Vísir - 18.06.1975, Síða 6

Vísir - 18.06.1975, Síða 6
6 Vlsir. Miðvikudagur 18.júni 1975. vísrn Útgefandi:' Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Gyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi:, Haukur Helgason Augfýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjald 700 kr. á mánuói innanlands. 1 lausasölu 40 kr.eiptakið. Blaöaprent hf. Dýr er stóri bróðir Tiu milljarðar króna eru mikið fé. ís- lendingum þætti ekki amalegt, ef þeir sem þjóð hefðu á hverju ári heila tiu milljarða til umráða umfram það, sem þeir hafa nú. Sumt af þessu fé mætti nota til að bæta afleita afkomu heimila og fyrirtækja. Og sumt mætti nota til að búa i haginn fyrir framtiðina með þvi að hraða orkuþróun landsins og uppbyggingu arðbærra atvinnuvega. Menn kunna að telja tilgangslitið að ræða út i loftið um tiu milljarða k?óna. En þessi tala er þannig fundin, að hún er mismunurinn á nýtingu fjárfestingarpeninga okkar og ýmissa ná- grannaþjóða okkar, sem kunna betur með fé að fara. Við þurfum að leggja til hliðar 27% þjóðar- teknanna eða 30 milljarða króna i fjárfestingu á ári hverju til að ná út svipuðum hagvexti og Danir, sem nota i þessu skyni 19% þjóðar- teknanna eða 20 milljarða á islenzkan mælikvarða. Mismunurinn á þessu nemur 10 milljörðum króna á ári á núverandi verðlagi. Þetta er hin árlega peningabrennsla okkar. Þessari upphæð sáum við árlega i grýtta jörð. Þetta dapurlega ástand byggist á hinni viðtæku, áhrifamiklu og afdrifariku þjóðnýtingu, sem felst i rikisrekstri islenzkra fjármála. Rikisvaldið skipuleggur forgangsröðun at- vinnuveganna að handbæru f jármagni, lána- og vaxtakjörum og rikisábyrgðum. Með ofsköttun þjóðarinnar, útgáfu rikis- skuldabréfa, Seðlabankafrystingu og kverka- taki á fjármagnsinnflutningi nær rikið undir sig verulegum hluta af þvi fjármagni, sem aflögu er til fjárfestingar hér á landi. Rikið skammtar þetta fé siðan i mismunandi réttháa stofnlánasjóði og byggðasjóði, sem at- vinnuvegirnir lifa siðan á. Hluta fjárins skammtar rikið i styrki, uppbætur og niður- greiðslur til rétthæsta atvinnuvegarins. Skipting þessa herfangs fer eftir pólitisku valdajafnvægi þrýstihópanna á hverjum tima, en ekki eftir neinum efnahagslegum sjónarmið- um eða arðsemissjónarmiðum. Þess vegna þykir það gott hér á landi, ef fjár- festing borgar sig til baka á tiu árum. Erlendis eru hins vegar mörg dæmi um, að fjárfesting sé þrjú til fimm ár að skila jafnvirði sinu til baka til nýrrar umferðar i uppbyggingu efnahagslifsins. Við leyfum ekki fjármagni okkar að streyma til þeirra greina, sem skila mestum arði á stytzt- um tima. í þess stað förum við eftir pólitiskri forgangsflokkun, sem bindur fjármagns- straumana i fastar skorður rikisrekstrarins. Þessi rikisrekstur fjármagnsins er ein helzta skýringin á eilifri fjárvöntun þjóðarinnar, si- felldri verðbólgu i landinu og réttlátri gremju al- mennings yfir lifskjörum sinum. Broslegt er, þegar vinnuveitendur og launþeg- ar berjast af hörku um, hve mikið eigi að borða af útsæðinu og hve miklu eigi að sá. Rikið er nefnilega þegar búið að sá þvi i grýtta jörð. Á