Tíminn - 07.05.1966, Síða 2
LAUGARDAGUR 7. mai 1966
TÍMINN
Frambjóðendur hafa orðlð
SKIPULAGSMÁLIN
•Borgarstjórinn hefur mjög
haft sig í frammi og boSið
mönnum upp á handaband og
bros, sem væntanlega er ætlað
að sætta þá við vanræksluna
hjá meirihluta í borgarstjórn.
Á þessum fundum hefur borg
arstjóri að mestu talað einn,
en meðreiðarsveinar hans hafa
þó fengið að flytja stutt ávörp,
svona til þess að minna á að
þeir eru líka í framboði.
Sitthvað athugavert hefur
komið fram á þessum fundum
og verður fátt eitt af því nefnt
hér. En sem örlítið sýnishorn
má nefna, að Gísli HaUdórsson
sá alveg sérstaka ástæðu til
þess að þakka borgarstjóra það
víðsýni að láta gera skipulag
af borginni. Hann gleymdi
hins vegar alveg að geta þess,
að skipulagning borgarinnar
ihefur verið ein aðalkrafa minni
■hlutans árum saman og þá
•ekki sízt Framsóknarmanna.
iÞað er líka mála sannast, að
án efa er eins dæmi í sið-
imenntuðu landi að byggð sé
.höfuðborg án þess að nokkur
áætlun sé til um heildarskipu-
Jag gatna og bygginga. Þetta
hefur þó verið gert hér, og
ií skjóli handahófs og ringul-
ireiðar hefur þróast spiUing
og brask, en nauð-
synlegar framkvæmdir orðið að
bíða vegna þess, að skipulag
var ekki fyrir hendi. Ýmis
mannvirki höfðu verið leyfð,
sem torvelduðu mjög þá skipu-
lagningu, sem nú hefur verið
unnin og kostað hefur 25 millj
ón króna, og nægir í því sam-
bandi að minna á hina marg-
nefndu Morgunblaðshöll.
Þrátt fyrir það, hvernig að
málinu hefur verið unnið, seg-
ir Gísli Halldórsson að víst sé,
að engin höfuðborg í heimi
eigi jafngott skipulag - og
Reykjavík né byggt á svo traust
um grunni! Mikið held ég að
Sölvi Helgason mundi öfunda
Gísla af þessari setningu mætti
hann nú hlýða! Ég hygg að
sannleikurinn sé sá, að margt
í þessu skipulagi orki mjög
tvímælis, m.a. vegna þeirra
erfiðleika sem erlendu sérfræð-
ingarnir áttu við að glíma
vegna þess hvað margar vit-
elysur var búið að gera áður
en þeir voru kvaddir til.
Jafnframt skyldu menn hafa
hugfast, að lausleg kostnaðar-
áætlun borgarstjórna við fram
kvæmd skipulagsins er 18 mill-j
arðar króna, og sjá þá allir
að ýmislegt hlýtur að mega
laga fyrir þá risafjárhæð. Sjálf-
stæðismenn ættu að spara að
Einar Ágústsson
hrósa sér af því að framkvæma
sjálfsagða hluti, en viðurkenna
í staðinn það, sem allir vita,
að með aðgerðarleysi í skipu-
lagsmálum samfara því að leyfð
ar hafa verið einstakar stór-
byggingar flokksgæðinga eftir
geðþótta þeirra, hefur meiri-
hlutinn bakað borgarbúum stór
fellt tjón, sem greiðast verður
af útsvörum Reykvikinga á
komandi árum.
Einar Ágústsson.
Hverfaskrífstofur
B-listans s Rvík
Hverfaskrifstofur B-listans í Reykjavík eru á
eftirtöldum stöðum:
Fyrir Melaskólann: Hringbraut 30, sími 1-29-42.
Fyrir Miðbæjarskólann: Tjarnargata 26, sími 1-55-64.
Fyrir Austurbæjarskólann: Laugavegur 168, sími 2.35-19.
Fyrir Sjómannaskólann: Laugavegur 168, sími 2-35-18.
Fyrir Laugarnesskólann: Laugavegur 168, sími 2-35-17.
Fyrir Álftamýrarskólann: Álftamýri 54, sími 3-85-48
Fyrir Breiðagerðisskólann: Búðargerði 7, sími 3-85-47.
Fyrir Langholtsskólann: Langholtsvegur 91, símar
3-85-49 og 3-85-50.
Allar skrifstofurnar verða opnar frá kl. 2—10 nema
hverfamiðstöðin að Laugavegi 168. sem verður opin frá
kl. 10—10, sími 2-34-99.
Stuðningsfólk B-listansí Hafið samband við hverfaskrif-
stofurnar á viðkomandi stað. Veitið þeim allar þær upp-
lýsingar, sem að gagni mega koma við kosningaundir-
búninginn.
Kirkjusöngsnámskeið
haldið í Stykkishólmi
GÞE-Reykjavík, fimmtudag.
Dagana 4.—12. júní næstkom-
andi verður haldið kirkjusöngs-
námskeið á Stykkishólmi á veg-
Stórgjöf til Sund-
laugarsjóðs Skála-
túnsheimilisins
Ein af kvennastúkum Oddfellow-
reglunnar á fslandi — Rebekku-
stúkan nr. 4 Sigríður — hefur
fært Sundlaugarsjóði Skálatúns-
heimilisins eitt hundrað þúsund
krónur, sem verja á til byggingar
sundlaugarinnar þar á staðnum.
