Vísir - 18.09.1975, Qupperneq 12
12
Vísir. Fimmtudagur 18. september 1975.
TRESMIÐJAN
VIÐIR
auglýsir
h.f.
Höfum fengið nýjar gerðir af mjög fallegum veggsamstœðum,
úr Mahogny, Tekk og Palesander.
Einnig mikið úrval af borðstofuhúsgögnum úr Mahogny og
Tekki.
★
Mjög hagstœðir greiðsluskilmúlar.
Trésmiðjan Víðir h.f.
Laugavegi 166, sími 22229
Norðmenn
flytja
saltfisk út
í pappa-
kössum
Bjóða blíðu sína gegn
velvild í garð Mansons
Lynette Fromme,
stúlkan sem sýndi Ford
banatilræðið á dögun-
um, er höfð i einangrun-
arklefa, meðan beðið er
þess að réttarhöld hefj-
ist i máli hennar.
Dómarinn, sem úrskurðaöi
hana i gæzluvarðhald og ákvað að
leggja þyrfti fram milljón dollara
tryggingu, ef hún ætti að fá að
ganga laus, hefur nú lækkað
tryggingarupphæðina niður i 375
þúsund dollara.
En það kemur út á eitt fyrir
Fromme, þvi að þessari 26 ára
gömlu hippastúlku hefur ekki
safnast slikt fé um dagana, að
hún geti talið slikar summur
fram á borðið. Enginn hefur
heldur boðizt til þess að leggja
það fram fyrir hennar.
Lynette Fromme og vinkona
hennar Sandra Good, sem bjó
með henni i Sacramento i
Kaliforniu, voru báðar úr
stúlknahópi þeim sem fylgdi
morðingjanum, Charles Manson,
út i fikniefnaneyzlu. Grunur leik-
ur á þvi, að þær hafi jafnvel átt
einhvern þátt i morðum þeim,
sem Mansonfjölskyldan framdi
en ekkert hefur sannazt á þær i
þvi efni.
Þessi mynd er úr „f jölskyldualbúmi” Manson-fjölskyldunnar, og er af þeim stallsystrum, Sandra Good
(t.v.) og Lynette Fromme. — Fjölskyldan hefur séð til þess að Charles Manson hefur ekki oröið fyrir
áreitni félaga sinna i fangelsinu, heldur nýtur hann ýmissa þæginda meöal fanganna. Stendur föngum
stuggur af „fjölskyldunni” og auk þess hafa hippastúlkur Manson sent meöföngum hans bréf meö nekt-
armyndum af þeim sjálfum og boöiö þeim bllöu sina sem bföi þeirra, þegar þeir losnaúr fangelsinu. Aö-
eins ef þeir eru góöir viö Charles þeirra.
Norömenn, sem eru okkar
aöalkeppinautar á saltfisk-
mörkuöum, eru nú farnir aö
flytja saltfiskinn til ftaliu-
markaðar i pappakössum.
Þetta er nýjung. Hingað til
hefur saltfiskurinn verið flutt-
ur út i pökkum.
Fyrsta sendingin, 16,000
pappakassar, fór I siðustu
vikulok frá Tranvogi i Ala-
sundi.
Við Islendingar sendum
ennþáokkar „Baccalao” (eins
og ttalir kalla saltfiskinn) i
pökkum.
Þetta er einkum smáfiskur-
inn, sem pakkaður er i kassa,
en Italir kaupa talsvert af
honum. Portúgalar vilja hins-
vegar stóran fisk, sem þeir
skera i þykk stykki og búa til
„baccalao-kótelettur” úr
þeim.
Sýnishorn af nýju saltfisk-
sendingu Norömanna.
Þaö er ekki tekiö út meö sitj-
andi sældinni aö vera fiskimaö-
ur i Suöurhöfum, eins og þeir
fundu áþreifanlega fyrir um
borö I japanska fiskibátnum
Shosei Maru um siöustu helgi.
Þeir voru að veiðum skammt
utan við landhelgi Norður-Kór-
eu þegar strandgæzlubátur
Kóreumanna tók þá fasta,
Þeir I N-Kóreu eru ekkert að
sýsla með klippur eða spjöll á
veiðarfærum. Þeir beita byss-
unum.
Tveir af áhöfn japanska báts-
ins létu lifið I þessari árás, og
tveir aörir særðust.
Japanska bátnum var sleppt
aftur og urðu þeir að sigla strax
heim af miöunum meö látna
félaga sina og hina, sem þurftu
læknishjálpar viö.
Kólera veldur barna-
dauða ó Ítalíu
Japanski fiskibáturinn á siglingu heim á leiö.
EKKERT SÆLDARLÍF
Heilbrigðisyfir-
völd á Italiu
vinna nú að
rannsókn á
arfullum
erufaraldri,
sem stakk sér
niður i Avellino
á Italiu.
— Tiu, nýfædd börn
létust af völdum kól-
eru þar i siöustu viku.
— A myndinni hér
sjást læknar skoða
hvitvoðung á Cot-
ugno-sjúkrahúsinu, en
hann reyndist vera 'S
með kóleru.