Vísir - 05.08.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 05.08.1975, Blaðsíða 7
Vísir. Þri&judagur 5. ágúst 1975 7 Um langt árabil, áður en Barnageðdeild Hringsins var stofnuð, var það ljóst, að á ís- landi voru mörg geð- ræn vandamál barna. Svo fljótt sé farið yfir forsögu þessarar stofnunar, þá var á- kveðið að undangenginni rann- sókn og viðræðum um þessi mál að stofna sjúkradeild fyrir börn og unglinga með geðræna sjúk- dóma. Fékk þessi deild inni I nýju húsnæði Upptökuheimilis Reykjavikurborgar að Dal- braut 12, Reykjavik. Hlutverk deildarinnar Til þess að fræðast um skipu- lag og starfsemi deildarinnar ræddi blaðamaður Visis við for- stöðukonu barnageðdeildarinn- ar, Þóru Arnfinnsdóttur geð- hjúkrunarkonu. Sagði Þóra, að barnageðdeildarinnar teldti æskilegt, að meðferð geti farið án þess að þurfi að fjarlægja barnið frá smu daglega um- hverfi. í þeim tilfellum, sem göngu- deildarmeðferð er ekki talin nægjanleg, eru börnin sett á legudeild eða heimavist eins og deildin er kölluð i daglegu tali, þvi yfirleitt eru börnin ekki rúmliggjandi, meðan þau dvelj- ast þar. Meðaldvalartimi barna á legudeild eru um sjö mánuðir. Þegar börn eru lögð inn á legudeild er reynt að rjúfa sem minnst tengsl barna við for- eldra. Þvi er enginn ákveðinn heimsóknartimi. Foreldrar geta lika dvalið eins lengi og þeir vilja hjá barninu. Það hefur til dæmis komið fyrir, að móðir hafi dvalið hálfan mánuð sam- fleytt á stofnuninni ásamt barni sinu. A dagdeild er rými fyrir 7—8 börn frá þvi klukkan 9.00—15.00 daglega 5 daga vikunnar. Böm- in eru yfirleitt af Stór-Reykja- vikursvæðinu. Þau eru flest Þeir eru handlagnir, krakkarnir, þeir læra iika a& föndra og smiða FRÆÐIZT UM BARNA- GEÐDEILD HRINGSINS starfsemin væri fólgin I að veita þeim þjónustu, sem eiga við barnageðlæknisfræðileg vanda- mál að striða, þ.e. sjúklingum af öllu landinu frá aldrinum 2—16ára, foreldrum þeirra eða öörum nánustu ættingjum eða forsjármönnum, svo og opin- berum aðilum, svo sem félags- málastofnunum, barnaverndar- nefndum, skólum o.s.frv. Annað hlutverk stofnunarinn- ar er menntun til handa ýmsum starfsstéttum, sem munu veita meðferð börnum (eða fjölskyld- um) með geðræn vandamál. 1 þvi sambandi má nefna hjúkr- unarkonur, fóstrur, sálfræð- inga.félagsráðgjafa, lækna o.fl. Fer þessi leiðsögn fram i formi námskeiða, handleiðslu, les- hringa og ekki sizt leiðsögn við að leysa vandamál um leið og þau gerast. Einnig telst mikil- vægt að fræða almenning, aðra starfshópa og skóla um barna- geðlækningar. Skipulag og starfsémi barnageðdeildarinnar Þrjár deildir starfa innan spitalans, þ.e. göngudeild, legu- deild og dagdeild. Á göngudeild eru öll bömin rannsökuð áður en meðferð hefst. 