Vísir - 10.03.1975, Blaðsíða 12
12
VIsir.Mánudagur 10. marz 1975
Meistaraheppnin farin að
setja svip ó leik Everton
Liðið hefur nú tveggja stiga forustu í 1. deildinni ensku
Everton hefur náð
tveggja stiga forustu i 1.
deildinni ensku og meist-
araheppnin er farin að
segja til sín hjá liðinu.
Sigurmarkið gegn QPR á
laugardaginn skoraði Bob
Latchford fyrir Everton
á lokamínútu leiksins og
var sárt fyrir litla
Lundúnaliðið, sem senni-
lega leikur skemmti-
legustu knattspyrnu allra
liða á Englandi, að tapa
báðum stigunum.
Everton var i vandræöum
með QPR og á fyrstu minútu
siðari hálfieiks náði QPR for-
ustu með marki hins stórhættu-
lega Don Givens. En Everton
gafst ekki upp og liðið var ákaft
hvatt af 39.567 áhorfendum. A
48. min. jafnaöi Mike Lyons
fyrir Everton, þegar hann skall-
aði knöttinn i mark eftir horn-
spyrnu. Latchford skoraði svo
sigurmarkið næstum með sið-
ustu spyrnu leiksins.
Burnley er i öðru sæti með 40
stig og gerði jafntefli við Liver-
pool á Turf Moor i Burnley á
laugardag, en það var leikur,
sem Burnley átti að vinna. Ray
Clemence hélt Liverpool á floti
með snilldarmarkvörzlu. En
hann gat ekki ráðið við mark
Burnley á 30. min. Leighton
James einlék 50 metra með
knöttinn, lék snilldarlega á
nokkra leikmenn Liverpool og
gaf svo frábærlega vel fyrir
markið. Ray Hankin skallaði
lágt i mark. Liverpool jafnaði á
73. min. — hálfgert heppnis-
mark. McDermott átti skot að
marki — knötturinn lenti i
Henry Newton, bakverði, og það
ruglaði svo Stevenson, mark
vörð og knötturinn tritlaði gegn-
um klof hans i markið.
En úrslitin á laugardag urðu
þessi:
1. deild
Burnley—Liverpool 1-1
Chelsea — Derby 1-2
Everton —QPR 2-1
Leicester —Man. City 1-0
Luton — Coventry 1-3
Sheff.Utd. — Wolves 1-0
2. deild
Bolton —Manch.Utd. 0-1
Cardiff —Blackpool 1-1
Millvall — Hull 2-0
Norwich — Sunderland 0-0
Nottm.For. — Aston V. 2-3
Oldham — Portsmouth 2-0
Orient—Notts Co. 0-1
Southampton —Oxford frestað
WBA — Sheff.Wed. 4-0
York City — Bristol C 1-0
Helztu úrslit í 3. deild.
Brighton — Charlton 1-1
Hereford — Plymouth 1-5
Preston — C. Palace l-l
Southend — Blackburn 2-2
Swindon — Walsall 3-0
Derby er komið i 3ja sæti i 1.
deild eftir sigurinn i Lundúnum
gegn Chelsea — fyrsti sigur liðs-
Sjötta umferð ensku bikarkeppninnar
Leeds hélt markinu
hreinu í Ipswich?
Það má með sanni segja, að
liðin með „ham” i nafni sinu
hafi verið i miklum ham i sjöttu
umferð ensku bikarkeppninnar
á laugardaginn. Birmingham og
West Ham úr 1. deild og Fulham
úr 2. deild eru komin i undanúr-
slit I keppninni, en Ipswich og
Leeds verða að leika að nýju,
þarsem leik þeirra lauk án þess
mark væri skorað. Þar voru
ensku meistararnir hjá Leeds
heppnir — en fyrrum fram-
kvæmdastjóri þeirra, Don
Revie, nú landsliðseinvaldur, ó-
heppinn. Jafnteflið þýðir, að
hann verður án fjögurra leik-
manna, sem hann valdi i lands-
liðshópinn enska gegn heims-
méisturum Vestur-Þýzkalands
á miðvikudag — Poul Madeley
og Alan Clarke, Leeds og David
Johnson og Kevin Beattie, Ips-
wich. Þjóðverjarnir verða með
sex úr heimsmeistaraliðinu —
Hoeness meiddist á laugardag
og leikur ekki, Overath og Mull-
er hættir I landsliði, og Breitner
á Spáni.
En það eru bikarleikirnir,
sem við ætlum að segja frá og
fyrst eru það úrslitin.
