Vísir - 03.04.1975, Blaðsíða 13

Vísir - 03.04.1975, Blaðsíða 13
Vísir. Fimmtudagur 3. april 1975. 13 Knattspyrnumyndir Unglingaráð Akraness gengst fyrir fundi og kvikmyndasýningu i Bióhöllinni á morgun — föstudag — kl. 19.00. Þar verða m.a. sýndar nýjar myndir frá Heims- meistarakeppninni i Vestur-- Þýzkalandi i sumar sem leið og ýmislegt fleira. Eru allir unglingar.. og „eldri unglingar” velkomnir. Vikan 14. tbl. Aðalefni 14. tbl. Vikunnar er I anda þess sparnaðar, sem flestir landsmenn verða nú að tileinka sér til þess að láta tekjurnar hrökkva fyrir nauðþurftum. Vik- an fékk þrjár fjölskyldur til þess að halda dagbækur yfir helztu út- gjöld heimila sinna i einn mánuð, og niðurstöður þeirra birtast nú i Vikunni til fróðleiks og gagns fyrir lesendur. Útfyllingarformiö, sem þessar fjölskyldur notuðu, er einnig birt, svo að lesendur geti notað það til færslu útgjalda á eigin heimilum, og er ætlunin að birta þetta form oftar i blaðinu, eða vikulega fyrst um sinn. Til- gangur Vikunnar með þessu til- tæki er að verða fólki til aðstoðar við að átta sig á útgjöldum sinum og hvernig helzt megi úr þeim draga. Smásagan i 14. tbl. er islenzk, nefnist hún Maðurinn, sem ekki gat dáið og er eftir Einar Loga Einarsson. III. grein i greina- flokknum Gengur mannkynið af sjálfu sér dauðu? birtist i þessu blaði, og nefnist hún Beðið eftir sprautunni. Þá eru greinar um tr- land og Karólinu furstadóttur i Mónakó, sagt frá Chevrolet 1925 og nýjum Rally Escort i bilaþætti, og margt fleira er i blaðinu. UTVARP 13.00 Á frivaktinni. Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Viktor Frankl og lifs- speki lians. Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli flytur erindi, þýtt og endur- sagt, — siðari hluti. 15.00 Miðdegistónleikar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 veðurfregnir). Tón- leikar. 16.40 Barnatimi: Gunnar Valdimarsson stjórnar. Meira um ástina. — Svarað bréfi Hlöðvers frá Eskifirði (7 ára). Þorbjörg Valdimarsdóttir les „Álög þokunnar” eftir Erlu. Þor- steinn V. Gunnarsson les kafla úr bókinni „Kela og Samma” eftir Booth Tarkington. Margrét Ponzi syngur tvö lög. 17.30 Framburðarkennsla i ensku. 17.45 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Mælt mál. Bjarni Einarsson flytur þáttinn. 19.40 Einsöngur i útvarpssal. Olöf Harðardóttir syngur lög eftir Fjölni Stefánsson, Karl O. Runólfsson, Þórarin Jónsson og Pál Isólfsson, Guðrún Á. Kristinsdóttir leikur á pianó. 20.00 Framhaldsleikritið: „Húsið” eftir Guðmund Danielsson. Ellefti þáttur: Tómahljóð. Leikstjóri Klemenz Jónsson. 21.00 Sænski vísnasöngvarinn Ulle Adolphson. Njörður P. Njarðvik kynnir. 21.30 Langeldaskáldið. Guðmundur Frimann rit- höfundur talar um Sigurð skáld Grimsson og bók hans „Við langelda”. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Tyrkjaránið” eftir Jón Helgason. Höfundur les (2) 22.35 Létt músik á siðkvöldi.' Hljómsveitin Philharmonia iLundúnum leikur verk eft- ir Grieg, Barber og Tsjai- kovský, Anatole Fistoulari stjórnar. 