Vísir - 10.03.1975, Síða 8

Vísir - 10.03.1975, Síða 8
8 Vísir. Mánudagur 10. marz 1975 .. . i ft ■ í WSSfy 'lsr* '«**; pji$ ** ■/*« ÆmJ* Irv W'mm Miklu skal fórnaö til þess að halda fjórhjólaða þjóninum gangandi. — Hækkun trygginga 55,1% vel þeg- in. Bensinið 57.- kr. mjög hóflegt! Andersen: Fjórkúgun bifreiðatrygginga — Er nú ekki nóg komið, bifreiðaeigendur? Það skal tekið fram i upphafi þessara hugleiðinga, að spurningunni, sem sett er hér scm millifyrirsögn, er ekki beint til FÍB (Félags islenzkra bif- reiðaeigenda), því ætla verður, að sá félagsskapur hafi öðrum hnöppum að hneppa en stuðla að hagkvæmari rekstrargrundvelli Islenzkra bifreiðaeigenda, t.d. mun „ralley-keppni” hérlendis vera mun eftirsóknarverðara verkefni en það að kljást við tryggingafélög og oliufélög um verðhækkanir. — FIB hefur enda ekki sent frá sér sin hefðbundnu mótmæli, þar sem þeir óska eftir „opinberri greinargerð um máiið”, þ.e.a.s. um væntanlega hækkun bifreiðatrygginga, og kannski hefur sá félagsskapur ekki enn hlerað, að bifreiða- skoðun er hafin, a.m.k. hér i Reykjavik, og fjöldi bifreiðaeig- enda hefur þegar látið kúga sig til hlýðni og komið með bifreiðar sinar til skoðunar, eftir að hafa hugsunarlaust skrifað undir yfir- lýsingu þess efnis, að þeir muni með glöðu geði greiða miklu hærra tryggingargjald fyrir að fá að aka á þeim fjórhjólaða áfram, þótt ekki sé nema til næstu bensfnhækkunar. Nú, þegar komið er að árlegri skoðun bifreiða i landinu, er enn leikinn sami leikurinn varðandi þá afarkosti i viðskiptum, sem al- menningur þarf að sæta, til þess að geta notað það farartæki, sem ánefa er orðið kostnaðarfrekasta tæki i eigu fólks, einkabilinn. Við mætingu til bifreiða- skoðunar er fólki gert skylt að framvisa tveim vottorðum, þ. e. kvittun frá tollstjóraskrifstofu vegna greiðslu bifreiðaskatts, sem nú er rúmlega tvö þúsund krónur fyrir fólksbil (einn af hin- um 38 gjaldliðum, sem átti að hverfa við hækkun vegasjóðs- gjaldshækkunar sl. rikis- stjórnar) — og kvittun frá viökomandi bifreiðatrygginga- félagi um að ábyrgðartrygging hafi verið greidd. Hvort tveggja hefur verið i gildi um árabil og er allt eölilegt um þau mál, að þvi er varðar kröfu bifreiðaeftirlitsins um framvisun þessara gagna. Hins vegar er sagan öllu óskemmtilegri og ósvifnari, þegar kemur viðskiptaháttum bifreiðatrygginganna. Nú, eins og endranær, er ekki enn ljóst, hve mikið þessar tryggingar kunna að hækka, en til vonar og vara hafa þó tryggingafélögin farið fram á mikla hækkun, eða nákvæmlega 55,1%, ekki var það nú meira! f einu dagblaðanna birtist um þetta litil fréttaklausa, þ. 4. þ.m ., þar sem sagði, að á meðan nýja verðið væri ókomið (rétt eins og verið væri að tala um vor- eða sumarkomu), létu trygginga- félögin viðskiptavini (vinfengið eykst sennilega að mun eftir hækkunina) sina greiða sam- kvæmt gamla taxtanum og veita þeim (viðskiptavinunum ) „staðfestingarbréf,” sem