Arsenal — West Ham 0-2
Birmingham — Middlesbro 1-0
Carlisle —Fulham 0-1
Ipswich — Leeds 0-0
Skotland
Aberdeen —Motherwell 0-1
Arbroth —Airdrie 2-2
Dumbarton — Celtic 1-2
Hearts — Dundee 1-1
Ipswich sótti miklu meira
gegn Leeds, en hin fræga vörn
meistaraliðsins „hélt höfði” I
pressunni. Ipswich var óheppið,
þegar David Johnson lék i gegn,
dró Harway úr markinu, lyfti
siðan knettinum yfir hann, að-
eins til aö sjá knöttinn lenda I
þverslánni og út aftur. Þá voru
þeir Johnson og Trevor Why-
mark nærri að skora i öðrum til-
fellum fyrir Ipswich. Leiknum
lauk i grenjandi rigningu á erfið-
um velli og áhorfendur voru
38.101 — nýtt áhorfendamet á
Portman Road. Leeds átti lika
stangarskot I leiknum — Gordon
McQueen.
Arsenal steinlá á Highbury
fyrir West Ham að viðstöddum
56.742 áhorfendum — og ekki
nóg með það. Þetta er i fyrsta
skipti, sem Arsenal tapar fyrir
Lundúnaliði i 85 ár I bikar-
keppninni. Leikurinn var háöur
við erfiðar aðstæður vegna veð-
urs, en það hafði ekki áhrif á
Alan Taylor hjá West Ham.
Hann skoraði bæði mörk liðs
sins — hið fyrra á 15. min. eftir
fyrirgjöf Graham Paddon, og
hið siðara á fyrstu min. siðari
hálfleiks, þegar hann fékk send-
ingu frá Trevor Brooking og
skoraði með þrumufleyg af 20
metra færi. Taylor iék þarna
sinn fyrsta „heila” leik fyrir
West Ham, en hann var keyptur
ekki alls fyrir löngu frá Roch-
dale I 4. deild fyrir 40 þúsund
pund. Lið Arsenal var slakt I
leiknum — þó átti Matthews
stangarskot. Ball og McNab
léku með Arsenal, þar sem
brottvikningu þeirra af leikvelli
I Derby var áfrýjað.
West Ham er ekki eina lið
Lundúna, sem leikur i undanúr-
slitum. Fulham náði einnig
þeim áfanga — leikmenn liðsins
ferðuðust 400 milur til Carlisle
norður við landamæri Skotlands
og slógu 1. deildarliðið út. Þaö
getur Lundúnaliðið þakkað
snilldarmarkvörzlú Mellor (áð-
ur Burnley) og góðri vörn, þar
sem gömlu landsliðsfyrirliðarn-
ir, Bobby Moore og Alan
Mullery, áttu enn einn stórleik-
inn i bikarkeppninni. Eina
markið i leiknum skoraði Les
Barrett á 66. min. eftir að hafa
fengið knöttinn af markverði
Carlisle. Áhorfendur voru 21.570
eða vel fjórðungur af ibúatölu
borgarinnar.
Birmingham sýndi betri leik
en Middlesbro og verðskuldaði
sigur i grófum leik. Ahorfendur
voru 47.260 og eina mark leiks-
ins skoraði Bob Hatton á 56.
min. Fyrirliði Birmingham,
Howard Kendall, tók þá horn-
spyrnu — Joe Gallagher skall-
aði til Hatton, sem skallaði
knöttinn áfram I markið.
1 skozku bikarkeppninni urðu
óvæntust úrslit i Aberdeen, þar
sem Bobby Graham skoraði
eina mark leiksins fyrir
Motherwell á 44 min. Galvin og
Wilson skoruðu mörk Celtic
gegn Dumbarton. Leikmenn
Celtic hafa áreiðanlega verið
fegnir, þegar dómarinn flautaði
i lokin, þvi Dumbarton hafði sótt
mjög lokakafla leiksins. —
hsim.
Celtic sendi boð eftir ungum
íslenzkum knattspyrnumanni
Bauð Víkingnum Gunnlaugi Kristfinnssyni, sem var hjá félaginu í haust, að
koma aftur og vera hjá félaginu og vera þar jafnvel til frambúðar.
Hinn cfnilegi knattspvrnu-
maður úr Víking, Gunnlaugur
Kristfinnsson, er um þessar
mundir hjú hinu fræga skozka
knattspyrnuliði, Celtic, sem
hefur mikinn áhuga á að fá
þennan unga islending til sin.
Gunnlaugur var ásamt öðrum
ungum pilti úr Víking, óskari
Tómassyni, hjá Celtic i haust.
Þaðan fóru þeir félagar til
Liverpool, þar sem þeir dvöldu
fram að jólum, en þá komu þeir
lieim.
Forráðamönnum Celtic hefur
litizt meir en litið vel á Gunn-
laug, því fyrir nokkrum dögum
sendu þeir sinum dyggasta
stuðningsmanni á islandi, séra
Róhert Jack, hoð um að koma til
Skotlands með Gunnlaug — ef
pilturinn hefði áliuga — þvi
fclagið hefði mikinn hug á að fá
hann i sinar raðir.
