Vísir - 08.03.1975, Side 2

Vísir - 08.03.1975, Side 2
2 Vfsir. Laugardagur 8. marz 1975 vteutsm: Trúir þú á mátt auglýsinga? — Siguröur Lárusson, pakkhús- stjóri: — Þegar hlutir eru aug- lýstir, þá tekur maöur óneitan- lega eftir þeim. Auglýsingar geta þannig haft áhrif á skoðanir fólks, sérstaklega ef þær eru áberandi og litskrúðugar. Björn Jóhannsson, forstjóri: — Já, af hverju ekki? Auglýsingar i sjónvarpi eru áhrifamestar, en áhrifin fara þó eftir þvi hvernig þær eru unnar. Lona Andersen, húsmóöir: — Mér finnast auglýsingar höfða mest til eigingirni hvers og eins, það er eigin þarfa. Auglýsendurnir ein- beita sér þess vegna að þvi, hvernig viö getum haft það betra. Sigurður Þóröarson, verka- maður: — Já, hann er mikill. Auglýsingar i sjónvarpi eru áhrifamestar og svo auðvitað i Vísi. Þó fer mikið af auglýsingun- um fyrir ofan garð og neöan hjá almenningi. Eggert Bogason, söiustjóri: — Já, vissulega. Það á bæði við aug- lýsingar i blööum og útvarpi. Ætli það sé ekki lágt verð, sem vekur mesta athygli á viökomandi aug- lýsingu I dag. Hjörtþór Ágústsson, rafvirki: — Að vissu marki. Það virðist vera svo, að þær fáránlegustu veki mesta athygli. ilaöinu, sei unglingava g sem ber f neyzla ung þar sem þau eru fyrir h ekki að auglýsa þau upp lika að þau komast ekki að sjá eitthvað af þessu samt held ég að blöðin verra meö þvi að birt sem lesa þær. Jú ■r eins og þau ha þauekki veriðaug miðlum um allan i um flugvélarænini stjur?” rifum fi „Auglýsa upp vandamáfín" Gerpla skrifar: am an Sömu sögu er að segja um kynferöismál, þau eru lika aug ■ lýst fyrir krakkana, maöur les og heyrir i fjölmiðlum að þeir byrji að lifa kynlífi svo og svo ungir. Dóttir min, sem er 14 ára, ði það eftir vinkonu sinni, að rifust allir krakkar við for- na, þetta væri nefnilega avandamál”. Auðvitað > þessi vandamál eru á að takast á við þau u eru fyrir hendi, en „Ástandið ekki verra í Nýhöfn eða St. Pauli" veit þvi f, en i illt ona Arelius Nielsson skrifar: „Hana — þá rann upp mikið ljós, sem marga hefur glatt, að sjálfsögðu. Samkvæmt skýrsl- um og óhrekjandi rökum — töl- ur eru i tízku sem hinn eini sannleikur — drekka islending- ar minnst áfengismagn allra norrænna þjóða. „Nærri helmingi minna en Danir”!! hrópaði einhver í gleði sinni. Gott er það. Hér er svo sem ekki yfir neinu að kvarta, ekkert nema bölvaö nöldriö i þessum „andskotans bindindispostul- um”. Samt hef ég jafnvel ekki i Ný- höfn I Kaupmannahöfn eða St. Pauli Hamborgar séð óhugnan- legra ástand drukkins fólks en hér á íslandi. Bæði inni á öldur- húsum, já meira að segja i al- menningsvögnum og á heimil- um. Og það sama segja allir, sem eitthvað hafa verið erlendis, * hvort heldur austan hafs eða vestan. Helzt sést eitthvað svip- að i Finnlandi. Þetta er sorglegur vitnisburð- ur, óhugnanleg staðreynd. Samt eru íslendingar gáfuð þjóð, gott fólk og dáðrikt, vel gert og býr viðhin beztu skilyrði til þroska á allan hátt, svo að undur má teljast um svo