Vísir - 05.06.1975, Síða 1
65. árg. — Fimm tudagur 5. júni 1975 —124. tbi.
Deilan í ríkisverksmiðjunum:
ÞETTA GERIST
NÚ EKKI NEMA
í VERKFALLI BAKSÍÐA
Aðeins „smáatriði" ófrágengin
— Vinna œtti að geta hafizt á morgun í ríkisverksmiðjunum þremur
Samningar höfðu tek-
izt i morgun um öll aðal-
atriði i kjaradeilu
starfsfólks rikisverk-
smiðjanna. Menn voru
að búa sig undir að
skrifa undir samning-
inn, en nokkur atriði
voru ófrágengin, aðal-
lega hve lengi samning-
urinn skyldi gilda.
Samningamenn álitu, að
þetta ætti ekki að drag-
ast lengi.
Samningar hafa tekizt um
kauphækkanir og launaflokka,
sem voru aðalmálin, sem um var
deilt. Kauphækkunin er mjög
mismunandi, vegna þess að
starfsmatið, sem nú er notað,
veldur breytingu á hlutfalli milli
starfsgreina. Þannig fá sumir
talsvert mikla kauphækkun en
aðrir miklu minni. Meðaltals-
kauphækkunin hafði ekki verið
reiknuð i morgun, en einn samn-
ingamanna gizkaði á, að hún
kynni að vera vel yfir 10 prósent.
„Maður verður að taka þetta
eins og hvert annað starf,” sagði
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR. Verzlunarmenn eru sér á
parti i samningunum, en „þetta
gæti runnið saman,” sagði Magn-
ús. Höskuldur Jónsson, formaður
samninganefndar rikisins, taldi,
aö verzlunarmenn kynnu að
skrifa undir samninga með hin-
um.
Óskar Ólafsson, einn forystu-
manna starfsfólks, sagði, að eftir
undirskrift, sem hann bjóst við á
hverri stundu, þyrftu allir starfs-
hóparnir, sem um ræðir i verk-
smiðjunum þremur, að sam-
þykkja samningana. „Hver hópur
hefur lykilaðstöðu,” sagði Óskar,
„samningurinn verður ekki gild-
ur og vinna ekki hafin, fyrr en
allir hafa samþykkt.”
Óskar bjóst við, að fundir i
hópunum yrðu strax I dag.
Vinna ætti þá að geta hafizt á
morgun.
Fundurinn hefur staðið í 44 stundir:
Þrjú „mannúr" fóru í
verksmiðjusamninginn
Samningafundurinn i deilu
starfsmanna rikisverksmiðu-
anna hafði staðið i 44 stundir
samfleytt klukkan tóif á há-
degi i dag.
Samningamenn voru yfir-
leitt hressir i morgun. Fundir
hafa auk þess staðið, með að-
eins litlum hléum, allt siðan á
sunnudag. Siðan bráðabirgða-
lögin voru sett hafa menn setið
á samningafundum i 72
klukkustundir samfleytt og i
178 klukkustundir, siðan fund-
ir hófust. Fundir hafa verið 13.
Þessar upplýsingar fengum
við hjá Loga Einarssyni sátta-
semjara i morgun. Um 30
manns sitja samningafundi,
svo að alls samsvarar klukku-
stundafjöldinn þvi, að einn
maður væri við vinnu i þrjú ár.
Þetta eru þvi um þrjú svoköll-
uð „mannár” og rúmlega eitt
„mannár”, siðan bráða-
birgðalögin voru sett. —HH
„SÆTTUM OKKUR
VIÐ ÞETTA"
segir Haraldur Steinþórsson hjó BSRB
— Þetta var auðvitað
lftið upp i allar þær
hækkanir, sem orðið
hafa að undanförnu,
þannig að kjaraskerð-
ing er áfram mikil. En
miðað við aðra samn-
inga held ég, að þetta
sé hliðstætt, sagði Har-
aldur Steinþórsson hjá
BSRB, þegar Visir
hafði samband við
hann i morgun vegna
úrskurðar kjaradóms.
— Þetta er miðað við sömu
4900 krónurnar og verkalýðs-
félögin fá, en munurinn er sá, að
þetta gengur yfir allan launa-
stigann hjá okkur eftir 1. mai.
— Það er vegna þess, að siðari
hluta maimánaðar gerðu nokkr-
ir aðilar samninga, sem voru á
þann veg, að dómurinn taldi
„þakinu” I raun lyft. Ég get
ekki sagt, að menn séu neitt yfir
sig hrifnir, en við sættum okkur
allavega við þetta.
—ÓT
Othaldiö var mikiö hjá samningamönnum og góöur hæfileiki til aö aölaga sig skrýtnum aöstæöum. Einn
haföi þó dottaö I morgun, og ekki var vanþörf á rakstri. Vélritun samningsins var hafin laust fyrir há-
degiö.
Veðrið í maímónuði:
REYKJAVÍK
KALDARI EN
AKUREYRI
'Meðalhiti maimánaöar i
Reykjavik mældist 5,9 stig. Á
Akureyri var mcðalhitinn 6,2
stig. Skýringin á þessu er sú,
aö noröanlands komu mjög
hlýir dagar, bæöi fyrst og
seinast i mánuöinum. Komst
þá hitinn upp i 21,6 stig á
Akureyri en 17,2 stig i Reykja-
vik. — Sólskinsstundir i
Reykjavik voru 226.
tJrkoma var mjög litil bæöi I
Reykjavik og á Akureyri, eins
og oft er I maimánuöi.
1 Reykjavik vantaöi eitt
hitastig upp á, aö meðalhiti
næöist, á Akureyri vantaði aö-
eins 0,1 stig upp á aö meðalhiti
væri.
—HE