23.20 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. ★ ★ ★ I ★ í ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ V + ¥ ¥ * * * ¥ * ¥ t 4f 4f * ¥ * ¥ ¥ * i ! * * * ! í i t ¥ i ¥ ¥ ¥ ¥ % ¥ i ¥ ¥ í i ¥ ¥: ¥' ¥ ¥' * ¥ ¥■ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ r 'n & 21. marz—20. april. Nú, með fullu tungli, flyzt áherzlan á iðjusemi og atvinnumál, þu gætir e.t.v. gert einhverjum greiða. Forðastu óreglu heilsu þinnar vegna. Nautið, 21. april— 21. mai. Sinntu vinum þinum undir fulla tunglinu, þú gætir jafnvel eignazt nýja. Þér býðst nýtt hlutverk i lifinu. Sýndu þvi áhuga. Tviburinn, 22. mai—21. júni. Með fulla tunglinu gæti myndazt spenna milli viðskiptalifs og frændrækni. sérstaklega að morgni. Vertu varkár seinna en ekki óþarflega hræddur eða hlédrægur. Krahbinn, 22. júni—23. júli. Með nýja tunglinu gæti komið i ljós vitsmunalegt málefni, er krefð- ist umræðna. Það reynist erfitt að vera ákveðinn i mikilvægum málum. Sparaðu hæðnina. Ljónið, 24. júli—23. ágúst. Aherzla er á fjármál og sameiginleg efnamál i dag, en hagkvæmur vinskapur gæti leyst eitthvað af vandamálunum. Heimtaðu ekki bróðurhlutann. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Nú, undir fullu tungli, gæti hafizt nýtt ástarsamband vertu bara ekki of gagnrýninn og virtu öll takmörk i kvöld. Vogin, 24. sept,—23. okt.Fulla tunglið gæti aukið áhuga á heilsufari eða á að bæta aðstöðuna á einhvern hátt. Vertu fyrstur til hjálpar og haltu aftur af kvörtunum. Drekinn 24. okt—22. nóv. Með fulla tunglinu gæti komið upp spurning um, hvort styðja beri málefni. hópstarf eða framkvæmdir. Samkvæmislifið tefst eitthvað i kvöld. Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des.Frami þinn gæti vaxið með fulla tunglinu Höfuð-stjarna þin, Júpiter, breytir afstöðu sinni i dag. eins gæti verið að þú flyttir bráðlega i rýmra umhverfi. Steingeitin, 22. des.—20. jan. Þú gætir orðið á báðum áttum varðandi einhvern eða eitthvað. nú við fullt tungl. Sambönd viö fjarlæga staði eða útlendinga kynnu að veröa mikilvæg i das. Vatnsberinn, 21. jan.—19. feb.Fulla tunglið gæti orðið sem hvati á ákvörðun i verzlun eða samningum. Haföu þarfir annarra i huga. t kvöld gæti þér fundizt eitthvað skorta. Fiskarnir, 20. feb.—20. marz.Áhrif fulla tungls- ins gætu orðið þér mikilvæg. Tilfinningar eru hástemmdar og stefnan umburðarlyndi eöa algjör skoðanamismunur. Hægðu á þér með kvöldinu. 1 í DAG | í KVÖLD | í DAG | -tcn-x-tt-k-k-K-k-k-k-tt-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-K-k-k-K-k-k-K-k-k-k-k-tt-K-k-k-K-k-k-k-k-k-k 2 KVOLD | n □AG | Ekkert meira um fram- haldsleikrit Ekki verður um fleiri fram- haldsleikrit að ræða I útvarpinu á fimmtudagskvöldum það sem eftir er vetrar. Hins vegar er gert ráð fyrir slikum næsta vet- ur eftir þvi sem leiklistarstjóri útvarpsins, Klemenz Jónsson tjáði okkur. Það má geta þess að eftir að leikritinu „Húsið” lýkur næsta fimmtudag verður flutt tiltölu- lega nýtt leikrit eftir örnólf Arnason, sem hann kallar „Við- tal”, og þykir það mjög gott. Það er Stefán Baldursson sem leikstýrir þvi. Þaö leikrit verður flutt eftir að framhaldsleikritinu lýkur, og tekur klukkutima f flutningi.EA Vignir Sveinsson kynnir nýja plötu meö Elton John i Popphorninu á morgun. Utvarp kl. 16.25, föstudag: ,Glœný' plata sem ekki hefur heyrzt hér fyrr — í Popphorninu á morgun „Glæný” plata veröur spiluð i Popphorninu á morgun, en þá kynnir Vignir Sveinsson nýja plötu sem ekki hefur heyrzt hér fyrr. Piatan er með Eiton John og er tveggja laga. Er annaö lagið vel kunnugt hér, en það heitir „I saw her standing there...” og fluttu Bítlarnir það á sfnum tima og gerðu feikivin- sælt. Þá kvaðst Vignir einnig kynna stóra plötu með Elton John sem kom út rétt fyrir jólin og hefur að geyma öll vinsælustu lög stjömunnar. Einnig verður boðið upp á eitthvað nýtt i músikinni að vanda. —EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.