Tíminn - 29.04.1966, Qupperneq 16
GRÚSKA ER í STARF-
SLYSAVARNAFÉLAGSINS
Tvær utanferSir S.U.F.
sumar.
1. Svíþjóð - Finn
land - Danmörk.
2. Spánn - Dan-
mörk
Að venju efnir S. U. F. til
utanferða á komandi pumri
og verða þær tvær að þessu
sinni. Fyrri ferðin tekur 15
daga. Hún hefst 5. ágúst og
verður þá farið um Svíþjóð
og Finnland með viðkomu í
Kaupmannahöfn fyrir þá
sem þess óska. Síðari ferðin
i;efst 28. ágúst. Hún tekur
13 daga og er fyrstu 9 dög
unum varið á einum bezta
baðstað Spánar, en hinum í
Kaupmannahöfn. Farar-
stjóri í báðum ferðunum er
Örlygur Hálfdanarson. All-
ar nánari upplýsingar í
sima 3 56 58.
Samband ungra
Framsóknarmanna.
NYR SLIPPUR TEKUR STARFA I HAFNARFIRÐI 1968
EFNI OG TÆKIERU FRÁ PÓL ■
LANDI OG BANDARlKJUNUM
SJ—Reykjavík, fimmtudag.
Á miðju ári er gert ráð fyrir,
að nýr slippur taki til starfa í
Hafnarfirði og hafa verið gerðir
samningar við pólska fyrirtækið
CEKOP og bandaríska fyrirtækið
Syncrolift um allt innflutt efni til
smiðanna. Samningar voru nýlega
undirritaðir með fyrirvara um
samþykki bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar.
Tíminn ræddi í dag við Gunnar
Ágústsson, hafnarstjóra, og sagði
hann, að keypt yrði 750 tonna
skipalyfta af bandarfska fyrirtæk
inu Syncrolift, en lyftupallar,
vagnar, teinar og annað efni verð
ur keypt af pólska fyrirtækinu
Cekop. í 1. áfanga verður byggð-
ur slippur með 8 skipastæðum fyr
ir allt að 500 lesta skip. Fyrir-
komulag er þannig, að svonefndir
hliðarfærsluvagnar flytja skipin
hvert á sitt stæði og er auðvelt að
færa þau til, og þau munu ekki
lokast inni, eins og oft kemur fyr-
ir í venjulegum dráttarbrautum.
Slippurinn verður staðsettur
við Suðurhafnargarðinn, og er
gert ráð fyrir, að smíði hans verði
lokið á miðju ári 1968.
Kostnaður við verkið er áætlað
ur samtals um 30 milljónir króna
og hafa fengizt mjög hagstæð lán
hjá Pólverjum.
Þegar verkinu er lokið, er gert
ráð fyrir, að einkaaðilar taki að
sér rekstur slippsins og standa
samningar nú yfir um þau mál.
Pólska fyrirtækið Cekop sér
einnig um efni til byggingar slipp
stöðva á Akureyri, Neskaupstað
og Njarðvíkum, en bandarísika fyr-
irtækið Syncrolift hefur selt 500
tonna skipalyftu til Akraness.
FUF 1 Reykjavík og Framherji halda sameiginlegan 1. maí
• lYldl " tagnaöur fagnað að Hótel Sögu, og hefst hann kl. 20.30. Ræðumaður
kvöldsins verður Óðinn Rögnvaldsson, varaformaður Hins
íslenzka prentarafélags. Óperusöngvararnir Gnðmundur Guðjónsson og Sigurveig Hjaltested
syngja við undirleik Skúla Halldórssonar tónskálds. Karl Guðmundsson leikari flytur nýjan gam-
anþátt. Hin vinsæla hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi til kl. 2 eftir miðnætti.
Aðgöngumiðar eru seldir á skrifstofu Framsóknarflokksins, Tjarnargötu 26, sími 1-60-66 og á af-
greiðslu Tímans, Bankastræti 7, sími 1-23-23.
GÞE-Reykjavík, fimmtudag.
Landsþing Slysavarnafélags
íslands, hið þrettánda í röð-
inni var sett í húsi Slysavama-
félagsins í dag. Viðstaddir voru
auk þingfultrúa margir gestir,
þar á meðal forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, Egg-
ert G. Þorsteinsson, félags-
málaráðherra og Geir Hall-
grímsson borgarstjóri.
