Vísir - 18.09.1975, Blaðsíða 20
visir
Fimmtudagur 18. september 11)75
w.
Arekstrar,
árekstrar
og fleiri
árekstrar
Harður árekstur varð á mótum
Lönguhliðar og Háteigsvegar i
gær. Bifreið, sem ekið var vestur
Háteigsveg. sinnti ekki biðskyldu
og ók út á Lönguhlið, i veg fyrir
aðra bifreið.
Við áreksturinn kastaðist fyrr-
nefnda bifreiðin til, lenti utan i
akbrautareyju og valt.
Bifreiðin er mikið skemmd, en
ökumaður hennar slapp litið eða
ekkert meiddur.
-HV.
Ung stúika slasaðist nokkuð i
gærk\’öldi, þegar hún varð fyrir
hifreið á Suðurlandsbraut, til
móts við Hoitaveg. Krotnuðu
tennur i efri góm stúlkunnar og
auk þcss var hún kinnbeins- cða
kjálkahrotin.
Slysið varð með þeim hætti, að
stúlkan var á gangi á syðri brún
akbrautarinnar og lenti bifreið,
sem var á leið austur Suðurlands-
brautina, utan i henni. Við á-
reksturinn kastaðist stúlkan i
götuna og missti meðvitund.
Var hún flutt á Slysadeild til
rannsóknar og aðgerðar og komst
þar til meövitundar siðar i nótt.
ökumaður bifreiðarinnar
kvaðst ekki hafa séð stúlkuna fyrr
en hún lenti á bifreiðinni og taldi
hann, að ökuljós bifreiða, sem
óku i gagnstæða stefnu, hefðu
biindað sig.
Ekið var utan í kyrrstæða bif-
reið við Engjasel i gærkvöldi. Bif-
reiðin skemmdist ekki mikið, en
sá er ók á hana, forðaði sér á brott
og hefur ekki náðst til hans enn.
Annar ökumaður stakk einnig
af frá slysstað, en hann hafði
valdið árekstri, rétt við veitinga-
húsið Klúbbinn.
-HV.
Umferðarslys varð i gærkvöldi
á mótum Sogavegar og Réttar-
holtsvegar, þcgar tvær bifreiðar
rákust þar á.
Annarri bifreiðinni var ekið
austur Sogaveg, inn á gatnamótin
og i veg fyrir bifreið, sem ekið var
norðu Réttarholtsveg.
Áreksturinn var ekki harður, en
ökumaður annarrar bif-
reiðarinnar var fluttur á Slysa-
deild, þar sem hann kvartaöi um
ofurlitil eymsli.
Við athugun reyndist maðurinn
rifbeinsbrotinn og hafa hlotið
innvortis blæðingar. Var hann
lagður á sjúkrahús til nánari
meðferðar.
-HV.
Fallast ekki — sem verðlagsnefnd býður — hóta
á síldarverðið að sigla burt fyrir helgi
Enn stendur allt fast á
Hornafiröi vegna síldar-
verðsins. Sjómenn og út-
gerðarmenn vilja ekki
sætta sig við það verð
sem kynnt hefur verið
fyrir þeim að verðlagsráð
sjávarútvegsins vilji fall-
ast á.
„Það er umtalsvert bil á milli
þess sem þeir eiga kost á að fá,
og hins sem þeir vilja fá”, sagði
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
islenzkra útvegsmanna, i viðtali
við Visi i morgun, þá staddur á
Höfn i Hornafirði. Hann fór
þangað i gær, ásamt fleiri aðil-
um, til að skýra sjónarmið verð-
lagsráðs, og kanna afstöðu sjó-
manna og útvegsmanna.
Verðlagsráð hefur boðið 24 kr.
fyrir sild undir 32 cm. á lengd,
og 38 kr. fyrir sild sem er lengri.
Sjómenn og útvegsmenn vilja
alls ekki fallast á þetta tilboð.
Þeir vilja u.þ.b. 30 kr. fyrir
smærri flokkinn, og 40 kr. fyrir
þann stærri.
„Ekki hefur komið fram að
þeir vilji hörfa frá kröfum sin-
um,” sagði Kristján Ragnars-
son.
Yfirnefnd verðlagsráðs
sjávarútvegsins heldur fund i
kvöld um sildarverðið. Kristján
á sæti i nefndinni. Hann sagðist
ekki þora að spá neinu um
afstöðu hennar. „Það er undir
oddamanni nefndarinnar komið
hvað verður gert i þessu máli,”
sagði Kristján.
Af þeim fimmtán reknetabát-
um sem hlut eiga að máli, eru
tólf aðkomubátar. Skipstjórar
bátanna hafa hótað að hætta
veiðum, fáist ekki það verð sem
þeir sætti sig við.
Um næstu helgi er helgarfri
hjá sjómönnum. Búast menn á
Hornafirði við þvi, að ef ekkert
gerist alveg á næstunni, þá sigli
margir bátanna burt fyrir helgi,
suður á bóginn. Muni þeir svo
biða átekta og sjá hvort það
verð fáist, að þeir geti sætt sig
við að halda áfram veiðum.