Gunnlaugur þáði boðið með
þökkum, cnda býðst ungum pilt-
um hér upp á norðurhjara ver-
aldar sjaldan annað eins tæki-
færi, og hélt liann utan nú fyrir
nokkru. Má fastlega búast við
þvi að hann verði hjá Celtic
fram á vor — og jafnvel lengur
— en á þvi hefur framkvæmda-
stjóri Ccltic, sem sendi honum
boðið, mikinn áhuga.
—klp—
ins i heimsborginni á keppnis-
timabilinu, Derby skoraði tvö
mörk á fjórum min. i leiknum
og komst i 2-0. Daniel skoraði
hið fyrra á 57. min. en Alan
Hinton hið siðara beint úr auka-
spyrnu á 61. min. Strax i næsta
upphlaupi skoraði John Hollins
fyrir Chelsea, en fleiri urðu
mörkin ekki. Áhorfendur 22.644.
Leicester náði Tottenham að
stigum með sigri gegn Manch
City. A sjöttu min. slasaðist
markvörður Manch. City, Keith
McCrea og varð að yfirgefa
völlinn. Miðvörðurinn Mike
Doyle fór i markið og Doyle hélt
markinu hreinu þar til á loka-
minútunni. Þá skallaði Bob Lee
i mark eftir fyrirgjöf Frank
Worthington. Luton tapaði
heima fyrir Coventry, þar sem
Brian Alderson skoraði fyrir
Miðlandaliðið á 9. og 25. min. i
fyrri hálfleik. Á 55. min. tókst
Johnny Aston að skora fyrir
Luton og 14.054 áhorfendur
fengu smávon. En Luton tókst
ekki að jafna og 12 min. fyrir
leikslok skoraði Alan Green
þriðja mark Coventry. Sheff.
Utd. sigraði Úlfana með marki
skozka miðvarðarins Eddie
Colquhoun á 16.min. Fimm min.
fyrir leikslok var nýliða i liði
Úlfanna, Nigel Williams, visað
af leikvelli af dómara leiksins —
en leikurinn var mjög grófur.
I 2. deild vann Manch. Utd.
mjög þýðingarmikinn sigur i
nágrannaborginni Bolton. Eina
mark leiksins skoraði Stuart
Pearson eftir að Stewart Houst-
on bakvörður hafði átt skot i
stöng Bolton-marksins. Það var
á 29. min. Norwich-liðið var
heppið að halda jöfnu á heima-
velli gegn Sunderland, og I Nott-
ingham skoraði Ray Graydon
tvö af mörkum Aston Villa gegn
Forest — en hann skoraði sigur-
markið fyrir Villa i úrslitaleik
deiidabikarsins á dögunum.
Aston Villa er nú i 3ja sæti.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Everton 32 14 14 4 48-29 42
Bumley 33 16 8 9 56-46 40
Derby 32 15 8 9 49-43 38
Liverpool 32 14 9 9 45-34 37
Stoke 32 13 11 8 48-38 37
Ipswich 32 17 2 13 45-30 36
Leeds 32 14 8 10 45-34 36
Man. City 32 14 8 10 44-44 36
Sheff.Utd 32 14 8 10 42-42 36
Middlesbro 32 12 11 9 40-33 35
QPR 33 13 8 12 44-42 34
Newcastle 31 14 6 11 48-47 34
West Ham 32 11 11 10 48-41 33
Coventry 33 10 12 11 44-51 32
Wolves 32 10 10 12 39-40 30
Birmingh. 32 11 6 15 40-48 28
Chelsea 32 8 12 12 37-54 28
Arsenai 30 9 7 14 33-36 25
Tottenham 33 8 8 17 38-51 24
Leicester 31 8 8 15 29-44 24
Luton 32 5 10 17 28-48 20
Carlisle 32 8 3 21 30-45 19
2. deild
Manch.Utd .33 20 6 7 50-23 46
Sunderland 33 15 11 7 53-28 41
Aston Villa 32 16 .8 8 50-28 10
Norwich 32 14 11 7 43-29 39
Blackpool 33 13 12 8 34-23 38
Bristol C 32 15 7 10 35-24 37
WBA 32 13 8 11 38-29 34
Bolton 32 13 8 11 37-29 34
Notts Co. 33 11 12 10 37-41 34
Oxford 33 13 7 13 32-42 33
IIull 33 11 11 11 33-49 33
York 33 12 7 14 42-43 31
Fulham 31 9 12 10 30-25 30
Southamt. 31 10 10 11 39-39 30
Nottm. For. 33 10 10 13 36-44 30
Orient 32 7 16 9 22-32 30
Oldham 33 9 10 14 31-36 28
Portsmouth 33 9 10 14 33-43 28
Millvall 32 9 8 15 36-43 26
Bristol Rov. 32 10 6 16 29-48 26
Cardiff 32 7 11 14 29-47 25
Sheff.Wed. 32 5 9 18 28-52 19