1 langflestum tilfellanna, sem koma til kasta göngu- deildarinnar, er hægt að leysa vandamálin, án þess að þurfi að setja barnið á legudeild. Sagði Þóra, aö sérfræðingar undir skólaaldri eða 3ja—6 ára gömul. Þau verja deginum I leik og ýmiss konar starfsemi. Allir foreldrar koma I einhvers konar meðferð eða samtöl frá þvi meðferðin er ákveðin og venju- lega talsverðan tima eftir að börnin eru útskrifuð. A barnageðdeildinni starfa 37 starfsmenn. í þeim hópi eru 4 læknar, 3 sálfræðingar og 2 fé- lagsráðgjafar og einn sérkenn- ari. Að þessum frátöldum starfa 27manna hópur blandaðs hjúkr- unarliðs, sem hefur daglega umsjá og eftirlit með börnun- um. Hjúkrunarliðið á það sameig- inlegt að hafa góða hæfileika til að umgangast börn, einnig hef- ur sumt af þessu starfsfólki margra ára starfsreynslu i sambandi við börn. Þó hefur ekkert af þessu starfsfólki lagt fyrir sig nám I geðhjúkrun, en mikil þörf er fyrir slikt nám hér á landi, sagði Þóra. Hver er hin daglega meðferð á barninu? Bæði á legu og dagdeild fer fram svo kölluð umhverfismeð- ferð (milieuterapi). Höfuðþátt- ur þeirrar meðferðar er félags- leg endurhæfing, sem leiðir af náinni umgengni við starfsfólk deildarinnar og börnin. Sjúkl- ingarnir rekast þar á sina fé- Þóra Arnfinnsdóttir er forstöðu- kona Barnage&deHdarinnar, hún er ein af fáum hér Ílandi, sem er sérmenntuð geö- hjúkrunarkona. lagslegu agnúa og óheppilegar hegðunarvenjur. Reynt er að skapa þeim möguleika á að venjast af þessum hegðunar- vandkvæðum með þvi að bind- ast starfsfólkinu og börnunum tilfinningalega og fá þar þann stuöning, sem þeir þurfa til að þola kröfur þær, sem daglegt lif gerir til einstaklinganna. Þáttur I þessari meðferð eru daglegir morgunfundir, þar sem börnin og allir, sem á deild- inni starfa, leggja sitt til mál- anna. Þar segja börnin skoðanir sinar á hegðun hvers annars. Við þessar umræður geta augu bamanna opnazt fyrir ýmsu i eigin fari, bæði neikvæðum og jákvæðum þáttum og jafnframt eykst skilningur þeirra á hegð- un annars fólks. A barnageðdeildinni er mikið lagt upp úr hópvinnu barnanna. Við látum þau deila ábyrgðinni með okkur á útliti og umhverfi deildarinnar. Til dæmis eru þau látin taka til reglulega á her- bergjunum I samvinnu við starfsfólkið. Oft eru lika skipulagðar hóp- ferðir eða þá einn starfsmaður fer með eitt eða tvö börn I gönguferð, t.d. upp á öskjuhlið eða I Laugardalsgaröinn. Hér er föndur- og smíðaað- staða fyrir börnin, en eins og áður segir, þá leggjum við á herzlu á gildi þess, að börnin vinni að einhverju ákveðnu með starfsliðiriu sagði Þóra. Það er eitt vandamál I þessu sambandi, sem ég vildi benda á, en það er breiddin i aldurshóp- um héma, þvi við rekum okkur stundum á það, að erfitt er að skapa verkefni fyrir eldri ald- urshópa, þvi að þau hafa aðrar þarfir en þessi yngri. Eldri krakkar ættu betur heima á sér- stakri unglingadeild. Auk þessarar daglegu um- hverfismeðferðar, þar sem hjúkrunarfólkið er aðal lækn- ingartækið, ef svo má segja, eru barnageðlæknar, sálfræðingar og félagsráðgjafar stofnunar- innar með börnin i ákveðnum meðferðum, stundum ásamt fjölskyldu viðkomandi barns. Það yrði of langt og flókíð ,mál að gera grein fyrir þessum aðferð- um á þessum vettangi nú. Kynskipting og aldur sjúklinganna 1 ársskýrslu fyrir árin 1970, 1971,1972, sem gefin er út á veg- um stofnunarinnar, kemur I ljós, að helmingi fleiri piltum en stúlkum hefur verið visað til deildarinnar þessi þrjú ár. Pilt- arnir eru ekki aðeins fleiri, heldur virðast vandræði þeirra vera alvarlegri, þar sem nær helmingur þeirra