Vísir - 08.03.1975, Síða 3
Vísir. Laugardagur 8. marz 1975
3
Stofna
safnoðar-
félag í
Kópavogi
„Markmið félagsins er að efla
safnaðarvitund og safnaðarlff,”
segir m.a. i iögum nýs félags I
Kópavogi, kirkjufélags Digranes-
prestakalls, sem stofnað var fyrir
mánuði. Félagið ætlar að stuðla
að aukinni kirkjusókn með fund-
um, samkomum og kirkjukvöld-
um, bættri starfsaðstöðu
safnaðarins og stuðningi við
menningar- og mannúðarmál.
Að lokinni messu hjá sóknar-
presti austurbæinga i Kópavogi,
séra Þorbergi Kristjánssyni, á
morgun, verður framhaldsstofn-
fundur félagsins haldinn og telj-
ast þeir stofnendur, sem þá ger-
ast félagar.
Stjórn félagsins er þannig skip-
uð: Formaður er Þorleifur Jóns-
son, varaform. Alda Bjarnadótt-
ir, ritari Jón H. Guðmundsson,
gjaldkeri Birna Friðriksdóttir,
meðstjórnendur Erna Árnadóttir,
Salómon Einarsson og Sören
Jónsson.
Athyglis-
vert
framtak
Svo sem alþjóð er kunnugt
rekur ríkið hæli fyrir vanheilt
fólk, hvaöanæva af landinu, i
Kópavogskaupstað. Kópa-
vogshælið var stofnað árið
1952 og hefur starfsemi þess
sifeilt verið að aukast sfðan
enda vita allir að þörfin er
brýn til hjálpar I þessum efn-
um.
Innan hælisins er nú starf-
ræktur þroskaþjálfaskóli Is-
lands, en þar er sérmenntað
fólk til starfa fyrir vanheilt
fólk I landinu. Þá eru og á hæl-
inu starfandi læknar, kennar-
ar, sjúkraþjálfi og aðstoðar-
fólk. Starfsfólkið allt er á ann-
að hundrað, en vistfólk um tvö
hundruð. Svo sem þessar tölur
sýna má ljóst vera að á Kópa-
vogshæli er mikið starf unnið.
En starfið er ekki aðeins mikið
á þessu stóra heimili, heldur
er samstarfsvilji fólksins
óvenjulegur og vil ég með
þessum llnum vekja athygli á
einum þætti þessa vilja.
Hinn 1. júni sl. stofnaði
starfsfólk hælisins „leiktækja-
og ferðasjóð” fyrir hina sjúku
sem það þjónar með vinnu
sinni. Þetta framtak er at-
hyglisvert og einstakt og lýsir
betur en mörg orð innræti og
áhuga þess fólks sem velur sér
starfsvettvang meðal þessara
systkina okkar. Skömmu eftir
sjóðstofnunina gekkst það fyr-
ir kaffisölu og söfnuðust þá yf-
ir 100þús. kr. sem varið var til
kaupa á rennibrautum, klifur-
grindum og tjöldum. Og nú
skal enn meira gjört, þvi
starfsfólkið hefur undirbúið
hlutaveltu sem á að halda nk.
sunnudag, 9. marz kl. 14:00. i
Félagsheimilinu i Kópavogi.
Þar verða margir eigulegir
munir á boðstólum fyrir 50 kr,
einnig flugferð og leikhúsferð.
Ég vil eindregið hvetja fólk til
að mæta á hlutaveltuna og
veita með þvi þessu fórnfúsa
starfsfólki uppörvun i fram-
takssemi sinni. Þá mega að-
standendur sjúklinganna og
allir velunnarar vel muna eft-
ir þessum þarfa sjóði, ef þeir
geta látið fé af hendi rakna i
hann.
Sýnum i verki þökk okkar til
starfsfólks Kópavogshælis o[
vistfólksins þar.
Árni Pálsson, sóknarprestur.
„ASTANDIÐ
SLÆMT í 40
„Það er ekkert að gera. Við
höfum það vægast sagt ákaflega
rólegt og þægilegt. Við sitjum
hér og biðum. Við yrðum klepp-
tækir ef við spiluðum ekki eða
tefldum á meðan. Segir ekki
einhvers staðar: „Illt er betra
en ekki”?”
Þeir höfðu það sannarlega ró-
legt vörubilstjórarnir hjá
Þrótti, þegar Visir leit inn hjá
þeim i gærdag. Þeir sitja og
biða eftir að fá eitthvað að gera,
en það geta liðið nokkrir dagar
án þess að túr bjóðist.
.Við spjölluðum við fjóra
bilstjóra, þá Jónas Guðmunds-
son, Kristján Ólafsson, Svavar
Einarsson og Bjarna Guð-
mundsson.
Bjarni hefur ekið vörubil um
árabil. Hann sagði að svona
svart hefði það hreinlega ekki
verið i 40 ár. Astandið er eins og
það .getur orðið verst, áleit
hann.
