt hendur
þeirra. í þessum málum hefur
íhaldið í Reykjavík því beinlín
is verið Þrándur í Götu þess,
að „borgararnir sköpuðu" borg
sína svo sem þeir höfðu vilja
og áræði til. Svona er erfitt að
finna slysalausa fyrirsögn á
ræðu Birgis ísleifs!
9 kr. ávísun
Múrarameistari, sem vinnur
hjá einni framkvæmdastofnun
Reykjavíkurborgar varð ofur-
lítið langleitur á dögunum, þeg
ar hann opnaði launaumslagið
sitt. Innan úr því kom sem sé
9 kr. ávísun — níu krónur —
en kvittanir upp á hartnær
þrjú þúsund krónur fyrir opin
berum sköttum og gjöldum sem
tekið hafði verið af kaupinu.
Ekki fygir sögunni, hvort hann
hafði fyrir því að selja ávís-
unina, enda mun hún e. t. v.
talin eins verðmæt sem minja
gripur um viðreisnarstjórnina
og ær og kýr íhaldsstjórnaiinn
ar i Reykjavík. Það var held-
ur ekki einu sinni hægt að
kaupa eina litla ýsu fyrir ávís-
unina.
„Kommar klókastir'.
Það ætti ekki að fara fram
hjá neinum, hvaða flokkur það
er, sem íhaldið í Reykjavík cr
hræddast við um þessar mund
ir. Það er Framsóknarflokkur-
inn, því að það sér og finnur,
að þangað liggur Ieið íhalds-
andstæðinga, og þar er sterk
asti andstæðingur íhaldsins. f-
haldið veit einnig og finnur,
að margt fólk yfirgefur nú
Sjálfstæðisflokkinn og tilgangs
laust er að reyna að snúa því
Framhald á bls 15