Tíminn - 07.05.1966, Side 12
ÍÞRÓTTIR
Blémlegt íþrétta-
starf á Akranesi
- SAGT FRÁ ÁRSÞINGI Í.A.
21. ársþing íþróttabandalags
Akraness var haldið dagana 12.
og 19. marz s.I.
Á þinghiu var minnst 20 ára
afmælis ÍA og af því tilefni var
mörgum gestum boðið til þings-
ins, m.a. forseta f.S.f. Gísla Hall-
dórssyni, bæfarstjóranum á Akra-
Norræna sund-
keppnin hefst
15. maí.
Frá því 1949 hefur þriðja hvert
ár hefur verið efnt til norrænnar
sundkeppni og hefur ísland tekið
þátt í þeim öllum nema einni. Nú
í ár fer keppnin fram í 7. skiipti,
og hafa íslendingar meiri mögu-
leika til sigurs en áður vegna þess
að fyrirkomulagi keppninnar hef
nr verið breytt okkur í hag.
Keppnin hefst 15. maí n.k. og
stendur yfir til 15. september.
Nánar verður skýrt frá keppninni
I blaðinu eftir helgina.
Stefán endurkjör-
inn formaður SKÍ
Skíðaþihg 1966 var haldið á fsa-
firði um páskana. Þingið sóttu
29 fulltrúar frá 6 skíðaráðum.
Þingforseti var kjörinn Sigurður
Jónsson frá ísafirði og varafor-
seti Helgi Sveinsson frá Siglufirði.
Forseti íþróttasambands fslands
Gísli Halldórsson, kom á þingið
og ræddi um helztu mál, sem nú
eru á döfinni hjá framkvæmda-
stjórn fSÍ. Einnig sátu þingi'ð
framkvæmdastjóri og ritari ÍSÍ
þeir Hermann Guðmundsson og
Sveinn Bjömsson.
Mörg mál voru á dagskrá þings-
ins .M.a. samþykkti þingið að
Skíðamót íslands 1967 skuli fara
fram í Siglufirði og Unglinga-
meistaramótið í nágrenni Reykja-
víkur og var skíðaráðum viðkom-
andi staða falið að sjá um mótin.
Formaður var endurkjörinn, Ste
Framhald á 14. síðu.-
nesi Björgvin Sæmundssyni, bæj-
arstjórn Akraness o. fl.
Formaður ÍA , Guðmundur
Sveinbjörnsson setti þingið og
bauð fulltrúa og gesti velkomna
og rakti tildrög að stofnun banda-
lagsins.
Gísli Halldórsson forseti Í.S.Í.
flutti ávarp og þakkaði hið mikla
starf ÍA á undanförnum árum í
þágu íþróttahreyfingarinnar. Þá
afhenti hann bæjarstjóranum á
Akranesi heiðursskjal frá Í.S.Í.
sem viðurkenningu til Akranes-
bæjar fyrir gott framlag bæjar-
ins til íþróttamála og byggingu
íþróttamannvirkja á undanförnum
árum. Að lokum sæmdi hann Guð-
mund Sveinbjörnsson heiðurs-
orðu f.S.Í. fyrir mikið og óeigin-
gjarnt starf í íþróttamálum.
Forsetar þingsins voru kjörnir
Óðinn S. Geirdal og Ólafur I. Jóns
son og ritarar Helgi Daníelsson
og Einar J. Ólafsspn.
Þá voru fluttar skýrslur stjórn-
ar ÍA og sérráða. Fer hér á eftir
það helzta úr starfseminni á liðnu
Golfklúbbur Akraness.
Að tilhlutan ÍA var stofnaður
Golfklúbbur Akraness og voru
stofnendur 15. Klúbburinn hefur
fengið land í Garðalandi til starf-
semi sinnar og hafið þar fram-
kvæmdir við undirbúning að golf-
vellL
Knattspyrna.
Flokkar ÍA tóku að venju þátt
í jandsmótum og var árangur
þeirra yfirleitt ágætur. Meistara-
flokkur varð nr. 2 í 1. deildar-
keppninni og A lið ÍA komst í
úrslit í Bikarkeppni KSÍ, en tap-
aði þeim leik. II. flokkur sigraði
í Bikarkeppni 2. flokks annað ár-
ið í röð. Þrír leikmenn ÍA léku
með landsliðinu á árinu, þeir Rík-
arður Jónsson, sem lék sinn 33.
landsleik, Helgi Daníelsson sem
lék sinn 25 landsleik og Eyleifur
Hafsteinsson. Hafa þeir Ríkarður
og Helgi leikið flesta landsleiki
allra íslenzkra knattspyrnumanna.
