Vísir - 03.04.1975, Síða 8

Vísir - 03.04.1975, Síða 8
Vlsir. Fimmtudagur 3. april 1975. Vlsir, Fimmtudagur 3. april 1975. Umsjón: Hallur Símonarson Ættum að vinna þó — á Norðurlandamótinu í lyftingum Danir liafa valift liðiö sem á að taka þátt i Norðuriandamótinu i lyftingum, sem háð verður hér i Reykjavik dag- ana 26.-27. april n.k. í liðinu eru þessir: John Schou, Er- ling Johansen, Varny Bærentsen og Preben Krebs. Allir þessir menn kepptu á Danmerkurmeistaramótinu I lyftingum, sem háð var fyrir nokkrum dögum, og var árangur þeirra þar mun lakari en árangur okkar beztu manna á íslandsmótinu i siðustu viku. — klp — Celtic komið í bikarúrslit Glasgow Celtic, sem siðastliðinn laugardag missti skozka meistaratitil- inn i knattspyrnunni, sem liðið hefur unnið síðustu niu árin, tryggði sér i gærkvöldi rétt i úrslit skozku bikar- keppninnar. Celtic lék þá við Dundee á Hampden Park i Glasgow i undanúrslitum og sigraði með 1-0. Það er fjórða árið i röð, sem Celtic slær Dundee-liðið út i bikarkeppninni. Eina mark leiksins skoraði Itonnie Glavin eftir varnar- mistök Tommy Gemmell sem nú leik- ur með Dundee. Gemmell var um langt árabil einn bezti leikmaður Celtic og skozka landsliðsins. Skoraði meðal annars fyrir Celtic — hann var t'rægur fyrir mörk sin þessi bakvörður — þegar Celtic vann Evrópubikarinn 1967. A laugardag verður hinn leikurinn i undanúrslitum og þar leika Airdrie og Motherwell. Sigurvegarinn úr þeirri viðureign leikur svo við Celtic til úr- slita. — hsim. Cardiff að bjarga sér? Cardiff City sigraði Portsmouth 1-0 á heimavelli i gærkvöldi i 2. deildinni ensku I knattspyrnunni og jók við það injög miiguleika sina að halda sæti i deildinni. Komst uppfyrir bæði Bristol Rovers og Millvall — en Sheffield Wed. er þegar fallið. Einn annar leikur var háður í deildinni — West Bromwich Albion sigraði Notts County 4-1. i 4. deild vann Reading Exeter 3-0. — hsim. Sá pólski skor- aði tvö mörk! Pólski kna ttspy r num aöurinn Gadocha, sem af mörgum var talinn bezti útberjinn á heimsmeistara- keppninni i Vestur-Þýzkalandi I fyrra, iék sinn fyrsta leik með franska 1. deildarliðinu Nantes á þriðjudag. Þá var hcil umferð I 1. deildinni frönsku og Nantes vann Lyons 3-1. Gadocha stóð sig mjög vel I leiknum með Nantes-liðinu, sem vildi fá Jóhannes Eðvaldsson til sin fyrir áramótin — og skoraði tvö af mörkunum. St. Etienne, sem komið er I undanúr- slit I Evrópubikarnum — leikur þar við Bayern Munchen — sigraði Rennes 3-0 og er efst i deildinni. Er með þremur stigum meira en næsta lið. — hsim. TILRAUNIN heppnaðist — Félagslið Dynamo Kiev sem landslið Sovétríkjanna í knattspyrnu vann stór- sigur á Tyrkjum í Evrópukeppninni Hér sjást þau Anna Maria Moser-Pröll og Gustavo Thoeni, sem sigruðu I keppni heimsbikarsins I alpagreinum — keppni, sem stendur I marga mánuðiog vekur gifurlega athygli. Anna Maria vann fimmta árið I röð — Thoeni i fjórða sinn eftir hörðustu keppni, sem um getur I karia- flokki. Hann varð aðeins fimm stigum á undan Svianum Ingimar Sten- mark, sem varð 19 ára fyrir nokkrum dögum. Hann verður sá bezti, sagði Thoeni eftir keppnina um mótherja