Vísir - 02.11.1974, Síða 3
Visir. Laugardagur 2. nóvember 1974.
3
Maðkurinn dafnar
vel ó konfektinu
Litið undir konfekt-
molana, áður en þið
stingið þeim upp i
ykkur. Þetta er ráð-
legging frá manni,
sem um i siðustu heigi
ætlaði að gæða sér á
islenzku konfekti.
Þegar hann brá tönnum á
einn konfektmolann fann
hann fyrir einhverjum tægjum I
súkkulaðinu. Til að kanna málið
nánar leit hann undir aðra mola
i pakkanum og sá þá sér til
undrunar, að undir I það
minnsta einum þeirra var smá-
gerður vefur, og undir öðrum
var lltill ormur að athafna sig.
Við nánari athugun kom I ljós,
að þarna var mölur á feröinni.
Hann var I konfektkassa, sem
keyptur var f búð einni I vestur-
bænum fyrir helgina. I verzlun-
inni var sagt, að pakkinn væri
nýkominn þangað.
Þegar málið var athugað hjá
konfektframleiðandanum, kom
i ljós, að mölurinn væri senni-
lega upprunninn i hveiti,
hnetum eða rúslnum, sem
kemur hingað erlendis frá. Að
sögn vill það til endrum og eins,
að mölurinn nái að læða lirfu
sinni með I konfektið.
Konfektkaupendum skal á
það bent, þegar konfekt er
keypt, að konfektkassarnir eiga
að vera merktir með ártali. A
kassanum, sem barst upp I
hendur Visis, var ártalið ’73
prentaö á kassann.
Að sögn framleiðandans fer
konfektframleiðslan mest fram
á tímabilinu frá október til
nóvember. Nú, þegar ný fram-
leiðsla er komin á markaðinn,
er kaupmönnum þvi ráölagt að
yngja upp birgðir sínar.
—JB
Athyglisverð hugmynd:
NÆUÐ ENDURSKINSMERKJUM
I GESTI VEITINGAHUSANNA!
Hvers vegna ekki að næla
endurskinsmerkjum I yfirhafnir
allra þeirra, sem yfirgefa
skemmtistaöi borgarinnar um
nætur? Þetta er spurning, sem
varpað var fram < á félagsfundi
Junior Chambers núna nýlega,
en þar komu slys á veg-
farendum m.a. til tals.
Vitnaði höfundur hugmyndar-
innar, Alli Rúts, til slyss, sem
varð fyrir framan eitt hótelið I
borginni fyrir skömmu. Þar var
ekið á einn gestanna, er hann
var á leið yfir gangbraut 1
myrkrinu.
Þykir okkur rétt að koma
þessari hugmynd hér á
framfæri. Þetta er slysavörn,
sem er einföld i framkvæmd og
ætti að kosta lltið. Væri ekki
ósanngjarnt, að skemmti-
staðirnir mættu leggja fimm
krónur ofan á aðgangseyrinn og
hafa þannig fyrir endurskins-
merkjunum, sem svo mætti
næla I yfirhafnirnar á meöan
þær hanga I fatahenginu.
—ÞJM
Sœkja fimm um
Akranes, en tveir
um Hallgrímskirkju?
INUK SÝNT UM
ÖLL NORÐURLÖND?
Fimm prestar höfðu i
gærmorgun sótt um
Akranesprestakall: Sr.
Hreinn Hjartarson,
prestur i Kaupmanna-
höfn, sr. Sigfús Jón
Árnason, prestur i
Miklabæ, sr. Árni Sig-
urðsson, Blönduósi, sr.
Björn Jónsson, Kefla-
vik. og sr. Ingólfur Guð-
Lónað til
493 íbúða
— og fyrirheit um lán
til 109 leiguíbúða
! þessum mánuði mun Hús-
næðismálastofnun rlkisins veita
234 milijónir króna I lán til 493
ibúöa. Er þar annars vegar um að
ræða lán til þeirra, sem lögðu inn
umsóknir fyrir 1. febrúar slðast-
liðinn og skiluðu fokheldisvott-
orðum fyrir 15. mal, en hins vegar
til þeirra er sóttu um á sama tima
og skiluðu fokheldisvottorðum
fyrir 15. ágúst. Hinir fyrrnefndu
fá lánið nú eftir 1. nóvember, en
hinir eftir 20. nóvember. 1 báðum
tilfellum er miðað við að umsókn-
irnar hafi verið orðnar fullgildar
og lánshæfar fyrir 15. maí og 15.
