Tíminn - 08.05.1966, Síða 1
32 SIÐUR
Aögtýsin.g í Tímanum
feemur dagJega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Gerizt áskrifendur ai
Tímanum.
Hringið í síma 12323.
103. tbl. — Sunnudagur 8. maí 1966 — 50. árg.
Börn aö leik
Ekkcrt er hollara börnum, en
dveljast að sumarlagi á góðum
dvalarstöðum við útiveru og
leiki, góða aðhylnningu og
gæzlu. Minni myndin er af
sumardvalarheimili Rauða-
krossins við Laugarás og hin
sýnir böm að leik í fögru um-
hverfi baðað sumarsól. Hve
margir foreldrar í þessari borg
myndu ekki kjósa að geta kom
ið bömum sínum til dvalar á
slíkum stöðum — en eiga þess
ekki kost. Ljóst er, að úrbóta
í þeim málum er ekki að finna
hjá þeim meirihltua. sem nú
fer með stjórn Reykjavíkurborg
ar.
Meirihlufi Sjálfstæðisflokksins í horgarstjórn segir:
Ekki þorf fleiri sumar-
dvalarstaða fyrir börn!
TK-Reykjavík, laugardag.
Eins og skýrt hefur verið frá
í blaðinu fluttu borgarfulltrúar
Framsóknarflokksins tillögu um
það á borgarstjórnarfundi s.l.
fimmtudag, að borgin beitti sér
fyrir því. að börn allt að 11 ára
aldri ættu kost að komast til sum-
ardvalar í sumar við hóflegu verði.
Þessari tillögu vísaði meirihluti
Sjálfstæðisfiokfksins frá og vísaði
til þess, að þessi mál væru í góð-
um höndum fræðslustjóra, taldi
að mikið hefði verið gert í þessum Reynist svo, að þeir aðilar, er
að sem flest börn borgarinnar eigi
kost nokkurrar sumardvalar, þar
sem þau geti kynnzt nýjum og
þroskandi viðfangsefnum og kom-
izt í snertingu við dýralífið í sveit-
Samþykkir borgarstjórnin að
beita sér fyrir því, að börn allt
að 11 ára aldri, er óska að komast
til sumardvalar á sumri komanda
eigi þess kost við hóflegu verði.
málum á undanförnum árum og
ekki þörf frekari afskipta borgar
stjórnar af þeim. Kom þar enn
fram, að meirihlutinn í borgar-
stjórn Reykjavíkur virðist eiga af-
ar erfitt með að skilja vandamál
heimilanna, finnst mikið gert á
öllum sviðum og ekiki þörf frekari
aðgerða.
Tillaga borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins var svohljóðandi:
„Borgarstjórn Reykjavíkur telur
mikilvægt og leggur á það áherzlu,
undanfarin ár hafa séð um sum-
ardvalir Reykjavíkurbarna, geti
ekki annað eftirspurninni nú í vor,
felur borgarstjórnin borgarstjóra
og borgarráði að taka á leigu nauð
synlegt húsnæði ,t.d. heimavistar-
skóla, þar sem hentugt er að hafa
sumardvalarheimili.
Til að standa straum af kostnaði
við þessa starfsemi svo og til að
auðvelda tekjulágum og barnmörg
Eh-amhald á 14. síðu
Þetta
er
smán
Alþýðublaðið birti í fjrra
dag áhrifaríka stórfrétt á
forsíðu, ásamt myndum af
átta manna fjölskj’ldu, sem
býr í kofaræksni, sem er að-
eins fimmtán fcrmetrar og
ekki mönnum bjóðandi. Og
blaðið sagði: ÞETTA ER
ENN TIL f REYKJAVÍK.
Hér var bent á mjög alvar
legt mál, sem er smánar-
blettur á stjórn borgarinn
ar, að annað eins og þetta
skuli vera til i Reykjavík,
þar sem meginþorri manna
býr í góðum húsakynnum
og sumir í höllum.
En hvemig tekur Morg-
unblaðið á þessu? Það ræðst
með fáryrðum að Alþýðn
blaðinu fjrir það að sjá
þetta og segja frá því. Það
birtir myndir af forsíðunni
sem það telur hneykslunar
verða og segir með vandlæt
ingu: Það er þetta „sem
Alþýðublaðið sér í Reykja
vík.“
Morgunblaðið segir, að
menn eigi ekki að horfa á
þetta, heldur falleg hús og
rúmgóð heimili vel stæðra
borgara og svo kauphallim
ar allar.
En borgararnir í Reykja-
vík munu segja: Það er ein
mitt á þetta, sein menn eiga
að horfa á og muna eftir,
meðan það er til, og kref jast
þess að stjórnendur borgar
innar leggi sig alla fram um
að útrýma því í stað þess
að hneykslast á því að aðrir
skuli sjá það.
Framhaid á 14. síðu
130 millj. innstæðuaukn-
ing í Samvinnubankunum
Tímanum hefur borizt fréttatil-
kynning um aðalfund Samvinnu-
bankans, sem haldinn var laugar-
daginn 2. aprfl 1966. Innstæðu
Samvinnubankinn við Bankastræti.
I aukning á árinu varð 130 milljón-
ir, sem er hlutfallslega mest aukn
ing meðal bankanna. Þá var sam-
þykkt á fundinum að fela stjórn
bankans að vinna að undirbúningi
stofnlánadeildar.
Fundarstjóri var kjörinn Guð-
röður Jónsson, kaupféLstj., Nes-
kaupstað og fundarritari Ásgeir
Magnússon, framkv.stj.
Formaður bankaráðsins Erlend-
ur Einarsson forstjóri flutti
skýrslu þess um starfsemi bank-
ans síðastliðið ár, og kom þar
fram að mikill vöxtur var í allri
starfsemi bankans og að aukning
innstæðna var meiri en nokkurt
annað ár. Á árinu tóku útibú
bankans í Keflavík og á Húsavík
til starfa í nýjum húsakynnum.
Samvinnubankinn starfrækir nú
sjö útibú og þrjár umboðsskrif-
stofur.
(Tímamynd Bj. Bj.) Einar Ágústsson, bankastjóri.
lagði fram endurskoðaða reikninga
bankans og skýrði þá. Heildarinn-
stæður í Samvinnubankanum í árs-
lok 1965 námu 401.6 millj. kr. og
höfðu hækkað um 130.0 millj. kr.
á árinu eða 47.8%, sem er hlut-
fallslega mest aukning meðal bank
anna. Hlutur útibúa bankans í inn-
lánsaukninguni var 71.9 millj. kr.
Yfirtekir voru á árinu Sparisjóð-
ur Kaupfélags Þingeyinga, Spari-
sjóður Norður-Þingeyinga og Inn-
lánsdeild Kaupfélags Tálknafjarð-
ar með innstæðum samtals 13.0
millj. kr. Nemur hrein innstæðu-
aukning í bankanum þannig 117.0
millj. króna. Heildarútlán bank-
ans námu í árslok 1965 kr. 300.2
millj.
Samþykkt var á fundinum að
fela stjórn bankans að vinna að
undirbúningi stofnlánadeildar við
Samvinnubanka.
Endurkjörnir voru í bankaráð
Framhald á bls. 14.