Vísir - 15.01.1975, Blaðsíða 1
VÍSIR
65. árg. — Miövikudagur 15. janúar 1975 —12. tbl.
Erum við eins
viturlega fóðruð
og skepnurnar?
Skepnufóðrinu er stjórnað
af viti og þekkingu, — en
hvernig skyidi manneldinu
vera háttað? Ætli þar sé eins
visindalega unnið að fóðrun-
inni? Um þetta efni fjallar
INN-síða blaðsins i dag.
SJA BLS. 7
m
Kafari náði tann-
garði félaga síns
upp af hafsbotni
- Bls. 3
Vesalings
Elizabeth
Taylor:
„Verst
klœdda
kona a\\ra
tíma"
— sjá Nú siðu bls. 4
Emerson
Fittipaldi
meistarinn i
jfe kappakstri —
bls. 4 - NÚ
Þing-
maður-
inn sem
hvarf, og
fannst
á ný
Var honum rutt úr vegi af
bandarisku Mafiunni? Hafði
hann drukknað? Eða var
hann njósnari, — og það
kannski tvöfaldur I roðinu?
Þessar spurningar og
margar fieiri komu upp,
þegar föt brezka þing-
mannsins John Stonehouse
fundust I vörzlu baðvarðar i
Florida. Já, Imyndunaraflið
var fljótt að spinna sögur úti
i hinum stóra heimi, ekki
siðuren hér á sögueynni. En
hvað gerðist? Það má lesa á
bls. 6.
Hún
„Gletta
n
\ sjón-
varpinu, —
Monica
Zetterlund
- Sjá bls. 12-13
„Loksins komst
maður í loftið"
„Bara að fólkið komist nú á vellina" — Mikið flug fyrirhugað
í dag, en áœtlunarbílar hafa lítið tafist
„Loksins kemst maður i loftið”,
varð einum að oröi, sem við hitt-
um fyrir á Vængjum I morgun, en
þar var mikið að gera. „Ertu bú-
inn að tanka vélina?” — „Varstu
búinn að vigta þetta?” „Hvaö var
þetta þungt?” Þessar setningar
og fleiri kváðu við, þvi nú átti að
fara að fljúga eftir að allt flug
hafði legið niöri frá þvi á sunnu-
dag.
„Við ætlum aðreyna að fljúga á
sem flesta staði i dag”, sagði
Hrafn Oddsson flugmaður okkur,
þegar við ræddum við hann. Til
dæmis verður reynt að fljúga til
Reykhóla, Siglufjarðar og
Blönduóss, en klukkan 10 I morg-
un var verið að fara á Rif og
Stykkishólm.
Farþegar tindust inn og vélarn-
Bæði farþegar og flugmenn voru hinir ánægðustu yfir að komast i loftið, þegar við litum inn á Vængjum
I morgun, en þar var starfsemin komin i fullan gang. Ljósm: Bragi.
„VELTI ÞEIM STORA"
— segir Jóhann Örn Sigurjónsson, sem sigraði Friðrik
„Jú, það má segja, að maður
hafi velt þeim stóra”, sagði Jó-
hann Örn Sigurjónsson, sem i
gærkvöldi vann Friðrik Ólafs-
son stórmeistara á Reykja-
víkurmótinu.
„Það er býsna sjaldgæft, að
við, „minni spámennirnir”,
vinnum Friðrik.
„Ég haföi svart og valdi gam-
alt afbrigði af Tarraschvörn,
sem ég vonaði, að Friðrik þekkti
illa. Svartur vinnur peð i byrjun
I þessu afbrigði, og Friörik tókst
aldrei að ná þvi aftur. Hann
reyndi stöðugt aö bæta stöðuna
en tókst ekki. Ég náði sókn og
vann skákina I aðeins 27 leikj-
um”.
Jóhann örn hefur um langa
hrið annazt skákþætti Visis, eins
og lesendum er kunnugt.
önnur úrslit I A-riðli urðu
þessi: Jón Þorsteinsson vann
Gylfa Magnússon, Björn Þor-
steinsson vann Leif Jósteinsson,
Bragi Kristjánsson vann Björn
Jóhannsson, Jón Kristinsson
vann Margeir Pétursson og óm-
ar Jónsson vann Harald Har-
aldsson.
Fimm umferöir eru búnar.
Efstir og jafnir eru Jón Krist-
insson og Björn Þorsteinsson
með 3 1/2 vinning og óteflda
skák sin á milli, sem verður
tefld I kvöld.
I þriöja sæti er Margeir Pét-
ursson með 3 1/2. Friðrik er I 4.
sæti með 3 vinninga og biðskák
við Gylfa Magnússon. Jóhann
Örn Sigurjónsson er 5. með 3
vinninga. —HH
JÓHANN ÖRN, — lagöi Friörik
aö velli i gærkvöldi.
A Umferðarmiðstöðinni voru
rútur að leggja af stað, en engin
komst i gær. Reyndur starfs-
maöur þar kvaðst ekki muna að
nokkurn tima hefði fallið niöur
ferð til Borgarness áöur.
ar voru fullbókaðar. Mikið er
hringt og margir vilja komast.
„Ég var að tala viö veðurfræðing
fyrir fimm minútum, og hann
sagði, að veðrið væri að mestu
gengiö yfir”, sagði Hrafn. Fyrir
norðan er þó enn nokkur vindur.
„En nú er bara, aö farþegar
komist á flugvellina úti á landi”,
sögðu þeir hjá Vængjum. „Vegir
eru ófærir á svo mörgum stööum,
aö búast má við, aö það taki tima
aö komast”.
En hvað gera flugmenn svo,
þegar margir dagar liða án þess
að hægt sé að fljúga? „Jú, við
mætum hérna. Viö veröum að
vera tilbúnir, ef allt I einu yrði
hægt að fljúga og eins, ef upp
kemur sjúkraflug”, sagði Hrafn.
En það var lltill timi til þess að
rabba saman. Þaö þurfti að koma
farangri i vélarnar, og um að
gera að koma sér timanlega af
stað.
„Þeir segjast bara ekki muna
eftir öðru eins fannfergi á Akur-
eyri”, sagði ein starfsstúlkna á
Umferðarmiðstöðinni, þegar við
litum þar inn. Bilar voru að
leggja af stað vestur á Snæfells-
nes og til Búrfells i morgun, og
einnig fóru bilar i Borgarnes og
Búðardal.
Annars hafa bilar ekki tafizt
nema um einn dag, þ.e.a.s. þeir
áttu að fara i gær, en komust ekki
sökum veðurs.
„Siðasta ferðin var erfið hjá
þeim mörgum. Til dæmis brotn-
aði rúða I einum bilanna i veðr-
inu, sem var að skella á, og hann
þurfti að skipta um bil á leiðinni”.
Enn er ekki hægt að keyra til
Akureyrar, en þangað var siðasta
ferð farin á föstudag, og er það
eina leiðin, sem hefur tafizt veru-
lega.
Flugfélagið hyggur á mikið flug
i dag. Snjókoma og snjóþungar
brautir hamla þó flugi, t.d. á
Hornafirði, Húsavik, Isafiröi og
Egilsstöðum. Um klukkan eitt
var vonazt til, að hægt yrði aö
fijúga til Akureyrar, en þangaö
biða margir eftir að komast.
—EA
Rússar
hafna
vildar-
kjðrum
Banda-
rikjamanna
- Sjá bls. 5.
1