Þá lék Eyleifur með unglingalands
liðinu og var jafnframt fyrirliði
liðsins. Guðjón Finnbogason, sem
annast hefur þjálfun meistara-
flokks undanfarin tvö ár lét af
því starfi um s.l. áramót, en Rík-
Framhald á bls. 14.
Körfuknattleiksmenn
efna til happdrættis
Körfuknattleikssamband íslands
er um þessar mundir í miklum
fjárhagsvandræðum, og hefur í
því sambandi efnt til nýstárlegs
happdrættis. Um þetta segir
fréttatilkynningu KKl.
„Hin vaxandi starfsemi KKÍ hef
ur för með sér að reksturskostn-
aður sambandins fer hækkandi.
Vonir stóðu til að landsleikir þeir
sem háðir voru hér í Reykjavík
mundu skila nokkrum hagnaði, en
það fór á annan veg, þar sem
106 þúsund króna halli varð af
þessum heimsóknum. Utanferð
landsliðsins á Norðurlandameist-
aramótið kostaði einnig mikið fé.
Til þess að afla tekna hefur
KKÍ ráðist í happdrætti, sem er
með nokkuð óvenjulegum hætti.
Happdrættismiðarnir eru aðeins
350, en vinningar eru 3, það er
1 Volkwagenbifreið og tveir auka-
vinningar að 5000 króna verðmæti.
Verð hvers miða er krónur 1000,
en dregið verður eftir fáa daga,
eða 15. maí n. k.
Það er von stjórnar KKÍ, að
sem flestir vilja styðja KKÍ
með því að kaupa miða. Miðar
fást hjá öllum stjórnarmönnum
KKÍ ,en einnig er hægt að panta
miða með því að hringja í síma
þeirra:
Magnúsar Björnssonar 16600 og
20779, Gunnars Petersen 17414,
Helga Sigurðssonar 38500 og 41945
Ásgeirs Guðmundssonar 24558,
Þráins Scheving 16126 og 11437,
Guðjóns Magnússonar 35114, Boga
Þorsteinssonar, Keflavíkurflug-
velli 3246, 6275 og 7261.“
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 7. maí 1966
Þessi sigurdans Liverpool-leikmanna endurtók sig ekki í Glasgow.
aðsókn hjá
Arsenal
í fyrrakvöld léku Arsenal og
Leeds í 1. deild á Englandi og
sigraði Leeds 3:0. Úrslitin hafa
engin áhrif á keppnina, en engu
að síður verður leikurinn þó
minnisstæður, því sjaldan eða
aldrei hafa verið eins fáir á
horfendur að leik í 1. deild á
Engl. Aðeins 4 þús. og 5 hundr.
áhorf. sáu leikinn, sem fram
fár á velli Arsenal á Higbury
í London. Þessi dræma aðsókn
er áfall fyrir Arsenal.
Uverpool missti
af Evrópubikarnum
- tapaðí fyrir Borussia Dortmund í úrslitum 1:2.
Lierpool missti af Evrópubikam
um (keppni bikarhafa), þegar lið
ið tapaði fyrir þýzku meistur-
unum Borussia Dortmund í úr-
slitaleik keppninnar, sem háður
var í Hampden Park í Glasgow
í fyrrakvöld. Þjóðverjarnir unnu
leikinn 2:1 eftir framlengingu og
var sigurmarkið skorað, þegar 2
mínútur voru liðnar af síðari liluta
framlengingar. Liverpool var í
sókn meiri hluta Ieiksins — og
pressaði 75% leiktímans að marki
Þjóðverjanna.
í hinum venjulega leiktíma
tókst hvorugu liðinu að skora
mark í fyrri hálfleik, en á 62.
mínútu skoruðu Þjóðverjarnir
fyrsta mark leiksins. Og aðeins sex
Knattspyrna
um helgina
Reykjavílrurmótið í knattspymu
hefst í dag með leik á milli KR og
Þróttar á Melavelli kl. 14. Á
suanudagskvölú kl. 20.30 leika
Valur og Víkingur og á mánudags
kvöld á sama tíma Fram og KR.
