Vísir - 23.05.1975, Blaðsíða 1
VÍSIR
65. árg. —Föstudagur 23. mal 1975— 113. tbl.
Leit í
nótt að
6 óra
barni:
Kom
með
heim í morgun
ókunnri konu
— sjó baksíðufrétt
Lögreglan
sklpaði
bónda að
opna veg-
inn á ný
Lögreglan kom í gær á
bæinn Vestri-Leirár-
garða og lét opna hliðið,
sem hindraði akstur bíla
um bæjarlandið. Sýslu-
maðurinn í Borgarnesi
setti í fyrradag lögbann
við, að veginum um
bæjarhlaðið yrði lokað
eða nokkuð það annað
yrði aðhafzt á landi
Vestri-Leirárgarða, sem
hindraði eða raskaði
framkvæmdum við
jarðhitaboranir á Leirá.
Lögfræöingur bóndans á
Leirá braut hins vegar lög-
banniö og lét loka hliðinu á ný
um kvöldiö. Til þessara ráð-
stafana var gripið, þar eö
bóndanum þótti sem vinnuvél-
ar hefðu unniö spjöll á landi
hans og dráttur hefði orðiö á
bótagreiðslum. Þá deilir
bóndinn einnig við bæjarstjórn
Akraness um það, hvort um-
ræddur vegur er sýsluvegur
eða einkavegur, eins og hann
vill halda.
Vegurinn var eins og áður
segir opnaður i gær af lögregl-
unni og höfðu bóndinn og lög-
fræðingur hans ekki tekið til
nýrra ráða, er siðast fréttist.
Hins vegar hefur sýslumaður
boðað til réttarhalda og sátt-
arfundar i málinu á mánudag
klukkan 2. — JB
Of léttir sykurpokar?
Óhugsandi
— segja
Hagkaupsmenn
Vogir Hagkaups I Skeif-
unni eru I fullkomnu lagi
tjáði fulltrúi Löggildingar-
stofunnar Visi i gær. Einn
lesenda VIsis hélt fram i
lesendabréfi á þriðjudaginn
að hann hafi fengið of létta
sykurpoka frá stórverzlun-
inni. „Hér I Hagkaup vinna
80 manns, þeir yrðu þvl I vit-
orði, ef verzlunin svindlaði
á vigt,” sagði Lúðvik
Lúðviksson, verzlunarstjóri.
„Þar að auki”, hélt Lúðvik
áfram, „þá fylgdist ég
persónulega með vigtun
sykursins, en við hana unnu
5—6 manns. Ég kom á 5—10
minútna fresti, tók 2 poka af
handahófi og vigtaði. Þeir
reyndust alltaf I lagi. Ég tel
þvi með öllu óhugsandi, að
lesandi ykkar hafi rétt fyrir
sér með ranga vigtun”, sagöi
hann að lokum.
Hagkaup gerir
nánari grein fyrir
sinni hlið á þessu
máli i bréfi til blaðs-
ins. — SJÁ BLS. 2
CEBERE ER AÐEINS TIL
Á PAPPÍRUNUM
— Fimm milljarða
samningar
ÍcIohtLm furiv _
„Þaö sem ég veit um
málið er, að það voru f yrir
hendi kaupendur og selj-
endur á áburði. Seljend-
urnir verzluðu í gegnum
Cebere fyrirtækið og kaup-
endurnir í gegnum lce-
landic Products."
Þessar upplýsingar fékk blaðið,
er það hafði samband við einn
forráðamanna fyrirtækis þess I
Canterbury i Englandi, Tamert-
low Ltd., sem veitti Cebere fyrir-
tækinu aðstoð, meðan á þessum
áburðarsamningum stóð. Visir
hefur áður greint frá þvi, að dótt-
urfyrirtæki Péturs Einarssonar,
Icelandic Products, I Virgina i
Kanada hefði i huga að kaupa á-
burð i Evrópu fyrir 5 milljarða
rúma. Umboðsmaður söluaðil-
anna var Cebere fyrirtækið.