sinn. Eftir hörmulegan árangur i Evrópu- keppninni í knattspyrnu, þar sem sovézka lands- iiðið tapaði 3-0 fyrir ír- urn, gripu forráðamenn knattspyrnunnar i Sovétrikjunum til þess ráðs, að tefla félagsliði fram i heild sem lands- liði. örvænting, sögðu margir — en tilraunin heppnaðist heldur betur i gær. Þá lék Dynamo Kiev, sem nú er sovézkur meistari i knatt- spyrnu, i heild sem landslið gegn Tyrklandi. Vann stórsigur 3-0 i Kiev og hefur nú nokkra von um að komast áfram i keppninni. Ahorfendur voru 100 þúsund. Oft hefur verið rætt um það viða um lönd að hafa slikan hátt i sambandi við landslið, en það f 1 faraldur í úrsl öllum flokkur itum lum! | — ú Reykjavíkurmótinu í badminton, sem lýkur í kvöld | Badm intonleikmaðurinn snjalli.Haraldur Korneliusson TBR, tryggði sér rétt í úrslit I öll- um flokkum, er hann tók þátt i, þegar leikið var i undanúrslitum á meistaramóti Reykjavikur i badminton i Laugardalshöllinni i gærkvöldi. Það má næstum segja — samkvæmt venju. Úrslitaleik- irnir verða I kvöld og hefjast kl. 8.30 i Laugardalshöll. I einliðaleik karla sigraði Haraldur Sigurð Haraldsson, TBR, með 15-6 og 17-15 og var sið- ari lotan mjög jöfn, 13-13 og 14-14. Óskar Guðmundsson vann nokk- uð óvænt félaga sinn úr KR, Frið- leif Stefánsson, með 15-11 og 15-11 og leikur þvi til úrslita við Harald I kvöld. Leikið var til úrslita i einliða- leik kvenna — aðeins tveir keppendur. Lovisa Sigurðardótt- ir, TBR, sigraði Svanbjörgu Pálsdóttur, KR, með 11-4 og 11-5. 1 undanúrslitum i tviliðaleik karla sigruðu Haraldur og Steinar Pedersen, TBR, þá Sigfús Ægi Árnason og Ottó Guðjónsson, TBR, með 15-13 og 18-15 og veittu piltarnir köppunum kunnu harða keppni. 1 hinum leiknum sigruðu Sigurður Haraldsson og Garðar Alfonsson þá Jóhann Möller og Magnús Magnússon, TBR, með 15-7 og 15-7 og leika þvi til úrslita við Harald og Steinar. 1 tvenndarleik sigruðu Lovisa og Steinar Erlu Friðriksdóttur og Friðleif með 15-7 og 15-7, og Haraldur og Hanna Lára Páls- dóttir sigruðu Óskar Guðmunds- son og Ernu Franklin, KR, 15-3 og 15-6. I tviliðaleik kvenna sigruðu Lovisa og Hanna Lára þær Vildisi Kristmannsdóttur og Gerðu Jóns- dóttur, KR, með 15-5 og 15-6 og leika til úrslita i kvöld við Ernu Franklin og Erlu Friðriksdóttur. t úrslitum i A-flokki karla leika Jóhann Kjartansson og Jóhann Möller, báðir TBR, i einliðaleik og i einliðaléik kvenna Kristin Kristjánsdóttic TBR, og Ragn- hildur Pálsdóttir, TBR. t tviliðaleik Jóhann Kjartansson og Sigurður Kolbeinsson gegn Jóhanni Möller og Axel Amendrup. t tviliðaleik kvenna Kristin Kristjánsdóttir og Ragnhildur Pálsdóttir gegn Bjamheiði Ivarsdóttur og Ásu Gunnarsdóttur, báðar Val — og i tvenndarleik Jóhann Kjartansson og Kristin gegn Jóhanni Möller og Árdisi Þórarinsdóttur. Auk þess fara fram undanúrslit og úrslit i ,,01d boys” flokki. — hsim. hefur ekki fengið hljómgrunn fyrr en nú hjá sovézkum, þó svo lið Queens Park hafi i heild verið landslið Skotlands löngu fyrir aldamót. En eftir þennan árangur Kiev-liðsins i gær gegn tyrk- nesku laridsliöi, sem mjög.at- hyglisverðum árangri hefur náð siðustu mánuðina, er ekki að vita nema önnur