Vísir - 18.09.1975, Blaðsíða 2

Vísir - 18.09.1975, Blaðsíða 2
2 Visir. Fimmtudagur 18. september 1975. risinsm: Kviðir þú skammdeg- inu? Sveinbjörn Halldórsson, nemi: ,,Nei, það get ég ekki sagt. Ég kann ágætlega við mig i skamm- deginu. Þá er lifið rólegra og ég get slappað af, sem ekki er hægt á sumrin. ólafur Einarsson, skrifstofu- maður: ,,Nei. Yfirleitt kviði ég skamm- deginu ekki. Ég kann vel við það. Þá eru kvöldin róleg og gott að vera heima við útvarp eða annað. Það mætti segja sem svo, að skammdegið sé menningarlegra en sumarið og þvi betra að vissu leyti.” A x e 1 Sigurðsson, matreiðslu- maður: ,,Nei, ég kviði þvi ekki. Ég hef alltaf nóg að gera i skammdeginu við að raða upp myntsafninu minu. Svo : pila ég við konuna til afþreyingai.” Flin Sigur fardóttir, húsmóðir: ..Það þýðir ekkert að kviða þvi. Við verðum að taka skamm- deginu eins og öðru þvi sem alltaf kemur. Það skiptast á skin og skúrir og kviðinn stoppar ekk- ert.” Ilelgi Ounnarsson, iðnskóla- kennari: ,,JU, jú, éger farin að kviða þvi. Ég kviði mest öllum snjónum og myrkrinu. Kuldanum kviði ég aftur á móti alls ekki.” Jóna Dóra Karlsdóttir, prófarka- lesa ri: ,,Nei, mér finnst skammdegið skemmtilegasti hluti ársins. Það ersvospennandi að fara að klæða sig aftur i kuldann og svo er myrkrið alltaf V" vkemmtilegt. Nei, ég kviði viyj -kammdeginu.” Mœlirinn ■ stútfullur -Við skulum hœtta að kaupa dilkakjöt! HUsmóðir hringdi: ,,Það munar um minna en hækkunina núna á dilkakjötinu. Sennilega ætla þeir að bæta sér upp þessa verðlækkun á nauta- kjötinu á þeirri lika stórkostlegu útsölu. Er ekki mælirinn alveg stútfull- ur? Hvað ætlum við húsmæður að gera? Við þessar „bara húsmæð- ur” getum nefniíega haft heil- mikil áhrif á hvað er keypt. Hvernig væri að venda okkar kvæði í kross og gefa mannskapn- um fisk að borða. Hann er að minnsta kosti eitthvað ódýrari ennþá. Svo f æst ágætis hrefnukjöt i búðunum á 190 krónur kflóið. Það stendur til að aldrei verði annað eins framboð á dilkakjöti og i haust þvi að meira verður slátrað en fyrr. Við skulum bara láta það geymast i frystigeymsl- um fram að næstu útsölu á kjöti.” Framfarir ó veitingahúsum Veitingahúsgestur skrifar: „Undanfarna áratugi hafa veitingahúsgestir hérlendis mátt gera sér að góðu þann felu- leik sem stundaður hefur verið með verðlag á veitingum á mat- seðli húsanna. Aðeins hefur ver- ið gefið upp verð án þjónustu- gjalds og alls kyns annarra gjalda, sem klint hefur verið á ofan á reikninginn þegar við- komandi hefur viljað gera upp. Það er mikið framfaraspor og hagsmunamál neytenda að nú hefur þessu verið breytt viðast hvar og geta menn nú haft á hreinu, hvað þeir þurfa að borga fyrir veitingar, áður en pantað er. Enginn vænir þjóna um að þeir hafi of litið fyrir snúð sinn og ekki var þeim um að kenna að kerfið var eins og það var áður. Það er lika eflaust þeim i hag og minnkar rex gestanna yfir reikningum, að endanlegt verð er gefið upp fyrirfram. Hér er á ferðinni örlitið spor i rétta átt i neytendamálum og er von- andi að framhald verði á á öðrum sviðum.” KB Stórkostleg Coppelía Fertugur faðir skrifar: ,,Ég brámérá ballettinn i gær ásamt konu minni og tveim tán- ingum. Þetta var skemmtilegt kvöld. Reyndar hef ég sjálfur aldrei verið hrifinn af ballett, en ég held ég hafi ekki skemmt mér betur i Þjóðleikhúsinu lengi. Helgi Tómasson á þakkir skilið fyrir sitt framlag. Hann var alveg frábær. En ég var hreint heillaður af Auði Bjarnadóttur i hlutverki Svanhildar. Hún var að okkar mati alveg fullkomin, afskap- lega elskuleg og falleg. I einu orði sagt — stórglæsileg. Ég er illa svikin ef þessi 17 ára stúlka á ekki framtið fyrir sér sem ballerina. Alla veg óska ég henni alls hins bezta i framtið- inni og til lukku með stórsigur i Coppeliu.” Auður Bjarnadóttir heillar I hlutverki Svanhildar. Brauðið undirstaðan, en stólið hart undir tönn IIS skrifar: „Hjálagt er að finna umbúðir og innihald heilhveitibrauðs frá Alþýðubrauðgerðinni. Takið eftir áletruninni á umbúðunum „Brauðið er undirstaðan”. ,1 heilhveitibrauðinu frá Alþýðubrauðgerðinni var all- stór stálspenna, sem liklega er af tösku eða skóm, Hvernig þessi aðskoðahlutur hefur kom- ist i brauðið er ógjörningur að segja. Vel getur verið að hún hafi verið i heilhveitimjölspoka, en þá er hveitið ekki sigtað áður en bakað er úr þvi. Spennan get- ur einnig hafa komizt i deigið á einhvem annan hátt. — Slikir aðskotahlutir finna'st ali-oft i brauði og jafnvel kök- um. Þvi hljóta menn að spyrja: Hvernig er háttað hreinlæti hjá kemur fyrir? Hvað segir heil- fyrirtækjum, þar sem slikt brigðiseftirlitið um þetta mál? mmmmmmmmmmmmammmammmmmmmmmmmmmmmmmmmtammmmmmmmmmmmmmm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.