Vísir - 07.11.1974, Page 5
Visir. Fimmtudagur 7. nóvember 1974.
1 REUTER
A P
UTLÖNDI MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND
Umsjón Haukur Helgason
Frjálslyndið sigrar
nú í suðurfylkjunum
t suðurfylkjum Bandarikj-
anna, þar sem ihaldssamir
demókratar drottnuðu til
skamms tima, varð hreyfing i
átt til frjáislyndis i kosningun-
um i fyrradag.
Magrir demókratanna, sem
nú sigruðu i þing- og fylkis-
stjórakosningum, létu kyn-
þáttamál lönd og leið og boðuðu
,,ný suðurfylki”.
Þrir nýir öldungadeildar-
menn, Dale Bumpérs, sem var
áður vinsæll fylkisstjóri i
Arkansas, Robert Morgan i
Norður Karólinu og Richard
Stone i Florida, eru allir þekktir
að frjálslyndri stefnu i kyn-
þáttamálum. Þeir unnu allir
þingsæti, sem áður voru i
höndum ihaldssamra.
I Florida var Reubin Askew
endurkjörinn fylkisstjóri með
yfirburðum, þótt hann styddi þá
skipan að aka skólabörnum
milli hverfa til að blanda
hvitum og svörtum sem mest.
í Georgiu vann hinn frjáls-
lyndi fylkisstjóri George
Bushbee yfirburðasigur á öfga-
fullum hægri sinna, Ronnie
Thompson borgarstjóra i
Macon, sem hefur viðurnefnið
„vélbyssan”.
Thompson fékk viðurnefni
sitt, eftir að hann hafði skotið
á leyniskyttu i Macon. Siðar
skipaði hann lögreglu borgar-
innar að skjóta menn til bana,
ef þörf gerðist til að stöðva
ræningja. Hann lét setja upp að-
vörunarskilti, þar sem likams-
árásarmenn voru varaðir við,
að þeir yrðu skotnir. Einnig
keypti hann skriðdreka af um-
frambirgðum hersins til að nota
I götuóeirðum.
I Tennessee er nýkjörinn
fylkisstjórí talinn „alþýðusinn-
aður demókrati”. Hann hefur
gagnrýnt oliufélög fyrir of
mikinn ágóða. Fylkisstjórinn,
Ray Blanton, greiddi atkvæði
gegn umbótum i kynþátta-
málum, þegar hann var á þingi
en siðar snerist honum hugur,
og hann hlaut mikið fylgi
blökkumanna i borgunum
Memphis og Nashville.
í Memphis var svertinginn
Harold Ford, demókrati,
kjörinn i kosningum til fulltrúa-
deildarinnar. Hann velti úr sessi
Ihaldssömum repúblikana, Dan
Kuykendall.
Blóð og tár
Eldur og reykur I verzlunarhúsum f Belfast f morgun, eftir að mikil sprenging varð f vörubifreið f göt-
unni Musgrave Street. Dagiega eru fréttir um skemmdarverk og manndráp vegna átakanna á Norð-
ur-trlandi.
138 HAFA FALLIÐ
FYRIR MORÐINGJUM
Umsátursástandi var i
gær lýst yfir i Argentinu
vegna baráttu stjórn-
valda við vaxandi öldu
pólitiskra ofbeldisverka.
Nú fær lögreglan og herinn, ef
rikisstjórnin kýs að beita honum,
alger völd til að handtaka fólk og
gera húsleit. Það er i fyrsta sinn,
siðan borgaraleg rikisstjórn tók
við af hernum fyrir 17 mánuðum,
að slikt ástand skapast.
Innanrikisráðherrann, Alberto
Rocamora, tilkynnti um
umsátursástandið, sem eru I
reynd herlög með vægari hætti.
„Ofbeldisbylgjan er komin i þær
öfgar, að lifi skólabarna er hætta
búin,” sagði hann.
Siðan Maria Estela Peron
komst til valda I forsetaembætti
að eiginmanni sinum látnum, 1.
júli, hafa 138 manns verið myrtir
af öfgahópum hægri og vinstri
manna.
Stuðningsmenn rikisstjórnar-
innar fögnuðu yfirlýsingunni um
að svipta landsmenn, 25 milljónir,
borgaralegum réttindum.
Stjórnarandstæðingar, sem eru i
niu flokkum á þingi, munu senni-
lega fara varlega i gagnrýni á
þessari ákvörðun rikisstjórnar-
innar.