lönd fari að ráði Sovétrikjanna og tefli fram félagsliðum sem landsliðum. Þar er samæfingin bezt — leikmenn gjörþekkja hvern annan. Að visu hefði markaskorunin i leiknum geta komið á meira sannfærandi hátt — en yfirburðir Kiev-liðsins voru það miklir úti á vellinum, að þeir hefðu átt að gefa fleiri mörk. Tvö markanna voru skoruð úr vitaspyrnum — fyrirliðinn Kolotov á 25. og 56 min., en þriðja markið skoraði Blokhin á 75. min. Mörg tækifæri fóru forgörðum til að skora. Þrátt fyrir þennan sigur eru trland og Tyrkland enn á undan Sovét- rikjunum i 6. riðli Evrópu- keppninnar. Staðan er þannig: írland 2 110 4-13 Tyrkland 3 1113-53 Sovétrikin 2 10 13-32 Sviss 10 0 11-20 1 2. riðli Evrópukeppninnar léku Austurriki og Ungverjaland i Vinarborg i gærkvöldi og varð jafntefli án marka 0-0. Við það náði Austurriki efsta sæti i riðlin- um. Áhorfendur voru 70 þúsund og það var ungverski mark- vörðurinn Meszaros, sem bjargaði liði sinu frá tapi. Ferenc Bene og nýliðinn Branikovits voru raunar einu sóknarmenn Ungverja, en fengu litil tækifæri Staðan i riðlinum er nú: Austurriki 3 2 1 0 4-2 5 Wales 3 2 0 1 8-2 4 Ungverjal. 3 1114-43 Luxemborg 3 0 0 3 3-11 0 -hsim. 7-0 í Póllandi 10-0 ó Ítalíu italska landsliðið í knattspyrnu vann það bandariska 10-0 i lands- leik i Róm i gær — og voru italir þar að „hita sig upp” fyrir Evrópuleikinn við Pólverja siðar i þessum mánuði. Nokkrum dög- um áður léku Bandarikin við Pól- land, sem sigraði 7-0. italir skoruðu þrjú mörk i gær áður en Bandarikjamenn náðu sinu fyrsta upphlaupi — Rocca, Cordova og Rocca aftur skoruðu. Fyrir hlé skoruðu italir enn tvö mörk Chinaglia og Graziani. Eftir leikhléið gerðu italir fimm breytingar á liði sinu og skoruðu aftur fimm mörk. Bettega, Chinaglia „stjarna” italia, Savoldi og Graziani (2) skoruðu. italir hafa gert róttækar breytingar á landsliði sinu eftir útreiðina á HM og leika við Pólverja 19. april. -hsim Norður-irski landsliðsm ark- vörðurinn frægi, Pat Jennings, Tottenham, átti stórkostlegan leik i marki liðs sins, þegar það vann QPR á útivelli á laugar- dag. Það var sama hvað á markið kom — allt varði Jennings. Á myndinni til hliðar nær hann knettinum á undan landsliðsmanninum Gerry Francis hjá QPR. tslenzku stúlkurnar, sem keppa á Noröurlandamótinu I handknattleik. Ljósmynd Bjarnleifur. Stúlkurnar ú heimavelli, strúkarnir í Finnlandi — ú Norðurlandamótum í unglingaflokkunum í handknattleik, sem hefjast ú föstudag. Leikið verður í Laugardalshöllinni í stúlknakeppninni Dönsku stúlkurnar, sem verja Norðurlandameistaratitil sinn hér i Laugardalshöllinni um næstu helgi, verða áreiðanlega harðar i horn að taka. Þær hafa reynsluna til að bera — i landslið- inu eru stúlkur, sem leikið hafa 96 A-landsleiki fyrir Danmörku og 74 unglingalandsleiki. Norður- landamót stúlkna hefst I Laugar- dalshöllinni á föstudag — lýkur á sunnudag — og keppendur eru frá Danmörku, Sviþjóð, Noregi og ts- landi. Finnar senda ekki lið frek- ar en áður á þetta mót, en aldurs- takmark keppenda er 22 ár — stúlkurnar mega ekki vera eldri. Þetta er i fyrsta skipti, sem Norðurlandamót stúlkna er hald- ið hér á