Vísir - 18.09.1975, Page 3
Vísir. Fimmtudagur 18. september 1975.
3
Það er nóg að gera hjá Hreini Aðalsteinssyni á Heisluverndarstöð-
inni þar sem hann gerir við tennur skólabarna. Hann sagði okkur að
ekkert barn á islandi væri Iaust við tannskemmdir. Mcðal annars
væri of miklu kolvetnisáti um að kenna. Hreinn notar deyfingar
þegar nauðsynlegt er að bora.
Stefán, 9 ára snáði, er ekkert hræddur við tannlækna. Það er bara
gaman að sjá tækin hans. Ljósm.:Jim.
Ekki vita allir
að tannviðgerðir skóla
barna eru ókeypis
,,Það eru flestir, en þó ekki
allir, sem gera sér grein fyrir,
að tannviðgerðir skólabarna eru
ókeypis allt árið,” sagði Óli
Bieltvedt yfirskólatannlæknir i
viðtali við Visi.
Úr þeim skólum, sem ekki er
skólatannlæknir, en til dæmis er
hann ekki i Fossvogsskóla eða
Fellaskóla hér i Reykjavik, geta
börn farið til hvaða tannlæknis
sem er. Þau verða að taka nótu,
sem þau fá siðan endurgreidda
hjá Sjúkrasamlaginu.
Börn frá 6—15 ára fá ókeypis
tannviðgerð. Börn 3—5ára og 16
ára unglingar borga helminginn
sjálf.
Að sögn Óla eru tannréttingar
ekki ókeypis, nema ef almennur
tannlæknirsér um réttingarnar.
Vanfærar konur fá einnig
tannviðgerðir ókeypis að hálfu.
Elli- og lifeyrisþegar einnig, en
þeir þurfa að koma með nótuna
fyrst til Tryggingastofnunar-
innarog tala við lifeyrisdeildina
áður en þeir fá reikninginn
endurgreiddan hjá Sjukrasam-
laginu.
—EVI—
Fjárlög
hœkka
eitthvað
— en ekki um
þriðjung eða
þaðan af meir
lumtw'
|pt*
Það er Ijóst að fjárlög fyrir árið
1976 koma tii með að hækka nokk-
uð, miðað við fjárlög þessa árs,
bæði vegna nýrra kjarasamninga
og almennra verðhækkana.
Tilgátur um að hækkun þessi
nemi allt að 35% eru þó úr lausu
lofti gripnar og munar nokkuð
miklu að þær uppiýsingar séu
réttar,” sagði Gisii Biöndal, hjá
Fjárlaga- og Hagsýslustofnun
rikisins, i viðtali við VIsi.
Sagði Gisli að fjárlaganefnd
heföi reynt að vera nokkuð
ihaldssöm á fjármuni rikisins i
tillagnagerð sinni og þá sérstak-
lega með tiliiti til þess, að ekki
þurfi að koma til niðurskurðar á
fjárlögum næsta árs.
Taldi Gisli ekkert þvi til fyrir-
stööu, aö tillögur fjárlaganefndar
geti legið fyrir tilbúnar I upphafi
þings í haust.
HV.
Breytingar ó smó-
auglýsingum Vísis
Blaðlð bregst við samkeppninni
Skúliásamt aðstoðarstúikum sinum á auglýsingadeiid Vfsis.
Ljósm.: JIM.
Smáauglýsingar VIsis hafa
um árabil verið verulegur þátt-
ur i starfi blaðsins. Nú hefur
verið ákveðið, að breyta fyrir-
komulagi smáauglýsinganna,
og á sú breyting að verða aug-
lýsendum til hægðarauka. —
Um þetta segir Skúli Jóhannes-
son, auglýsingastjóri Visis:
„Vísir hefur mjög mikla út-
breiðslu á Stór-Reykjavlkur-
svæðinu og á Suðurnesjum, og
stór hluti íbúanna á þessu svæði
les blaðiö. Þá hefur sala blaðs-
ins á landsbyggðinni aukizt, og
hafa auglýsendur greinilega
orðið varir við það.
Smáauglýsingar eru einn
stærsti milliliðurinn á húsa-
leigumarkaðnum og þar á ég
við auglýsingarnar „Til leigu”
og „Húsnæði óskast”. Ótrúlega
mikil viðskipti eiga sér stað i
tengslum við bilaauglýsingar,
einkum þó á laugardögum.
Einkamála-þátturinn er til
gagns og gamans fyrir marga.”
Og Skúli heldur áfram: „Nú
hefur það gerzt, að nær öll dag-
blöðin hafa tekið upp þennan
hátt á auglýsingum. Það eitt
sannar kannski bezt ágæti
þeirra. Harðastir i þessari bar-
áttu eru þeir hjá Dagblaðinu.
Þeirhafa nú I byrjun boðið þess-
ar auglýsingar á vægu verði, og
birt sömu auglýsingarnar aftur
og aftur til að hafa auglýsinga-
dálkinn fullan. Verðið hjá þeim
er lágt hve lengi sem það nú
verður. Þarna reyna þeir að ná
auglýsingamarkaði Visis sem
þá verður að bregðast við sam-
keppninni.”
„Það hefur þvi verið ákveðið,
að bjóða lesendum þá þjónustu,
að þeir geti hringt inn auglýs-
ingarnar I stað þess að koma og
staðgreiða þær. Þeir geta hringt
i tvo sima, 86611 og 11660, alla
daga frá klukkan niu að morgni
til átta að kvöldi, og á laugar-
dögum til hádegis. Beri auglýs-
ing ekki árangur á fyrsta degi
verðurhún birt á ný auglýsanda
að kostnaðarlausu. En áhrifa-
máttur Visis-auglýsinganna er
það mikill, að ég á ekki von á
þvi, að endurtaka þurfi auglýs-
ingarnar.”
Báðar komnar í
íslenskan búnina
Báðar DC 8 63 flugvél-
arnar, sem Flugleiðir hf.
hafa keypt af Seaboard
Western Airlines á þessu
ári hafa nú verið skráðar
hérlendisog málaðar í lit-
um félagsins.
Hafa vélarnar hlotið ein-
kennisstafina TF FLA og TF
FLB.
Önnur vélanna er tiltölulega
nýkomin úr klössun, en hin mun
væntanlega fara i gegnum skoð-
un i janúar. Verða á sama tima
framkvæmdar ýmsar viðgerðir
og endurnýjanir, meðal annars
skipt um innréttingu i vélinni.
Reiknað er með að vélin verði
stöðvuð i um tvær vikur til þess-
ara framkvæmda.
Auglýsingamóttaka
í símum 86611
og 11660
^ opið til 8 á kvðli