þeir gætu sýnt við bifreiðaskoðun, yrðu þeir svo rukkaðir um viðbótina, þegar verðið lægi fyrir! Svo glögg var sú frétt af væntanlegri hækkun iðgjalda bif- reiðatrygginga. Það, sem i fréttdagblaðsins var nefnt „staðfestingarbréf”, er auðvitað ósköp venjuleg kvittun, sem svo er nefnd i daglegu tali, og hefur að geyma viðurkenningu á greiðslu óbreytts iðgjalds að viðbættum söluskattshækkunum þeim, er nýlega urðu og skylt er að innheimta. En siðasta liðinn i fréttinni, um að „viðbótin yrði svo rukkuð, þegar verðið lægi fyrir” láðist að skýra nánar, en hefði þó að skaðlausu mátt gera, a.m.k. að skaðlausu fyrir bifreiðaeigendur, sem fréttin hefur þó einna mest gildi fyrir. Sá háttur, sem bifreiða- tryggingar hafa á, varðandi viðbótar-rukkunina hjá þeim, sem skylt er að færa bifreiðar sinar i skoðun, áður en hækkun iðgjalda hefur verið ákveöin, er þó eins ósvifinn og verst gerist i viðskiptum og varla þekktur, nema úr undirheimum maf- iunnar. Viðskiptamenn bifreiða- trygginganna eru nú þessa dagana aðgreiða iðgjald bifreiða sinna, iögjald miðað við siðasta iögjaldaár, með tilheyrandi ,,bónus”-breytingum og að viðbættri söluskattshækkun, eins og áður sagði, — en þessu til viðbótar er viðskiptamönnum bifreiðatrygginga gert að skrifa undir plagg þess efnis, að þeir skuldbindi sig til að greiða við- bótarhækkun þá, sem siðar verði ákveðin, vilji þeir halda bifreið sinni gangandi, þ.e. fá hana skoðaða á tilsettum tima. Afrit af þessu plaggi, sem viðskiptamenn bifreiðatrygginga skrifa undir er þó ekki afhent viðskiptamanni, heldur er plaggið geymt hjá trygginga- félaginu og er eins konar yfir- lýsing viðskiptamanna á þvi, að þeim finnist sjálfsagt að tryggingaiðgjald hækki og gefa tryggingafélögum þar með góðan stuðning við beiðni sina til rikisvaldsins um hækkun og geta siðan veifað þessum undir- skrifuðu plöggum með hækkunar- beiðni sinni og sagt: „hér hafið þið það, svart á hvitu, viðskipta- vinir okkar eru sfður en svo mót- fallnir hækkun iðgjalda.” Bifreiðaeigendur hafa sem sé gengið i gildruna enn einu sinni, til þess að fá aö halda þarfaþjón- inum fjórhjólaða, og einu hags- munasamtök bifreiðaeigenda láta sér fátt um finnast, en huga að væntanlegri „ralley-keppni”. „Þetta hefur nú verið svona undanfarið,” svaraði Bifreiða- eftirlit rikisins, er sú stofnun var innt eftir, hvort þetta væri nýtt af nálinni, varðandi tilhöeunina um framvisun bráðabirgöa-kvittunar bifreiðatrygginga, og hvort menn þyrftu þá að koma siðar og sýna kvittun fyrir hækkuninni. En þótt þessi háttur hafi verið „hafður á undanfarið” er hér áreiðanlega um einsdæmi “ a6 ræða i viðskiptum, að menn skuldbindi sig til þess að greiða ákveðna hækkun, hve mikil sem hún verði. Oft hefur verið ýjað að þvi, að kaupmenn haldi i vörubirgðir sinar, er verðhækkanir eru i aðsigi, og seldu svo birgðirnar á nýju verði. Verður slikt þó vart sannað á einn eða neinn i þeirri stétt, enda