þessu sviði einu saman kostar stóri bróðir okkur tiu milljarða á ári hverju. -JK. Sovétríkin: Reyna að fœkka fóstureyðingum með aðstoð við verðandi mœður Löggjöf um fóstureyðingar hefur verið mikið deilumál i nær hverju einasta landi, þar sem þær hafa verið til umræðu. Elenora Gorbunova, einn af fréttaskýrend- um sovézku fréttastofunnar APN, fjallar um viðhorfin þar í landi I einu fréttabréfa No- vosti: Varaheilbrigöismála- ráöherra Sovétrikj- anna, Jelena Novikova, segir aö hún sé andvig fóstureyöingum, en hún sé engu að siöur sann- færö um, að þær veröi aö leyfa. Kona, sem hef- ur verið svipt mögu- leika til aö taka sjálf ákvöröun i málinu, er ekki frjáls. Deiiumál öldum saman Sálfræöilegir og siö- fræöilegir árekstrar fylgja jafnan i kjölfar fóstureyðingarvanda- málsins. Þetta er ekkert nýtt. öldum saman hafa tvær gagnstæðar skoðanir verið rikjandi, studdar fjölmörgum rökum, með og á móti. Fóstureyöing er afbrot sem er hliðstætt morði, segja sumir. Þeir frumuhópar sem þróast fyrstu vikur meðgöngu- timans eru ekki mann- leg lifvera, segja aðrir. Eftir aðstæðum Skoöanir almennings á þessu deilumáli bera vott um furðulegt ósam- ræmi. Hjá einstökum fornum þjóðflokkum var fóstureyðing leyfö á striðstimum og þau ár sem var uppskerubrest- ur, en á friðartlmum voru viðbrögð neikvæð. Lögin I Hellas hinu foma og í Róm hvöttu til fóstureyðinga og Platon og Aristoteles litu á hana sem ráð til að leysa fólksfjölgunar- vandamálið og bæta hag samfélagsins. Refsivert athæfi A miðöldum fékk um- ræðan um málið skjótan endi. Kona sem hafði framkallað fóstur- eyöingu var dærr;d til dauða. Refsiákvæði hafa haldizt allt til vorra daga. Að visu leyfa æ fleiri riki fóstur- eyðingar. Lögin eru milduð og gerðar eru fjölmargar undanþágur frá ákvæðum þeirra. Hinar breyttu skoðan- ir almennings má fyrst og fremstrekja til efna- hagslegra atriða: þróunarstigs hinna ýmsu landa og þörf þeirra fyrir mannafla. Þetta er einnig lög- gjafaratriði á 20 öld. Leyfðar i Sovétrikjunum Elenora Gorbunova heldur áfram: — 1 Sovétrikjunum eru fóstureyðingar leyfðar, þótt við höfum einnig áhuga á að auka fólksfjöldann. Að við ieyfum fóstureyðingar er fyrst og fremst gert meö tilliti til fjölskyld- unnar, til móðurinnar. Þetta er eðlilegt sjónar- rétti konunnar er viður- kennt á öllum sviðum. Lögin hafa einnig gifurlega læknisfræði- lega þýðingu. Þau gera kleift að halda I algeru lágmarki þeirri hættu sem stafar af ólöglegum fóstureyðingum. Boð og bönn, sem ekki draga úr fjölda fóstureyðinga, gera það óhjákvæmilegt aö leita aðstoðar fólks, sem ekki hefur læknis- fræðilega þekkingu. í landi, þar sem lögin refsa fyrir fóstur- eyðingar, verða þúsundir kvenna að gjalda þess með eyði- lagðri heilsu, jafnvel með lifinu. Siðferðis- og efnahagsstuðn- ingur Riki verður að sjálf- sögðu að hafa áhrif á fólksfjölgunarþróunina. En að okkar dómi er áhrifarikasta ráðið ekki það að beita þvingun- um, heldur að örva fæðingartiðnina með siðferðilegum og efna- legum stuðningi. Það eru ýmis ráð til slikrar hvatningar. Hjálp af hálfu rikis við uppeldi barna. Bygging fleiri