Vísir - 18.06.1975, Side 13
Vísir.Miðvikudagur 18.júnl 1975.
13
- OK HRINGVEGINN A 26 TIMUM
A 26 timum lagöi hann Guö-
mundur Magnússon hjá Slátur-
félagi Hafnarfjaröar 1630 kilú-
metra hringveginn aö baki.
Guömundur, sem er á 75.
aldursárinu, hefur því ekiö á
nær 63 kildmetra meöalhraöa
alla leiöina.
„Erindiö var nú að sækja
mann tii Fáskrúðsfjarðar, en ég
vildi athuga, hvað ég gæti orðið
snöggur að þvi”, segir Guð-
mundur, sem vafalaust hefur nú
slegið hringvegsmetið þrátt fyr-
ir háan aldur.
Að vlsu tök Guðmundur sér
hvildir á leiðinni en þó ekki
mjög langar. Ferðin tók þvi I
allt 44 tima. Hann hélt frá
Hafnarfirði klukkan átta siðast-
liðinn mánudagsmorgun og kom
I bæinn klukkan fjögur aðfara-
nótt miðvikudagsins. Hann
stanzaði til að fá sér bita á
Akureyri og i Höfn I Hornafirði,
og dvaldi auk þess á Fáskrúðs-
firði frá þvi klukkan hálf ellefu á
mánudagskvöldið til klukkan
hálf tvö eftir hádegi á þriðju-
daginn.
Farkostur Guðmundar var
Range-Rover og sagðist Guð-
mundur hann hafa eytt að
meðaltali tæplega 15 litrum á
hundraðið.
Ef nokkur skyldi hafa frétt af
einhverjum sem lagt hefur
hringinn að baki á skemmri
tima, sem okkur þykir þó óllk-
legt, tækjum við fúsir á móti
fréttum af þvf, án þess þó að við
séum að hvetja menn til neinna
dáða i slikum kappakstri. — JB
VISIR flytur helgar-
fréttirnar á mánu-
dögum. Degi fyrr en önnur dagblöð.
*—’ (eerir-t áskrifendur)
Pyrstur með
iþróttafréttir
helgarinnar
VISIR
Sjötíu sinnum
iviku
Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í
áætlunarferö, samkvæmt sumaráætlun til 12 staöa
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þessi mikli ferðafjöldi þýðir þaö, að þú getur ákveöiö
ferö til útlanda og farið nær fyrirvaralaust.
En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Þaö
þarf traust starfsfólk og góöan flugvélakost.
Við höfum hvort tveggja. Viö höfum 2 Boeing og
3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga meö
langa og gifturíka reynslu aö baki, í þjónustu okkar,
Starfsfólk okkar hefur ekki aöeins aðsetur á íslandi.
500 þeirra starfa á flugstöðvum og skrifstofum
okkar í 30 stórborgum erlendis.
Hlutverk þess er aö greiöa götu þína erlendis.
Ætlir þú lengra en leiöanet okkar nær, þá er ekki
þar meö sagt aö við sleppum alveg af þér hendinni,
þá tekur ferðaþjónusta okkar viö, og skipuleggur
framhaldið í samvinnu við flest flugfélög heims, sem
stunda reglubundiö flug, og fjölda hótela.
Þegar þú flýgur meö vélum okkar, þar sem reyndir
og þjálfaöir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér
finnst aö þú sért aö ferðast á áhyggjulausan, þægi-
legan og öruggan hátt, þá veistu að þaö er árangur
af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða
annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess aö svo
mætti verða.
75 ÁRA GAMALL
Guömundur Magnússon.
ÞING-
EYINGAR
RAUSNAR-
LEGIR VIÐ
YNGRA
FÓLKIÐ
„Ekki höfum við reynt að undir-
bjóða sumarbúðirnar,” sagði
Sigurður Geirdal, framkvæmda-
stjóri Ungmennafélags tslands.
„Hins vegar hafa Þingeyingar
ákveðið að greiða sumardvöl
barna á Laugum það mikið niður,
að daggjöld verða 400 krónur”.
í sumar rekur UMFl sumar-
búðir á 9 stöðum.Hægt verður að
dveljast i búðunum frá 1/2 upp i 1
1/2 mánuð sums staðar. Haædin
verða þrenns konar námskeið i
búðunum: a) leikir og iþróttir b)
þjálfun I félagsmálasýslu, c)
vinnubúðir.
Sumardvöl barna verður i
fyrsta skipti i sumar að Steins-
staðaskóla i Skagafirði.
— BÁ —
Félög með þjálfað starfslið í þjónustu við þig
F,íHcÁF^AG loftleidir
ÍSLAJVDS