Vísir - 16.09.1975, Blaðsíða 16

Vísir - 16.09.1975, Blaðsíða 16
VISIR Þriðjudagur 16. september 1975 ERVON- GÓÐUR UM SAM- KOMULAO — segir Harford sendiherra Belgíu ,,Á þessu stigi málsins get ég ekkert um viðræðurnar sagt ann- að en að ég er vongóður um, að samkomulag náist á meðan við erum hér i Reykjavik,” sagði Eti- enne Harford, sendiherra Belgiu á islandi við Visi i morgun. Viðræður sendinefnda íslands og Belgiu halda áfram eftir hádegiðí dag, en i gær kom fram, að Belgar eru reiðubiínir að semja um veiðiheimildir fyrir skip sin á grundvelli yfirráðarétt- ar tslendinga yfir 200 milna fisk- veiðilögsögu. 1 samkomulagi þjóðanna frá 1972 var fyrirvari um, að sam- komulagið hefði ekki áhrif á grundvallarafstöðu þjóðanna til landhelgismála. Verði slikur fyrirvari ekki i þvi samkomulagi, sem nii kann að verða gert, er það visbending um þá öru þróun, sem orðið hefur i hafréttarmálum sl. þrjú ár. Nú þykir sýnt, að á hafréttar- ráðstefnu SÞ verði fallizt á 200 milna auðlindalögsögu strand- rikja. Belgar, sem eru aðilar að EBE, verða fyrsta þjóðin til að viðurkenna útfærsluna I 200 mil- ur, ef samkomulag næst á þessum grundvelli nú. Veiða á selja í B Beli íslandsmiðum, elgíu: aíst fjói maqn, ísle nskt félaq Við hugsum okkur að félagið veröi al-islenskt og hluthafar eru islenskir ntgerðarmenn og félög”, sagði einn af stofnendum hlutafélagsins Faxa hf., sem greint var frá i Visi i gær. — Félagiö er stofnað á þeim grundvelli, að Belgiumenn leggja fram fjármagn til kaupa á nokkr- um islenskum bátum, sem eigaað veiða d tslandsmiðum og selja aflann reglulega i Belgíu. „Það er enn ósamið um greiðslur — og áhafnir verða islenskar, en ekki „blandaðar”, þ.e. Belgiumenn og tslendingar,” sagði hluthafinn. „Þetta er belgisk-islensk sam- vinna um útgerð, en Belgfumenn eiga ekkert i félaginu,” sagði hann ennfremur. — Áhrifamaður á belgiska fiskmarkaðinum er nú staddur hér á landi og er þessa dagana verið að ræða málin. Ljóst er, að þrjú skip verða keypt frá Reykjavik og tvö frá Suður- nesjum, en talað hefur verið um, að nýja félagið kaupi jafnvel tiu skip. — Þessi félagsstofnun hefur verið til umræðu frá þvi snemma i sumar. -AG- Hef ekki floqiá betri flutfvél — segir enskur flugmaður á Beechcraft King Air flugvél — samskonar vél og lagt var til að keypt yrði til landhelgisgœzlu Harry Gee flugmaður við stjórntækin á King Air vélinni.sem hann lenti i Reykjavik I gær. „Ég get ekki hugsað mér þægilegri véi,” sagði hann. Ljósm.: Jim. ,,Ef ég ætti að velja á milli Fokker F-27 og Beechcraft King Air til landhelgisgæzlustarfa, mundi ég hiklaust velja King Air vélina”. Þetta var svar Harry Gee, ensks flugmanns, við spurningu Visis um hvora tegundina hann mundi velja tii gæzlustarfa hér við Jand. Gee lenti á Reykjavikurflug- velli i gær á Beechcraft King Air flugvél. Hann kom hér við til að taka eldsneyti og hvila sig. Hann var á leið frá Bretlandi til Miami á Flórida. Nefnd, sem var sérstaklega skipuð til að gera tillögur um flugvélakaup Landhelgisgæzl- unnar, mælti með King Air flug- vélinni. ,,Hef enga betri fundið” „Þetta erbezta flugvélin, sem til er i minni stærðarflokki flug- véla, að minu mati”, sagði Gee, þegar Visir ræddi við hann úti á flugvelli i gær. „Hún er afskaplega fjölhæf,, það er mjög gott að stjórna henni, og siglingatæki eru öll fyrsta flokks. Ég hef flogið 45 flugvéla- tegundum sfðan árið 1943. Ég hef enga flugvél fundið enn, sem ég kann betur við en King Air”, sagði Gee einnig. Meðal raka, sem Landhelgis- gæzlan hefur fært fyrir þvi að kaupa Fokker, er að i langflugi verði áhöfnin að geta teygt úr sérogstaðiðupprétt. Inni i King Air vélinni er alls ekki hægt að standa uppréttur. En það er hægt að liggja endilangur á gólfinu og teygja úr sér. Visir spurði Gee, hvernig honum fyndist að vinna langtimum saman á vélinni. „King Air vélin ætti að nægja” „Ég hef flogið allt að 6 tima i einu. Vissulega verður maður þreyttur eftir svo langa setu. Þetta er þó ekkert, sem heil- brigður maður þolir ekki. Ef flugmennirnir á vélinni eru tveir, er það hægðarleikur að fljúga svo lengi sem vélin hefur flugþol. Eins og mér virðast landhelgisgæzlustörfin hugsuð, ætti King Air flugvélin að nægja”, svaraði Gee. Visir spurði Gee, hvort hann hefði flogið Fokker F-27. „Nei, reyndar ekki. En ég hef flogið vél, sem hefur mjög