fremur um söguburö að ræða en staðreyndir. Hitt myndi heldur þykja mikil ósvifni, ef kaupmaður skikkaði viðskiptavini sina, sem hjá hon- um eru i reikningi, að skrifa undir yfirlýsingu, i byrjun mánaðar, þess eínis, að allar vörur, sem þeir tækju út i mánuðinum yrðu að greiðast á nýju verði i lok mánaðarins, vegna þess að sótt hefði verið um hækkun álagning- ar, sem gert væri ráð fyrir að fengist samþykkt. Enginn kaup- maður myndi láta sér detta slika fjarstæðu i hug, en biða þess, að endanleg málalok fengjust. Það er árlegur viðburður, að bifreiðatryggingar lenda á heljarþröm með starfsemi sina, einmitt i lok hvers iðgjaldatima- bils. Svipuð er sagan um oliu- félögin, sem virðast hvenær sem er geta veifað hendi til hækkunar vöru og þjónustu sinnar, svo slæ- leg sem hún er. Lengi hafa verið skiptar skoðanir um það, hvort þessar þjónustugreinar, tryggingar og oliusala ættu að vera þjóðnýttar. Enginn skyldi þó hvetja til rikis- reksturs þjónustufyrirtækja i þessu landi, frekar en orðið er. Tvær eru þó þær greinar, sem sá er þetta ritar myndi vilja setja undir opinbert eftirlit, framar öll- um öðrum, og jafnvel þær einustu, en það eru trygginga- viðskipti og oliusala. Annaðhvort í ökla eða eyra hjó Val! — í körfuboltanum. Vann Ármann, en tapaði fyrir neðsta liðinu Það var ekki aldeilis, að stór- leikirnir I körfuboltanum um helgina yrðu leikirnir á milli KR og UMFN og 1R og ÍS, eins og bú- izt hafði verið við. Þess í stað urðu það leikirnir HSK-Valur og Ármann-Valur, en þeir rugluðu öllum spám og úrslitum um þessa helgi. Valsmenn léku viö HSK-liðið sem ekki hafði unnið leik i vetur — á laugardaginn. Þá voru HSK- menn komnir með tvo nýja leik- menn....„KR-ingana” Hilmar Victorsson og Þröst Guðmunds- son, sem gengu úr KR i vetur yfir til HSK, og vanmátu Valsmenn þetta nýja lið. HSK hafði yfir lengst af, en Valsmönnum tókst að jafna 72:72 seint i siðari hálfleik. Þá fóru austanmenn aftur i gang og kom- ust i 87:80 — munur, sem var of mikill fyrir Valsmenn, sem urðu þar með að horfa á eftir 2 stigum til HSK-, sem sigraði 89:86. 1 gær lék svo Valur við Armann og var það ægileg barátta, sem stóö fram á lokasekúndur leiksins. Þegar 10 sekúndur voru eftir af leiknum, var Valur yfir 73:71, en þá jafnaöi Jón Sigurðs- son meö tveim vitaskotum — 73:73. Valsmenn fengu boltann, og þegar TVÆR sekúndur voru eftir sendi Hafsteinn Hafsteins- son hann niður i gegnum körfu- hringinn. Þar með var sigurinn Vals —75:73 og enn einum tauga- leiknum i 1. deildarkeppninni i ár lokiö. Leikurinn á milli tR og IS — sá sem átti að verða mest spennandi — varö það ekki, en aftur á móti var hann einn bezt leikni leikur 1R i mótinu. ÍR-ingarnir náðu strax forustu og héldu henni út allan leikinn. Lokatökurnar urðu 96:81 fyrir ÍR. Leikur KR og UMFN var skemmtilegur á köflum, enda mikið skorað og skotið. KR var 3 stigum yfir i hálfleik — 59:56, og þegar 5 minútur voru eftir var