— ÓH.
ÁTTA BÍLAR í ÁREKSTRI
Næst aftasti blliinn var taiinn
allt að þvi ónýtur eftir árekstur-
inn. SAAB-bifreiðin, sem var
aftast i keðjunni, breytti
einfaldri aftanákeyrslu i sex
bfla keðjuárekstur.
Átta bifreiðar lentu í
tveim árekstrum/ sem
urðu með skömmu milli-
bili á Kringlumýrar-
brautinni í morgun. í öðr-
um árekstrinum var um
keðju af sez bifreiðum að
ræða, en í hinum lentu
tvær bifreiðar saman.
Fyrri áreksturinn varð með
þeim hætti, að bifreið þurfti að
stanza vegna umferðarþunga.
Næsta b'ifreið á eftir lenti þá aft-
an á henni. Þrjár næstu bifreið-
ar náðu að nema staðar, en
sjötta bifreiðin ók harkalega
aftan á þá fimmtu og kastaði
henni á þá fjórðu. Tók þá ein-
björn i tvibjörn og áður en varði
voru bifreiðarnar sex orðnar að
samfelldri keðju.
Töluvert miklar skemmdir
urðu á bifreiðunurn og þá eink-
um þeirri næst öftustu, sem
talin er allt að þvi ónýt.
Slys urðu ekki á fólki, en kona
úr einni bifreiðinni var flutt á
Slysadeild til athugunar.
Siðari áreksturinn varð svo
um 100 metrum sunnar á
Kringlumýrarbrauti og rétt
augnabliki siðar.
Orsakir hans voru svipaðar
upphafi hins fyrra, en skemmd-
ir urðu litlar á bifreiðunum HV.
Areksturinn varðá mesta umferðartlma og olli
Bifreiðarnar sex i keðju á Kringlumýrarbraut I morgun.
nokkuð miklum töfum á umferðinni.
Alþýðusambandíð
rœðir kjaramál
Miðstjórn Alþýðusambands-
ins heldurfund í dag, til að ræða
samningamálin og kjaraþróun-
ina.
t viðtali við Visi fyrir nokkru
sagði Björn Jónsson, forseti
ASt, að hann teldi gefið mál, að
samningunum yrði sagt upp um
áramót. „Þegar verðhækkanir
eru 4 til 5 prósent á mánuði, þá
verður kaupgjaldið að fylgjast
með”, sagði Björn.
Hann segir f viðtali við Þjóð-
viljann i morgun, að álagning 12
prósent vörugjaldsins og land-
búnaðarvöruhækkanirnar verði
að sjálfsögðu haft i huga, þegar
stefna miðstjórnarinnar verður
mótuð.
Þessi miðstjórnarfundur ASl
er fyrsta skrefið að hinum ár-
vissa samningadarraðardansi,
sem væntanlega hefst kringum
áramótin. — ÓH
Ein uppbyggingar-
myndin í viðbót
— Áhugi útlendinga
fer ekki minnkandi
Væntanlegur er hingað tii lands
kvik myndatökuhópur frá
sjónvarpinu i Vestur-Berlín.
Itópurinn mun haida beint til
Vestmannaeyja, þar sem ætlunin
er að taka heimildarkvikmynd
um uppbyggingu eyjanna eftir
eldgosið i Heimaey.
Kvikmynd þessi verður sýnd i
sjónvarpsstöðvum um allt Þýzka-
land, þegar gerð hennar er lokið.
á Yestmannaeyjum
Hópur þessi er frá sömu sjón-
varpsstöð og sá, er kom hér árið
1964 til að taka heimilda-
kvikmynd um ísland og Vestur-
Grænland. Fyrirliði hópsins og
aðal-kvikmyndatökumaður er
Þjóðverji, sem eitt sinn tók sjálf-
stætt kynningakvikmynd hér-
lendis. Kvikmynd hans hét Ferien
mit Sveinbjörg, eða Fri með
Sveinbjörgu. Var hún sýnd víða I
Þýzkalandi.
-HV.
Spennir
Fimmtiu og niu tonna spennir
var I gær fluttur frá Sundahöfn
inn að Búrfelli. Þessi' spennir á
að fara i Sigöldu, en vegna þess
hve framkvæmdir hafa tafizt
þar, vcrður tækið geymt við
Búrfell þar til hægt verður að
koma þvi íyrir. Spennirinn var
smiðaður hjá Brown Boveri i
Þýzkalandi, sem sér
virkjuninni fyrir öllum raforku-
virkjum.
í Sigöldu
Þetta þunga tæki flutti bill frá
Gunnari Guðmundssyni, og á
eftir fylgdi bifreið með krana,
svo að unnt yrði að ná tækinu af
fiutningavagninum. - Sérstakt
leyfi þurfti frá Vcgagerðinni til
að fiytja spenninn, enda ekki
fjarri lagi að áælta, að billinn
vagninn og tækið hafi vegið nær
eitt hundrað tonn.
Ljósm. ót.