Tíminn - 18.10.1966, Qupperneq 5

Tíminn - 18.10.1966, Qupperneq 5
I ÞREÐJUAGUR 18. október 1966 Útgefandi: FRAMSÓKNARiFLOKKURINN Framkvœmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur 1 Eddu- húsinu, símar 18300—18305, Skrifstofur: Bankastræti 7. Af. greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur, simi 18300 Áskriftargjald kr. 105.00 á mán. innanlands. — t lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Vegir og hafnir ísland er stórt, vogskorið eyland, og þar á ofan strjál- býlt og fjöllótt. Til þess að byggja landið, nýta það og veita fólki sæmileg lífskjör er margt nauðsynlegt, en tvennt ollu öðru nauðsynlegra — vegir og hafnir. ísland fékk aldrei járnbrautir. Því mikilvægari eru bílvegirnir- Hafnir eru því nauðsynlegri, sem á þeim byggist í senn að verulegu leyti afkoma og atvinna landsmanna, sam- göngur og flutningar. Á undanförnum áratugum, síðan íslendingar fóru að mega sín einhvers í farmkvæmdum, hefur mjög mátt marka stjórnarfar og vilja til framsókn ar eftir þvi, hve myndarlega var lagt til vega og hafna úr almannasjóði. Allt fram undir 1960 var fyrir þessu séð með eins myndarlegum hætti og no'kkur tök voru á og stórátök gerð, þó að auðvitað hefði þurft miklu meira vegna þess, hve verkefnið var og er óþrjótandi. En nú, þegar fjárlög eru að nálgast fimmta milljarð- inn, einstakt góðæri og aflafengur hefur fallið þjóðinni í skaut, þá bregður svo við, að framlög hins opinbera minnka stórlega til þessara þátta, miðað við hækkanir og þörf. Nú er hæsta fjárveiting til hafnar 700 þýs. kr. og ríkið skuldar höfnum landsins framlög frá síðustu árum á sjötta milljónatug og treystist ekki til að stytta þann skuldahala nema um sjöttung.. í vegagerð landsins blasir þó enn meira hörmungar- ástand við. Fram að 1959 lagði ríkið meira á ári til vega en það fékk í tekjur af umferðinni- Síðan hefur snarazt æ meira, og á þessum árum, sem síðan eru liðin, hefur ríkið tekið af umferðinni 2500 millj. krónum meira en það hefur lagt til vega. Engin menningarþjóð í heimm- um notar ónýtt vegakerfi með þesum hætti sem einn stærsta skattstofn sinn. Á sama tíma hrynur vegakerfið sundur af alltof þungri umferð nútímans. Varanleg vegagerð var hafin og stórvirk tæki fengin til hennar. En það virðist eiga að vera ein af efnahagsaðgerðum stjórnarinnar að láta þessar vélar standa og gera áætl- un um algera stöðvun 1 varanlegri vegagerð. Þannig blasir þetta óræka vitni um stjórnarfarið við þjóðinni. í ræðu sinni á Alþingi á dögunum lét Eysteinn Jóns- son m.a. svo mælt um ástand þessara mála: „Þá blasir það alveg við, að vænlegur þjóðarbúskapur og farsæll atvinnurekstur í landinu getur ekki til lang- frama byggzt á því samgöngukerfi, sem nú er búið við.' Ekkert sýnir þetta betur en útreiðin á vegunum, því að óbreyttri stefnu verður þeim ekki einu sinni haldið við, en afkastamestu vélarnar til vegagerðar eru látnar liggja aðgerðalausar, að sagt er, til þess að draga úr framkvæmdaþenslunni og vinna gegn verðbólgunni. Þá er svo komið á sjöunda tugi tuttugustu aldar, að það er ekki hægt að fá vörur fluttar á sjó eftir þörfum með ströndum fram”. Hér er ekki of sterkt að orði kveðið. Mun flestum finn- ast skörin vera farin að færast upp í bekkinn í viðleitni ríkisstjórnarinnar til þess að beina framkvæmdaaflinu að þeim umsvifum, sem hún telur æskilegust, er svo skefjalaus og blind, að hún lætur stórvirkar vegagerðar- vélar, sem lítinn mannafla þurfa, standa og ryðga miss- irum eða árum saman, þó að ástandið í samgöngumál- unum á landi og sjó sé með þeim hætti, sem öllum er kunnugt. Er þess að