Vísir - 08.09.1975, Blaðsíða 11
Visir. Mánudagur 8. septcmber 1975.
Vísir. Mánudagur 8. september 1975.
Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal
Dagskipun Belganna var:
- Skorið minnst sex mörk!
Arni Stefánsson átti stórkostlegan leik i markinu í leiknum viö Belgíu á laugardaginn —eins og I leiknum viö Frakka á miö-
vikudagskvöldiö. Hér svifur liann af staö á eftir boltanum, sem nokkrum augnablikum siöar var I öruggum höndum hans.
Aörir islenzkir leikmenn á myndinni eru þeir Björn Lárusson og Matthias Hallgrlmsson.
Markiö sem nægöi einu bezta landsliöi Evrópu til aö sigra áhugamennina frá islandi I Liege á laugardagskvöldiö i upp-
siglingu. Raoul Lambert — nr. 8 — stekkur upp og skallar knöttinn aftur fyrir sig I markiö. Viö hliöina á honum er Jón
Pétursson, scm var aöeins of seinn aö ná i boltann.
Einni af mörgum sóknarlotum Belganna hrundiö. Björn Lárusson er á undan hinum fræga Lambert og sendir boltann á Arna i
markinu. Þeir Marteinn Geirsson og Jón Pétursson anda léttar, en einn Belganna fórnar höndum yfir mistökunum. Mynd-
irnar tók ljósmyndari La Meuse I Liege fyrir VIsi.
„Einn sá rólegasti
sem ég hef leikið"
- sagði Piot markvörður og fyrirliði Belganna
„Þetta er einn rólegasti leikur
sem ég hef leikiö I markinu hjá
belgiska landsliöinu” sagöi Piot,
markvörður og fyrirliöi Standard
Liege og landsliðsins eftir ieikinn
viö Island á laugardaginn.
,,Þó var ég aldrei öruggur um
aö íslenzka liöiö skoraði -Vkí, o"
var feginn þegar dómarinn flaut-
aöi leikinn af. Eg er aö visu ekki
ánægöur meö að hafa sigrað aö-
eins 1:0, en stigin eru okkar, og
þaö er fyrir öllu.
Ég lék á móti islandi I undan-
keppni HM 1972. Þá gat liöiö litiö
sem ckkert, en nú er það aö verða
mjög gott — framfarir þess eru
hreint ótrúlegar.
Kollegi minn I markinu — Arni
Stefánsson — fannst mér frábær i
þcssum leik, og einnig i leiknum I
Frakklandi, crm ée fór aö sjá.
Hann gæli öi uggiega kouusl í
mörg góö atvinnumannaliö hér,
ef hann hefði áhuga á þvi, og
sama má segja um fleiri leik-
menn liösins.”
—klp—
En íslendingarnir voru aftur komnir í bardagaham og því móttu belgísku snillingarnir þakka fyrir
að skora eitt mark — allt annað að sjá íslenzka liðið en í leiknum í Frakklandi
Örfáum klukkustund-
um áður en landsleikur-
inn Belgia — ísland í
Evrópukeppni landsliða
átti að hefjast á leikvelli
Standard Liege, i borg-
inni Liege i Belgiu, vissi
þjálfari islenzka liðsins,
Tony Knapp, ekki
hvernig hann ætti eða
gæti komið saman lið-
inu.
Jóhannes Eövaldsson mátti
ekki leika, Gisli Torfason var
meiddur á fæti og þeir Guðgeir
Leifsson og Jón Pétursson lágu
veikir uppi á herbergjum sinum
og læknar verið kallaðir til
þeirra.
Þá kom sem betur fer i ljós, að
þeir Gisli, Jón og Guðgeir voru
búnir að jafna sig, og hann gat
farið að stilla upp liðinu. Útkom-
an varð sú, að hann tók Jón
Pétursson úr bakvarðarstööunni,
sem hann hafði leikið I leiknum
við Frakkland, setti Björn Lárus-
son i hans stað og færði Glsla
Torfason i stöðu Jóhannesar.
