Tíminn - 25.10.1966, Síða 13

Tíminn - 25.10.1966, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 25. október 1966 HŒSinBÍ TÍMINN BMT.míHl 13 Bakvörlu mark leiksins af 35 metra færi KR bikarmeistari í knattspyrnu 1966. Sigraði Val í úrslitaleik með einu marki gegn engu. Alf-Reykjavík. — Hægri bak- vörður KR, Ársæll Kjartansson, skoraði eina markið í úrslitaleik KR og Vals í Bikarkeppni KSÍ á sunnudaginn og tryggði félagi sínu þar með liinn eftirsótta „Bik ar.“ Markið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti á 21. mínútu fyrri hálfleiks. Langspyma af 35 metra færi ósköp meinleysislcg virtist ekki getað ógnað Vals-mark inu, sem gætt var af sterkasta markverði landsins, Sigurði Dags- syni. En samt fór knötturinn Inn fyrir marklínu — af þeirri ein- földu ástæðu, að Sigurður hreyfði hvorki legg né lið til að hindra það. Hvílík mistök, jafnvel mark- vörður í 5. flokki hefði fengið ávítur fyrir að sleppa svona spymu inn fyrir sig. „Ég mis- reiknaði knöttinn algerlega og hélt að hann myndi fara fram- hjá. Það hefði verið hreinn barnaleikur að verja þetta, hefði ég ekki verið svona viss í minni sök,“ sagði SiSurður eftir leik- inn, og að vonum gramur. En í búningsklefa KR var hinn hcppni bakvörður í Ijómandi skapi. „Nei, ertu frá þér, þetta var ekki mark- skot. Meiningin var aðeins að „pressa,“ og ég varð ekki lítið undrandi, þegar ég sá á eftir knettinum í netið.“ En þótt KR-ingar hafi unnið á heppnismarki, voru þeir greini- lega betri aðilinn í þessari við- ureign. Þeir höfðu allt að vinna, og unnu. Og þeir sýndu mun betri knattspyrnu, jafnvel svo, að oft fannst manni sem íslands- meistararnir væru í kennslustund. EHert Schram var potturinn og pannan í spili KR, baráttuglað- ur og sívinnandi. Hann hafði öll völd á miðjunni í fyrri hálfleik, þegar KR lék undan vindi. Og í síðari hálfleik dró hann sig til baka og var aðalöryggisventillinn í KR-vöminni. í heild barðist lið- ið vel, og KR-ingar geta með nokkurri ánægju litið yfir farinn veg í Bikarkeppninni, unnið alla sína leiki og skorað 14 mörk gegn engui Vetur er genginn í garð, og vetur konungur bauð upp á norð- an rok og nístandi kulda, þegar knattspyrnumenn kvöddu keppn- istímabilið á sunnudaginn. Sólin á heiðskírum himni náði ekki að ilja hinum mörgu áhorfendum, sem komu til að sjá leikinn á Melavellinum, og í stúkunni sátu ntenn nötrandi. Egill rakari gerði heiðarlega tilraun til að verma Danirnir sýna á morgun Eins og áður hefur verið saSt frá, er danskur fimleikaflokkur frá lýðháskólanum í Ollerup vænt anlegur til landsins. Koma hinir dönsku fimleikamenn í dag, en á morgun, miðvikudag, munu þeir halda sýningu í LaugardalshöII- inni og hefst hún kl. 20.15. Á fimmtudag mun flokkurinn svo sýna fyrir skólanemendur og hefst sýningin ki 20.15 en ekki kl. 1X30 eins og áður liafði verið auglýst Pergsveinn Alfonsson, Val og Ársæll Kiartansson, K R, berjast um knöttinn í leiknum á sunnudag. Hörður Markan og Gunnsteinn Skúlason fylgjast með. Það var Ársæll, sem skoraði eina mark leiksins. (Tímam. GE) mönnum, því áður en mínúta var liðin kallaði hann: „Fimm mörk fyrir hálfleik, KR-ingar!