Vísir - 05.08.1975, Side 5
Vlslr. Þrt5)«4sgnr 5. ágúst 1975
5
TLÖND i MORGUN UTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND Umsjóti: Guðmtmdur Pétursson
Hafa fimmtíu
gísla á valdi
sínu
Félagar úr „Rauða hernum" sendir úr
fangelsum í Tokyo til Kuala Lumpur
að kröfu hryðjuverkamanna
50 manns/ þar á meðal
tveir diplómatar af
Vesturlöndum, voru í
morgun fangar jap-
anskra hryðjuverka-
manna í ræðismanns-
skrifstofum USA i Kuala
Lumpur.
Fjórir menn, vopnaðir félagar
úr „Rauða hernum”, brutust
inn i ræðismannsskrifstofurnar
i gær og tóku þar höndum ræðis-
manninn bandariska. f annarri
Handjárnaðir og undir strangri
vörzlu sjást félagar Rauða
hersins, sem látnir hafa verið
lausir úr fangelsum Tokyo,
stiga úr flugvélinni, sem flutti
þá til Kuala Lumpur I morgun.
skrifstofu tóku þeir sendiráðs-
ritara Sviþjóðar, Fredrik Berg-
enstrahle. — Alls tóku þeir i
þessari tólf hæða skrifstofu-
byggingu um fimmtiu manns til
fanga.
Fjórmenningarnir kröfðust
þess, að sjö félagar þeirra, sem
eru i haldi i fangelsum i Tokyo,
yrðu látnir lausir og flogið með
þá til Kuala Lumpur. Hótuðu
þeir að taka fangana af lifi ella.
Flugvél var i morgun á leið-
inni til Kuala Lumpur með 5
þessara sjö, sem sleppt hefur
verið úr fangelsum að kröfum
hryðjuverkamannanna. Tveir
vildu ekki fara. Annar bar við
veikindum, en hinn kaus ein-
faldlega að vera áfram i fang-
elsinu.
Gerðu fjórmenningarnir sér
það að góðu.
Á meðan hafði lögregla þess-
arar höfuðborgar Malaysiu um-
kringt skrifstofubygginguna.
Um 600 lögreglumönnum var
komið fyrir i henni og umhverfis
hana. Hús þetta hefur annars að
geyma, auk ræðismannsskrif-
stofa Bandarikjanna, ræðis-
mannaskrifstofur Sviþjóðar og
Kanada, skrifstofur tryggingar-
félags og fleira.
Hryðjuverkamennirnir komu
sér fyrir á niundu hæð hússins
með gísla sina og verður ekki að
þeim komizt án mannfórna.
Þeir kröfðust þess, að lögreglan
yrði á brottu, en þeir hafa sam-
band við umheiminn i gegnum
sima.
Að kröfu þeirra var lögreglu-
lið við framhlið hússins látið
vikja ögn frá.
Tan Sri Ghazalie Shaifie,
innanrikismálaráðherra Mala-
siu, hefur staðið i
samningastappi við hryðju-
verkamennina.
N—írland:
Loka yfír-
völd aug-
unum?
Brezka stjórnin liggur «
undir ámæli fyrir að
hafa— eftir þvi sem haft
er fyrir satt — lofað
leiðtogum irska
lýðveldishersins (IRA)
griðum gegn þvi að
vopnahlé gildi áfram á
Norður-írlandi.
Mikill kviði er meðal ibúa á Ir-
landi og Bretlandi um að vopna-
hléð sé senn i andarslitrunum, en
það hefur nú staðið I sex mánuði.
James Molyneaux, leiðtogi
þingflokks Ulstersamtaka mót-
mælenda, bar fram i þinginu i
gær fyrirspurn til Merlyns Rees,
Irlandsmálaráðherra um, hvort
stjórnin hefði lofað foringjum
IRA ferða- og athafnafrelsi.
Ennfremur krafðist hann •
skýringar á þvi, hvi enginn
tilraun hefði verið gerð til þess að
handtaka Seamus Twomey, sem
talinn er vera háttsettur i herráði
hryðjuverkasamtaka kaþólskra,
þegar Twomey var i Belfast i
siöasta mánuði.
William Craig, leiðtogi
Vanguardflokks mótmælenda,
hefur borið upp svipaðar fyrir-
spurnir i bréfi til Rees. i
Vanguardflokknum telja menn
sig hafa áreiðanlegar heimildir
fyrir þvi, að Twomey hafi verið
handtekinn af herflokki einum i
Belfast á mánudaginn i siðustu
viku, en verið látinn laus strax
aftur að fyrirmælum
„æðstráðandi manna”.
Twomey er eftirlýstur um allar
Bretlandseyjar, siðan hann flúði i
þyrlu úr Montjoy-fangelsinu i
Dublin fyrir tveim árum.