Stjóm Sundlaugarsjóðs þakkar af
alhug Rebekkust. nr. 4. Sigríði fyr
ir þessa stórhöfðinglegu gjöf.
OVÆNT HEIMSÓKN
GÞE-Reykjavík.
Næstkomandi mánudags-
kvöld verður sýnt í Lindarbæ
leikrit Leikfélags Hveragerð-
is Óvænt heimsókn eftir J.B.
Priestley. Leikstjóri er Gísli
Malldórsson. Leikritið hefur
verið sýnt í Hlégarði síðan
snemma í marz og hlotið afar
góða dóma.
Helztu leikendur eru Val-
garð Runólfsson, Guðjón H.
Björnsson, Aðalbjörg Jóhanns-
dóttir, Gíslunn Jóhannsdóttir,
Hjalti Rögnvaldsson og Óttar
Guðmundsson. Leikritið óvænt
heimsókn var á sínum tíma leik
ið í Þjóðleikhúsinu undir
stjórn Indriða Waage og munu
margir minnast þess síðan, en
þetta er sakamálaleikrit, og
kemur þar fram hörð ádeilda
á hugsunarhátt góðborgarans
Framhald a 14 siðu
um söngmálastjórnar þjóðkiykj-
unnar. Veitt verður tilsöng í söng,
organleik og söngstjórn, og hefur
söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, dr.
Róbert Abraham Ottósson yfirum-
sjón með námskeiði þessu, en hon-
um til aðstoðar verða þau frú
Hanna Bjarnadóttir söngkona og
Guðjón Guðjónsson stud. theol.
Þetta er fjórða námskeiðið sinn
ar tegundar úti á landsbyggðinni,
þrjú hin fyrri þóttu takast með
ágætum oig var þátttaka ágæt
Þessi námskeið eru styrkt af söng-
málasjóði, en hverjum þátttakanda
er gert að greiða kr. 1.000 en það
gjald nemur aðeins helming af
fæðiskostnaði. Kennslan í Stykkis-
hólmi mun fara fram í kirkjunni,
barnaskólahúsinu og í hljómskál-
anum á staðnum, en þátttakendur
á námskeiðinu búa á sumarhótel-
inu, sem er hið vistlegasta í alla
staði. Að sögn dr. Róberts er þetta
námskeið aðallega ætlað fyrir íbúa
á Vesturlandi, en þó ekfei eingöngu
bundið við þá. Námskeiðin eru
fyrst og fremst fyrir ungt áhuga-
fólk og kirkjuorganista.
Umsækjendur , eru beðnir að
gera sig fram hið allra fyrsta við
Víking Jóhannesson skólastjóra í
Stykkishólmi eða Róbert Abraham
Ottósson, sem gefa allar upplýs-
ingar varðandi námskeiðið.
Málfundur iðnema
Nk. námudag heldur Málfunda-
félag iðnnema í Reykjavík
málfund í Iðnskólanum (kvik-
myndasal) og hefst hann kl. 8.30.
Umræðuefni að þessu sinni verð-
ur: „Skemmtanalíf unga fólksins."
Málshefjendur verða:
Guðriý Gunnlaugsdóttir, Stefán
Ólafsson og Ragnar Snæfells.
í vetur hefur félagið haldið mál-
fundi einu sinni í mánuði og hafa
þeir jafnan verið vel sóttir og fjör-
ugar umræður um hin ýmsu mál,
sem rædd hafa verið.
Iðnnemar eru hvattir til að fjöl-
menna og taka þátt í umræðum.
MLISICA N0VA
HELDUR TÓNLEIKA
Musica Nova heldur aðra tón-
ieika sína á þessu starfsári sunnu-
daginn 8. maí kl. 5 í Kennara-
skólanum.
Flutt verða verk eftir pólska
tónskáldið Taddeusz Baird, Cast-
iglioni, Varese, Clementi og Raph-
ael. Auk þess verða flutt ný verk
eftir Leif Þórarinsson og Þorkel
Siguirbjörnsson, sem frumflutt
voru á tónleikum félagsins í Stokk-
hólmi í marz síðastliðnum.
Flytjendur verða: Simon Hunt
(flausta), Kristján Þ. Stephensen
(óbó), Gunnar Egilsson (klarin-
ett), Sigurður Markússon (fagott),
Ingvar Jónasson fiðla), Pétur Þor
valdsson (selló), ásamt píánóleik
urunum Gísla Magnússyni og Þor
keli Sigurbjrönssyni, sem jafn
framt stjórnar sumum verkanna
Ekkert verkanna á efnisskránni
hefur verið flutt hér á landi áður.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Söfnun vegna
veikinda 5
ára stúlku
GÓ-Sauðárkróki, föstudag.
Á Sauðárkróki er fimm ára gam-
alt stúlkubarn heldið meðfæddum
alvarlegum hjartasjúkdómi. Að
dómi lækna er henni nauðsyn á
umfangsmeiri rannsóknum og að
gerðum en framkvæmdar eru hér
á landi og það sem fyrst. Er í
ráði að senda stúlkuna til Banda-
ríkjanna. Slíkt kostar mikið fé,
opinber framlög takmörkuð og
ættingjar efnalitlir. Hafa því fjöl-
menn samtök á Sauðárkróki haf-
izt handa um fjársöfnun til sjóðs-
myndunar til þess að standa
straum af þessum kostnaði. Verður
fé safnað dagana 7. og 8. maí
n.k.
Kvenfélögin á Sauðárkróki og í
Skagafirði munu annast söfnun-
Framhald á bls. 14.
Fleiri konur - fleiri Framsóknarmenn í