Vísir - 18.09.1975, Qupperneq 1
Fallast ekki
á síldarverðið
— sem verðlagsnefnd
býður
— hóta að sigla burt
fyrir helgi
— sjá baksíðu
VERÐBOLGAN AÐ VERKI:
Afföll aukast
af skuldabréfum
— sjá frétt bls. 8
Bardagar loga
í Beirut
— sjá bls. 5
MIKLAR BREYTINGAR A
UTANRÍKISÞJÓNUSTUNNI
— sjá frétt bls. 4
Vín-straumur
grefur undan
stoðum EBE
— sjá bls. 6
Bœndurnir
Arni
Gunnarsson
skrifar
— sjá bls. 13
Visir spyr átta konur:
Ætlar þú að taka
þér frí 24. okt.?
— sjá bls. 9
Sigfús Daðason
hrakinn frá
MÁLI OG MENNINGU
— Eftir hörð átök á aðalfundi félagsins
Sigfús Daöason
útgáfustjóri Máls
og mcnningar
mun nú hafa
ákveðið að Iáta af
þvi starfi eftir að
hann var felldur í
stjórnarkjöri á
aðalfundi félags-
ráðs Máis og
menningar sl.
þriðjudag. Mikil
átök hafa verið
innan Máls og
menningar frá
þvf á aðalfundi
félagsins í fyrra, en þá var Sigfús
Daðason felldur við formannskjör
eftir að hafa gegnt þvi starfi i
fjögur ár.
A aðalfundi félagsráðs Máls og
menningar sl. þriðjudag stóð for-
mannskjörið á milli SigfUsar
Daðasonar og Þorleifs Einars-
sonar, sem felldi Sigfús i fyrra.
Þorleifur vann kosninguna og
Sigfús var ekki endurkjörinn i
stjómina. í hans stað var kosinn
Vésteinn Lúðviksson. Aðrir i
stjórn eru Jakob Benediktsson,
Halldór Laxness og AnnaEinars-
dóttir.
Flestatkvæði í varastjórn hlaut
Svava Jakobsdóttir. 1 öðru til
þriðja sæti urðu Árni Bergmann
og Loftur Guttormsson. í fjórða
sæti var Magnús Kjartansson og i
fimmta sæti Guðrún Helgadóttir.
Sigfús Daðason var ekki endur-
kjörinn i stjórn félagsins vegna
tilmæla Þorleifs Einarssonar um
að starfsmenn i ábyrgðarstörfum
hjá félaginu ættu ekki jafnframt
sæti i stjórn þess. Eftir að SigfUs
var felldur við formannskjör i
fyrra var hann jafnframt settur
af sem framkvæmdastjóri, en þvi
starfi hafði hann gegnt i 13 ár. 1
hans stað var ráðinn Þröstur
Ölafsson, sem sennilega mun nú
einnig taka við útgáfustjórastarfi
SigfUsar Daðasonar.
— ÞP.
Um 200 ó þrem barna-
heimilum í Eyjum
,,A barnó I Eyjum”. Hér hefur
Guðmundur Sigfússon, Ijós-
myndari Visis I Eyjum tekið
gullfallega mynd, eins og hann á
raunar vanda til. — Þessi mynd
er frá barnaheimilinu Rauða-
gerði, en það var tekið i notkun i
maí i fyrra. — Hús þetta gaf
Rauði krossinn en það er keypt i
Sviþjóð fyrir söfnunarfé frá
Sviss og Sviþjóð. — í Rauða-
gerði eru nú 67 börn frá hálf átta
á morgnana til sex á kvöldin, og
virðast þau una sér vel.
Tvö önnur barnaheimili eru i
Vestmannaeyjum , barna-
heimilið Sóli, þar sem eru 40
börn, og leikskóli þar sem eru 40
börn fyrir hádegi ogsami fjöldi
eftir hádegi. Alls eru því um 200
börn á barnaheimilum i Vest-
mannaeyjum. Ester Arnadöttir,
forstöðukona Rauðagerðis-
heimilisins, sagði i morgun, að
fram að þessu hefði verið hægt
að taka við öllum börnum, en nú
væru um 20 á biðlista i Rauða-
gcrði og leikskólanum. Einnig
gat hún þess, að erfitt væri að fá
fóstrur.
Átta bílar í
árekstrum
á Hafnar-
fjarðarvegi
í morgun
— sjá baksíðu
Gerðardómur í Blaðaprentsdeilunni
Gerðardómur hefur nú verið
skipaður til þess að skera úr
ágreiningi, um, hvort Dagblaðið
eða Visireigi að njóta viðskipta-
kjara stofnaðila Blaðaprents hf.
Dóminn skipa: Stefán Már
Stefánsson settur prófessor,
sem verður dómsformaður,
Arnljótur Björnsson prófessor
og Guðmundur Jónsson borgar-
dómari.
1 samkomulagi Visis, Blaða-
prents og Dagblaðsins, sem gert
var i byrjun september, var
kveðið á um skipan þessa
gerðardóms. 1 skipunarbréfi
dómsins er farið fram á, að
hann ljúki störfum á fjórum vik-
um.
— ÞP.