„Cebere fyrirtækið er stofnað
með tveggja punda hlutafé og
hefur enga aðstöðu sjálft. Við lán-
uðum þeim þvi okkar húsnæði,
meðan á þessum samningavið-
ræðum stóð. Cebere ætlaði ein-
göngu að selja áburðinn, en við
áttum að sjá um flutningana fyr-
ir hönd dótturfyrirtækis Cebere,
La Manche Shipping Company,
sem hrökk upp af fyrir einum
þrem fjórum mánuðum. Að Ce-
bere ætlaði sjálft að kaupa 18 skip
eins og fram kom i biöðum hér
voru þvi alrangar upplýsingar,
hvaðan svo sem þær komu,”
sagði forráðamaður hjá fyrirtæk-
inu, sem ekki vill láta nafn sitt
koma fram.
„Nú fyrir þessa þjónustu feng-
um við háa ávísun, svo við léðum
Cebere aðstöðu, án þess þó aö við
kæmum nokkru sinni nálægt
samningunum. En þegar til kom
neitaði bankinn að borga ávisun-
ina, þar eð Gebé forstjóri Cebere
var skuldum hlaðinn út um allt.”
„Eftir þvi sem ég bezt veit var
ekkert óheiðarlegt við þessar
samningatilraunir. Báðir aðil-
amir urðu einfaldlega of gráðug-
ir, hækkuðu verðið um of og ekk-
ert varð úr. Hefði aftur á móti til
samninga komið, hefðu báðir get-
að hagnazt verulega að minu á-
liti,” sagði talsmaður Tamertlow
Ltd.
„Við höfum nú ekki heyrt neitt
frá Cebere i 6 vikur, og ég tel ólik-
legt, að um frekari samningatil-
raunir hafi verið að ræða. 011 að-
staða fyrirtækisins var hér hjá
okkur, svo nýjar samningatil-
raunirhefðu ekki átt að fara fram
hjá okkur. Við sitjum hins vegar
enn uppi með óinnleysta ávisun
frá fyrirtækinu og útgáfa inn-
stæðulausra ávisana er glæpsam-
legt athæfi hér i Bretlandi, meira
— Fimm milljarða
samningar
íslenzka fyrir-
tœkisins komnir
út um þúfur?
get ég ekki sagt,” sagði talsmað-
ur Tamertlow Ltd.
„Nei, það hefur ekkert verið
skrifað nýlega um þetta mál hér I
Englandi. Við höfum getað komið
i veg fyrir það.
Raunar gat ég aldrei séð,
hvernig Cebere ætlaði að kaupa
allan þennan áburð til að geta selt
aftur né hvernig Icelandic Pro-
ducts, sem er rekið af 24 ára is-
lenzkri húsmóður, sem er gift
kanadiskum lögregluþjóni, ætti
að geta séð um þessi fimm mill-
jarða kaup,” sagði talsmaöur
Tamertlow Ltd. að lokum.
—JB
1 jmh 1
- l»> >■ W 1
- SELKOPUR KOM I HEIMSOKN
Það fjölgaði heldur betur á
heimiii Gústafs Gústafssonar og
Báru konu hans i vikunni.
Gústaf er minka- og refaskytta
ásamt meiru og fann kópinn
Kobba aðeins nokkurra daga
gamlan niður við sjó i Eyja-
hreppi.
„Nei, nei, hann getur ekki
sogið pela, en við höfum svamp
með mjólk i, sem hann sýgur,
Spenar urtunnar eru nefnilega
svo ákaflega litlir”, sagði
Gústaf og Kobbi hjúfrar sig upp
i hálsakotið á Sigurbirni syni
hans og segir ú.. ú..umleiðog
Bjarnleifur mundar sig til þess
að smella af. Blaðamenn og
starfsmenn Blaðaprents horfa
hrifnir á Kobba, þvi að þeir fá
ekki á hverjum degi sel i heim-
sókn.
Bára segir okkur, aö Kobbi
hafi hagað sér afskaplega vel og
kunni ekkert illa við sig heima
hjá þeim. Hann hafi sofið i baö-
herberginu og bægslaöist svo
um alla stofuna hinn ánægðasti.
„Við erum nú samt að fara
með hann núna á Sædýrasafnið.
Vonum bara, að þeir taki hann.
Það væri leiðinlegt að þurfa að
lóga honum”, segja þau hjónin.
Vonandi gefst þá gestum
safnsins að sjá Kobba una hag
sinum vel á þeim slóðum betur
en þegar hann fannst vestur á
Snæfellsnesi, móðurlaus og ein-
mana i veröldinni, týndur og
gefinn á vald veiðibjöllunum,
sem þegar voru farnar aö gefa
kópnum unga hýrtauga.
—EVI