Vísir - 05.08.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 05.08.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Þriöjudagur 5. ágúst 1975— 174. tbl. Bardagi milli Englands og Skotlands r - en Island vann! Jóhannes skoraði eina markið i leik Skotlandsmeistara og Englands-meistara — Iþróttir í opnu Varnar- svœði um- hverfis Breta- prins — Enginn fœr að koma nœr honum en sex kílómetrd Þau Philip hertogi af Edin- borg og Anna prinsessa hafa löngum þótt harösnúin i viöskiptum sfnum viö frétta- menn. Sérlega viröist her- toginn hafa imigust á ijós- myndurum og gætir þess að þeim sé haldiö f hæfilegri fjar- lægö. Charles prins virðist nú hafa lært meira af föður sinum en hvernig á að kasta flugu. Lög- regluþjónar virðast vera á verði á hverjum hól i grennd við Hofsá, og ljósmyndara Vísis frá Egilsstöðum tókst ekki að komast nær honum en sex kilómetra. Hvemig sem hann reyndi fann hann enga smugu fram- hjá laganna vörðum, sem að lokum urðu leiðir á honum og sögðust hafa skipun um að handtaka alla þá sem voguðu sér að ónáða prinsinn. -ÓT Bórust til hafs í gúmmíbót Ferðalangar, sem staddir voru að Látrum i Aöalvik i hádeginu I gær, sáu neyðar- blysi skotið upp frá Rit. Feröalangarnir fór i skips- brots m a nn a ský 1 iö aö Látrum og náöu sambandi við tsafjarðarradió og til- kynntu um blysiö. Slysavarnarfélagið skarst i leikinn og baö skuttogarann Dagrúnu frá Bolungarvik og varðskip, er þarna var statt, að kanna ástæöuna fyrir neyðarblysinu. Dagrún kom fljótlega að litlum gúmmibáti uppi i fjöru viö Rit og var þá einnig komin þangaö trilla, er oröiö haföi blyssins vör. A gúmmibátnum voru ferðamenn, sem i óleyfi höföu fengið félaga sinn til aö taka hafnsögubátinn á tsa- firöi traustataki og flytja sig yfir i Aðalvikina. Skammt undan landi fóru þeir yfir i gúmmibátinn, en vegna þess að allsterkur vindur var, náöu þeir ekki landi. Er þeir óttuöust aö feröalagið endaöi úti á hafi, sendu þeir út neyöarblys en náöu skömmu siöar landi viö Rit. Trillan, sem kom á vett- vang, dró gúmmibátinn siöan inn á Aöalvikina i gær- dag og hefur ekki frétzt af ferðalöngunum siöan. —JB Vcengir fengu konunglegan flugöryggisstimpil fyrir heimsókn Charles prins — Mér virtist prinsinn vera mjög geðþekkur ungur maður, sagði Ómar Ólafsson, yfir- flugstjóri hjá Vængjum, en hann stjórnaði Twin Otter skrúfuþotu félagsins, sem flutti Charles prins til Vopnafjarðar. — Prinsinn er sjálfur flugmaður og það var búið að nefna við okkur að hann kæmi kannski fram i til að fá að taka sjálfur i, en af þvl varð ekki i þetta skipti. Gestgjafar hans, Tryonhjónin, voru með I ferðinni, svo að hann sat ásamt þeim i farþegaklefan- um og Guðmundur Magnússon, aðstoðarflugmaðurinn minn, hélt sinu sæti alla leiðina. — Það var sólskin og bliða á Vopnafirði, þegar við komum þangað, og við fórum nokkra hringi yfir bæinn og yfir ána, þar sem hann átti að veiða. — Þáð var annars langur aðdrag- andi að þessu flugi. Við vorum búnir að fá heimsókn bæði frá Scotland Yard og flugliði drottningarinnar, og kom hingað til að kynna okkur starfsemi og svo aðstæður þarna fyrir austan. Hafþór Helgason, fram- kvæmdastjóri Vængja, sagði að bæði Scotland Yard maðurinn og yfirmaðurinn úr flugliði drottningarinnar, hefðu haft margs að