svip- aða flughæfileika, Handley Page Herald”. „Fyrir utan hina góðu flug- hæfileika King Air vélarinnar, sem valda þvi, að ég mæli með henni”, sagði Gee að lokum, „þá má heldur ekki gleyma þvi, að þessi vél er mjög hagkvæm i rekstri”. — ÓH Beechcraft King Air fiugvélin. Rennilegur farkostur, sem tekur venjulega átta manns. w Utifundur 24. október, þegar konur taka frí t gærkvöidi var haldinn fund- ur i Norræna húsinu þar sem samankomnir voru 40 fulltrúar ýmissa samtaka, sem konur eiga aðild að. Þar rikti algjör eining um til- löguna, sem var samþykkt á Kvennaársráðstefnunni sem haldin var i sumar um aö konur skyldu taka sér fri frá störfum á degi Sameinuðu Þjóöanna. Einnig var samþykkt að halda útifund á þessum degi. Kosinn var 10 manna framkvæmda- nefnd. Aðalfulltrúar i nefndina voru kosnir þær Aðalheiöur Bjamfreðsdóttir, Asdis Guð- mundsdóttir, Erna Ragnars- dóttir, Gerður Steinþórsdóttir og Elisabet Gunnarsdóttir. Varafulltrúar voru kosnir þær Stella Stefánsdóttir, Björk Thomsen, Asthildur ólafsdóttir, Valborg Bentsdóttir og Margrét Einarsdóttir var tilnefnd, en hún er erlendis um þessar mundir. — HE. LOKAST BANKAR 24. OKT.? Gerð var könnun I rfkis- bönkunum á þvi hve margar konur vildu taka þátt I friinu, sem konur hyggjast taka sér á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október næstkomandi. Könnun- in var gerð tvo daga i röð föstu- dag og laugardag og náðist I 346 konur. Þær sem voru samþykkar til- lögunni voru 320 samtals, en 26 konur voru i vafa eða sögðu nei. Einnig var haft samband við konur úti á landi sem vinna i rikisbönkum og þær voru mjög jákvæðar I þessum efnum, kváðust mundu taka þátt i fri- inu, ef almenn þátttaka yrði, sagði Dóra Ottesen banka- starfsmaður, sem er ein þeirra sem stóð að þessari könnun. BRIDGEMENN SLÓGU SKÁKMÖNNUM VIÐ „Það þarf ekki frekar vitnanna við,” telja bridge- mcnn, sem eftir góðan sigur yfir skákmönnum nú um helgina telja sig hafa kveðið niður i eitt skipti fyrir öll, að bridgemenn standi skákmönnum eitthvað að baki i andans iþróttum. Hólmgöngu Bridgefélags Reykjavikur og Taflfélags Reykjavikur, lauk með 298,1 stigum fyrir BR á móti 277,9 fyrir TR. Báðir komu hvorir öðrum nokkuð á óvart. — „Við urðum nokkuð undrandi á þvi, hverja skráveifu þeir gerðu okkar I Bridgemenn tefla skák. Karl Sigurhjartarson, formaður BR, og Hjalti Eiiasson, forseti Bridgesamb. lsl„ etja kappi við skákmeistarana. skákinni. enda sýndist okkur á liðskipaninni, að þeir heföu tælt inn i sinar raðir nokkra góða liðsmenn frá okkur,” sagði Ingi R. Jóhannsson, skákmeistari, við Visi eftir keppnina. „En við velgdum þeim meira undir ugg- um I -bridginu, heldur en við bjuggumst við sjálfir. Nú hyggj- um við á hefndir að ári.” „Við erum mjög stoh - af sigrum okkar i skákinni, par sem við fengum 30%, en mestu munaði þó um bridge- vinningana,” sagði Gylfi Baldursson, talsmaður BR. -GP. Mikil aðsókn í ferðir til Kanaríeyja Um 1400manns hafa þegar látið bóka far með Flugleiðum til Kanarieyja i vetur. Farnar verða 18 ferðir á timabilinu frá 30. október til 5. april. Búið er að fullbóka i fyrstu ferðina og svo i sex ferðir um jól og páska. Mikið er einnig búið að panta i aðrar ferðir. Allar ferðaskrifstofurnar, nema Sunna, selja þessar feröir Flugleiða, og svo umboðsmenn félagsins viðs vegar um landið. Farþegar geta valið um tveggja og þriggja vikna ferðir. -ÓT. FLEIRI í ÖLDUNGA- DEILDINNI Á AKUREYRI EN í REYKJAVÍK Það er hlutfallslega meiri þátttaka i öldungardeild Menntaskólans á Akureyri en í Hamrahliðarskólanum ef miðað er við ibúafjölda i Reykjavik, sagöi Tryggvi Gislason skóla m eis ta r i Menntaskólans á Akureyri. En 68 manns munu stunda nám i öldungadeildinni þar i vetur. í vetur verður kennd is- lenzka, enska, stærðfræði, saga og náttúrufræði og geta nemendur valið sér fög með tilliti til hvaða deild þeir hafa valið. Er gert ráð fyrir að þeir ljúki stúdentsprófi á 3-5 árum, en alls þurfa þeir að taka 132 námseiningar. Námstimanum er skiptniður I annir og ekki er hægt að taka færri en 14 náms- einingar á önn til þess að fá námið viðurkennt. Langflestir þeirra sem eru innritaðir i öldungádeildina eru frá Akureyri og ná- grannasveitum. Kennarar i öldungadeiid MA verða hinir sömu og kenna við hinar deildir skólans.-HE.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.