vænta, að þjóðin verði langlíf i landinu. ef hún á að búa árum saman við stjórn, sem gefizt hefur upp við þá viðleitni að byggja hafnir og vegi í samræmi við þarfir tímans? TÍMINN HELGI BERGS: STEFNU SK0RTSR í SJÁ VARÚTVEGSMÁLUM Þegar árin líða breytast þær forsendur, sem atvinnulíf okk- ar byggist á. Auðlindir þær, sem við nytjum, eru ekki allt af jafn gjöfular en aukin þekk ing, bætt tækni og vinnubrögð skapa sífellt nýja og betri möguleika til bættrar hagnýt- ingar þeirra. Ýmsar rannsókna stofnanir, samtök atvinnuveg- anna og cinstakir áhugamenn fylgjast að staðaldri með þeim breytingum, sem nýir tímar hafa í för með sér og leita að Ieiðum til að hagnýta þær með sem beztum hætti. Á þessu sviði eins og fleir- um liefur núverandi ríkisstjórn brugðizt. Afleiðingar þess birt- ast hvert sem litið er. Nú á seinustu misserum hefur greini legar en áður komið í ljós, hvernig skortur á leiðsögn og forystu af hálfu ríkisvaldsins í atvinnu- og framleiðslumál- um hefur leitt til erfiðleika og vandræða fyrir einstakar stétt- ir og þjóðina í heild. I þessari grein verður þó aðeins bent á nokkur atriði á sviði sjávar- útvegsmála, þar sem brýn þörf er skýrrar stefnu og ötullar forystu. Um mörg undanfarin ár hef- ur það verið skoðun margra að fiskstofnarnir hér við land hafi verið ofveiddir. Aðrir hafa tal- ið ö>lu óhætt. Nú hafa verið tekin af öll tvímæli í þessu efni. í 4. tölublaði Ægis 1966 birti Jón Jónsson forstjóri Hafrannsóknar stofnunarinnar grein undir nafninu „Ástand fiskstofnanna við ísland" þar sem hann gerir grein fyrir nið- urstöðum alþjóðlegrar sérfræð inganefndar, sem gerði heildar úttekt á ástandi þorsk-, ýsu-, ufsa- og karfastofnanna við ísland, Færeyjar og Grænland. Segir þar m. a. „Við okkur blasir nú sú kalda staðreynd að meira er tekið úr ísl. þorskstofninum en hann virðist þola.“ Ennfremur segir þar að erlend fiskiskip, aðal- lega brezk veiði mikið af ung- um ókynþroska þorski við ís- Iand. Þessi ótíðindi minna okkur á þær skyldur, sem við höfum tekizt á hendur. Með lögum nr. 44 frá 1948 um vísinda- lega vemdun fiskimiða Iand- grunnsins er ákveðið að sjávar útvegsmálaráðherra skuli „með reglugerð ákvarða takmtirk verndarsvæða við strendur landsins innan endimarka land grunnsins, þar sem allar veiðar skuli háðar íslenzkum reglum og eftirliti". Þar með var mörkuð sú stefna íslenzka löggjafans að íslandi væri ekki aðeins rétt heldur einnig skylt að setja reglur um og hafa eftirlit með fiskveiðum á landgrunninu til verndar fiskstofninum gegn rányrkju. Þessi stefna hefur síðan oftlega verið staðfest. Að minnsta kosti tvívegis 1952 og 1958. hafa á grundvelli þessara laga verið gefnar út reglugerð ir um stækkun fiskveiðiland- helginnar og með ályktun Al- þingis frá 5- maí 1959 og einn ig, þótt kynlegt sé, í yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar í sam- Helgi Bergs bandi við landhclgissamning- inn við Breta 1961 var stefna þessi ítrckuð. Þessi mál eru einhver þau örlagaríkustu, sem íslcnzka þjóðin hefur við að fást. Það gat því ekki komið á óvart, þó að utanríkisráðherrann eyddi meginhluta ræðu sinnar á AIls herjarþingi Sameinuðu þjóð- anna til að ræða þéssi mál. En ræðan var annars von- brigði. Það var ekki að finna skelegga lýsingu og útskýring- ar á þeirri stefnu sem mörk- uð var 1948 og ítrekuð oftlega síðan. Það virðist fyllilega tímabært að taka af öll tví mæli og ítreka á nýjan leik stefnu okkar í þessum málum. Nýjar og öflugar aðgerðir til að kynna öðrum þjóðum þessa stefnu og vinna henni skilning og stuðning, eru einnig fylli lega tímabærar. En þó svo virðist sem erlend