munurinn 5 stig — 95:90. Bæði liðin skoruðu yfir 100 stig i leikn- um — KR-ingarnir 111 stig og Njarðvikingarnir 101. Um næstu helgi verða tveir mikilvægir leikir i deild- inni..Fallleikurinnmilli HSK og Snæfells og siðan leikur efstu liðanna KR og IR. —klp— Stúdentar töpuðu fyrir Derby og Lugi Lið Háskóla islands i blaki varð i fjórða sæti f Norðurlandamóti háskólaliða, sem háð var i Lundi i Sviþjóð um helgina. Átta lið tóku þátt i mótinu, og varö ÍS i ööru sæti i sinum riöli, en tapaði siöan leiknum um 3ja sætið i mótinu. I fyrsta leiknum sigraði tS há- skólann i Gautaborg 15:13 og 15:9 og siðan OS frá Noregi 15:4 og 15:4, en tapaði siðan fyrir há- skólanum i Lundi — sem keppir i Sviþjóð undir nefninu Lugi, 13:15 og Y:15eftir að hafa komizti 13:8 i fyrstu hrinunni. Þróttur Víking í Með miklum öskrum og látum — og nokkuð þokkalegum leik — tókst Þrótti að sigra Viking 3:1 i islandsmótinu i blaki i gær. Tvær fyrstu hrinurnar voru mjög skemmtilegar og jafnar. Þá fyrstu unnu Vikingarnir 16:14, en næsta var eign Þróttar, sem sigr- aði 15:13. Þar með var staðan 1:1 og allt útlit fyrir hörku baráttu. En annað varð uppi á teningnum. t leiknum um 3ja sætið i mótinu keppti IS við Derby KFUM frá Sviþjóð og tapaði 2:15 og siðan 10:15 eftir að hafa komizt i 8:0 i siðari hrinunni. Sigurvegari i mótinu varð há- skólinn i Helsingfors i Finnlandi. Lugi varð i öðru sæti, þá kom Derby, siðan 1S, þá Linkjöbing Sviþjóð, Gautaborg Sviþjóð, Vexjö Sviþjóð og ÖS Noregi rak lestina. A morgun leikur tS i Kaup- mannahöfn og i Osló á laugardag- inn. —klp— sigraði blakinu Vikingarnir duttu alveg niður, en Þróttararnir blómstruðu og sigr- uðu i tveim næstu hrinum — 15:3 og 15:4. i b-mótinu — 2. deild — voru leiknir þrir leikir, og var ts- lendingur, lið frá Bændaskólan- um á Hvanneyri þátttakandi i þeim öllum. Liðið sigraði Breiða- blik 3:1, Þór frá Þorlákshöfn 3:2 en tapaði fyrir Þrótti b 2:3. —klp— Reykjavíkurúrvalið kom öllum ó óvart Sigraði i blakleiknum við North Carolina Uni- versity, þar sem Islendingur er bezti maðurinn Ileykjavikurúrvalið i blaki — leikmenn úr Þrótti og Viking — sigraði bandariska háskólaliðið frá North Carolina i Laugar- dalshöilinni i gærkveldi. Náöi Reykjavikurliðið mjög vel saman I leiknum og haföi 3:2 sigur eftir meira en tveggja tima viðurcign. Bandarikjamennirnir sigruðu i fyrstu hrinunni 15:9, en siðan vann úrvalið 16:14. Þá sigr- uðu hinir 15:13, en islendingarnir hefndu fyrir það með alveg eins sigri 15:13. Orslitahrinan var minnst spennandi af öllum — henni lauk með sigri Reykjavikur 15:9. Leikurinn var ekki liflegur en langur i meira lagi. Bandarikja- mennirnir — með islendinginn Guðmund Böðvarsson i farar- broddi — sýndu margt mjög gott, en það gerðu Reykvikingarnir einnig, sérstaklega þeir Páll Ólafsson og Valdimar Jónasson, og aörir voru þeim ekki langt að baki. —klp—

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.