Elmar Geirsson var settur i
framlinuna i staö Matthiasar
Hallgrimssonar, sem var færður
aftar. Guðgeir fékk einnig nýja
stöðu frá Frakkaleiknum, og
siðan tilkynnti Tony sinum mönn-
um — eftir að vera búinn að
leggja þeim allar lifsreglur — að
berjast til siðasta blóðdropa.
Hvattir til dáða af á annaö
hundrað íslendingum, sem
„vopnaðir” voru gjallhornum,
fánum og hraustum raddböndum
— og lengst af yfirgnæfðu um
12.000 Belglumenn — hófu fiski-
mennirnir úr norðri, eins og þeir
voru kallaðir, leikinn af miklum
krafti.
Tækifæri íslendinganna i leikn-
um voru ekki mörg, en þó áttu
þeir þau beztu, sem fengust I öll-
um leiknum. Þau komu á svo til
sömu mlnútunni, þegar Teitur
Þórðarson fékk boltann einn fyrir
opnu marki, en hitti hann ekki.
„Ég var örfáum sentimetrum of
framarlega og náði ekki að
spyrna i boltann”, sagöi hann
eftir leikinn.
Ef islenzka liðið hefði skorað
þarna, er ekki gott að segja,
hvernig fariö hefði. Belgarnir
voru orðnir mjög svo órólegir,
þrátt fyrir yfirburði sina á vellin-
um. Það var ekki fyrr en hinn
danski dómari leiksins — sem var
íslendingunum heldur óhagstæð-
ur lengst af — var farinn að líta á
klukkuna og flauta til hálfleiks,
að þeim loks tókst að skora.
Johan Devridt sendi boltann inn
I markteiginn, þar sem þeir Jón
Pétursson og Raoul Lambert
börðust um hann. Belginn hafði
betur — náði að skalla aftur fyrir
sig og yfir Árna Stéfánsson,
markvörð, sem var kominn of
langt út I þetta sinn.
1 síðari hálfleiknum byrjuðu
Belgarnir af miklum krafti — til-
búnir að fylgja eftir dagsskipun
þjálfara slna, sem hljóðaði upp á
að skora minnst sex mörk. En
nú gekk þeim enn verr að
komast i færi en I fyrri hálfleikn-
um. Vörnin var enn þéttari hjá ís-
lendingunum og Árni var eins og
köttur I markinu — það sjaldan að
góð skot komu á hann, en þau
voru flest af löngu færi.
Islenzka liðið var ólikt betra I
þessum leik en I leiknum við
Frakkland, og er þetta örugglega
einn af beztu leikjum liðsins i
sumar. Vörnin með „Fram-trló-
ið”, Jón, Martein og Árna, var
mjög góð. Bakverðirnir ólafur
Sigurvinsson og Björn Lárusson
sóttu sig, er á leið og Gisli Torfa-
son lék nú einn sinn bezta leik
með landsliðinu. Ásgeir Sigur-
vonsson — fyrirliði liðsins — var
einnig mjög góður og kunni sýni-
lega tökin á Belgunum. Einnig
átti Matthias Hallgrimsson yfir-
vegaðan og góðan leik, og Elmar
Geirsson skapaði alltaf hættu
með sinum mikla hraða.
Stefán Hallgrimsson KR var þreyttur, en að vonum ánægöur með Is-
landsmet sitt i tugþraut, eins og mynd Einars ber glögglega með sér.
FENGU 100 ÞUSUND A
MANN FYRIR SIGURINN
Asgeir Sigurvinsson fyrirliði
islenzka landsliðsins — yngsti
fyrirliði landsliðs I Evrópu um
þessar mundir aöeins 20 ára
gamall — var hress er við töluð-
uin við hann eftir leikinn.
„Þetta var mjög sterkt fyrir
okkur — þrátt fyrir tapið. Að
tapa fyrir þessum mönnum að-
eins með einu marki er stóraf-
rek. Það veit ég eftir að hafa
leikið með og á mót,i þeim
undanfarna mánuði.
