Vísir - 07.11.1974, Side 2
2
Vfsir. Fimmtudagur 7. nóvember 1974.
visntsm'-
Ætlar þú á Slade hljóm-
leikana?
Margrét Svavarsdóttir, nemi: —
Já, ég býst nú viö þvi. Samt hef
ég varla efni á að fara, en þaö
reddast einhvern veginn. Nei, ég
á enga hljómplötu með hljóm-
sveitinni Slade.
Gisli Ragnarsson, nemi: — Nei,
ég kemst ekki á hljómleikana. Ég
eralveg blankur. Mér likaralveg
sæmilega músikin sem þeir spila.
Una Einarsdóttir, nemi: — Ég er
ekki viss hvort ég fer á hljómleik-
ana. Ég á engan pening en
kannski reyni ég að biðja mömmu
að bjarga málunum.
Friörik Jóhannsson.nemi: — Nei,
ég hef ekki neinn áhuga á að fara.
Ég er ekki hrifinn af músik eins
og þeir spila. Þó að ég ætti nógan
pening mundi ég ekki fara.
Rögnvaldur Guðmundsson,nemi:
— Nei, alveg ábyggilega ekki.
Mér finnst músikin þeirra léleg
og mundi ekki tima að eyöa
peningum I hljómleika með
Slade.
Jón Guðni Kristinsson, nemi: —
Nei, ég ætla ekki að fara á þessa
hljómleika. Mér finnst þeir ekki
vera þess virði að eyða i þá
peningunum. Þar að auki finnst
mér músikin léleg.
LÍKA SAMKEPPNI FYRIR KARLMENN!
„Einn framtakssamur” hefur
hugmynd fram að færa:
„Þið hjá Visi hafið tvö undan-
farin ár verið með samkeppni
meðal ungra stúlkna um utan-
ferðir. Þið birtið myndir af þeim
i litum á forsiðu, og almenningi
gefst siðan kostur á að velja þá
sem hljóta skal hnossið. Lang-
flestir hafa mjög gaman af
þessu, og ég veit að margir taka
þátt i atkvæðagreiðslunni.
En hvernig væri að taka sams
konar keppni upp meðal sterk-
ara kynsins, og þá með sama
fyrirkomulagi og er hjá stúlkun-
um, að sigurvegarinn fengi
sólarreisu, eða frostreisu, i
verðlaun. Ég er viss um, að
þetta mundi skapa góða til-
breytingu, og þáttur okkar karl-
■BBamaMMamOHBHOaMHHIBBBH
manna yrði ekki siður vinsæll en
þáttur kvenþjóðarinnar.
Lesendur ættu örugglega ekki
i neinum vandræðum með að
velja þann „fallegasta” okkar
og senda úr landi.
Jafnvel rauðsokkar munu
berjast með okkur i þessu (ekki
satt?). Hvernig væri svo að fá
að heyra álit kvenþjóðarinnar á
þessari hugmynd?”
Það er vist bezt að hamra
járnið meðan það er heitt og
minna lesendur á atkvæða-
greiðsluna i keppninni sem nú
stendur yfir. Atkvæðaseðlar
birtust siðast i Visi á mánudag,
og allir seðlar verða að hafa
borizt blaðinu fyrir föstudags- :j
kvöld 8. nóvember.
■■■■■■■■■■HHHHHBHHSSBBBEDHHHfl
Jónas frá Skuld, Alseyjarlundakall, velur sér gómsætan bita á
lundahátiðinni I Vestmannaeyjum. Ljósmyndir: GS.
„Má bjóða þér bita?” — Súlli og Tóti smakka á lundanum áður
en hátiðin hefst.
Lundakallar úr öllum út-
eyjum héldu sér ærlega
lundaveizlu í Samkomu-
húsinu í Vestmannaeyj-
um um síðustu helgi.
Þarna voru snæddir 600
lundar (300 reyktir og 300
steiktir). Lundakallarnir
sáu sjálfir um allt
skemmtiefni. Sungnar
voru vísur um helztu eyj-
arnar og bændurna á
þeim. Sýndar voru mynd-
ir og ýmislegt fleira sér
til gamans gert, og að
lokum var svo dansað til
klukkan þrjú um nóttina.
— GS/SH.
Hér er lundinn hamflettur. ósk-
ar og Hjalti eru meðai yngstu
lundakalla i Eyjum.
300 REYKTIR OG 300 STEIKTIR LUNDAR
HURFU Á EINU KVÖLDI
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Hallgrímskirkja er
meira en sóknarkirkja
„Borgari” skrifar:
„1 Visi hal'a komið fram mis-
jafnar skoöanir vegna væntan-
legra prestskosninga við Hall-
grimssókn, og leyfi ég mér aö
leggja nokkur orð i þann orða-
sjóð.
Hallgrimskirkja á Skóla-
vörðuhæð er þjóöarkirkja, enda
reist til minningar um séra
Hallgrim Pétursson, af fleiri en
þeim er teljast til sóknarbarna
kirkjunnar. Tel ég ósanngjarnt
að fámennur hópur þjóðarinnar
velji þar menn til ævistarfa.
Hallgrimskirkja á að vera op-
in öllum þeim er Guðs orð vilja
flytja og heyra, en að sjálfsögðu
geta prestar Hallgrimssafnaðar
fengið forgang að helgihaldi I
kirkjunni.
Við megum ekki gera Hall-
grimskirkju að monthúsi eða
sýningargrip, kirkjan hefur allt
öðru hlutverki aö gegna.
Ekki er þaö ætlun min að rýra
þá menn er þjónað hafa kirkj-
unni undanfarinár.þeir hafa all-
ir gert það með mesta sóma, en
nota mætti Hallgrimskirkju I
miklu viðari. tilgangi i framtið-
inni til helgihalds, bæði á rúm-
helgum sem helgum dögum.”