fiskiskip eigi höfuðsök á rán yrkju jslenzka þorskstofns- ins, er ekki þar með sagt að við séum sjálfir með öllu sak- lausir eða nýtum okkar mið á hinn hagfelldasta hátt. Oft heyr ist þvi haldið tram, að þessi eða nin veiðarfæri eigi dð banna, vegna þess, að þau séu með einhverjum hætti skaðleg, drepi ungviðið .spilli upp- vaxtarskilyrðum eða grandi miklum fiski, sem ekki næst. og nýtist. Flestar slíkar stað- hæfingar eiga það þó sammerkt að um þær eru þeir fiskimcnn. sem gerst ættu að þekkja, ósammála. Sú þekking, sem innlendir og erlendir fiski- fræðingar ráða nú yfir ásamt reynslu athugulla sjómanna, ættu þó að nægja til þess að skera úr, ef menn íegðu sig fram um að rannsaka slíkar, staðhæfingár til fullnustu. Fiskifræðingar geta nú með talsverðu öryggi sagt fyrir um það, hvað stofnarnir þoli, að af þeim sé tekið, og það er þá fyrst og fremsi efnahags- legt og tæknilegt viðfangs- efni, að skera úr um það, á hvern hátt það fiskimagn verði haSkvæmast og ódýrast veitt. Hleypidómalaus rannsókn á því, er aðkallandi viðfangs- efni og raunar grundvöllur stefnumótunar á öðrum sviðum sjávarútvegsmála. í samræmi við það verður svo að velja veiðiaðferðir og veiðarfæri, Til þess að tryggja sem bezt nýtingu þeirra, telja margir nauðsynlegt að skipta miðmium í veiðisvæði þar sem aðeins séu heimil ákveð- in veiðarfæri á ákveðnum tímum, með svipuðum hætti og Norðmenn gera. En skipulag slíkra veiðitakmarkana er marg víslegum erfiðleikum bundið að ákveða og þarf að athugast mjög gaumgæfilega. \ i'- Rekstur margra fiskiðnað- arfyrirtækja gengur um þess- ar mundir mjög illa og sum eru að loka. Meginorsök þess, er að sjálfsögðu sú aukning framleiðslukostnaðarins, sem verðbólgan hefur haft í för með sér. Talsmenn ríkisstjórn arinnar, sem aldrei virðast hafa áttað sig til fulls á þeim hætt- um, sem af verðbólgunni leiða reyna þó að tína til ýmsar aðr ar skýringar á þeim reksturs- örðugleikum. í ritstjórnar- grein í Alþýðublaðinu var því haldið fram nýlega, að erfið- leikar frystihúsanna stöfuðu af mjög síæmri nýtingu þeirra. Þau væru állt of mörg fyrir þ^u verkefni, sem væri að viana. Þó að þess beri að gæta, að nýting frystihúsanna takmark ast að sjálfsögðu af því, að aflinn er bæði tímabundinn og staðbundinn, verður sjaldan of oft bent á nauðsyn þess að framleiðslutækin nýtist eins vel og aðstæður frekast leyfa. En það skýtur nokkuð skökku við þessa skoðun málgagns sjávarútvegsmálaráðh e r r a n s, að einmitt um þessar mundir eru ný frystihús í byggingu á ýmsum þeim stöðum, þar sem stærst og bezt frystihús eru fyrir, ófullnotuð. Nú segja menn kannski, að það sé verst fyrir þá sjálfa, sem eru að setja fé sitt í óþörf atvinnutæki. En málið er ekki svo einfalt. Það byggir enginn hraðfrystihús í dag eingöngu fyrir eigið fé. Fé til slíkra fram kvæinda kemur beint eða óbeint úr bankakerfinu og takmarkar þannig aðrar og meira aðkallandi framkvæmd ir, bindur auk þess vinnuafl og eykur spennu á framkvæmda- markaðinum. En í þjóðfélagi eins og okkar er það óhjá- kvæmilega skylda ríkisvalds- ins að tryggja það, að fram- kvæmdagetan og fjármunir þjóðarheildarinnar nýtist með sem hagkvæmustum hætti. Hér er vissulega þörf stefnu- mótunar og forystu. Það vakti athygli nýlega, að aðalfundur Sjómannasam- bands íslands sendi frá sér ályktun þar sem cindregið var lagzt gegn bygginSu fleiri síldarverksmiðja í bili og í stað inn lögð áherzla á síldarflutn- inga. Var talið, að mikill stofn kostnaður nýrra verksiniðja mundi lækka síldarverðið á Framhald á bls. 14. Haaii IK

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.