ágúst.
Þá hefur stofnunin samþykkt
að veita 14 sveitarfélögum lán til
smlði 109 leiguíbúða, enda hefðu
þau lokið að mestu eða öllu leyti
tæknilegum og fjárhagslegum
undirbúningi að smiði þeirra.
Heildarupphæð þessara lána
nemur rétt tæplega 362 milljónum
og 400 þúsund krónum.
—SH
mundsson, lektor.
Um Hallgrlmskirkju höfðu sótt
þeir sr. Karl Sigurbjörnsson og
sr. Kolbeinn Þorleifsson, en eins
og fram kom i blaðinu i gær hefur
þriðji umsækjandinn, sr. Páll
Pálsson, afturkallað umsókn
slna.
Möguleiki er, að umsækjendum
geti fjölgað, þótt umsóknarfrest-
ur hafi verið til 1. nóvember, þvl
umsóknir póstlagðar áður en
fresturinn rann út eru teknar
gildar. Einnig var ákveðið i gær,
að vegna orðalags auglýsingar-
innar skyldi fresturinn ekki renna
út fyrr en á miðnætti 1. nóvem-
ber.
—SH
„Svo virðist sem endirinn
verði sá, að leikritið INUK verði
sýnt á öllum Norðurlöndunum”,
sagði Sveinn Einarsson þjóð-
leikhússtjóri I viðtali við Visi i
gærkvöldi. Verður væntanlega
lagt upp i leikförina á miðjum
vetri.
„Fyrst bárust okkur boð frá
Danmörku og Sviþjóð. Þaö var
frá Folketeatret i Kaupmanna
höfn og Södra Teatret I Stokk-
hólmi. Hafnarleikhúsið hefur
auk aðalsviðsins minna leik-
svið, sem hentar vel þessari
sýningu, en I Södrateatret yrði
það trúlega sýnt á aðalsviðinu”,
sagöi Sveinn.
„Tvö fyrrnefnd leikhús höfðu
sótt um styrk til Norræna menn-
ingarsjóðsins af því fé, sem út-
hlutað er til gestaleikja”, hélt
leikhússtjóri áfram. „Fengu
leikhúsin vilyrði fyrir styrkveit-
ingu gegn þvi skilyrði, að ef
„Inuk” færi á annað borð af stað
til þessara tveggja Norður-
landa, færi það einnig til Noregs
og Finnlands.
Mér er kunnugt um leikhús i
báöum þessum löndum, sem
hafa áhuga á að taka INUK til
sýninga”, sagði Sveinn loks.
„Það verður þvi trúlega úr, að
leikurinn verði sýndur á öllum
Norðurlöndunum áður en yfir
lýkur.”
Sýningar á þessu verki hafa
gengið mjög vel hér á landi og
þaö farið viða. Leikendur eru
aðeins fimm og sviðsbúnaður er
einfaldur. Það er þvi auðvelt að
setja sýninguna upp næstum
hvar sem vera skal. Þetta hefur
óspart verið notað og leikurinn
verið fluttur i fjölmörgum skól-
um og I öðrum stofnunum, núna
siöast fyrir nemendur i æfinga
deild Kennaraháskólans, svo
dæmi sé nefnt. Svo sem kunnugt
er var leikritið samið i hópvinnu
með aðstoð Haralds Ölafssonar
lektors. Leikstjórn hafði Brynja
Benediktsdóttir með höndum,
en leikendur auk hennar eru þau
Kristbjörg Kjeld og Helga Jóns-
dóttir, Þórhallur Sigurðsson og
Ketill Larsen. Fór hópurinn til
Grænlands i upphafi til að leik-
urinn tæki á sig rétta mynd i
réttu urr.hverfi — á sögusviðinu.
— ÞJM
Hér er veriö aö flytja nemendum Menntaskóians viö Hamrahilö leikritiö „INUK”, en leikritiö hefur veriö sýnt I fjöimörgum skólum og öörum
stofnunum i Reykjavlk og nágrenni þar sem þess hefur veriö óskaö. Eru sýningar á þessu tiltölulega nýbyrjaöa starfsári þegar orönar liö-
lega tíu. —Ljósm. Bragi.