Þeir vpru svekktir að vinna
okkur ekki með meiri mun en
telja sig samt heppna á
vissan hátt. Ef við hefðum skor-
að úr þessum tækifærum sem
við fengum I fyrri hálfleik, heföi
allt fariö I panik hjá þeim, og
ekki gott aö segja hvort þeir
hefðu náð sér aftur.
Fólkiö hér er undranai á
baráttuvilja Islenzka liðsins —
skilur ekki almennilega
hvernig það fæst til að berjast
svona fyrir ekki neitt, þegar
þeirra menn berjist varla fyrir
peningunum, sem þeir fá fyrir
leikinn — 25 þúsund frönkum á
mann, eöa 100 þúsund krónum
islenzkum, sem þeir fengu fyrir
að vinna okkur.” —klp—
Stefán setti glœsilegt
íslandsmet í tugþraut
„Eitt mark hefði alveg
farið með þá á taugum'1
Danskt dómaratrió dæmdi
landsleikinn i Lieges á laugardag-
inn — dómarinn Lund Sörensen
dæmdi þar sinn fyrsta a-lands-
leik, og var heldur slakur þar til
nokkuð var liðið á siöari liálf-
leikinn, að hann fór að jafna sig.
Annar linuvörðurinn — Edgar
H. Pedersen — dæmdi landsleik
tslands og Noregs i Bergen i sum-
ar. Þótti honum islenzka liðið
leika mun betur i þessum leik og
vanta þó sinn bezta mann, Jó-
hannes Eðvaldsson, sem Peder-
sen var auðheyrilega mjög hrif-
inn af.
„Þetta var ekki eins stórkalla-
lcgt hjá liðinu I þessum leik og i
Bergen. Það var mun betri fót-
bolti núna og ekki eins áberandi
og gróf brot.
Þetta landslið ykkar hefur vak-
ið mikla athygli í Danmörku og
margir fylgjast með þvi eins og
það væri þeirra eigin. Það á það
líka skilið að vera I sviðsljósinu,
þvi það hefur þann baráttuanda
og kraft, sem þvi miöur alltof fá
landslið geta státað af.
Með smáheppni i þessum leik
hefði liðið átt að geta skorað eitt
til tvö mörk, og þá hefði ég ekki
boðið i taugarnar á Belgunum —
þær voru nógu slæmar fyrir.”
—klp—
„Ég get ekki sagt annaö en að
ég sé ánægður með þennan
árangur”, sagði Stefán
Hallgrímsson KR eftir að hann
hafði sett nýtt tslandsmet á
Reykjavíkurmeistaramótinu I
tugþraut I gær — hlaut 7.740 stig.
Eldra met Stefáns var 7.589 stig
sett i fyrra og veitir þessi glæsi-
legi árangur honum rétt til keppni
á Olympíuleikunum á næsta ári.
Er hann vel fyrir ofan þaö mark
sem Alþjóða olympiunefndin setti
fyrir þátttöku annars og þriðja
manns, en það er 7.650 stig. Lág-
mark það sem islenzka olympiu-
nefndin hefur sett er nokkuð
lægra, eða 7.500 stig.
„Nú er bara að ná lágmarkinu I
400 m grindahlaupinu og vonast
ég til að það takist á Bislet I næstu
v«iku, sagði Stefán.
Það var einnig athyglisvert við
keppnina.að tveir menn aðrir,
Elias Sveinsson 1R og Vilmundur
Vilhjálmsson KR, virðast ekki
eiga langt i land með að ná Olym-
piulágmörkunum. Elias hlaut
7.320 stig, en var þó nokkuð frá
sinu bezta I nokkrum greinum.
Vilmundur Vilhjálmsson kom
svo sannarlega á óvart i þessari
keppni, því að hann hefur ekki æft
fyrir tugþraut fram til þessa — en
nú vaknar sú spurning hvort ekki
sé orðið timabært hjá honum að
snúa sér að þvi. Vilmundur lagði
sig ekki allan fram i einstaka
greinum, og má þar nefna 400 m
hlaupið, þar sem hann hugsaði
aðeins um aö Stefán næði sem
bezfum tíma. Með aðeins meiri
æfingu i kastgreinunum og
stangaarstökkinu ætti Vilmundur
að fara létt meö 7000 þúsund stig-
in.