landi, en einu sinni hefur aðalmótið verið háð hér og bar ts- land sigur úr býtum. það var 1964 og frægur sigur vannst þá á Laugardalsvelli. Fjórtán stúlkur skipa Islenzka landsliðið og hafa þær æft mjög vel undir stjórn Sigurbergs Sig- steinssonar, þess kunna iþrótta- kappa. Samheldni stúlknanna hefur verið mjög mikil og þær munu búa saman á meðan á mót- inu stendur — nákvæmlega eins og þær væru i keppnisferð er- lendis. Aðsetur þeirra verður KR- húsið. t liðinu eru: Alfheiður Emilsdóttir, Ármanni Gyða Clfarsdóttir, F.H. Oddgerður Oddgeirsd. Val Halldóra Magnúsdóttir Val Sigurborg Daðadóttir, U.B.K. Birna Bjarnason, F.H. Guðrún Sigurþórsd., Armanni Kristjana Aradóttir, F.H. Hrefna Bjarnadóttir, Val Katrin Axelsdóttir, Armanni, Hjördis Sigurjónsd., K.R. Arnþrúður Karlsd. Fram Björg Jónsdóttir, Val Harpa Guðmundsdóttir, Val. Eins og áður segir hefst mótið á föstudag i Laugardalshöllinni. Setning hefst kl. átta, en 8.15 verður fyrsti leikurinn milli ts- lands og Noregs. Á eftir leika Danmörk og Sviþjóð. A laugar- dag hefst mótið kl. 16.00 með leik Sviþjóðar og Noregs, en siðan leika Island og Danmörk. A sunnudag kl. 15.00 verður loka- umferðin. Fyrst leika tsland og Sviþjóð — siðan Danmörk og Noregur og ef að likum lætur ætti það að verða úrslitaleikur móts- ins, þó svo við viljum á engan hátt draga úr möguleikum islenzka liðsins eða þess sænska. Danska liðið sigraði á mótinu i fyrra. Vann þá tsland 23-10, Noreg 10-8, en gerði jafntefli við Sviþjóð 11-11. Noregur vann Svi- þjóð 13-11 og tsland 10-8, og Svi- þjóð vann Island 19-11. Röðin varð þvi Danmörk, Noregur, Sviþjóð, Island. I öllum liðunum nú eru stúlkur, sem leikið hafa i A-landsliðum landa sinna. Þær sænsku eru með 88 A-landsleiki og 24 unglinga- landsleiki — þær norsku 33 ung- lingalandsleiki, en Norðmenn gáfu ekki upp fjölda A-lands- leikja. tsland er með óvenju keppnisreynt lið. Islenzku stúlkurnar hafa leikið 52 A-lands- leiki, 45 unglingalandsleiki. Á sama tima verður Norður- landamót pilta háð i Finnlandi og sendir Island lið þangað. Piltarn- ir fóru til Finnlands á miðviku- dag. —hsim Fól fer \bo\l ðun \mn ó f n nœstu li ulla lelgi | — Þú hefst Reykjavíkurmótið og einnig Meistarakeppni KSÍ Segja má að knatt- spyrnuvertiðin hér á Suðurlandi fari á fulla ferð um næstu helgi. Þá hefst Reykjavikurmótið og einnig Meistarakeppni KSt og auk þess mun verða leikið i Litlu bikarkeppninni. t Meistarakeppninni taka þátt þrjú lið, sem leika heima og heiman. Eru það tslands- meistararnir frá Akranesi, silfurliðið úr síðasta tslandsmóti, Keflavik, og bikarmeistarar Vals. Eru þetta liðin, sem taka þátt i hinum þrem Evrópumótum I knattspyrnu, sem fram fara ár hvert. Fyrsti leikurinn verður á milli Akraness og Vals á laugardaginn kemur. Hann fer fram á Akra- nesi og hefst kl. 14.00. Ferð frá Reykjavik verður með Akra- borginni kl. 11.00 um morguninn. Reykjavikurmótið hefst á sunnudaginn — og að sjálfsögðu á Melavellinum — með leik Vikings og Fram. önnur lið, sem keppa i meistaraflokki eru KR, Þróttur, Valur og Armann. Fyrstu leikirnir i mótinu verða sem hér segir: Sunnudaginn 6. april kl. 14.00: VÍKINGUR-VALUR Mánudaginn 7. april kl. 19.00: VALUR-ÞRÓTTUR Þriðjudaginn 8. april, kl. 19.00 KR-ARMANN Laugardagurinn 12. aprll kl. 14.00: FRAM-KR Sunnudagurinn 13. april kl. 14.00: ÞRÓTTUR-VÍKINGUR Mánudaginn 14. april kl. 19.00: ÁRMANN-VALUR. Siðasti leikurinn i Reykjavikur- mótinu verður leikur Vals og KR mánudaginn 5. mai, en fyrstu leikirnir i 1. deild tslandsmótsins verða um hvitasunnuna, 17. 