Tíminn - 04.05.1966, Page 16
« . FIWn<«g^ «L «prfl HH
FÆREYJAFLUG
Fí ER HAFIÐ
í gær byrjaði Flugfélag íslands
flug urn Færeyjar, með Fokker
FriendShip skrúfuþotu.
Eins og fram hefir komi'ð í
fréttum öðlaðist félagið leyfi til
einnar ferðar í viku frá Reykja
vík til Færeyja, Bergen og Kaup
mannahafnar, en að auki verður
flogið milli Færeyja og Glasg.
Ferðum verður hagað bannig,
að farið verður frá Reykjavik kl.
9.30 á þriðjudagsmorgun. Eent í
Vagar í Færeyjum kl. 11.40. Þaðan
verður flogið til Bergen, komu
tími þangað er kl. 15.40 og til
Kaupmannahafnar verður komið
kl. 18.10. Uppgefnir t.ímar eru
staðartímar.
Á miðvikudagsmorgnum verð
ur farið frá Kaupmannahöfn kl.
8:55, flogið til Bergen og Færeyja
og þaðan til Glasg. í Glasg. verður
stutt viðstaða, og síðan flogið til
Færeyja og þaðan til Reykjavík
ur, komið þangað kl. 20.25 á mið
vikudagsikvöldum.
í tilefni Færeyjaflugsins, hefir
Flugfélag íslands gefið út bækl
ing um Færeyjar, land og þjóð
Framhald á 14 síðu
Hverfaskrífstofur
B-listans s Rvík
Hverfaskrifstofur B-listans í Reykjavík eru á
eftirtöldum stöðum:
Fyrir Melaskólann: Hringbraut 30, sími 1-29-42.
Fyrir Mið^æjarskólann: Tjarnargata 26, sími 1-55-64.
Fyrir Austurbæjarskólann: Laugavegur 168, sími 2.35-19.
Fyrir Sjómannaskólann: Laugavegur 168, sími 2-35-18.
Fyrir Laugarnesskólann: Laugavegur 168, sími 2-35-17.
Fyrir Álftamýrarskólann: Álftamýri 54, sími 3-85-49.
•Fyrir BreiðagerSisskólann: Búðargerði 7, sími 3-85-47.
Fyrir Langholtsskólann- Langholtsvegur 91.
Allar skrifstofurnar verSa opnar frá kl. 2—10 nema
hverfamiðstöSin að Laugavegi 168, sem verður opin frá
kl. 10—10, sími 2-34-99.
Stuðningsfóik B-listansi Hafið samband við hverfaskrif-
stofurnar á viðkomandi stað. Veitið þeim allar þær upp-
lýsingar, sem að gagni mega koma við kosningaundir-
búninginn.
FJÁRMAGNID HJÁ FÓLKINU
ÆYINTYRIHOFFMANNS
FRUMSÝNDÁ FÖSTUDA G
GÞE—Reykjavík, þriðjudag-
Næstkomandi föstudagskvöld
verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu
óperan Ævintýri Hoffmanns eftir
Offenbach. Leikstjóri er Leif
Söderström, hljómsveitarstjóri
Bohdan Wodizko, og samtals koma
fram i óperunni um 80 manns.
Aðalhlutverkið, Hoffmann skáld
syngur Magnús Jónsson óperú-
söngvari, en hann hefur nú snúið
heim eftir 10 ára dvö! í Kaup
mannahöfn. Auk Magnúsar koma
fram margir góðkunnir söngvar
ar, Guðmundur Jónsson, Guðmund
ur Guðjónsson, Sigurveig Hjalte-
sted, Eygió Viktorsdóttir, Þuríður
Pálsdóttir, Svala Nielsen og fleiri.
Óperan er flutt í íslenzkri þýðingu
Egils Bjarnasonar. Frumdrög að
leikmyndum gerði Leif Söder-
ström Ieikstjóri, en Lárus Ingólfs
son hefur útfært þær.
Óperan fjallar um skáldið og
draumóraimanninn Hoffmann, og
ástarævintýri hans þrjú. Olympia,
ein konan, sem hann elskar reyn
ist vera leikbrúða, Antonía sörng
kona deyr fyrir aldur fram, og
vændiskonan Giulietta snýr baki
við Hoffmann og heldur á braut
með öðrum. Ýmsar aðrar eftir-
minmilegar persónur koma fram
í óperunni, þar á meðal „sá illi“,
sem sunginn er af Guðmundi
Jónssyni en hann kemur fram í
fjórum mismunandi gervum, og
Nicolas fylgjandi Hoffmanns, eig
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Blaðinu hefur borizt listi sem
sýnir, hve mörg bindi bóka hafa
verið lánuð úr 170 almennings-
bókasöfnum af bókum 76 rithöf-
unda árið 1964, og eins skýrslur
fyrir árin 1962 og 1963. Skýrslan
inlega skáldskapargyðja hans,
sungin af Sigurveigu Hjaltested.
