Vísir - 10.03.1975, Blaðsíða 4
4
Vísir. Vlánudagur 10. marz 1975
REUTER
AP/NTB
ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGU
Flýja
Phnom
Penh
11
Folalda
skrokkar
Úrbeining,
p'okkun og
merking.
kg.kr. 270
P
jtt
D^DD®©TT^E)DD^3
Laugalæk 2 Simi 35020
Brezki flugherinn mun
á morgun leggja til flug-
vél til þess að flytja um
50 brezka borgara frá
Phnom Penh, sem
flestir spá falli innan
skamms.
Starfsfólk ýmissa sendiráða i
höfuðborg Kambodiu er þegar
farið úr borginni, og brezk stjórn-
völd réðu brezkum rikisborgur-
um til að forða sér einnig.
Áströlsk flugvél, sem flutti
sendiráði Ástraliu i Phnom Penh
vistir, flutti með sér til baka
sendiráðsfólk Malaysiu og Singa-
pore.
Mjög erfitt er að halda uppi
flugsamgöngum við flugvöllinn i
Phnom Penh, sem liggur af og til
undir eldflaugahrið kommúnista.
24 eldflaugar hæfðu völlinn á
laugardag.
Þessi mynd var tekin i Phnom
Penh fyrir helgi eftir eina
eldflaugaárás rauðliða.
Þungur róður hjó Kissinger —
Arabar lýsa yfir óhaggaðri afstöðu
Henry Kissinger,
utanrikisráðherra USA,
hóf i gærkvöldi nýjar
viðræður við israelska
forráðamenn, en ýmis-
legt þykir benda til þess
að friðarróðurinn verði
honum þungur i þessari
ferð.
Kissinger, sem hefur farið
nokkrar ferðirnar til Austurlanda
nær i tilraunum sinum til að fá
Araba og Israela til að setjast að
samningaborðinu, hafði fyrir
þessa för lýst yfir, að nú ætlaði
hann sér að ná fram áþreifan-
legum tilslökunum aðila og
árangri.
En eftir yfirlýsingu Sýrlands-
forseta í gær og sömuleiðis neitun
Sadats Egyptalandsforseta i
fyrradag, þykir hæpið, að
Kissinger fái miklu um þokað að
þessu sinni.
Sadat synjaði Israelsmönnum
um yfirlýsingu Egypta þess efnis,
að þeir mundu ekki ráðast á
Israel, eins og Israelar höfðu
krafizt i skiptum fyrir Sinaieyði-
mörkina. — Það var þó algert
grúndvallarskilyrði af hálfu
Israelsmanna.
Hafez Al-Assad, Sýrlandsfor-
seti, lýsti þvi yfir i gær, en þeir
Kissinger ræddust þá við, áður
en Kissinger fór til Tel Aviv i
gærkvöldi, að hann væri reiðu-
búinn til að mynda sameiginlegt
herráð og stjómmálanefnd Sýr-
lendinga og Palestínuaraba
(skæruliða). Hann sagðist halda
fast við þá afstöðu Sýrlendinga,
að þeir myndu ekki láta sér
lynda, að Egyptar og Isrelsmenn
gerðu með sér friðarsamninga.
Hann krefst eins og áður, að
ísraelsher fari úr Golanhæðum,
og mun ekki setjast að
samningum i Genf, nema fulltrú-
ar Palestinuskæruliða verði þar
einnig.
Afstöðu Araba hefur því ekkert
veriö hnikað.
upp útifund krata
Leystu
Alþýðuflokkurinn i
Portúgal sakaði i gær fé-
laga sina úr rikisstjórn-
inni, kommúnista, um
að hafa staðið að upp-
þotum um helgina, sem
leystu upp flokksþing
þeirra i Setubal.
Julio Castro Caldes, einn leið-
toga alþýðuflokksmanna, sagði á
blaðamannafundi i gær, að þekkzt
hefðu á myndum, sem teknar
voru af óeirðunum, andlit her-
skárra kommúnista i hópi óeirð-
arseggja.
Þótt mikill ágreiningur hafi
verið milli sósialista og alþýðu-
flokksmanna annars vegar og
kommúnista hins vegar innan
bráðabirgðastjórnar Portúgals,
þá er þetta i fyrsta sinn, sem einn
samstarfsflokkanna ásakar fé-
laga sina fyrir ofbeldisaðgerðir.
Herlið gætti i gær lögreglu-
stöðvarinnar i Setubal, en umsát-
ur óeirðarseggja kommúnista
hafði þá staðið áður i 18 klukku-
stundir, svo að lögregluliðið hætti
sér ekki út úr stöðinni. Herinn
bjargaði um 50 lögreglumönnum
úr stöðinni undan aðsúg 300
kommúnista.
Trylltur skrillinn hafði áður
reynt að leysa upp útifund al-
þýðuflokksmanna, og þegar lög-
reglan gekk á milli og ætlaði aö
fjarlægja óeirðarseggina, beittu
hinir siðarnefndu skotvopnum,
svo að lögreglumennirnir neydd-
ust til að verja sig á sama hátt.
Þetta eru einhver verstu átök-
in, sem orðið hafa i Portúgal, sið-
an herinn bylti stjórn landsins i
fyrra. — En nokkrum sinnum
hafa kommúnistar leyst upp þing
annarra flokka og neytt þá til
þess að aflýsa fundum, þannig að
ljóst er orðið fyrir löngu, að öðr-
um flokkum en kommúnista
verður naumast unnt að starfa
eðlilega.
Þykir þetta spá illu um fram-
tiðina, en undirbúningur stjórn-
málaflokka fyrir kosningarnar i
næsta mánuði er nú viðast hafinn.
Til þeirra kosninga er boðað, svo
að unnt verði að mynda löglega
kjöma stjórn til að leysa af
bráöabirgðastjórn hersins.
Kommúnistar kveiktu i skrif-
stofum alþýðuflokksmanna i
Setubal i fyrrakvöld, og sakar Al-
þýðuflokkurinn herinn um að láta
undir höfuð leggjast að verja aðra
flokka fyrir ofsóknum kommún-
ista. — Starfslið skrifstofunnar
hafði flúið bygginguna áður en
kveikt var i henni. Hafði flokks-
forystunni verið bent áður á, hvað
til stæði, en lögreglan treysti sér
ekki til þess að verja húsið, þótt
vitað væri um ikveikjutilraunina
fyrirfram.
Almennur launþegafundur
BSRB um KJARASKERÐINGUNA veröur
í HÁSKÓLABÍÓI, mánudag 10. mars kl. 5.15 e.h.
Frummælendur (stuttar ræöur):
Kristján Thorlacius, form. B.S.R.B.
Ingibjörg Helgadóttir, form. Hjúkrunarfél. Isl.
Einar Ólafsson, form. Starfsm.fél. ríkisstofnana
Ingi Kristinsson, form. Samb. ísl. barnakennara
Þórhallur Halldórsson,
form. Starfsm.fél. Reykjavíkurborgar
Haraldur Steinþórsson, framkv. stj. B.S.R.B.
Fundarstjóri:
Ágúst Geirsson, form. Fél. ísl. símamanna
Fjölmennið og sýnið
þannig samstöðu um
málstað launafólks
Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja