Vísir - 10.03.1975, Qupperneq 1
VISIR
65. árg. Mánudagur 10. marz 1975 — 58. tbl.
„TEL AÐ FARMINUM
SÉ BORGIÐ
##
baksíða
FÆRRI GiSTIR
iN STARFSMtNN
Á KA UPSTtFNU
,S góðu
kompaníi
með
Spassky"
— segir Friðrik
— baksíða
★
Holbœk vill
ekki missa
Jóhonnes!
Sjó íþróttir bls.
8,9,10,11 og 12
★
Frœgasta lið
Skotlands hefur
óhuga á ungum
Víkings-pilti
— Sjá íþróttir
bls. 12
★
Víkingur vann
FH í stórgóðum
leik
Sjá íþróttir bls.
8,9,10,11 og 12
★
Sunna
sendir
konur
í keppni
— baksíða
★
Á fjórða
þúsund
manns komu
að smakka
— bls. 3
„Það voru gleðisnauð-
ir tímar, sem við fata-
framleiðendur áttum i
sýningarbásum okkar
á Loftleiðum siðast-
liðinn föstudag. Við vor-
um um eða yfir tuttugu
talsins, en það komu að-
eins átta gestir allan
þann dag”. Og fata-
framleiðandinn, sem
hefur þessa sögu að
segja, á erfitt með að
skilja, hvers vegna
verzlunareigendur
sýndu Fatakaupstefn-
unni svona litinn áhuga
að þessu sinni.
,,Þá fjóra daga sem sýningin
stóft, komu aðeins 70 til 80 inn-
kaupastjórar. Voru það einkum
innkaupastjórar frá verzlunum,
sem selja buxur og kápur. Hins
vegar fengum við sárafáa við-
skiptavini frá verzlunum, sem
selja sportfatnað og viðleguút-
búnað”, sagði fataframleiðand-
inn, sem Visir haföi tal af.
,,Nú er það svo, að gengisfell-
ingin siðasta breytti samkeppnis-
aðstöðu okkar til batnaðar”, hélt
hann áfram. „Við, islenzkir fata-
framleiðendur, höfðum imyndað
okkur að kaupmenn sæju sér hag í
þvl að gera innkaup sin hér inn-
anlands. Efla islenzkan iðnað,
eins og nú er rekinn áróður fyrir.
En kaupmennirnir komu bara
ekki, þegar við buðum þeim til
kaupstefnu. Kannski þeim finnist
þægilegra að fá okkur einn og
einn til sin i stað þess að koma
þangaðsem við erum allir, á ein-
um stað”.
„Dræma aðsókn viljum við
skrifa aö stórum hluta á kostnað
ófæröar. Það komu ekki eins
margir kaupmenn utan af landi
og við höfðum gert okkur vonir
um”, sagði Gisli Benediktsson,
framkvæmdastjóri Kaupstefn-
unnar, i viðtali við Visi i morgun.'
GIsli upplýsti, að nú þegar væri
búið aö dagsetja Fatakaupstefnu,
þar sem vetrartizkan yrði kynnt.
Það verður i september.
—ÞJM
RAFMAGNS
BILUN
SEINKAÐI
VÍSI
Rafmagnsbilun i húsi
Blaðaprents og Visis við Siöu-
múla i morgun er orsök þess,
að Vísir fór heldur seinna af
stað i prentun en ella. Fór raf-
magnið af húsinu um klukkan
ellefu fyrir hádegi og komst
ekki á að nýju fyrr en klukkan
langt gengin tólf.
ASÍ fer fram
ó meiri
skaflalœkkanir
— aðalviðfangsefnið ó
fundum um helgina
1 kjarasamningunum hefur
mest verið á seyði I skattamál-
um nú um helgina. Alþýðusam-
bandið hefur krafizt meiri
skattaiækkana en rikisstjórnin
hefur boðið, og hefur verið rætt
um, hvernig sllk skattalækkun
yröi framkvæmd ef af yröi.
Litið sem ekkert gerðist um
helgina I viðræðum um launa-
hækkanir.
Þrir frá hvorum, vinnuveit-
endum og ASÍ, gengu á fund for-
sætisráöherra á laugardag. Þar
var einnig sáttasemjari. Skatta-
málin voru á dagskrá. Sfðan var
fundur deiluaðila hjá sátta-
semjara. Hann stóð aðeins i um
það bil klukkustund, og bar fátt
til tiöinda. Þá var I gær fundur
með sáttasemjara, sem stóð I
um hálfa þriðju klukkustund.
Næsti fundur er ekki fyrr en I
fyrramáliö klukkan tiu.
—HH
Stjörnurnar viðstaddar frumsýninguna
„HEIMA í SOVÉT FÆR EINKA
LÍFIÐ AÐ VERA í FRIÐI"
— sagði Natalja Bondartsjuk
Stjörnurnar Natalja Bondartsjúk og Donatas Banionis skáluðu, er
þau ræddu viö fréttamenn I morgun. Ljósm. Bj. Bj.
„Rússar hafa mikið dáiæti á
kvikmyndum og leikurum. En
þeir reyna þó ekki að grafa upp
atvik úr einkalifi þeirra, heldur
láta sér nægja að fylgjast með
störfunum,” sagði sovézka
kvikmyndadisin Natalia Bond-
artsjuk, sem kom til landsins
um helgina vegna frumsýningar
myndarinnar Solaris hér á
landi.
Natalja er meðal þekktari
leikara I Sovétrikjunum, en þó
er leikarinn, sem kom ásamt
henni, Donatas Banionis ef til
vill enn þekktari, enda ber hann
titilinn „þjóðleikari Sovétrikj-
anna”.
„Jú, bréfin, sem mér berast,
eru mörg”, sagði leikarinn
Donatas Banionis, er hann var
spurður að þvi, hvernig kvik-
myndaunnendur austantjalds
létu ánægju sina I ljós. „Þó
nokkuð af þeim kemur erlendis
frá, sérstaklega„ef verið er að
sýna einhverja mynd mina á er-
lendri grund. Eins tekur fólk
mann tali á götum úti og þá jafn
oft til að lýsa óánægju sinni eins
og ánægju”, sagði Donatas og
bætti svo við, ,,og eins safna að-
dáendur okkar einnig eigin-
handaráritunum..... þvi mið-
ur”.
Nýlega voru þau Baninonis og
Bondartsjuk á Italiu að kynna
þar Solarismyndina, sem nú á
að fara aö sýna hér. Þar kynnt-
ust þau Fellini, leikstjóranum
fræga, og sagðist Natalja meta
verk hans mikils, einkum
myndina Amarcord.
„Ég vil nú ekki nefna neinn
mann einan af minum
uppáhaldsleikstjórum vestan
hafs,” „en ég met bæði Berg-
man og Arthur Penn mikils. Ef
ég á að nefna einhvern leikara,
þá hef ég mjög gaman af honum
Dustin Hoffman”, sagði Dona-
tas.
Myndin Solaris með þeim
stjörnum verður sýnd i Há-
skólabiói i kvöld. Myndin er
nokkurra ára gömul og fjallar
um samskipti manna á timum
geimferða og geimrannsókna.
„Þetta er ekki visindaskáld-
saga, heldur fyrst og fremst
saga um manneskjur,” sagði
Natalja.
„Þótt mynd okkar hafi verið
nefnd Kosmic Odyssey, tel ég að
hún fjalli um efni óskylt mynd
Stanley Kubric „2001: Space
Odyssey”.
—JB