Vísir - 10.12.1974, Qupperneq 4
4
Vísir. Þriðjudagur 10. desember 1974.
Aðvörun til
söluskattsgreiðenda
í Hafnarfirði,
Seltjarnarnesi og
Kjósarsýslu um stöðvun
atvinnurekstrar vegna
vanskila á söluskatti
Samkvæmt heimild i lögum nr. 10/1960
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja,
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir júli—september 1974, nýálagð-
an söluskatt vegna fyrri tima svo og eldri
söluskatt stöðvaður, án frekari viðvörun-
ar, þar til þau hafa gert full skil á hinum
vangreiddu gjöldum, ásamt dráttarvöxt-
um og kostnaði. Þeir sem vilja komast hjá
stöðvun, verða að gera full skil nú þegar.
Hafnarfirði, 5/12 1974.
Bæjarfógetinn Hafnarfirði,
Bæjarfógetinn Seltjarnarnesi,
Sýslumaðurinn Kjósarsýslu.
fp Sjúkraliðar
Sjúkraliði óskast í heimahjúkrun Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavikur 2 daga i
viku, mánudag og þriðjudag. Forstöðu-
kona veitir nánari uppl. i sima 22400.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur.
Breiðholtsradíó
Eyjabakka 7
óskar eftir litlu herbergi til útvarps- og
sjónvarpsviðgerða. Simi 14269.
VELJUM ÍSLENZKT » fSLENZKAN IÐNAÐ
Þakventlar
Kjöljárn
Kantjá rn
ÞAKRENNUR
$
:*x*
J. B. PÉTURSSON SF.
ÆGISGOTU 4 - 7 13125,13128
Fiskimjölsframleið-
endur vondaufír um
verðhœkkun
„Stöðvun veiðanna I Perú hefur
liklega litil sem engin áhrif á
markaðsverö á fiskmjöli, að sögn
Sveins Benediktssonar, formanns
félags fiskmjölsframleiðenda.
Sveinn sagði, að annað réði
mestu um verðið.
Að sögn fiskmjölsframleiöenda
herma siöustu fregnir, að áhrif
stöðvunarinnar séu hverfandi litil
og álit kaupenda sé enn hið sama
SUÐURVERI
SfMI 38890
Heitar
samlokur
Ármanns samloka
Hitað brauð, roast beef,
remolade og hrásalat.
FH samloka
Ristað brauð, skinka,
bacon, ostur, ananas,
rauðkál og cocktailsósa
Fram samloka
Heitt brauð, hangikjöt,
ostur, aspargus og
ristaður ananas
Hauka samloka
Heitt brauð,
pylsur, bacon,
ferskja.
ÍR samloka
Hitað brauð, bacon, ost-
ur, aspargus og hrásaiat.
KR samloka
| Ristað brauð,
egg, rauðkál,
salat.
og undanfarnar vikur, að þeir
muni geta keypt fiskmjölið á
lægra verði siðar meir með þvi að
fresta kaupum.
Saman fari stórminnkuð
iblöndun fiskmjöls i fóðurblönd-
ur, miklar birgðir af ýmsum mat-
og fóðurvörum hjá efnuðum þjóö-
um, lækkandi verð á sojabaunum
og sojabaunamjöli, landbúnaöar-
kreppa i flestum löndum heims,
fjárskortur og lánsfjárkreppa.
Perúmenn stöðvuðu veiðar á
ansjóvetu við strendur landsins
frá miðnætti 2. desember, sökum
þess hve torfurnar voru
blandaðar seiðum uppvaxandi
ansjóvetu.
Tilkynning um þetta var undir-
rituð af Javier Tantaleán Vanini
hershöfðingja, sjávarútvegsráö-
herra Perú, og sagt, að þetta væri
gert til verndunar fiskstofnsins.
Ansjóvetuveiðarnar við Perú
hófust fyrir 20 árum og námu
1960 rúmlega 3 milljónum tonna.
Þær fóru hraðvaxandi og náðu
12.5 milljónum tonna 1970. Þá
fengust úr aflanum 2,7 milljón
tonn af mjöli. Lýsisprósentan er
mjög mismunandi frá vertið til
vertiðar. Siðan 1971 fór aflinn
hraðminnkandi. Orsakirnar voru
taldar ofveiði og breyttir haf-
straumar. Framleiðslan var að-
eins 423 þúsund tonn af mjöli 1973,
og voru veiðarnar stöðvaðar i
október i fyrra fram i marz i ár.
Perúmenn ætluöu gætilega af
stað til að varast frekari ofveiði
en leyfðu þó fljótlega veiði á 1 til
1.5 milljónum tonna sem há-
marksveiði. Þegar til kom héldu
þeir veiðum áfram langt fram i
Rœtt við Svein
Benediktsson
um veiðistöðvun
Perúmanna
mai, sem ekki hafði verið ætlunin,
og þá höfðu þeir veitt 2,4 milljón
tonn og fengiö úr þeim afla 547
þúsund tonn af ansjóvetumjöli.
Fengu 270 þús. tonnum
minna en þeir ætluðu
í haust var nokkuð á reiki, hve
miklar veiðar yröu leyfðar. Veið-
ar hófust 30. september, og var
ákveðið að veiða 2 milljón tonn,
en jafnframt var heildarfram-
leiðsla á mjöli áætluð 1,1 milljón
tonn, sem bendir til, að þeir hafi
ætlað að veiða meira en 2 milljón
tonn af ansjóvetu. Þegar veiðarn-
ar voru nú stöðvaðar, nam árs-
framleiðslan 830 þúsund tonnum
af ansjóvetumjöli eða um 270 þús.
tonnum minna en áætlað.
Á fyrsta verðlagstímabili á
þessu ári hér á landi var loðnu-
veröið til skipta miðað við 9,50
Bandarikjadollara próteineining-
in i tonni (cif), en nú er söluverðið
meira en helmingi lægra en i
fyrra. Allur kostnaður á sjó og
landi hefur stórhækkað.
Sala á fiskmjöli hefur verið treg
frá þvi um 8. október.
Epchap, mjöleinkasala Perú-
manna, og Norsildmel, er selur
allt fiskmjöl Norðmanna, héldu
verðinu i 5,40 til 5,50 dollurum
fyrir próteineingu i tonni lengst af
i október og nóvember. Siðasta
söluverðið, sem Perúmenn hafa
ákveöið, er 4,61 dollar.