Orðrómurinn um, að brezk
stjórnvöld hefðu lofað IRA-
foringjanum griðum, komstfyrst
á kreik í slðasta mánuði, meðan
rettarhöldin i máli Davids
O’Connells stóðu sem hæst.
O’Connell var talinn yfirmaður
herráðs hryðjuverkamanna IRA,
en var dæmdur i eins árs fangelsi
fyrir aðild að þessum ólöglega
félagsskap.
1 réttarhöldunum, sem fóru
fram fyrir opnum tjöldum, mælt-
istO’Connell til þess við lögreglu-
foringja I vitnastúkunni, að hann
gerði ekki opinskátt innihald
skjals nokkurs sem fannst á
O’Connell við handtöku. Sagði
hann, að það gætiorðið til þess að
vopnahléð færi út um þúfur, ef
skjalið yrði gert opinbert.
Menn hafa það fyrir satt á
Norður-Irlandi, að IRA-leiðtogum
hafi verið heitið griðum á ferðum
þeirra um landið, svo að þeir geti
farið á milli og talið slna herská-
ustufélagaaf þviaðrjúfa friðinn.
Yfirvöld á N-írlandi hafa borið
þetta til baka og segja, að hver sá
maður, sem er á skrá lög-
reglunnar yfir eftiriysta menn,
verði handtekinn, ef hann sést.
t lóttafólk hefur streymt frá Luanda í Angola til Lissabon, en tugir þúsunda landnema sltja enn f Angola
og biða þess að sleppa á brott.
Brjóta og bramla ó
skrifstofum komma
Þúsundir andstæðinga
kommúnista fóru um með
brauki og bramli í þorpinu
Famalicao í norðurhluta
Portúgals í morgun.
Múqurinn brauzt inn í
skrifstofur og jafnvel
íbúðir félaga kommúnista-
flokksins og gerði sér
bálkesti úr bókum og hús-
gögnum stjórnmálaand-
stæðinga sinna.
Loft hefur verið lævi blandið i
Famalicao i gær og i nótt, eftir að
hjúkrunármaður og land-
búnaðarverkamaður voru skotnir
til bana i gærmorgun. Hermenn
höfðu gripið til skotvopna til að
hafa hemij á lýðnum, sem sótti að
skrifstofum kommúnista.
Alþýðudemókratar hafa skorað
á verzlunareigendur og atvinnu-
rekendur að hafa lokað i dag i
Famalicao, meðan jarðarför
mannanna tveggja fer fram.
Samtimis þessu berast þau
tiðindi frá Amadoreherskálunum
fyrir utan Lissabon, að hægri-
sinnaður ofursti, sem Otelo
Saraiva de Carvalho, hers-
höfðingi (vinstrisinnaður), setti
frá I siðustu viku, hafi aftur verið
settur yfir herflokk sinn I gær.
Áður hafði allur herflokkurinn
komið saman til fundar.
Carvalho hershöfðingi, sem er
yfirmaður Capcon-öry ggis-
sveitanna, einn ráðherranna
þriggja, sem nú fara með stjórn
landsins, sat sjálfur fundinn.
Eftir fundinn gaf Copcon út
yfirlýsingu, þar sem stofnunin
játaði á sig fljótfærni, þegar hún
tók mannaforráðin af ofurstan-
um, Jaime Neves. Var sagt, að sú
fljótfærnisákvörðun hefði verið
byggð á röngum upplýsingum.
Neves ofursti og tólf foringjar
aðrir voru settir af á fimmtu-
daginn, eftir fund sem vinstri-
sinnaðir liðþjálfar og óbreyttir
hermenn höfðu haldið, til þess að
krefjast frávikningar þeirra.
En eftir fundinn i gær fengu
Neves og hinir tólf allir uppreisn
æru.
Carvalho hershöfðingi þykir
þarna hafa beðið mikinn hnekki.
Hrópa ó hjólp til að flýja Angóla
Portúgalskir landnemar
í Angola gengu þúsundum
saman um götur miðborg-
ar Luanda í gær og skoruðu
á erlend riki að aðsfoða sig
við að komast úr landi.
Hrópandi „Hjálpið okkur úr
Angola” gengu um 4000 manns
fyrir ræðismannsbústaði Frakka,
Bandarikjamanna og Braziliu-
búa. — Fyrir framan frönsku
ræðismannsskrifstofurnar hróp-
aði fólkið „Vive la France” (Lifi
Frakkland) og ákallaði Valery
Gircard D’Estaing Frakklands-
forseta um aðstoð.
„Bretar, hjálpið okkur”, var
kallað fyrir framan ræðismanns-
skrifstofur Breta, en þær standa
auðar.
Annað veifið heyrist áköf skot-
hrið inni i borginni, þegar skæru-
liðar hinna striðandi frelsishreyf-
inga berjast. Sprengingar kveða
við oft á dag.