Tíminn - 18.09.1966, Qupperneq 7

Tíminn - 18.09.1966, Qupperneq 7
SUNNUDAGUK 18. september 1965 TfMINN 7 ÞÁTTUR KIRKJUNNAR ÁKÆRAN Haustið er komið og skemmt- analíf borgarinnar færist í fast horf. Margir vínveitingastaðir fyllast um hverja helgi. Biðrað- ir myndast víða við dyr, þar sem vinsælustu skemmtikraft- arnir „troða upp“ hverju sinni. En jafnframt eykst bölið í borginni. Uppreisn á heimilum, agaleysi í skólum, friðleysi í hjörtunum, í einu orði sagt hamingjuleysi. Hver er ástæðan? Altír sjá, að þetta ætti að vera á annan veg: Því meiri gleði, því fleiri skemmtanir, því meiri ham- ingja. Harða dóma um unga fólk- ið vantar ekki. En það gagnar lítið að nöldra, dæma og refsa. Það gagnar lítið að auka eftir- lit, efla lögregluna, stækka fang elsin og byggja heila höll fyrir lögregluvarðstöð. Sumir halda að svipan á lofti og fleiri fang elsi bæti úr þessu öllu. En sannleikurinn er að aukn- ar refsingar og stærri fangelsi eru ekki annað en einn þátt- urinn í hringekjuvitleysunnar, nýsköpun eða nýjasti tízkudans inn í hringdansinum kringum gullkálf áfengistilbeiðslunnar. Og hvað segir unga fólkið um okkur þessi eldri, sem eigum að leiða það, leiðbeina þvi og ala það upp? Það dæmir líka og ákærir. Dæmir hart og ákær- ir réttilega. Aldrei gleymi ég orðum ungr ar stúlku, sem var drukkin á einu æskulýðsmóti sumarins. Hún sagði: „Ég fyrirlít ykkur þetta „gamla fólk.“ Þið eruð „ferlega fúl.“ Þið eru hræsn- arar. Þið kennið okkur að reykja, drekka og drabba, gefið okkur peninga og eruð fegin að losna við okkur að heiman. Þið hamizt, skámmizt og for- dæmið okkur, en eruð ekki skárri sjálf. Hvernig enda, part ýin“ hjá ykkur meira að segja í fínustu klúbbum og félögum? Svo er lögreglunni sigað á okk- ur, en þið hafið ráð á að fela. Hvar liggja rætumar, nema hjá ykkur? Og svo verður að selja brennivínið með annarri hendi til að fylla ríkisfcassann, en hafa svipu „löggunnar“ í hinni til að halda hræsninni við.“ Þetta var ræða hennar í að- alatriðum svo að segja orðrétt. Ég ritaði hana upp nærri strax og notaði hana fyrir þátt í predikun: Hvers vegna eru bítl- amir vinsælli en Kristur? hét sú ræða. Hvað höfum við gjört að fyrirmyndum æskunnar. Auðvitað hugsa ekki og tala allir svona. Auðvitað er margt til af vel uppöldu og ágætu æskufólki. En samt er undar- lega stutt niður á þessa ákæru. Og það er of mikill sannleiki of beizk ásökun í henni. Og slík ákæra er víða hátt í huga æskunnar, þeirrar kyn- slóðar, sem nú verður að taka við heimi með lík atomsprengj- unnar í kjölfestu á framtíðar- fleyi mannkyns, án nokkurs andlegs afls til jafnvægis þeim ótta, sem slíkur flutningur hlýt- ur stöðugt að vekja. f ritgerð sænskrar stúlku, sem er í menntaskóla þar í landi, landi allsnægtanna, sem margir telja eitt helzta menn- ingar og velferðarríki verald- ar kemur sama ákæran fram en með öðmm orðum. Hún seg ir: „Nú á tímum er heimilið að- eins nokkurs konar kaupsýslu- stofnun. Þar er aðalatriði að eignast nóga peninga. Pabbi og mamma, sem í raun og veru em heimilið, sjást sjaldan þar. Þau vinna úti. Hvar finnum við forystu og fyrirmynd? Hvergi. Og svo era unglingarnir hing- að og þangað, eftirlitslausir, sundraðir, aðhaldslausir. Við fálmum okkur einhvern veginn áfram. Hjálp og leiðsögn fáum við hvergi, því síður samúð eða skilning. Hvarvetna er fólk að flýta sér með augun full af græðgi. „Tíminn er peningar, segir það. En peningar eru skelfing. Alls staðar erum við ofsótt af þessum hlæjandi hjá- guði. Pabbi vinnur, mamma vinnur, við vinnum jafnvel líka, stundum að minnsta kosti. Við verðum að fá peninga, pen- inga fyrir nýtízkuklæðnaði, heimilistækjum og þægindum, nýtízkuhúsbúnaði, alltaf meira og