Á sunnudag verður leikið í
Litlu bikarkeppninni. Á Akranesi
mæta heimamcnn Keflavík kl.
15.30, — og í Hafnarfirði leikur
FH gegn Breiðabliki kl. 15.
Sumardvöl
Eins og undanfarin sumur
verða sumarbúðir í skíðaskála
K.R. í Skálafelli.
í sumar er ákveðið að hafa
tveggja vikna námskeið, hið
fyrra fyrir drengi á aldrinum
7 til 11 ára á tímabilinu 18.
júní til 2. júlí. Hið síðara verð
ur fyrir telpur, 7 til 11 ára,
og verður það á tímabilinu 2.
júlí til 16. júlí.
Hannes Ingibergsson kennari
og frú Jónína Halldórsdóttir
munu veita námskeiðunum
mínútum síðar jafnaði Liverpool
1:1. Það var Roger Hunt, sem
skoraði markið, eftir að hafa feng
ið sendingu frá Callaghan.
Mikil spenna var í loftinu alla
framlenginguna. Staðan var enn
jöfn eftir fyrri hluta framlegning
ar, en eins og áður segir skoruðu
Þjóðverjar sigurmark sitt á 2. mín
Fram og FH lcku í íþróttahöll
inni í Laugardal í gærkvöldi og
lauk viðureigninni svo, að Fram
sigraði FH, með tveggja marka
mun, 25:23, eftir spennandi Ieik.
Til að byrja með höfðu íslands
meistarar FH yfir, en Fram smám
saman minnkaði bilið og náði
öruggri forustu snemma í ‘ síðari
hálfleik og sigraði verðskuldað.
Margir höfðu beðið eftir leik
þessara liða á stórum velli —
og hefur Fram nú reynzt sterkari
aðilinn í fyrstu umferð. Þess ber
að gæta, að forföll voru í báðum
liðum, svo ekki er rétt að miða
eingöngu við þennan leik. Þannig
vantaði FH bæði Ragnar og Geir,
en Fram vantaði Sigurð Einarsson,
Tómas og Gylfa Hjálmarsson. —
í KR-skála
forstöðu, eins og undanfarin
ár.
Börnin dveljast við íþróttir,
úti og innileiki eftir veðri.
Skipulögð veður létt vinna og
gönguferðir um nágrennið, t.d.
gengið á Skálafell og að Trölla
fossi.
Kvöldvökur verða og fastur
liður, þar sem börnin skemmta
sjálf, auk þess sem þeim verða
sýndar kvikmyndir.
Frekari upplýsingar eru
veittar í síma 24523.
í síðari hluta framlengingar, hélf-
gert klaufamark, sem skrifast á
reikning Lawrence í Liverpool-
markinu. Og þrátt fyrir stanzlausa
pressu, það sem eftir var leiktím-
ans, tókst ensku meisturunum
ekki að jafna stöðuna.
Þessi úrslit eru mikið áfall fyrir
Framhald á bls. 14.
í hálfleik hafði FH eitt mark yfir,
13:12. Flest mörk Fram skoraði
Gunnlaugur 12, en hjá FH skor
aði Páll mest, 8 mörk. Með liði
Fram lék Karl Benediktson, þjálf
arið og var Iiðinu mikill styrkur.
Björn Kristjánsson dæmdi Ieikinn
vel.
Á undan Iéku KR og Vikngur
— og urðu úrlit þau, að KR sigraði
með 19:17 og var sá sigur verð
skuldaður.
........■■■■—■ ■■
Skíðahátíð
Ármenninga
Ármenningar halda sína
árlegu Gamalmennahátíð í
Jósepsdal um helgina. Á
laugardaginn stendur til að
keppni verði háð í ýmsum
greinum fyrir eldri félaga,
og á laugardags kvöldið
verður ýmislegt til skemmt-
unar í skála félagsins, svo
sem ný skíðakvikmynd o.fl.
Á sunnudaginn verður efnt
til skíðaferðar í Bláfjöllin.
Dráttarbrautin verður í
gangi í Ólafsskarði bæði
laugardag og sunnudag.
Stjórn skíðadeildarinnar
leggur áherzlu á að sem
flestir félagar mæti á gam-
almennahátíðinni, en þó sér
staklega eldri félagar.
Fram sterkara en
FH í stóra salnum