Tíminn - 08.05.1966, Side 16
fW
<é
103. tbl. — Sunnudagur 8. maí 1966 — 50. árg.
Byrjað að byggja safnáðár-
heimili fyrir Grensássókn
FtB—Reykjavík, laugardag.
Klukkan 14 í dag tók séra Felix
Ólafsson, sóknarprestur Grensás-
sóknar fyrstu skóflustunguna að
byggingu safnaðarheimilis fyrir
Grensássókn við hátíðlega athöfn
á kirkjulóð sóknarinnar á Hvassa-
leitisásnum. Viðstaddur athöfn-
ina var biskupinn yfir íslandi, hr.
Sigurbjörn Einarsson og flutti
hann ávarp. Formaður sóknar-
nefndar, Magnús Gíslason, náms-
stjóri greindi frá undirbúningi að
byggingu safnaðarheimilisins, og
kirkjukór söng.
Aðstaða til safnaðarstarfs hef
ur verið og er mjög erfið, þar sem
ekkert húsnæði fyrirfinnst innan
sóknarinnar til guðsþjónustuhalds
og safnaðarstarfs. Síðan söfnuður
jnn var stofnaður, hafa guðsþjón-
ustur og önnur starfsemi safnaðar
ins farið fram í Breiðagerðisskóla
eða utan sóknarmarkanna,
Vonir standa til,-að unnt reynist
að leysa húsnæðisvandann og
koma upp safnaðarheimili á árinu
sem fullnægir húsnæðisþörfinni.
Jósef Reynis, arkitekt, hefur
teiknað safnaðarheimilið, en verk
fræðiþjónustu hefur Stefán Óíafs
son, verkfræðingur, annazt. Grunn
teikningar og líkan af safnaðar-
heimilinu hefur legið frammi á
safnaðarfundi. í safnaðarheimil-
inu verður rúmgóður salur til
guðsþjónustuhalds og félagsstarf-
semi á vegum safnaðarins. Auk
þess verður þar minni salur til
fundarhalda, skrifstofa sóknar-
prestsins, eldhús, forstofa og fata
geymslur, auk annars nauðsynlegs
rýmis. Mun safnaðarheimilið vænt-
anlega ekki hvað sízt verða æsku
lýðsheimili sóknarinnar og leysa
brýna þörf á því sviði.
Á vegum sóknarnefndarinnar
hafa tvær nefndir starfað að und-
irbúningi fyrirhugaðra fram-
kvæmda.
Undir forustu Atla Ágústsson-
ar, verkstjóra hefur starfað 3ja
manna framkvæmdanefnd. Hefur
hún nú verið aukin .og verður hún
maður nefndaripnar er Guðmund-
Framhald á bls. 14.
Hverfaskrífstofur
B-Hstans í Rvík
Hverfaskrifstofur B-listans í Reykjavík eru á
eftirtöldum stöðum:
Fyrir Melaskólann: Hringbraut 30 sími 1-29-42.
Fyrir Miðbæjarskólann: Tjarnargata 26, sími 1-55-64.
Fyrir Austurbæjarskólann: Laugavegur 168, sími 2.35-19.
Fyrir Sjómannaskólann: Laugavegur 168, sími 2-35-18.
Fyrir Laugarnesskólann: Laugavegur 168, sími 2-35-17.
Fyrir Álftamýrarskólann: Álftamýri 54, sími 3-85-48
Fyrir Breiðagerðisskólann: BúðargerSi 7, sími 3-85-47.
Fyrir Langholtsskólann: Langholtsvegur 91, símar
3-85-49 og 3-85-50.
Allar skrifstofurnar verða opnar frá kl. 2—10 nema
hverfamiðstöðin að Laugavegi 168 sem verður opin frá
kl. 10—10, sími 2-34-99.
Stuðningsfólk B-listansi Hafið samband við hverfaskrif-
stofurnar á viðkomandi stað. Veitið þeim allar þær upp-
lýsingar, sem að gagni mega koma við kosningaund*r-
búninginn.
BAZAR
í dag klukkan tvö hefst bazar Framsóknarkvenna að Tjarnar-
götu 26. Á bazarnum er f jöldinn allur af vönduðum munum, mik
ið er þar af ódýrum barnafötum, sokkum, vettlingum og alls
kyns öðru prjónlesi. Þar má einnig fá bastvörur og uppstoppuð
dýr. Púðar eru þarna af öllum gerðum, og skemmtilegar vegg-
myndir með applíkeruðum myndum, sem sérstaklega eru æflað
ar börnum. Það er sannarlega þess virði að líta inn að Tjarnar
götu 26, og sjá, hvort ekki sé þar eitthvað á boðstólum, sem
húgurinn kann að gimast. Myndina hér að neðan tók Bj. Bj. og
sýnir hún nokkurn hluta þess, sem á bazarnum verður til sölu.
' ; « , " •
Áburðardreifing Kjalnesinga á afréttarlönd ber árangur:
FALLÞUNGISAUÐFJÁR-
INS HEFUR AUKIZT
EJ—Reykjavík, laugardag.