18 og 19. mai -klp- 1 B i O rvi - • , ‘ -o fVl 1 í \ Bommi nær langsendingu frá sexunni og hefur sókn... © King Kealurea Syndicale. Inc., 1973. Wotld ngKu reaerv IO-I6 — í deildakeppninni í borðtennis KR hefur forustu eftir fyrri umferð- ina i deildarkeppninni i borðtennis, sem nú stendur yfir. Hefur KR hlotið 6 stig, ÍBK 4, örninn og Gerpla 2 stig hvort félag og Víkingur og Akranes 0 stig. Úrslit í einstökum leikjum hafa orð- ið þessi: Vikingur — ÍBK 0:6 KR—Akranes 6:1 ÍBK — Gerpla 6:3 Örninn — KR 3:6 Gerpla—Örninn 3:6 KR — ÍBK 6:4 Vikingur —Gerpla 0:6 i kvennaflokki hafa úrslitin orðið þau, að örninn sigraði UMFBss (Bessastaðahreppur) 3:0, Gerpla vann Örninn 3:1 og örninn vann KR 3:0. — klp — Kemur nýtt nofn á bikar- inn í kvöld? Úrslitaleikurinni bikarkeppninni I körfuknattleik fer fram i iþróttahúsinu á Seltýarnarnesi i kvöld. Til úrslita I þcssan keppni, sem hófst með þátt- töku 16 liða, leika 1. deildarlið KR og Ármanns, og hefst leikurinn kl. 20.00. i öll þau skipti sem bikarkeppni þessi hefur farið fram hefur KR orðið sigurvegarL og ekkert annað félag fengið nafn sitt skráð á bikarinn. En Armenningar ætla sér að koma i veg fyrir að nafn KR verði upp og niður bikarinn, og stefna þvi að sigri i leikn- um I kvöld. -klp- • Meistaramót í áhaldaleikfimi Meistaramót Fimleikasambands ís- lands I áhaldafimleikum verður haldið laugardag og sunnudag 5. og 6. april n.k. Keppnin verður háð I íþróttahúsi Kennaraháskóla tslands. Keppt verð- ur i fimleikastiganum eins og á s.l. ári, en fimleikafólkið hefur smámsaman verið að fikra sig upp stigann. Keppendur verða nú um 80 talsins eða fleiri en nokkru sinni áður og þarf þvi að skipa þeim á tvo daga. Fyrri daginn laugardaginn 5. april keppa stúlkurnar en piltarnir á sunnu- daginn 6. april. Báða dagana hefst keppnin kl. 15.00 og verður stefnt að þvi að ljúka keppn- inni á 1 1/2 — 2 klukkutimum báða dagana. Keppt verður i 4 aldursflokkum: 10 til 12 ára 13 til 14 ára 15 til 16 ára 17 ára og eldri. Verðlaun verða veitt þeim beztu i hverjum aldursflokki og einnig þeim, sem flest stig hljóta, stúlku og pilti. • Fímm leikmenn úr 2. deildinni Skotar leika landsleik við Svia 16. april næstkomandi i knattspyrnu og verður leikið i Sviþjóð. Það vakti mikla athygli i gær, þegar skozka landsliðið var valið, að fimm leikmenn þess leika með enskum liðum i 2. deild. Það eru Martin Buchan, Alec Forsyth og Lou Macari, allir Manch. Utd. — Billy Hughes, Sunderland, og Ted MacDougall, Norwich, sá frægi markaskorari úr ensku knattspyrn- unni, sem leikið hefur m.a. með Bournemouth, Manch. Utd. og West Ham, og hann fær þarna sitt fyrsta tækifæri i skozka landsliðinu. — hsim. kM£aÉI

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.