„Við vitum til þess, að menn
hafa hreinlega hætt og farið til
sjós. En það er nú ekki svo
þægilegt að þurfa að hætta,
fyrst maður á annað borð er i
þessu. Þá er að lifa i voninni að
eitthvað glæðist. Sumir okkar
hafa heldur ekki heilsu til þess
að gera annað en að keyra,”
sögðu þeir.
„Það er oft tveggja til þriggja
daga bið eftir túr. Þá keyrir
maður kannski i klukkutima, en
ef maður fær heilan dag, þá
köllum við það bara veizlu.”
„Við erum með rúmlega 200
EKKI SVONA
ÁR"
bíla hérna. Það er eitthvað
smávegis sem borgin hefur til
þess að láta ókkur gera, en það
má segja að það sé alveg dautt
ef það er ekki.”
Þá sögðu bilstjórarnir að þeir
vissu um marga sem hafa
afpantað bila sem þeir ætluðu
að fá sér. „Það er útilokað að
nokkur okkar hafi ráð á bil sem
hentar okkar vinnu.”
Einn þeirra sagði að liklega
væri bezt að koma sér úr landi,
og þá hefði hann augastað á
Noregi.
. Annar sem við ræddum við
sagði að sér virtist ekkert útlit
fyrir að ástandið batnaði. „I
fyrra var þetta ágætt en nú
dregst allt saman. Astandið
hefur verið slæmt frá þvi fyrir
— segja
vörubílstjórar
— ekkert að gera
frá því fyrir jól
— heils dags
vinna er veizla
jól. Ég hef nú verið hér i 33 ár og
ég man ekki eftir þvi svona
slæmu.”
Visir sagði frá þvi i gær að 47
vörubilstjórar hefðu sótt um at-
vinnuleysisbætur af þeim 69
sem eru bótaþegar i Reykjavik.
—EA
Þeir sitja og biða eftir túr og spila eða tefla á meðan. Þeir eru sammála um að ástandið hafi aldrei verið svona slæmt.
mundsson, Jónas Guðmundsson, Kristján ólafsson og Svavar Einarsson. Ljósm. Bragi.
— Bjarni Guð-
Óháði söfnuðurinn 25 ára:
Presturinn er fréttastjóri sjónvarps
— og einn stjórnarmanna
íþróttafréttaritari þess
Prestur safnaöarins er frétta-
stjóri á sjónvarpinu og einn i
stjórn hans er fréttamaður sjón-
varps. Þetta eru séra Emil
Björnsson og ómar Ragnars-
son. Og söfnuðurinn? Jú, það er
Óháði söfnuðurinn.
Söfnuðurinn var stofnaður
upp úr prestskosningum i Fri-
kirkjunni. Nokkrir sem ekki
voru ánægðir með úrslitin stofn-
uðu hann þá, og um þessar
mundir á hann 25 ára afmæli.
Hann tók til starfa veturinn
1950 og fyrsta guðsþjónustan
var haldin i Stjörnubiói 12. marz
það ár. „Svo fjölsóttar voru þær
guðsþjónustur að enn er i minn-
um haft,” segir i tilkynningu frá
söfnuðinum.
„Það var mikið átak fyrir
hinn unga söfnuð að ráðast i
byggingu kirkju og félags-
heimilis og mun Óháði
söfnuðurinn meðal fyrstu
kirkjusafnaða hérlendis sem
byggja á þann veg að tengja
saman kirkju og félagsheimili
sem eina heild. Hefur það
reynzt söfnuðinum ómetanlegt I
öllu safnaðarstarfi,”
„Fyrir sérstakan dugnað og
samheldni safnaðarfólksins
tókst að ljúka byggingunni á til-
töluléga skömmum tima og nú
kannast allir við hina snyrtilegu
kirkjubyggingu á horni Háteigs-
vegar og Stakkahliðar, en á
siðastliðnu þjóðhátiðarári var
hún valin ein af 11 fallegustu
byggingum i höfuðborginni.”
Einn helzti hvatamaður að
stofnun safnaðarins var Andrés
heitinn Andrésson klæðskeri og
var hann formaður fyrstu 17 ár-
in. Núverandi formaður er
Sigurður Magnússon fram-
kvæmdastjóri Iþróttasam-
bandsins.
A morgun verður hátiðar-
guðsþjónusta i safnaðarkirkj-
unni klukkan 14 og á miðviku-
dagskvöld minnist söfnuðurinn
afmælisins með kvöldskemmt-
un i félagsheimili Fóstbræðra.
—EA
Séra Emil Björnsson hefur verið prestur óháða safnaðarins frá þvi
hann var stofnaður og kona hans, frú Álfheiður Guðmundsdóttir,
verið formaður Kvenfélags safnaðarins frá upphafi. Kvenfélags-
konurnar eru mesti máttarstólpi safnaðarins og jafnan i farar-
broddi þegar meiriháttar framkvæmdir eru á döfinni.