er tekinn til nánari rannsóknar, en aðeins . röskur þriðjungur stúlknanna. Segir i skýrslunni, að ekki sé á- stæða að draga viðtækar álykt- anir af þessari staðreynd, þar sem þessireynsla kemur mæta- vel heim við reynslu hvaðanæva úr heiminum. Sjúklingarnir, sem leituðu til deildarinnar, reyndust vepa 0—16 ára gamlir. Fáir sjúklingar voru af hverjum aldursflokki upp I 3 ár, en siðan fjölgaði jafnt og þétt I árgöng- unum og náði hámarki I aldurs- flokknum 10—12 ára. Siðan fækkar þeim aftur eftir þvi sem börnin eru eldri. Ýmsar ástæður eru taldar fyrir þvi, að árgöngunum á gelgjuskeiðinu fækkar tiltölu- lega. Segir I skýrslunni, að á- stæðan fyrir fækkuninni sé sennilega allra sizt sú, að minni vandamál sé við að striða hjá þessum aldursflokki. Veigamesta ástæðan er talinn skortur á legudeildaraðstöðu og þannig fá þessir unglingar ekki þá meðferð, sem æskilegt er. Aörir aðilar veita þessum hópi einhverja aðstoð eins og t.d. upptökuheimili, fullorðinsgeð- deildir og félagsmálastofnanir. En sú þjónusta er ekki fullnægj- andi og getur ekki komið i stað þeirrar rannsóknar og meðferð- ar, sem felst i legudeildarað- stöðu á unglingadeild, segir i ársskýrslunni. Uppruni barnanna. Gerð var tilraun til að greina nokkur atriði til að upplýsa upp- runa þeirra barna, er til deildarinnar leituðu á árunum 1970, 1971 og 1972. Meðal þess, sem athugað var, var efnahag- ur. Sýndi það sig að meira en helmingur býr við góðan efna- hag, en aðeins rúmlega tiunda hver fjölskylda býr við lélegan efnahag. Þegar litið er á starf fjöl- skylduföður, þá eru það 48% feðranna, sem vinna störf, sem krefjast sérmenntunar og 12% feðranna, sem vinna störf, sem krefjast æðri menntunar og 32% feðra, sem ekki krefjast sér- menntunar. Þegar litið er á starf móður, þá kemur i ljós, að 71% mæðra þessara barna starfa eingöngu sem húsmæður, 9,8% vinna störf, sem krefjast sérmennt- Unar og 16% vinna störf sem ekki krefjast menntunar. Athyglisvert hefur reynzt að kanna, hverjir hafa alið börnin upp, bæði með þvi að gæta að þvi, hversu mörg börn eru alin upp af báðum foreldrum sinum og ekki slður að flokka fjöl- skyldurnar eftir þvi, hvort um alvarlegar geðtruflanir eru fyrir hendi I nánasta umhverfi barnanna. I ljós kemur, að læp 60% barnanna eru alin upp af báðum foreldrum sinum. Einnig kom i ljós, að helm- ingur barnanna telst koma úr umhverfi, þar sem ekki eru neinar alvarlegar truflanir fyrir hendi, en hinn helmingur telst koma frá heimilum þar sem einhver fjölsk. meðlimur hefur við einhver geðræn vandamál að striða. Greindarmat. Meðal þeirra þátta, sem tekn- ir voru fyrir I þeirri sálfræðilegu rannsókn, sem framkvæmd var á þeim sjúklingum, sem þurftu nánari rannsókn, er greind barnanna. Sálfræðingar stofn- unarinnar gerðu þetta greindarmat með greindarpróf- um, sem stöðluð hafa verið við Islenzkar aðstæður. Kom fram i þeirri rannsókn, að u.þ.b. þrisvar sinnum fleiri börn, sem rannsökuð voru á stofnuninni, teljast mjög vel greind eða afburðagreind (grv. 120 eða yf- ir). HE Náin umgengni er milli barnanna og starfsfólks barnageödeild- arinnar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.