Tíminn - 13.05.1966, Blaðsíða 16
107. tbl. — Föstudagur 13. maí 1966 — 50. árg
HAPPDRÆTTITIL STYRKTAR
MUNAÐARLAUSUM BÖRNUM
KT—Reykjavík, firamtudag.
í sumar efnir Hjálparsjóður
æskufólks til happdrættis til þess
að styrkja starfsemi sína. Gefst
öllum landsimönnum tæ'kifæri til a
styrkja starfsemi sjóðsins með því
að kaupa miða í happdrætinu, en
vinningar verða 200 að tölu, allt
málverk og teikningar, sem börn
og unglingar í nokkrum .skólum
Reykjavíkur hafa gert. Frá þessu
skýrði Magnús Sigurðsson skóla
stjóri á fundi, sem stjórn sjóðsins
ihélt með blaðamönnum í dag.
Á fundinum rakti Magnús nokk
uð, hvemig fyrirhugað væri að
reka happdrættið. Sagði hann, að
reynt yrði að fara með myndirnar
á nokkra staði úti á landi og
sýna þær þar: Um leið og myndirn
ar yrðu sýndar fengju áhorfendur
tækifæri til þess að njóta tónlist
ar en nokkrir unglingar myndu
leika á hljóðfæri á sýningunum.
Fengu blaðamenn að heyra þau
Sigurð Rúnar Jónsson og Vilhelm
ínu Ólafsdóttur leika á fiðlu og
píanó, en þau munu skemmta gest
um á fyrstu sýningunum.
Eins og áður er getið, verður
dregið um 200 myndir í þessu
happdrætti og eru þær aðallega
úr fjórum skóluim, Laugarnes-,
Laugalækjar- Miðbæjar- og Hlíða
Skóla. Hér er um að ræða olíu-
myndir, línóleumskurð, vatnslita-
Framhald á bls. 15
rrrrrr’
rrrrrr'
1 rrrrrr
rrrrrr
rrrrrr
/ pía
/ v/'ö fyrir bor^ina.
'°KKar bHití J
allt /
prrrrr
rrrrrr
HLUTAFÉ FÍ
AUKIÐ
VERULEGA
KJ—Reykjavík, fimmtudag
l>að kom fram í ræðu
Einars Baldvins Guðmunds
sonar, stjórnarformanns
Eimskips á aðalfimdi fé-
lagsins í dag, að Flugfélag
fslands hyggst auka hlutafé
sitt mjög verulega vegna
væntanlegra þotukaupa.
Ástæðan til þess, að
þetta kom fram á aðalfundi
Eimskips er sú, að Eimskip
á 40% af hlutafé Flugfélags
ins, eins og mikið var um-
talað fyrir um ári síðan, er
talað var um, að Eimskip
seldi Flugfélagshlutabréf
sín.
Á aðalfundi Flugfélagsins
sem væntanlega verður hald
inn 17. maí n.k. ver.ður auk
þess lögð fram tillaga um
útgáfu jöfnunarhlutabréfa,
Framhaid a 14. síðu.
— Vita ekki allir, að það
rerða nógar lóðir eftir kosn-
ngar?
ELÞUR HJA JONI
LOFTSSYNI H. F.
KT—Reykjavfk fimmtudag.
í morgun kom upp eldur í húsi
Jóns Loftesonar að Hringbraut
121. Var slökkviliðið kvatt út 5d.
6.45 og er það kom á staðinn lagði
reyk út um glugga á efstu hæð
húissins, en þar er vörulager
Slöbkvistarf gekk greiðlega og var
búið að ráða niðurlögum eldsins
eftir eina klukkustund.
Upptök eldsins eru ekki kunn,
en hæðinni er skipt i bása og
var eldur í einum þeirra. Talsverð
ar skemmdir urðu á vörulager fyrir
tækisins við eldsvoðann en' hluti
af honum varð eldinum að bráð.
Skemmdir urðu einnig af valniog
reyk. — GE tók myndina hér fyrir
neðan á brunastaðnum í morgun.
VÍSITALA MATVÖRU:
HÆKKUNIN: 136%!
TK-Reykjavík, fimmtudag,
Hér er línurit af vísitölu mat-
vöru frá því í marz-mánuði 1960,
er ríkisstjórnin hóf „viðreisnar“-
starfið og fram til marzmánaðar
sl. er miðað við töluna 100 í marz
1959. Sýnir hún hina gífurlegu
verðhækkun á brýnustu neyzlu-
vörum almennings en vísitala mat-
vöru hefur hækkað um hvorki
meira né minna en 235 vísitölustig
eða 136%. Síðasta snjallræðið til
að stöðva verðbólguna er þar
ekki með talið. Það var að hækka
ýsuna.
Fyrir 6 árum voru ársútgjöld
meðalfjölskyldu fyrir nauðsynjar
sínar, þegar húsnæðiskostnaður-
inn var ekki meðtalinn, um 51
þús. krónur. Nú kosta þessar
sömu nauðsynjar fjölskyldunnar
yfir 100 þús. krónur. Þær hafa
hækkað um meira en helming á
þessum fáu árum. En sé húsnæð
iskostnaðurinn talinn með og
fjölskyldan býr í nýlegri íbúð,
eru ársútgjöld meðalfjölskyldunn
ar ekki undir 200 þús. krónum.
Verða menn að leggja nótt við
nýtan dag til að hafa í verðbólgu
hítina og dugar ekki til. Vilja
menn þessa þróun ÁFRAM — eða
að spyrnt verði við fótum. Menn
svara því við kjörhorðið annan
sunnudag.
AKRANES
Listi frjáislyndra kjósenda á Akra
nesi H-listinn heldur almennan kjós
endafund i Bíóhöllinni Akranesi i
kvöld kl. 8,30.
Átta efstu menn listans flytja stutt
ar ræður og ávörp.
Frú Bjarnfríður Leósdóttir les
upp. Leikflokkur frá U.M.F. Reyk-
dæla sýnir nokkur atriði úr Skugga-
Sveini undir leikstjórn Jónasar Árna
sonar og Andrésar Jónssonar. Stuðn
ingsfólk H-listans er hvatt til að
fjölmenna á fundinn.
Skipulagsmálin
Framsóknarflokkurinn hefur
á undanförnum áratugum beitt
sér fyrir því í borgarstjórn, að
heildarskipulag væri gert af
borginni og nágrenni hennar.
Er vissulega merkum áfanga
náð með því heildarskipulagi,
sem nú hefur verið samþykkt,
og útgáfu skipulagsbókarinii-
ar. f sambandi við skipulagið
leggur flokkurinn áherzlu á eft
irfarandi:
að haldið verði áfram samvinnu
við nágrannasveitarfélögin um
framkvæmd skipulagsins og
skipulagsmál Reykjavíkursvæð-
isins,
að borgin hafi jafnan nægilegt
af skipulögðu landi tiltækt, svo
að ekkj þurfi af þeim sökum
að vera hörgull á Ióðum til
íbúða, iðnaðar, verzlunar eða
annars atvinnurekstrar,
að borgin geri sitt til þess, að
hægt sé að hefja hér bygging
ar í stórum stíl, þar sem komið
verði við fjöldaframleiðslu og
stöðlun með því að úthluta sam
felldu landsvæði undir sliknr
byggingar.
129
110
99
Marz 1960 1961 1962 1963 1964 1965 1966
| „Viðreisnar“-