Vísir - 05.08.1975, Page 20
VISIR
Þriöjudagur 5. ágúst 1975
Bílabryggja
Akraborgar-
innar til ó
fimmtudag
„Bilabryggjan fyrir Akraborg-
ina var þaulreynd fyrir helgi á
Akranesi og reyndist prýðilega”,
sagöi Friðrik Þorvaldsson hjá af-
greiðslu Akraborgarinnar, en
bíiabryggjan hér i höfuðborginni
verður tilbúin á fimmtudag. Nú
fyrst kemst Akraborgin i gagnið
sem bilafcrja og getur hún flutt
rúmlega 50 bíla i stað 11 áður,
sem þurfti að hifa um borð.
„Eftir að Laxfoss strandaði 10.
jan. 1944 var mikið bollalagt um
framtið þeirra sjósamgangna,
sem hófust árið 1891 milli Reykja-
vikur og Borgarness”, sagði
Friðrik, og hann hélt áfram.
„Hinn kunni athafnamaður Gisli
Jónsson alþingismaður var okkur
til ráðuneytis, og leitað var eftir
hentugu skipi allt frá Norður-
Ameriku til Miðjarðarhafs. Hug-
myndin var m.a. aö kaupa bila-
ferju, því fyrir Hvalfjörð var þá
hiö mesta tröllaspark.
Glsli og Þorkell Teitsson, sim-
stöðvarstjóri, ræddu við enskan
verkfræðing um flotbryggjur og
gáfu þeir honum upplýsingar um
aðstööu og veðurlag.
Aldrei var ráðizt i þann kostnað
að fá álit hans skriflegt, né heldur
kostnaðaráætlun. Hins vegar
gáfu viömælendur hans svör, sem
við drógum saman i eina setn-
ingu: „Það er ekki vist að þessi
mannvirki standi meðan þau eru i
smiöum, eins og aðstæðum er lýst
á Akranesi og i Borgarnesi”.
Síöan hefur margt breytzt.
Stórkostlegar hafnarbætur hafa
verið gerðar á Akranesi sl. 30 ár
og að þessu leyti er Borgarnes
komið á „þurrt land”.
Og flotbryggjan verður að
veruleika á fimmtudag sem fyrr
segir, og er þegar tilbúin á Akra-
nesi. , —EVI
Bílþjófur í
strœtóleik
Strætisvagn á leið númer 6
hafnaði utan i stcinsteyptum vegg
og Ijósastaur um klukkan eitt að-
fararnótt laugardagsins. Ókunn-
ugt er, hver ók vagninum.
Strætisvagninn stóð með ræsi-
lykli i niðri við Lækjartorg klukk-
an eitt um nóttina og hafði stræt-
isvagnabilstjórinn brugðið sér frá
rétt i þann mund, er vakt hans
var að ljúka.
Er bilstjórinn kom út aftur, var
vagninn á bak og burt og fannst
hann stuttu siðar við Hofsvalla-
götuna, þar sem hann hafði ekið á
Ijósastaur og grjótvegg og brotið
niður simakassa, sem á honum
hékk.
Þjófnum virðist hafa verið um-
hugað um að fylgja hinni réttu
akstursleið strætisvagnsins sem
nákvæmast, þvi að leið 6 á með
raun réttri leið um Hofsvallagöt-
una.
Strætisvagninn skemmdist
furöanlega litið.
JB
og guðsorðið,-
kokkteill það!
— 1150 ungmenni flykkjast til
Islands ó kristilegt stúdentamót
„Við ætlum að sjá ögn af islandi og kynnast orði Guðs betur,”
sögðu þau Ingrid Johanssontannlækná nemi og Yvonne Islande
,,Oj, hér er sko kalt,”
sögðu þau og hnepptu
jökkunum sinum betur
að sér. „Heima i
Sviþjóð var 30 gráðu
hiti, sól og sumar. Er
alltaf svona kalt hér?”
Það voru sólbrúnir
Sviar á leið á norræna,
kristilega stúdenta-
mótið i Reykjavik 6.-12.
ágúst sem varð svo
„Biblfan og island, góður
kokkteill það,” sagði Lena
Gustavsson við komuna hingað
tiðrætt um veðurlagið.
„En við erum nú ekki
komin til að krunka
yfir veðurlaginu, held-
ur til að taka þátt í
stúdentamótinu, ”
bættu þau við og
ánægjubros lék um
varir þeirra.
í Flughöfninni i Keflavik og i
Laugardalshöll var ys og þys
vegna komu fyrstu hópanna.
Það verður einnig mikið um að
vera hjá Flugleiðum tvo næstu
sólarhringana. í tiu ferðum
munu um 1150 útlendingar frá
hinum Norðurlöndunum verða
fluttir til tslands i stærstu
hópferð Flugleiöa frá upphafi.
Alls munu nær 1400 þátttakend-
ur verða á ráðstefnunni og er
það stærsta norræna ráðstefna á
Islandi til þessa. Ekkert minna
en Laugardalshöll nægði undir
allan þann fjölda. Þar verða
allar samkomur haldnar og þar
á meðal kvöldsamkomur, sem
opnar verða almenningi. Búizt
er við yfir 2000 á kvöldsam-
komurnar. Útlendingarnir
munu gista i nærliggjandi skól-
um.
A leið til Reykjavikur tókum
við tvo danska stúdenta tali.
Annar þeirra, Asker Höjlund,
er við guðfræðinám i Arósum,
hinn, Nikolai Engel leggur
stund á læknisfræði á sama
stað.
Aðspurðir sögðu þeir þetta
vera fyrstu heimsókn sina til Is-
lands.