barna- heimila og leikvalla og fjárhagsleg aðstoð við mæður með mörg börn. Mánaðarlega fá um þrjár milljónir kvenna I Sovétrikjunum greidda slika styrki. Það verða engar breytingar á fólksfjölgunarþróuninni á einu ári, jafnvel ekki áratug. Þó má nú slá þvi föstu, að fæöingar- tiðni i Sovétrikjunum hefur aukizt og það mun halda áfram að stefna I þá átt. Nútimakonan vill út Nútimakonan vill ekki lifa aðeins fyrir fjölskylduna. Hún vill læra, þroska andlega hæfileika sina, taka þátt i hagnýtu starfi fyrir þjóðfélagið. Sjálfsagt eru það ekki margar konur, sem óska þess að eiga 8-10 börn. í Sovétrikjunum hafa verið gerðar kannanir, sem sýna að flestar konur álita að 2-3 börn séu æskilegasti fjöldinn. Aö minum dómi er þetta skynsamleg af- staða. Foreldrarnir geta þá betur annazt um þau en ef fleiri börn væru i fjölskyldunni. Fæðing er holl fyrir lif- færastarfsemi konunn- ar, en of tiðar fæðingar eru það ekki. Sér- fræðingar Alþjóða heil- brigðismálastofnunar- innar fullyrða, að eftir þriðju fæðinguna geti lifi móðurinnar verið hætta búin, þá skapist hætta á sykursýki og á vissum tegundum krabbameins. Ýmsar leiðir færar Óskir konunnar um að takmarka barnafjöld- ann eru skiljanlegar og sanngjarnar. Fóstur- eyöing er þó langt frá þvi að vera bezta ráðið til að takmarka fæðingartiðnina. Nú i dag eru til ótal ráð til að koma i veg fyrir þungun og þau hafa ekki i för meö sér neinar auka- verkanir. I Sovétrikjunum glima margar rann- sóknastofnanir við að finna slikar aðferðir. Einnig hefur verið stofnuö rannsóknarstöð, þar sem kannaðir eru möguleikar á notkun hormónagjafar. Aðrar aðferðir betri Við drögum i efa gildi hormónagjafa og mæl- um ekki með þeirri að- ferð, þar sem hún hefur áhrif á liffærastarfsemi konunnar og getur verið heilsu hennar hættuleg. Þetta þýðir að sjálf- sögðu ekki, að við séum yfirleitt á móti fyrir- byggjandi aðferðum. Fundnar hafa verið fjölmargar aðferðir til að koma i veg fyrir óæskilega þungun, þótt þær séu ekki 100 prósent öruggar. Konurnar verða að læra slikar að- ferðrr, það er hin raun- hæfa aðferð til að draga úr fjölda fóstureyðinga. A hinn bóginn er hægt að vinna gegn þeim ástæðum, sem gera fóstureyðingu nauðsyn- lega. Meðal þeirra eru alvarlegir ólæknandi sjúkdómar, hjartagall- ar, sykursýki, nýrna- sjúkdómar o.s.frv. Þeir stofna lifi konunnar I hættu og gera fæðing- una svo erfiða, að jafn- vel læknar mæla með fóstureyðingu. Sérhæfð sjúkrahús Þrátt fyrir það gerist það æ sjaldnar, að fóstureyðing sé fyrir- skipuð að læknisráði. Handa konum, sem hafa þörf fyrir sérstakt lækniseftirlit, eru til sérhæfð sjúkrahús og fæðingarheimili, þar sem þær fá þá með- höndlun, sem þær þarfnast. Fyrir kemur, að kona tekur ákvörðun um fóstureyðingu án þess að hafa ihugað ákvörðunina nógu ræki- lega áður. Áður en kona, sem æskir fóstur- eyðingar er lögð inn á sjúkrahús eða fæðing- arheimili, ræðir læknir þvi ætið við hana fyrst. Þetta stuðlar að þvi, að stöðugt fækkar fóstur- eyðingartilfellum i Sovétrikjunum. mið i riki, þar sem jafn- Umsjón: Óli Tynes

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.