Vísir - 05.06.1975, Síða 7
Visir. Fimmtudagur 5. júni 1975
7
UÓÐRÆNAR
TILRA UNIR
eftir Aðalstein
Ég er að velta fyrir
mér hvað Gunnar Ingi-
bergur Guðjónsson er
að meina með spjöld-
um þeim sem hann
hefur komið fyrir i
kringum Kjarvalsstaði
til að auglýsa sýningu
sina sem nú stendur
yfir. Berstripaðar
stúlkuglennur dilla sér
á blóðrauðum spjöld-
um i kringum
sýningarstaðinn, svo
engu likara er en inni-
fyrir sé að finna ein-
hvern listrænan
„pornografiker”. Það
hljóta að hafa orðið
mikil vonbrigði fyrir
minna þau vinnubrögð oft á Jón
Engilberts, en eru þó án þeirrar
markvissu yfirvegunar sem
einkennir myndir Jóns. Margar
þessar likamsstúdiur Gunnars
munu eiga að vera af ákveðnum
fyrirmyndum, en tilfinning hans
fyrir andlitsbyggingu og „sál”
andlitsins er enn ekki nægilega
þroskuð til þess að tjá persónu-
leika fyrirmyndarinnar.
Einstaka sinnum einbeitir
Gunnar sér að andlitum, gjam-
an í prófil, og teiknar þau með
pensli og samspili boglina, sem
minnir á marga „hausa”
Kjarvals (t.d. nr. 31, 32,33) en
persónan f þeim er ekki nógu
sterk.
Gunnar hefur greinilega lært
margt fleira af meistara
Kjarval, eins og glöggt kemur
fram t.d. i myndum þeim sem
hann málar beint á pappir (nr.
2-5) og i þeim myndum sem
hann gerir tilraunir með að
samræma fólk og landslag á
ljóðrænan hátt. Verður ekki
annað séð en að áhrif meistar-
ans séu Gunnari til góðs og ekki
er hægt að tala um eftiröpun i
þessu sambandi.
í landslagsmyndum og ljóð-
rænum stemmningum Gunnars
gerir hann tilraunir með bæði
„mjúka” og „harða” notkun
lita og fer mýktin honum betur.
Þar nær hann oft áhrifamiklu
samspili lita sem renna hver
inn i annan.
Dæmi um þessar tvær hliðar
eru t.d. samstæðan nr. 57 og 58,
báðar af blómavösum.
1 þeirri fyrri er nokkuð um
grófar litandstæður, en i þeirri
seinni eru þessar andstæður
„dempaðar” og litirnir renna og
vinna saman.
Landslagsmyndir Gunnars
eru nokkuð misjafnar, en bera
þó vott um þá lofsverðu
tilhneigingu að taka ekki lands-
lag bókstaflega, sem heilagt
fyrirbæri þrungiö islenskri
föðurlandsást, heldur sem lif-
andi veröld sem hvetur lista-
mann til að finna sjálfan sig i
henni. Of gróf litameðferð
skemmir margar landslags-
myndir Gunnars, en þegar hon-
um tekst vel upp, er árangurinn
með ágætum. Vil ég segja að’
myndir eins og „Rauðhólar”
(nr. 56), „Hrafnabjörg” (nr. 48)
og „Lögberg” (nr. 49) séu með
bestu islensku landslagsmynd-
Ingólfsson
um sem ég hef séð um lengri
tima.
Tréristur Gunnars eru einnig
haglega gerðar og heilsteyptar
og lofar þessi sýning góðu um
framtlð Gunnars, sé hann reiðu-
búinn til að beita sjálfan sig
miskunnarlausum aga.
Gunnar Ingibergur Guðjónsson:
þær frómu sálir sem
farið hafa sérstaklega
að Kjarvalsstöðum til
að leita að slikri list, að
finna þar i staðinn ung-
an og leitandi málara
sem málar að visu
mikið af konum, en
ekki með snert af
erótik.
Gunnar Ingibergur sýnir hér
84 verk, flest málverk, en einnig
nokkrar aquarellur, oliukritar-
myndirog tréristur. Einsog svo
margir aðrir, sem sýna að
Kjarvalsstöðum, kann Gunnar
sér ekki hóf og lætur allt flakka,
sem á vinnustofunni er að finna,
og um 50 myndir hans mundu
hafa verið uppistaða i góða sýn-
ingu. Samt er heildarsvipur
sýningar hans álitlegri en
margt það sem sýnt hefur verið
i húsinu þetta árið.
Gunnar er að einhverju ieyti
sjálflærður, en hefur dvalizt á
Spáni við listnám. Portrett-
myndir og konustúdiur eru, eins
og áður er sagt, stór hluti af
sýningunni og hefur Gunnar náð
góðu valdi á formi likamans
sem heildar og hefur lært að
staðsetja hann i myndrúmi á
sannfærandi hátt.Notar hanntil
þess breiðar og sterkar linur og
Nr. 56. Rauðhólar.
Nr. 19. Milli atriða.
CROWN
bílaviðtœki
draga afburðavel, en eru
þó ódýrari en önnur tœki
Verð er sem hér segir:
Car 100 kr. 6.000,-
Car 200 kr. 8.885,-
Car 300 kr. 11.495,-
Csc 702 kr. 21.800,- bilaviðtæki stereo,
með kassettutæki.
Csc 8000 kr. 14.000,- stereo magnari'
með kassettutæki.
Hátalarar á 300.-, 600.-, 1.735.-, 2.500.-
kr.
Þér gerið afburða kaup i Crown.
isetningar samdægurs.
Viðgerðáþjónusta á eigin verkstæöi.
Sólheimum 35, simi 33550.
Skipholti 19, sfmi 23800.
Klapparstig 26, simi 19800.