„Við þekkjum þó til íslenzkra
sjómanna frá heimabæ okkar,
Hirtshals. Meiri krafta-
karlarnir það,” sagði
guðfræðineminn og hló. Eins og
sönnum Dönum sæmdi, söknuðu
þeir trjánna og undruðust
fjöllin. „Skelfing er nú kalt hér
um hásumarið,” sagði Asker að
lokum.
Við Laugardalshöll stóðu tvær
sænskar stöllur og biðu eftir
strætisvagninum sem flytja átti
mótsgesti til svefnstaðanna.
Þær voru Ingrid Johansson, 22
ára tannlæknanemi, og Yvonne
Islande, 20 ára kennara-
nemi. Ekki hélt ungfrú
Islande sig vera með islenzkt
blóð I æðum, en þótti augsýni-
lega gaman að vera Islande þá
stundina. Aðspurðar um ástæðu
íslandsferðar, svöruðu þær þvi
til, að margar ástæður lægju að
baki: Löngun til að sjá ögn af ís-
landi, hitta aðra Norðurlanda-
búa, en fyrst og fremst væru
þær komnar til að kynnast betur
Orði Guðs eins og yfirskrift
mótsins gæfi tilefni til: Orð
Guös til þin.
Lena Gustavsson, 25 ára
kennari, var að koma á sitt
fyrsta stúdentamót. Hún vildi
einnig kynnast betur Bibliunni
sinni ásamt þvi að sjá ísland.
„Góður kokkteill það” og hún
brosti viö! —EA
FOLSK AÐ-
VÖRUN UM
ELD í HREYFLI
LEIGÐU SÉR FLUGVÉL
TIL ÁFENGISKAUPA
— óhressir yfir vínveitmgabannmu í Eyjum
„Við erum mjög ó-
hressir yfir þvi að þetta
skuli vera hægt”, sagði
annar hótelstjóranna á
Hótel Vestmannaeyj-
um, Konráð Halldórs-
son, i morgun.
Það var ekki látið
nægja að loka áfengis-
útsölunni fyrir þjóðhá-
tiðina i Eyjum, heldur
var sett bann á vínveit-
ingar á hótelinu lika frá
og með fimmtudegi.
Banninu er aflétt i dag.
„Þetta kemur sér mjög illa
fyrir okkur”, sagði Konráð.
„Við erum að vinna hér að
endurbótum, og þurfum að hafa
allt i fullum gangi. Gestir voru
lika að vonum óánægðir með
þessa ráðstöfun”.
„Þetta gerir ekki annað en að
auka vasapelafyllirl”, bætti
hann við, og sagði, að þótt lokað
væri fyrir vinveitingar, stæði
það ekki I vegi fyrir þvi að menn
næðu sér i vin. „Það er vitað
mál að menn leigja sér bara
flugvél og skreppa til Reykja-
víkur til þess að fá vin”, sagði
Konráð. Slikt átti sér lika stað
fyrir þjóðhátiðina.
Aðvörunarkerfi sýndi að
eldur væri kviknaður i einum
hrcyfli Boeing 727 þotu Flug-
leiða, þegar hún var nýlega
lögð af staö frá Spáni siðast-
liðna nótt, full af farþegum á
heimleið.
Flugstjórinn sneri þegar við
og lenti heilu og höldnu. Við
rannsókn kom 1 ljós að bilun
hafði orðið i aðvörunar-
kerfinu, en eldur fyrirfannst
enginn.
Af þessu varð samt mikil töf
og vélin var ekki lögð af stað
heimleiðis á nýjan leik, þegar
Vlsir fór I prentun í morgun. -
— ÓT.
Ekki bindindismót að Galtariœk
Bindindismótið að
Galtalæk reyndist ekki
standa undir nafninu
þessa verzlunarmanna-
helgi.
Sagði lögreglan á Hvolsvelli, að
ölvun hefði verið meiri en undan-
farin ár, þegar slik mót hefðu
verið haldin. Hefðu það einkum
verið unglingar, sem hefðu sézt
rangla um drukknir, en fjöldi
unglinga hefði verið meiri um
þessa verzlunarmannahelgi en
oft áður.
Sagðist lögreglan hafa hirt
nokkra tugi áfengisflaskna, þegar
leit var gerð i farangri mótsgesta.
Um sex þúsund manns munu
hafa sótt þessa skemmtun og
sagði lögreglan að skemmtunin
hefði farið sæmilega fram miðað
við hve margt var þarna
Veðrið var ágætt fram á
sunnudag, en þá fór að rigna. For
þá fólk að tygja sig til brottferðar.
-HE.
Vígbúið slökkviliðið:
Brauzt inn til að
komast í mónudagssteik
Slökkvibflarnir stóðu I röð
fyrir utan hús við Asgarð klukk-
an sjö í gærkvöldi. Ljósin blikk-
uðp og áhorfendur þyrptust að.
Skömmu siðar kom slökkvi-
liðsmaður gangandi út úr
reyknum, sem huldi eina ibúö-
ina. Eins og viröulegur þjónn
hélt hann á bakka með ljúf-
fengri steik á, aö visu eilitið of-
bakaðri.
Frúin hafði þurft að skreppa
snögglega frá og gleymdi þá
mánudagssteikinni, sem hún
var nýbúin að setja inn í ofninn.
Er steikin var orðin vel brunnin
gaus upp mikill reykur, og ná-
grönnunum þótti nóg um.
Slökkviliðið var kvatt til og
braut það rúðu I útihurðinni til
að komast i steikina. Þegar
komið hafði veriö i veg fyrir
frekari kokkamennsku hvarf
reykurinn fljótt, og áhorfend-
urnir hurfu til sins heima^ju