“ Og auð- vitað var hlegið í stúkunni. KR-ingar kusu að leika á syðra markið, undan vindi, í fyrri hálf- leik. Og nær allan hálfleikinn sóttu þeir að Vals-markinu, þótt þeim tækist ekki að skora nema eitt mark. Vals-vörnin var mjög ákveðin og Sigurður Dagsson varði skínandi vel, t.d. sýndi hann glæsi leg tilþrif á 15. mínútu, þegar hann varði hörkuskot Eyleifs, enda fékk hann klapp frá áhorf- endum. En ekki tókst honum eins vel upp sex mínútum síðar, þeg ar hann horfði aðgerðalaus á spyrnu Ársæls. Blóðugt mark fyr- ir Sigurð eftir glæsilcgan feril á sumrinu. Vals-liðið var mjög dauft í fyrri hálfleik og náði aldrci að ógna KR-markinu, utan cinu sinni. iRétt fyrir lokin brunaði Hermann iGunnarsson upp vinstra megin í iátt að KR-markinu og komst ihættulega nálægt þvi. Hinn ungri iKR-markvörður, Guðmundur Pét- iursson, kom út á réttu augnabliki log hirti knöttinn af tám Her- imanns. í síðari hálfleik tók KR þann ikostinn að draga einn mann til viðbótar aftur í vörnina, Ellert Framhald á bls. 15. KR-ingar taka við „Bikarnum" úr hendi Sjörgvins Scliram ,formanns KSÍ. Fremri röS frá vinstrl: Hörður Markan, Gunnar Felixson, Óskar SigurSsson, Bjarni Feljxson, Ellert Schram og Björgvin Schram. Aftari röS: Þórður Jónsson, Eyleifur Hafsteinsson, Ársæll Kjartansson, Guðmundur Pétursson, Jón Sigurðsson og Baldvin Baldvinsson. (Tímamynd GE) England sigraði England lék sinn fyrsta landsleik eftir sigurinn í HM gegn Norður-írlandi á laugardaginn í Belfast og sigraði með 2-0 í frekar gróf um leik, þar sem einum írsk um leikmanni var vísað af leikvelli rétt fyrir leikslok. í enska liðinu léku sömu leikmenn og í úrslitaleikn um gegn Þjóðverjum í HM enda þótt margir þeirra séu „útbrunnir" að söSn, eftir 15 mánaða knatt- spyrnu. Enska liðið lék þó vel og sigraði verðskuld að. Hunt og Peters skor- uðu mörkin. Sama dag léku Wales og Skotland í Cardiff og varð jafntefli 1-1. Skozka liðið hafði yfirburði en tókst ekki að nýta tækifæri, og aðeins fjórum mínútum fyrir leiks lok tókst Dennis Law að bjarga jafntefli, en Ron Da vies (sem lék með Norwich hér í sumar) hafði skorað fyrir Wales. Jafnframt þvi sem þessir leikir eru um brezka meistaratitilinn, telja þeir í Evrópukeppni landsjiða. Aðeins fjórir leikir voru háðir í 1. deild vegna lands leikjanna og kom þar mest á óvart stórsigur Blackpool gegn Newcastle 6-0, þriðji sigurleikur liðsins í röð, en Blackpool skipar þó enn neðsta sætið í deildinni. Úr- slit í öðrum leikjum urðu þessi: Arsenal — W.B.A. 2-3 Aston Villa — Sheff U 0-0 Sheff Wed — Fulham 1-1 2. deild. Blackburn — Norwieh 0-0 Bolton — Coventry l-i Carlisle — Birmingham 2-0 Charlton -— Bury 4-0 C. Palace — Rotherham 1-1 Derby County—Preston 5-1 Huddersfield — Millwall 2-0 Ipswich — Hull City 5 4 Wolves — Plymouth 2-1 Ipswich hefur forystu í deildinni með 19 stig, en Hull, Bolton og C. Palace hafa 18 stig. Helztu úrslit á Skotlandi, en þar léku efstu liðin, Celt ic, Rangers og Kilmamock ekki vegna landsleikjanna. Airdrie — Aberdeen 1-2 Dundee —Motherwell 3-0 Hibernian—Dundee U. 2-2 Stirling — St. Mirren 2-0

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.