Gunnar Friðriksson forseti
Slysavarnafélagsins flutti setn-
ingarræðu, og í upphafi henn
ar gat hann látinna félags-
manna, og heiðruðu fundargest
ir minningu þeirra með því að
rísa úr sætum. Þá drap Gunn
ar á það helzta, sem gerzt hef
ur í málum Slysavarnafélags
ins frá síðasta landsþingi, gat
hann um þyrilvængju þá, sem
félagið hefði keypt í samvinnu
Framhald á 14. siðu.
Frá setningu Slysavarnaþings.
(Tímamynd GE)
FJÖLMENNIVIÐ ÚTFÖR SERA
SVEINBJORNS
PE—Hvolsvelli, fimmtudag.
Útför séra Sveinbjörns Högna-
sonar, prófasts og alþingismanns,
fór fram að aflokinni húskveðju,
sem hófst að heimili hans, nýbýl-
inu Staðarbakka, kl. 2 sfðdegis í
dag. Prófasturinn, séra Sveinn Ög
mundsson, flutti húskveðjuna og
jarðsöng, en séra Sigurður Einars
son í Holti flutti útfararræðuna,
Hafnfirðingar
Kosningaskrifstofa B-listans í
Hafnarfirði er að Norðurbraut 19.
Opin alla daga kl. 10—22. Sími
51819. Stuðningsmenn eru hvattir
til að hafa samband við skrif
stofuna. Kjörskrá liggur frammi
á skrifstofunni. Athugið hvort þið
eruð á kjörskrá. Skrifstofan ann
ast kjörskrárbækur, ef þarf.
Kjósendur, sem verða fjarver
andi á kjördegi hafi samband við
akrifstofuna sem allra fyrst.
HÖGNASONAR
og biskupinn yfir íslandi, herra
Sigurbjörn Einarsson flutti kveðj-
ur og þakkir íslenzku þjóðkirkj-
unnar.
Nánustu vandamenn hins látna
báru kistuna út frá heimili hans,
en að sáluhliði stjómarmenn
Kaupfélags Rangæinga og hrepps-
nefndarmenn. Frá sáluhliði í
kirkju báru kistuna menn úr
stjórn Mjól'kurbús Flóamanna og
Mjólkursamsölunnar. Úr kirkju
báru kistuna hempuklæddir klerk-
ar. Síðasta spölinn að gröfinni
báru menn úr sóknum hins látna.
Séra Sveinbjörn var jarðsettur í
nýrri útfærslu kirkjugarðsins að
Breiðabólsstað sem prófasturinn
vígði um leið.
Útför séra Sveinbjörns Högna-
sonar er ein fjölmennasta útför,
sem fram hefur farið í héraðinu.
Að útför lokinm þáði fólk veiting
ar í félagsheimilinu að Hvolsvelli.
Vegir spilkst vegna rígninga
KT—Reykjavík, fimmtudag.
Vegna rigninga undanfarinna
daga hafa vegir viða stórspillzt.
Vegagerð ríkisins upplýsti í dag
að farið er að takmarka umferð
um Suðurland og báðar Þingeyjar
sýslur af þessum völdum.
Samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðarinnar í dag er umferð um
FramsóknarkonuM
Reykjavík
Hinn árlegi bazar kvenfélagsins
verður haldinn 8. maí. Þær kon
ur, seni gefa vilja muni góðfús
lega komi þeim til Rannveigar
Gunnarsdóttur Grenimel 13 og
Guðnýjar Laxdal Drápuhlíð 35,
og Sólveigar Eyjólfsdóttur Ásvalla
götu 67.
Bazarnefndin.
alla vegi á Suðurlandi með nokkr-
um undantekningum, bönnuð bif-
reiðum sem hafa meiri öxulþunga
en 5 tonn. Undantekning er Suð-
urlandsvegur í Árnessýslu, Skeiða
vegur. Gnúpverjavegur, Þrengsla-
vegur og Þorlákshafnarvegur frá
Þrengslavegi. Auk þess hefur um
ferð ekki verið takmörkuð um
nokkra hliðarvegi í Skaftafells-
sýslu.
Öll umferð um vegi i Þingeyjar
sýslum er nú takmörkuð við 5
tonna öxulþunga og segja má, að
allir vegir á Austfjörðum séu ó-
færir öðru en jeppum. Annars
staðar á landinu fara vegir hríð-
versnandi.
BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST
í þessi hverfi:
Snorrabraut, Skólavörðustíg, Laugarnesveg,
Barmahlíð, Njálsgötu, Laufásveg, Freyju-
götu, Óðinsgötu.
Upplýsingar á afgreiðslu Tímans, Banka-
stræti 7, sími 1-23.23.