Vísir - 02.11.1974, Blaðsíða 20
Ákveðnir að sýna
, Sœríngamanninn'
— „Dreifingaraðilarnir hafa verið tregir á að láta
myndina“, segir forstjóri Austurbœjarbíós
„Við erum ákveðnir i að sýna
myndina. En það er ekki okkar
að segja siðasta orðið um það.
Kvikmyndaeftirlitið getur gert
sinar athugasemdir, og ég efa
ekki að lögregla skoði myndina
áður en hún kemur til sýninga.
Ég veit hins vegar ekki hvort
nokkur getur stoppað svona
mynd.”
Þetta sagði Arni Kristjánsson,
forstjóri Asturbæjarbiós, i við-
tali við Visi i gær um kvikmynd-
ina „The Exorcist”. Hann bætti
þvi við, að enn hefðu ekki verið
gerðir samningar um sýningu
myndarinnar hér á landi.
„Dreifingaraðilarnir hafa verið
tregir á að láta myndina frá sér.
Þess vegna býst ég við að hún
verði dýr og skili þarafleiðandi
litlum hagnaði,” sagði Arni.
Hann sagðist ekki búast við að
samningar um sýningar tækjust
fyrir áramót.
Visir spurði hvort afstaða
heföi verið tekin til ályktunartil-
lögu biskups á Kirkjuþingi um
að myndin verði ekki sýnd hér:
lendis.
„Nei, ekki af okkar hálfu”,
sagði Arni. „Ef við neitumdreif-
ingaraðilanum um að sýna
myndina hérlendis, getur hann
snúiö sér til annars kvikmynda-
húss. Ég tel þvi að félag kvik-
myndahúsaeigenda verði að
fjalla um málið o_g vera sam-
taka um annaðhvort að sýna
ekki myndina eða sýna hana.”
Hér má geta þess, að i Bret-
landi er myndin bönnuð innan 18
ára og I Bandarikjunum innan
21 árs. A íslandi er hæst hægt að
banna aðgang börnum yngri en
16 ára.
—ÓH
Alþýðu-
blaðinu
„Það sýnist auðsótt að fá fram-
tiðarmannskap. Það hafa nokkrir
sótt um, en það tekur tima að
velja úr þeim hópi,” sagði
Freysteinn Jóhaimsson, ritstjóri
Alþýðublaðsins i viðtali við VIsi I
gærkvöldi.
t gær hófu tveir nýir blaðamenn
störf á Alþýðublaðinu. Annar
þeirra, Halldór Valdimarsson, er
nýr i blaðamannastétt og sömu-
leiðis Hallur Helgason, sem verð-
ur ljósmyndari blaðsins.
Þá sagði Freysteinn, að þeir
Oddur A. Sigurjónsson og Cecil
Haraldsson mundu vera til að-
stoðar fyrstum sinn, meðan verið
er að koma nýjum mönnum i
skörð þeirra sem sögðu upp.
—ÓH
„Legg þetta mól
í dóm kjósenda'
— segir sr. Karl Sigurbjörnsson
Ég er alveg orðlaus yf- lega á mina eigin á-
ir þessu. Mér þykir allt
þetta moldviðri alveg
fráleitt. Ég sæki um
embætti sóknarprests í
Hallgrimssókn alger-
byrgð og að eigin frum-
kvæði, sagði sr. Karl
Sigurbjörnsson, er Vis-
ir hafði samband við
hann.
Slöari hluta þessarar viku
hafa umsóknir presta um Hall-
grlmskirkju verið i sviðsljósinu,
með mótmælum sr. Kolbeins
Þorleifssonar við erindisflutn-
ingi á miðvikudaginn og siðar
kæru þar að lútandi. Þá hefur
sem kunnugt er sr. Páll Pálsson
dregið til baka umsókn sina um
embættið. Sr. Karl er þvl annar
tveggja umsækjenda um emb-
ættið.
„Mér finnst mjög ósmekklegt
að blanda föður minum I þessi
mál á þann hátt sem gert hefur
verið,” sagði sr. Karl. „Hann á
hér engan hlut að máli. Að öðru
leyti vil ég ekkert segja um
þetta mál, heldur leggja það i
dóm kjósenda og treysti
dómgreind þeirra.”
—SH
„Viðbrögð mín áttuekki
að bitna á séra Páli"
— segir sr. Kolbeinn Þorleifsson
„Ég verð að segja, að mér er
brugðið. Sr. Páll er alls góðs
maklegur og eins góður og
margir aðrir i islenzkri presta-
stétt til að sækja um þetta emb-
ætti.” sagði sr. Kolbeinn
Þorleifsson um það, að sr. Páll
Pálsson dró umsókn sina um
prestsembætti við Hallgrims-
kirkju til baka.
„En ég verð að leggja á það
áherzlu, að minum hörðu við-
brögðum gagnvart útvarps-
lestrinum á miðvikudag var
ekki ætlað að bitna á sr. Páli,
heldur áttu þau að koma honum
til góða. Astæðan var sú, að ég
uppgötvaði þrjár staðreyndir,
sem allar eru samtengdar.