meira, fleira og fleira, pen- inga, peninga. En ég er ung. Ég er frið- laus og fátæk í öllum pening- unum. Ég ákæri ykkur. Þið hafið ekki tíma til að sinna okkur. Þið gleymið, að við eig- um hjarta. Þið metið meira peninga og álit í þjóðfélaginu en okkur, sem erum þó ykkar eigið hold og blóð. Við emm eins og útburðir og umskipting- ar eða fórn á altari auðguðsins. Við viljum kærleika ykkar — en þið gefið okkur peninga — þið sinnið okkur ekki og ýtið okkur svo út í helvíti atom- sprengjunnar í öryggislausum heimi græðgi og haturs. í aðal- atriðum fáum við óskirnar upp fylltar með eftirlæti og dekri, mikla peninga, mikið frjáls- ræði og margar tómstundir. En þetta er einmitt það sem skap- ar hættumar. Við eram ekki sköpuð til að ala okkur upp sjálf. Handleiðsla, trúnaður, ástúð er miklu meira virði fyr- ir vellíðan og hjartafrið okkar en ótakmarkaður fjöldi að- göngumiða að skemmtunum og kvikmyndahúsum." Þetta er í stuttu máli laus leg þýðing á ritgerð þessarar ungu, sænsku menntakonu. En væri okkur ekki flestum hollt að íhuga orð hennar. Og hvað gerum við, hvað gera heim ilin, og hvað gerir kirkjan til að bæta úr þessum mistökum." Kirkjan, stofnun Kristsand- andans, uppsprettulind og vörð ur kærleikans og vizkunnar í mannheimum, hlýtur að taka tillit til þessarar ákæra. Hvað gerir hún og hvað getur hún til að bæta úr þessu böli, sem ákærar þessara ungu stúlkna beina til okkar, þeirrar kyn- slóðar, sem nú ræður mestu? Safnar hún vegvilltum undir vængi sér, leitar hún að lamb inu, sem týndist úr hjörðinni, sendir hún góða hirðinn þang- að sem hættan er mest til að leita og frelsa? Árelíus Níelsson. ORÐSENDING Getum bætt við okkur nokkrum útihurðum, glugg um og fleiru. Fljót afgreiðsla. Trésmiðjan Barónstíg 18 sími 33111 eftir kl. 7 á kvöldin. TIL SÖLU Landrover — diesel 1965. Upplýsingar í síma 51470. ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR úr horðplasti: Format innréttingar bjóða upp ó annaS hundrað tegundir skópa og litaúr- val. Allir skópar með baki.og borðplata sér- smiðuð. Eldhúsið fæst með hljóðeinangruð- um stúlvaski og roftækjum af vönduðustu gerð. - Sendið eða komið með mól af eldhus- inu og við skipuleggjum eldhúsið samstundis og gerum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag- stætt verð. Munið að söluskattur er innifalinn í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hag- stæðra greiðsluskilmóla og lækkið byggingakostnaðinn. ki HÚS&SKIPhf • LAUGAVEGI 11 « SfMI 21 S1S ÍBÚÐ Tveggja herbergja íbúð óskast til leigu upplýsingar í síma 34401. BRIDGESTONE HJÓLBARÐAR Siaukin sala BRIDGESTONE sannar gæðin. Veitir aukiS ör-yggi i akstri. BRIDGESTONE óvallt tyrirliggjandi. GÓÐ ÞJðMUSTA — Verrlur op vfðqerðlr, Simi 17-9-84 Gúmmíbarðinn kt, Brautarholti 8, -1 ■■■ . i ;• -.— ---:— Klæðningar rökum að okkur Kia'ðnine ar og viðgerðir á néverki á bólstruðum húsgcgnum Gerum einnig tilboð 1 viö bald og endumfnuc á sæt um » kvikmvndahúsuro fé- lagsheimilum áætlunarbd reiðum og oðrum bifreið um 1 Revkjavík og nær- sveitum. Húsgagnavinnustefa ^iarna oa Samúels, Efstasundi 21, Reykjavík simi 33-6-13. SKÓR- INNLEGG Smiða Orthop-skó og tnn legg eftir máli Hef einnig tilbúna barnaskó, meö og án tnnleggs. Davíð Garðarsson, Orthop-skAsmiður Bergstaöastrætl 48, Síml 18893. TRÉSMIÐJAN, Holtsgötu 37, framleiSir eldhúss- og svefnherbergisinnréttingar. MITTO JAPÖNSKU NinO HJÓLBASDARNIR t flestum staorðum fyrirliggjandi f Tollvörugeymslu. FUÓT AFGREIÐSLA. DRANGAFELL H.F. Skiphoiti 35 - Simi 30 360 * Il'RÖTTAT.íKl Vélaverkstæði BernharSs Hannessonar. Suðurlandsbrau* 12, Simi 35810. BILA OG BÚVÉLA SALAN v/Miklatorg Sími 2 3136

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.