Tónlist Offenbachs býr yfir
ákaflega miklum einfaldleika og
fegurð, og óperan er að ýmsu leyti
frábrugðin óperum annarra meist
ara eins og Verdis. Yfirleitt nýtur
hún mjög mikilla vinsælda og
fellur í kramið hjá svo til öllum
Framhald á 14. síðu.
fyrir 1964 sýnir, að alls hafa ver
ið lánuð af bókum þessara höf-
unda 107.988 bindi — eða að með
altali 1421 hindi eftir hvem höf-
und. Tvær konur, Guðrún frá
Lundi og Ingibjörg Sigurðardóttir,
Framhald á bls. 15
Guðrún frá Lundi og Ingibjörg
Sigurðardóttir efstar á lista
YFIR MEST LESNU HÖFUNDANA 1964
Alögur á Reykvíkinga jukust
um 16% á kjörtímabilinu!
Álögur á Reykvíkinga
1962
500 millj.
1966
1300 millj.
Hækkun: 160%
í TK—Reykjavík, þriðjudag,
Það ,sem gert er af hálfu borg-
aryfirvalda, verða borgararnir
sjálfir að greiða að sjálfsögðu í
einni eða annarri mynd. Misbrest
ur hefur oft viljað verða á því,
ajs af hagsýni og ráðdeild væri því
fjármagni ráðstafað, sem borgar-
arnir þannig leggja borginni til
Og það er engin smáfúlga, sem
borgararnir greiða.
Samkvæmt fjárhagsáætlun þessa
árs verða heildartekjur borgar-
innar og fyrirtækja hennar og
stofnana yfir 1300 milljónir króna.
Til samanburðar má geta þess, að
síðasta fjárhagsáætlun næsta kjör
tímabils á undan því. sem nú er
að ljúka, hljóðaði upp á um það
bil 500 milljónir króna og þar
með taldar á sambærilegan hátt
tekjur fyrirtækja borgarinnar og
stofnana.
Þannig hefur aukningin á þessu
eina kjörtímabili, sem nú lýkur,
á álögum á borgarana orðið rúm-
ar 800 milljónir króna — eða
hvorki meira né minna en 160%!
Ekki verður sagt, að meirihluti
Sjálfstæðisflokksins hafi ekki haft
úr neinu að spila!
Það skal að vísu viðurkennt, að
dýrtíðarvöxtur í landinu hefur
verið meiri á þessu kjörtímabili
en nokkru sinni fyrr og því ræð
ur einnig Sjálfstæðisflokkurinn.
Engu ag siður er sjáanlegt af þess
um tölum, að álöguaukningin hef-
ur verið gífurleg umfram verð-
bólguvöxt.
Þegar meirihlutinn samþykkti
í vetur að leggja 1300 milljónir
króna á borgarbúa á þessu ári,
var yfirskriftin í Morgunblaðinu:
s.Afsláttur af útsvörum a.m.k. sá
sami og í fyrra”.
Borgarbúar munu eflaust finna
það skömmu eftir kosningarnar,
þegar útsvarsseðillinn kemur, að
„afslátturinn" af útsvörunum
verður álíka léttvægur og hann
var í útsvarshneykslinu 1964. Ekki
virtist draga mikið úr þunga út-
svaranna í fyrra og voru þó fast-
eignagjöld tvöfölduð á því ári.
Svo á það að teljast sérstaklega
þakkarvert og bera vott um sér-
stakan dugnað og hagsýni meiri-
hlutans, að þess sjást nokkur
merki í framkvæmdum borgarinn
ar. að allar þessar fúlgur hafa ver
ið teknar af íbúum Reykjavíkur.
Það er von, að mennirnir í bar-
áttusætunum á lista Sjálfstæðis-
flokksins velji sér að einkunnar-
og vígorði: Fjármagnið hjá fólk-
inu!
Kosningahappdrættið
SKRIFSTOFA HAPPDRÆTTISINS ER Á HRINGBRAUT 30,
JARÐHÆÐ. SÍMAR 1-29-42 OG 1-60-66, OPIÐ FRÁ KL. NÍU
TIL TÓLF OG EITT TIL SJÖ. VINSAMLEGA GERIÐ SKIL
SEM ALLRA FYRST.