spyrja. — Flugliðinn kynnti sér vandlega alla okkar starfsemi og ræddi i þvi sambandi einnig við flug- málastjórnina. Hann lýsti sig svo fullkomlega ánægðan með starf- semi okkar og bar ekki fram neinar óskir um breytingar eða eitthvað sllkt. Það er ekki ónýtt að hafa konunglegan stimpil upp á að rekstraröryggi sé i fullkomnu lagi. -ÖT. PORTIÍGALSKUR TOGARI: Dregin til Reykjavíkurhafnar — var í hœttu staddur með vélarbilun úti af landinu Portúgalskur verk- smiðjutogari með vélarbilun var dreginn inn á innri höfnina i morgun. Togarinn heitir David Malgoeiro og var staddur 300 milur frá íslandi, er þeir urðu varir við vélarbilunina. Reynt var að gera við bilunina, en án árangurs. Þvi var haft samband við Þorvald Jónsson skipamiðlara, sem er umboðsmaður skipsins hér á landi. Sendi hann björgunar- skipið Goða á föstu- dagskvöld til að draga togarann til íslands. Skipið hafði verið á veiðum I Barentshafi, en þar hafði verið lftill fiskur. Voru þeir þvi á leið til Nýfundnalands til að freista gæfunnar þar. Skipið veiðir i troll einkum þorsk og er aflinn annað hvort saltaður eða frystur um borð, en áhöfn skipsins eru 65 menn. Skipið lagði frá Portúgal fyrir tæpum fjörutiu dögum og var áætlað, að þessi ferð tæki fimm mánuði. Sagði skipstjórinn, að veðrið hefði verið mjög gott, þegar bilunin hefði átt sér stað, þvi hefðu menn tekið þessu með stillingu. Ekki er vitað hvað viðgerð vélarinnar tekur langan tíma, en senda þarf eftir vélarhlut i skipið til Lissabon, að sögn skipstjó’-ans. Þegar við spurðum nokkra úr áhöfninni hvernig ástandið væri i Portúgal um þessar mundir, var okkur sagt, að þeir hefðu lltið frétt að heiman, þvi radio- samband væri svo lélegt við heimalandið. Reyndar hefðu nokkrir skipsmanna fengið send skeyti, þar sem þeim hafði verið sagt, að fjölskyldum þeirra liði vel. -HE. Skipafélögin lœkka bílafragtina: Leiðir til lœkkunar ó bílaverði „Skipafélögin ákváöu I siö- ustu viku aö lækka farmgjöld á bifreiöum uin 25%,” sagöi Sigurlaugur Þorkelsson, blaöa- fulltrúi Eimskips I viötali viö VIsi I morgun. „Eins og viö vitum, eru verölagsákvæöi á ýmiss konar stykkjavöru þar á imeöal bilum, og það er heimilt aö lækka veröiö, þótt hækkun sé bundin samþykki verðlags nefndar. Það hefur áður átt sér stað, að flutningsgjöld hafa verið lækkuð á vörum, sem flytja má I heilum förmum, enda verða skipafé- lögin að hugsa um hag viö- skiptavina sinna og mæta sam- keppninni, bæöi frá innlendum og erlendum aðilum,” sagði Sigurlaugur. Farmgjöld á meöalstórum bil frá Bretlandi lækka þannig úr 98,60 sterl.p., eöa kr. 34.314,00, I 73,95 sterl.p., eða kr. 25.735,00. Þessi lækkun mun vera um 25%. Uppskipunargjöld lækka einnig, og á þessum sama bil lækka þau úr 5.814,00 I kr. 3.451,00, eöa rétt um 40%. Samtals leiða þessar lækkanir til 30-40 þúsund króna lækkunar á brezkum bllum, en um 65-75 þúsund króna lækk- unar á bandariskum bilum, þar sem margs konar gjöld hér- lendis leggjast á flutnings- gjaldið llka. Þessi lækkun skipafélaganna á flutningsgjöldum bila kemur nú eftir að alvarlegar umræður hafa átt sér staö meðal bilainn- flytjenda um kaup eöa leigu á sérstöku bilaflutningaskipi til að mæta þörfum þeirra og lækka flutningskostnaöinn. —SHH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.