Ungir byltingarsinnaðir
perónistar hafa nýverið tekið
höndum saman við borgaskæru-
liða marxista I baráttu gegn
rikisstjórninni. Morðsveitir, sem
kallast samtök argentinskra and-
kommúnista, AAA, hafa myrt
fjölda vinstri manna.
öfgamenn hafa nú siðast hótað
að drepa kennara og skólabörn.
Allt hefur verið I kalda koli I Argentlnu, siðan ekkja Perons, Maria
Estella, tók við stjórn.
Viðurkenna
loks
samdráttinn
Fjármálaráðherra Bandarikj-
anna, William Simon, viður-
kenndi I dag i fyrsta skipti, að
samdráttur rikti i efnahagsmál-
um iandsins.
Hann sagði hópi hagfræðinga i
Chicago: „Ég álit, að sú mein-
semd, sem nú er i efnahagsmál-
um, verði siðar bókfærð sem
samdráttur”.
Stjórnin hefur hingað til neitað
að viðurkenna þetta.
Simon sagði, að stjórnin mundi
hvergi hopa i boðaðri stefnu sinni
i efnahagsmálum þrátt fyrir sig-
ur demókrata i kosningunum.
MeHumomma
tapaði
naumlega
Meira var um vln en konur i
nótt, þegar Beverly Harrell, er
rekur hóruhús i Nevada, tapaði
kosningum til fylkisþings fyrir
eiganda vinbúðar, Don Moody.
Hin lágvaxna og bláeyga
Harrell tapáði með 2.674 at-
kvæðum gegn 2.552.
Þó héldu stúlkur hennar og
viðskiptavinir hátiðlega fyrstu
tilraun „mellumömmu” i sögu
Bandarikjanna til að ná kosn-
ingu á þing. Glaumur og gleði
var rikjandi. Vændishús eru
leyfð i Nevada.
Námumenn og kúrekar byrj-
uðu fagnaðinn, þegar fyrstu töl-
ur gáfu til kynna, að Harrell
mundi hafa betur. Hún hafði
sigrað Moody i forkosningum
demókrata, en hann bauð sig
fram engu að siður, þar sem
enginn repúblikani var i fram-
boði.
Ford vill
grafa
stríðsöxina
Ford Bandarikjaforseti segist
reiðubúinn að grafa striðsöxina i
stjórnmálunum og starfa með
þinginu að endurreisn efnahags-
ins og öðrum vandamálum. Hann
segist munu ganga meira en hálfa
leið til móts við demókrata, sem
liafa yfirburði á þingi.
Leiðtogi demókrata i öldunga-
deildinni, Mike Mansfield, sagði
Ford i gær, að demókratar
mundu vinna með honum i
baráttu við verðbólgu. „Ég
vona,” sagði Mansfield, ,,að við
getum hafið samstarf, nú þegar
kosningarnar eru afstaðnar, og
ég veit, að þú vilt það. Ég get full-
yrt, að öldungadeildin vill það, og
ég er viss um, að fulltrúadeildin
gerir það einnig.”
Staðan er þessi eftir kosning-
arnar (talningu er ekki lokið á
fjórum stöðum):
Fulltrúadeild:
Demókratar 292, repúblikanar
143. Demókratar bættu þar við sig
44 sætum.
öldungadeild:
Demókratar 61, repúblikanar
36. Demókratar bættu við sig
þremur, en i morgun var enn
óvist um úrslit i Oklahoma,
Nevada og Norður Dakóta.
Dularfull drápsfœki
\
Menn biða spenntir eftir að líta manna, sem liklega verða sýnd I
augum ýmis ný vopn Sovét- dag á 57 ára afmæli byltingarinn-
ar.
Hersýning verður með hefð-
bundum hætti á Rauða torgi.
Fulltrúar Vesturlanda hafa
einkum áhuga á hinni dularfullu
„x” eldflaug, svo og vopnum,
sem voru notuð I Mið-Austurlönd-
um og Vietnam. „x” flaugin var
rétt sem snöggvast sýnd hernað-
arfulltrúum að vestan fyrr á ár-
inu. Einnig beinist athyglin, að
litlum skeytum til að granda flug-
vélum, sem hermenn geta skotið
af öxlinni.
Fylkisstjórar:
Demókratar 36, repúblikanar
12, óháður 1. Demókratar bættu
við sig fjórum, en óljóst er um úr-
slit I Alaska. (íblaðinui gær varð
villa i þessum úrslitum sakir
skekkju i fréttaskeyti að utan).