Vísir - 18.09.1975, Blaðsíða 5

Vísir - 18.09.1975, Blaðsíða 5
Vlsir. Fimmtudagur 18. september 1975. 5 l MORGUN UTLÖNPI MORGllN UTLÖND í MORGUN_________________________Umsjón Guðmunduri Pétursson Beirut lék á reiðiskjálfi í alla nótt vegna spreng- inga og vélbyssuskothríð- ar, sem glumdi þar í verstu átakahryðjunni, er riðið hefur yfir höfuð- borgina. Yfirvöld sáu sig knú- in til þess að ráðleggja borgurum til að halda sér innandyra í dag. Bardagarnir, sem undanfarið hafa staðið milli Múhammeðs- trúar-vinstrimanna og kristinna hægrimanna, voru með allra versta móti i gærkvöldi og i nótt. Leyniskyttur voru á hverju strái og virtust skjóta af handahófi á hvaðeina kvikt á götunum. Vegna hættunnar af þvi að vera á ferli, gátu menn ekki gert sér enn i morgun grein fyrir þvi, hve margir hefðu týnt lifi i þess- ari orrrahrið. — En i gærkvöldi var tala fallinna manna i átök- um undanfarinna vikna komin upp i 150. Enginn er svo bjartsýnn að ætla, að valkösturinn hafi ekki stækkað i nótt. Eins og fyrri daginn var beitt sprengivörpum og jafnvel eld- flaugum um leið og venjulegum vandvopnum. Kviknuðu þvi sums staðar eldar undan sprengjunum, en slökk viliðið átti ekki greiða götu að eldunum fyrir leyniskyttum. Þannig tók það slökkviliðið þrjár klukkustundir að komast að húsgagnaverzlun einni i mið- borginni, en kviknað hafði i henni undan sprengikúlu. — Raunar hafði kviknað i þessu sama húsi í skotbardögunum, sem urðu i júni og júli, og við- gerðá þeim spjöllum rétt nýlok- Rétt undir kl. sjö i morgun, hálfri stundu eftir að slökkvilið- iðhafði yfirgefið staðinn, renndi jeppi upp að byggingunni með vopnaða menn innanborðs. Ráku þeir slökkviliðsmanninn burt, sem skilinn hafði verið eft- ir á vakt. Siðan var kveikt i að nýju. Tveir vegfarendur á götu I Beirút I gærkvöldi. Báöir óbreyttir borgarar. Gamli maöurinn meö arablska höfuöfatiö gengur sinna dagiegu er- inda. Hinn meö hrlöskotariffilinn er kannski llka aö ganga sinna daglegu erinda, þvl aö vopnaburöur, mannvlg og hryöjuverk eru orðin fastur þáttur I dagfarinu I Llbanon. Kommúnistar fá einn ráðherra Kvissazt hefur, að kommúnistar hafi slakað til á kröfu sinni eftir leyniviðræður við jafnaðarmenn, sem munu hafa fleiri ráðherra i stjórninni en nokkur hinna flokkanna. Það er talið liklegt, að stjórnin samanstandi af fjórum ráðherrum úr flokki jafnaðar- manna, tveimur alþýðudemókrötum, einum úr kommúnistaflokknum og nokkrum óháðum borgurum og herforingjum. Nú þykir mega vænta, að de Azevedo birti ráðherralista sinn i dag eða á morgun. Menn telja sig sjá nýrri tilskipan kommúnista i ýmsar trúnaðarstöður, að kommúnistar hafi fengið sina fulltrúa i áhrifa embætti i uppbætur fyrir aðfá aðeins einn ráðherra i stjórnina. Halda að lík- indum áhrifum á fjölmiðla 1 Lissabon þóttust menn vissir um það i morgun, að sjóliðsforinginn, Ramiro Correia, kommúnisti, yrði settur i stól upplýsingamála- ráðherra. Dregur enginn i efa, að hann muni halda verndar- væng yfir kommúnistasinnuð- um ritstjórum og dagskrár- stjórum fjölmiðlanna, sem annars hafa átt yfir höfði sér að undanförnu i dvinandi gengi kommúnista að verða vikið úr störfum. Kommúnistar, sem hafa verið á undanhaldi eftir að Vasco Goncalves var látinn vikja úr embætti forsætis- ráðherra, efndu til útifundar. þar sem um 13.000 manns komu saman á aðalleikvanginum i Lissabon. Kommúnistar I Portúgal hafa reynt aö stööva undanhald sitt meö þvl aö efna til útifunda til stuönings kröfum sinum. Alvaro Cunhal, leiötogi kommúnista, sést hér á útifundi stappa stálinu I fylgismenn sina. Stjórnin f fœðingu Jose Pinheiro de Azevedo, flota- foringi þykir liklegur til aö birta ráöherralista sinn i dag eöa á morgun. Jose Pinheiro de Azevedo, aðmíráll, er nú sagður nær því en nokkru sinni áður að mynda nýja ríkisstjórn, eftir að kommúnistar hafa látið af kröfu sinni um sama fjölda ráðherra í sfjórninni og flokkur alþýðudemókrata. Sú krafa kommúnista hefur verið stærsti þröskuldurinn i samningaviðræðum aðmiráls- ins við fulltrúa flokkanna, en þær hafa staðið i nær þrjár vik- ur. Alþýðudemókratar höfðu allan timann á meðan staðiö fast á þvi, að hin nýja rikis- stjórn skyldi spegla niðurstöður kosninganna i april i vor, þar til þeir fengu tvöfalt fleiri atkvæði en kommúnistar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.