Vísir - 05.06.1975, Blaðsíða 5
Vísir. Fimmtudagur 5. júni 1975
Umsjón: Óli Tynes
5
TLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖf
REIÐUBÚNIR AÐ
GERA MIKLAR
TILSLAKANIR
— segir Peres
Shimon Peres, varnar-
málaráöherra fsraels,
hefur sagt i viðtali við
franskt blað, að ísraelar
séu reiðubúnir að gera
miklar tilslakanir til þess
að reyna að koma á friði.
Hann nefndi meðal annars,
að þeir gætu farið frá
Mitla og Gidi skörðunum á
Sinai skaga þegar þau
hefðu ekki lengur hern-
aðarlega þýðingu.
Þetta er i fyrsta skipti, sem
nokkur stjórnmálamaður i Israel
minnist á að hörfa frá Mitla og
Gidi sem eru taldir mikilvægustu
varnarstaðirnir á öllum Sinai-
skaga. Egyptar gerðu örvænt-
ingarfullar tilraunir til að komast
þangað, þegar tók að liða á Yom
Kippur striðið, en israelsku skrið-
drekasveitunum, sem voru þar til
varnar, var bannað að hörfa og
gerðu það ekki.
Þessi skörð eru einu leiðirnar
til að koma skriðdreka- og stór-
skotaliðssveitum frá Egyptalandi
til fsraels, nema þá með þvi að
fara um Jórdaniu.
Margrét Thatcher, leiðtogi thaldsflokksins prýddist fánum aðildarlanda EBE þegar hún kveikti á
„kyndli fyrir Evrópu” á fundi meöstuðningsmönnum sfnum i gærkvöldi.
Gligoric og Hort
komnir á toppinn
með Karpov
Svetozar Gligoric frá
Júgóslavíu og Vlastimil
Hort frá Tékkóslóvakíu
eru nú komnir upp í fyrsta
sæti, ásamt heimsmeistar-
anum Anatoly Karpov, á
skákmótinu í Júgóslaviu.
Þeir eru allir með tvo og
hálfan vinning.
Karpov féll úr þvi að vera einn i
fyrsta sæti, þegar hann gerði
jafntefli við Bruno Parma frá
Júgóslaviu, i þriðju umferð móts-
ins. Parma beitti Ruy Lopez byrj-
un, sem hann er sérfræðingur i og
þótt Karpov væri með hvitt, tókst
Cornfeld
aftur í úti-
stöðum við
löggjafann
Fjármálamaðurinn
Bernard Cornfeld var i
gær ákærður fyrir að hafa
notað ólögleg rafeindatæki
til að svíkjast um að greiða
fyrir símtöl við önnur lönd.
Ef hann verður fundinn
sekur, getur það kostað
hann 15 ára fangelsi og
3000 dollara sekt.
Cornfeld, sem er 47 ára gamall,
hefur áður setið i fangelsi fyrir
ýmiss konar svik i sambandi við
fyrirtæki sitt Investors Overseas
Service. Það var risastórt fjár-
mögnunar- og liftryggingafélag,
sem teygði anga sina út um allan
heim, meðal annars til tslands.
Alrikislögreglumenn sem gerðu
húsleit hjá honum sögðu, að Corn-
feld hefði átt tvö svokölluð blá
box, en þau eru ekki til neins not-
hæf annars en svikjast undan
simagjöldum.
honum ekki að finna leið til sig-
urs.
Parma var vel undirbúinn og
lék hratt i byrjun. Hann fórnaði
tveim peðum en náði svo aftur
tveim af Karpov og samið var um
jafntefli eftir 25 leiki, sem tóku
tvær klst. og 35 min.
Gligoric vann hins vegar landa
sinn Albin Planinc og Hort vann
Rudi Osterman, einnig frá Júgó-
slaviu.
Sviptur kjóli
og kalli
vegna kven-
réttinda-
sjónarmiða
Bernard Alfrink,
kardínáli í Hollandi,
hefur svipt 51 árs
gamlan prest kjóli og
kalli fyrir aö leyfe
konum að vinna
prestsstörf. í bréfi til
kirkjusókna segir
kardinálinn, að Win-
and Kotte hafi verið
bannað að vinna
prestsstörf og að hann
megi héreftir ekki pre-
dika eða hlýða á skrift-
ir.
,,Margir rétttrúaðir
hafa liðið sálarangist
vegna kenninga séra
Kotte," segir í bréfi
kardínálans. Hann
segir ennfremur, að
viðræður sínar og ann-
arra presta við Kotte
hafi engan árangur
borið, hann hafi haldið
fast við hugmyndir
sinar.
Úrslit í EBE
atkvœða-
greiðslunni
kunnámorgun
Bretar ganga i dag til
þjóðaratkvæðagreiðslu
um, hvort landið skuli
vera áfram i Efnahags-
bandalagi Evrópu.
Þrjár skoðanakannanir,
sem birtar voru i dag,
spá þvi að ,,já” at-
kvæðin verði helmingi
flehi og rúmlega það.
Leiðtogar þriggja helztu flokk-
anna, stjórnmálafréttaskýrendur
og öll stærstu blöðin nema Morn-
ing Star, sem gefið er út af
kommúnistum, vilja áframhald-
andi aðild. Það eru 40 milljónir
Breta á kjörskrá i þessari fyrstu
þjóðaratkvæðagreiðslu i landinu.
Kjörstaðir verða opnir til kl. niu i
kvöld og úrslitin ættu að vera
kunn seinni partinn á morgun eða
annað kvöld.