1 fyrsta lagi var þremur
prestsembættum slegið lausum
samtimis, til þess að sem fæstir
sæktuum Hallgrimssókn. 1 öðru
lagi er umsóknarfresturinn út-
runninn innan viku eftir minn-
ingarhátiðahöldin um sr. Hall-
grlm. I þriðja lagi er kallað
saman kirkjuþing I Hallgrims-
kirkju, einmitt þá daga sem
kosningabaráttan er að fara af
staö fyrir alvöru.
Ofan á allt þetta bætist siðast-
liðinn miðvikudag rómantisk
lýsing útvarpsmanns á ágúst-
deginum á útlíðandi lýðveldis-
ári 1944, þar sem margumrædd
ræða var flutt. Ég var það kunn-
ugur ræðum Sigurbjörns bisk-
ups, að ég vissi aðhér var um að
ræða eldfimustu ræðu, sem
hægt var að draga fram i kosn-
ingabaráttu móti okkur sr. Páli.
Þess vegna mótmælti ég og
reyndi árangurslaust að stöðva
flutninginn, en er það mistókst,
kærði ég til útvarpsráðs með
ósk um, að slikt endurtæki sig
ekki, hvorki I útvarpi né sjón-
varpi.
—SH
Nýr mcmnskapur ó
Menn frá tollstjóraembættinu
fóru i gær i eina af hljómplötu-
verzlunum bæjarins og tóku með
sér þaðan bitlaplötu eina, sem
þeim þótti grunsamleg. Þetta var
gert eftir að Visir hafði spurzt
fyrir um málið hjá embættinu.
Undanfarið hefur verið til sölu I
verzlun þessari nokkurt magn
bitlaplatna, sem merktar eru v.
meö miða sem á stendur: „Til
sölu til bandariskra hermanna
eingöngu”.
Sams konar miði og þessi mun
vera á hljómplötum sem seldar
eru á Keflavikurflugvelli og þótti
þvi réttara að athuga feril
þessara platna.
Verzlunin heldur þvi hins vegar
fram, að plötur þessar hafi hún
fengið I sendingu frá Banda-
rikjunum. Þegar plöturnar komu,
þótti merkingin að sjálfsögðu
undarleg og var þvi spurzt fyrir
um ástæðuna hjá bandariska
seljandanum. .
O
Viðkomandi dreifingaraðili
verzlar hins vegar bæði við
herinn og almenna kaupendur.
Það gefur hins vegar auga leið,
að slikar hermerkingar hafa litla
þýðingu, ef merktar plötur eru
seldar hverjum sem hafa vill.
Þykir mönnum þvi sennilegra að
einhvers staðar sé maðkur i
mysunni, annaðhvort hér á landi
eða erlendis, nema þá að pakkar
hafi hreinlega ruglazt i sendingu.
Blaðið spurði Björn Hermanns-
son tollstjóra um rannsókn
málsins.
„Við tókum með okkur eina af
þessum merktu plötum, sem eru
innan um aðrar ómerktar. I
okkar augum er auðvitað ekki
eðlilegt að hér séu til sölu plötur,
sem eingöngu eru ætlaðar til sölu
innan hersins. Hvort plöturnar
hafa slæðzt á almennan markað á
ferli sinum erlendis eða hér á
landi hefur ekki enn tekizt að
skera úr um. En málið er I
rannsókn.”.
—JB
s. i/i! LITAR ¥
ONLY
Þannig eru hljómplöturnar
merktar. A hljómpiötuum-
slögin er settur llmmiði, sem
gefur til kynna, að þessar sak-
leysisiegu bitlaplötur megi
ekki selja öðrum en þeim, sem
skráðir eru I Bandaríkjaher.
Hann hafði hins vegar sjálfur
fengið plöturnar svona upp i
hendurnar, en eftir þvi sem hann
komst næst hjá þeim aðila, er
hann kaupir af, höfðu þessar
hljómplötur verið sendar, þar
sem plötur fyrir almennan
markað voru uppseldar.
Hvaðan koma
hljómplötur
merktar
hernum?
— Tollstjóri
rannsakar
feril
rokk-
hljómplatna
vísir
Laugardagur 2. nóvember 1974.
Um það leyti i gær-
kvöldi, sem umferðin
var eins og hún verður
mest á föstudagskvöld-
um i Reykjavik, varð
drengur fyrir bil i Álf-
heimum, rétt við Glæsi-
bæ. Slysið varð, er
drengurinn skauzt milli
bila skammt frá merktri
gangbraut. Hann var
fluttur á Slysavarðstof-
una, þar sem meiðsli
hans voru könnuð. Hann
reyndist hafa fengið höf-
uðhögg, en ekki alvar-
legt, og fékk fljótlega að
fara heim. Myndina tók
ljósmyndari Visis, B.G.
er verið var að mæla
upp slysstaðinn.