Búnaðarsamband Kjalarnesþings
hefur um nokkurt árabil staðið fyr
ir dreifingu áburðar á afréttalönd
í samvinnu við Sandgræðslu ríkis
ins. Bændur telja nú almennt, að
þeir hafi þegar séð nokkum árang
ur af þessari starfsemi í aukn
um fallþunga sauðfjárins, og þeir,
sem um heiðamar ganga, sjá
greinilegan mun á gróðri, þar
sem borið hefir verið á.
Skrifstofur Frams. f!.
Skrifstofur Framsóknarflokks-
ins Tjarnargötu 26 eru opnar frá
kl. 9—12 og 1 til 10 síðdegis. Sím
ar 1-60-66, 1-55-64, 1-29-42 og
2-37-57.
Kosningaskrifstofa: Vegna utan-
kjörstaðakosningamra er í Tjarn
argötu 26 símar sömu og getið
er hér á undan, ennfremur sími
1-96-13.
Sjálfboðaliðar óskast til aðstoð
ar við kosningaundirbúninginn, og
til starfa á kjördag. Vinsamlegast
hafið samband við skrifsitofuna í
Tjarnargötu 26, eða hverfaskrif
stofnunnar.
HITAVEITAN
Þetta kom fram á aðalfundi Bún
aðarsambands Kjalamesþings, seim
haldinn var að Hlégarði í Mosfells
sveit 29. apríl s. 1.
Tilgangur þessarar áburðardreif
ingar er margþættur, svo sem að
koma í veg fyrir að landið blási
upp, styrkja og auka afköst þess
gróðurs, sem fyrir er, og græða
upp aftur örfoka land. Á starfs
árinu var dreift um 40 tonnum á
sambandssvæðinu. Á fundinum var
samþytokt tillaga um, að samband
ið stæði fyrir áburðardreifingu á
afréttarlönd í svipuðu formi og
verið hefur, eftir því, sem landeig
endur legðu fram peninga til
áburðatkaupa.
Jóhann Jónasson, formaður sam
bandsins, flutti skýrslu um störf
Framsóknarflokkurinn hefur
árum saman barizt fyrir því í
borgarstjórn, að hitaveita værj
lögð um borgina, og reynt væri
að nýta heita vatnið sem bezt.
Leggur flokkurinn áherzlu á
eftirfarandi atriði varðandi
framkvæmdir hitaveitunnar:
að gerðar verði þegar á þessu
sumri viðhlítandi ráðstafanir
til a® bæta hitaveituna í gamla
bænum og á öðrum þeim stöð
um, þar sem úrbóta er þörf,
að á þessu ári verði lokið við
að Ieggja hitaveitu í öll skipu-
lögð hverfi fyrir vestan Elliða.
ár,
að kannað vcrði tii þrautar
með borunum, hvort fáanlegt
er meira heitt vatn í borgar-
landinu og nágrenni.
að unnið verði að undirbúningi
og framkvæmd nýrrar hita-
veitu frá Nesjavöllum eða öðr
um þeim stað, sem heppilegri
kann að reynast til virkjunar,
að á meðan ný hitavirkjun er
ekki komin til framkvæmda,
verði nýjum hverfum séð fyrir
upphitun frá olíukyntum kyndi
stöðvum og sú fyrirhyggja höfð
um byggingu þeirra að tengja
megi nýbyggð hús hitaveitu
strax og þaú eru tekin i notk
un.
Helgi Bergmann
opnar sýningu í
Félagsheimilinu
í Kópavogi
KT—Reykjavík, laugardag.
Á morgun, sunnudag, opnar
Helgi M. S. Bergmann sýningu á
málverfcum og teifcningum sínum
í Félagsheimili Kópavogs. Sýnir
hann þar 30 olíumálverk, auk teikn
inga ur bókinni „Mjög merkir
menn“, en sú bók á að koma út
í haust.
Á fundi með blaðamönnum sagði
Helgi, að málverk þau, sem á
sýningunni yrðu, væru mörg mál
uð á Þingvöllum,, en þar hefði
hann verið s. 1. haust. Teikning
araar eru skopmyndir af ýmsum
þekktum mönnum.
Sýning Helga Bergmann verður
opnuð fyrir almenning kl. 19.
Sýningin stendur yfir í viku og
er á neðstu hæð í félagsheimilinu.
samibandsins á liðnu ári. Kom þar
m. a. fram, að þar sem kúm fækk
ar stöðugt í héraðinu, gengi sí-
fellt erfiðlegar að bera uppi rekst
ur kynbótastöðvarinnar á Lága-
felli. Búskapur bænda sunnan
Reykjavíkur á Reykjanesskaganum
öllum hafi dregizt og dragist óð-
fluga saman, sérstaklega naut-
griparæktin, en sauðfjárræktin
hefði heldur aukizt. Áhugi manna
á búskap fari minnkandi, og erfið
ara verði með ári hverju að halda
uppi allri félagsmálastarfsemi í
sambandi við landbúnað.
Ráðunautur sambandsins, Pétur
Framhald á bls. 14.
Bílar á kjördag
Þeir stuðningsmenn B-Iistans
sem geta lánað bíla á kjördag
eru vinsamlegast beðnir að haf:
samband við síkrifstofu Fram
sóknarflokfcsins, Tjarnargötu 2c
símum 16066, 15564, 12942 eð;
23757 hið fyrsta.
Ekki er það mér að kenrt;
þótt Bjarni sé í flokknum.