Það gæti þvi allt eins farið svo
að ísland ætti þrjá keppendur i
tugþraut _á Olympiuleikunum i
Kanada að ári.
Valbjörn Þorláksson KR vakti
ekki siður athygli. Hann varö
fjórði — hlaut 6.403 stig og var það
mál manna að þar hefði „heims-
met” I öldungaflokki fokið. En
heimildum bar ekki saman um
hvað metið væri og var það sagt
frá 6.100 stig upp i 6.600 stig.
Árangur Stefáns I þrautinni var
þessi 100 m 11.0 sek, langstökk
6.82, kúluvarp 15.14 m, hástökk
l. 92m 400 m hlaup 48,4 sek, 110 m
grindahlaup 14.8 sek, kringlukast
42.24 m, stangarstökk 4.00 m
spjótkast 55.14 m og 1500 m hlaup
4:31.0 mín.
Árangur Eliasar: 100 m hlaup
11,1 sek, langstökk 6.52 m, kúiu-
varp 13.45 m, hástökk 1.95 m, 400
m hlaup 52.7 sek, 110 m grinda-
hlaup 15.9 sek, kringlukast 43.14
m, stangarstökk 4.22 m, spjótkast
59.72 m og 1500 m hlaup 4:41.1
min.
Arangur Vilmundur: 100 m
hlaup 10,7 sek, langstökk 6.66m,
jcúluvarp 12.79 m, hástökk 1.80 m,
400 m hlaup 48.7 sek, 110 m
grindahlaup 16.6 sek, kringlukast
38,66 stangarstökk 3,10, spjótkast
49.60 m og 1500 m hlaup 4:30.7
mín.
Guðmundur Guðmundsson FH
setti sveinamet i hástökki I
keppninni, stökk 1.83 m — en
eldra metið átti Ellas Sveinsson
1R 1.82 m. Elias missti annað
met, en það var sveinametið i
tugþraut. Asgeir Þ. Eirlksson ÍR
bætti eldra met Eliasar sem var
5.165 stig um 30 stig.
Tugþrautakeppnin fór fram
jafnhliða Bikarkeppni FRl og var
árangur tveggja beztu talin.
KR-ingar urðu Bikarmeistarar,
fengu 14.688 stig með árangri
Stefáns og Vilmundar. Sveit IR
varð I öðru sæti, hlaut 13.524 stig
og FH-ingar urðu þriðju með 7.392
stig — og náðu „þeir ekki saman-
lagt árangri Stefáns”.
Þá var keppt i fimmtarþraut
kvenna og þar sigraöi Erna Guð-
mundsdóttir KR, hlaut 3.332 stig,
en Sigrún Sveinsdóttir A varð
önnur hlaut 3.201 stig. —BB
Ekkert heyrt!
„Það kom einn maður og
spjallaöi örlitið við mig fyrir
leikinn áöan, en ég veit ekki frá
hvaða félagi hann var”, sagði
Marteinn Geirsson, sem vitað er
að nokkur félög I Ilollandi og
Vestur-Þýzkalandi hafa áhuga á
að fá til sin, cr við ræddum við
liann eftir leikinn við Belgiu i
Liege á laugardaginn.
„Það hefur ekkert komið út úr
þessu, sem talað var um heima,
að ég væri að fara til
Vestur-Þýzkalands —a.m.k. hef
ég enn ekkert heyrt, og get þvi
ekkert sagt um málið”.
Vitað var að „njósnarar” frá
félögum I Hollandi, og einnig frá
Belgíu voru á leiknum — og
sjálfsagt einhverjir aðrir. Hol-
lenzkur blaðamaður sem við
töluðurr. við eftir leikinn, sagði
okkur, að hann væri viss um að
sumir af islenzku leikmönnun-
um ættu eftir að fá tilboð frá
einhverjum félögum á næstunni
og nefndi i þvi sambandi þá
Martein, Jón Pétursson og Arna
Stefánsson. .rid