fátt fólk i einu erfiðasta, hrjóstrugasta óveðra- landi veraldar, þrátt fyrir fegurð þess og tiginleik. Við eigum iþróttafólk og lista- fólk á heimsmælikvarða og jafnmarga stórmeistara i tafli og hin Norðurlöndin öll til sam- ans, með allar sinar milljónir manna. En hér eru drukkin eitraðri vfn I stórum stil en liklega nokk- urs staðar, svo ekki þarf mikið til að ræna vitund og viti. tslendingar eru öfgafólk i skapgerð — börn andstæðna — elds og iss — ljóss og myrkurs, og gæta sin litt unz bikar hver er i botn drukkinn. Á yfirborði kaldir og fálátir — hið innra brenna eldar, sem óskað er að slökkva, en þvi mið- ur með efnum, sem virka eins og olia á eldinn. Það er allt annaö að tæma „einn Carlsberg’-’ i botn en þamba úr jafnstórum viskipela. Þetta ætti fólk með fullu viti að skilja! En hinir gáfuðu ís- lendingar haga sér þar sem heimskingjar og smábörn. Þess vegna gerir minna magn meira mein en i nokkru öðru landi. Gætum sæmdar og heiðurs, vits og vilja.” HRINGIÐ I síma86611 KL13-15 LESENDUR HAFA ORÐIÐ prósent" „Hœkkunin er 300 — Kona í Kópavogi svarar bréfi Rafns Sigurðssonar Unnur Magnúsdóttir, Kópavogi, hringdi: „Sjálfsagt er ég ekki hinn rétti aðili, sem á að leggja spilin á borðið vegna skrifa Rafns Sigurðssonar i laugardagsblaði Visis 1. marz sl„ en ég hef orðið vör við það, að Rafn er ekki einn um þá skoðun, að Reykvikingar séu að borga hitaveitufram- kvæmdir fyrir Kópavogsbúa. A hitaveitufundi, sem Geir Hallgrimsson, þáverandi borgarstjóri, hélt með Kópa- vogsbúum i upphafi samninga um hitaveitu, dró hann enga dul á, að það væri ekki siöur hags- munamál fyrir Reykvikinga en Kópavogsbúa, að borgin tæki að sér hitaveituframkvæmdir hér i bæ. Það er harla einhliða dæmi, sem R.S. setur fram.að minnast bara á hækkun á hitaveitu og ekkert annað. Nú hef ég aflað mér upplýsinga um verð á raf- magni og hitaveitu og svo hins vegar kauptaxta Dagsbrúnar i desember 1969. Þær tölur eru frá þvi áður en hitaveita kom til tals I Kópavogi. Verð á hitaveitutonni var þá kr. 13,57. í dag, áriö 1975, er tonnið selt á kr. 39,36. Það er tæplega 300 prósent hækkun. Rafmagnsverð, kilóvatt- stundin, árið 1969: kr. 1,88. I dag kr. 7,76. Það er rúmlega 400 pró- sent hækkun. Dagsbrúnartaxti, vinnu- stundin árið 1969, var kr. 61,70.1 dag: 216,30. Eða með öðrum orðum 350 prósent hækkun. Við þessa útreikninga tek ég með i dæmið 23 prósent hækkun- ina, sem nýbúið er að veita hita- veitunni. Hitaveitustjóri tjáði mér, að þessi hækkun nú sé að stórum hluta vegna gengisbreytinga, þar sem öll þeirra lán eru er- lend. Annars vona ég, að hita- veitustjóri eigi eftir að gera þessu máli betri skil. Ég held þó, að ég geti huggað R.S. og aðra þá, sem standa i þessum sama misskilningi, með þvi að upplýsa, að við Kópavogsbúar stöndum straum af þeim lánum, sem tekin eru vegna hitaveitu- framkvæmda hér i bæ.” Frá hitaveituframkvæmdum við Nýbýlaveg I Kópavogi. Ljósm. Bragi.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.