Vísir - 10.03.1975, Side 13
Vlsir. Mánudagur 10. marz 1975
cTVlenningarmál
meginatriðum
Laugarásbió: „Sólskin” (Sun-
shine)
Leikstjóri: Joseph Sargent
Leikendur: Christina Raines og
Cliff DeYoung
Fr a m le iö an d i: Universal
Pictures.
Ungri móður, Jacque-
lyn M. Helton, þótti á
banasænginni sem hún
ætti heiminum enn
margt ósagt. Á meðan
hún beið þess, að bein-
krabbi leiddi hana til
dauða las hún inn á seg-
ulband lýsingar á til-
finningum sinum og
sinna nánustu og skoð-
anir sinar á uppeldi
dótturinnar.
Jafnframt er i dagbók hennar
að finna ljóð um fjöllin, sólskinið
og árstiðirnar. A þessu uppgjöri
deyjandi móður við umheim sinn
á myndin „Sólskin” að byggja.
Lýsing stúlkunnar er einlæg og
sönn. Svo langt sem þær lýsingar
ná er myndin „Sunshine” á
grænni grein, en þegar gera á
kvikmynd utan um rammann
bregzt framleiðendunum boga-
listin i einhverju meginatriðanna.
En i hverju felast mistökin?
Fyrst vaknar spurningin um það
hvort rómantiskar hugleiðingar
ungrar stúlku eigi yfirleitt heima
á breiðtjaldi.
Eitt er i það minnsta ljóst, að
eigi að flytja þær yfir á filmu þarf
að sýna hugleiðingunum mikinn
trúnað og djúpan skilning á
undirrót þeirra og merkingu.
Þetta er ekki gert. Innhverfar
hugleiðingar stúlkunnar eru
gerðar að úthverfri ævisögu.
Sýna hefði þurft umhverfið á inn-
hverfan hátt, frá sjónarhóli stúlk-
unnar. Ahrifin hefðu á þann hátt
getað orðið gifurleg.
Leikstjórinn hefði gjarnan mátt
gleyma þvi, að hann hefði nokkru
sinni séð „Love Story” og þess i
stað átt að horfa á myndina
„Johnny Got His Gun” i þrjá
daga i röð.
„Johnny Got His Gun” er ein-
mitt gerð frá þeim innhverfa
sjónarhóli, sem hér var reynt að
lýsa. t stórkostlega vel gerðri og
áhrifarikri mynd er þar lýst hug-
renningum hermanns, er slasazt
hefur hættulega i átökum. Þótt
myndin byggi nær eingöngu á ein-
tali herrnannsins, sem áhorfand-
inn fær aldrei að sjá, verður ár
angurinn næm sálarlýsing og
skerandi striðsádeila.
Skilningsleysið á rómantík
stúlkunnar orsakast vafalaust að
hluta af þvi, að i myndinni „Sól-
skin” eru miðaldra menn að lýsa
frjálsri æsku. Vegna andlegs eða
KVIKMYNDIR
Umsjón:
Jón Björgvinsson
likamlegs aldurs eru þeir greini-
lega úr öllu sambandi við þann
heim, sem þeir vilja fjalla um. Af
hverju ekki að leyfa hippunum
sjálfum að handleika efnið á sinn
frjálslega hátt.
Þeim var gefinn laus taumur-
inn i myndinni „Woodstock” og ár
angurinn var sönn og skilnings-
rik mynd um ungt fólk, enda gerð
af ungu fólki. Hvað eru miðaldra
menn að meina með þvi að fram-
leiða kvikmyndir fyrir sjálfa æsk-
una um æskuna eins og þeir hafa
komizt að að hún eigi að vera, en
er svo bara alls ekki.
Ég er þvi hræddur um að stór
misskilningur hafi i myndinni
„Sólskin” gert að litlu góðan
grundvöll.
John Denver virðist þó alveg
vita hvað hann er að fara og hin
ágæta tónlist hans og ljóð i kvik-
myndinni virðast á sömu breidd-
argráðu og endurminningar
stúlkunnar. En hvernig gátu þá
allir hinir misskilið hugsanir
þeirra?
Sam og Kate halda upp til fjalla ásamt dótturinni Jill til að gieyma ná-
lægð dauðans.
Það er harla ólíklegt, nema
því aðeins að þú skiptir við
gagnkvæmt tryggingafélag.
Gagnkvæm trygginga-
félög greiða tekjuafgang til
viðskiptavina sinna.
/
Arið 1974 voru endurgreiðslur til tryggingataka
hjá Samvinnutryggingum svo sem hér segir:
af lögboðnum húsatryggingum 1.653.000.-
af farmskipatryggingum 1.588.000.-
af ferða-og slysatryggingum 1.698.000.-
af frjálsum ábyrgðatryggingum 1.496.000.-
★ ★ Laugarásbíó: „Sólskin"
Jl/lisskilningur í
Er þessi reitur á þínum
tryggingaskjölum ?
Smáauglýsingar
VÍSIS eru virkasta
verðmætamiðlunin
Samtals kr. 6.435.000.-
Þeir, sem keyptu ofangreindar tryggingar hjá Samvinnutryggingum 1973, fengu
því tölu í þennan reit 1974. Tölu þeim til tekna.
SAMVirVIXUTRYGGirVGAR GT