Vísir - 15.10.1975, Blaðsíða 14
Þessar myndir voru teknar á miöju yfirstandandi sumri i sólskini og hita. Þaö sem lltur út fyrir aö vera
snjór á myndinni er kinverskur leir, kaolin, sem notaöur er til Ieirmunageröar I verksmiöjunni sem er
fyrir neöan hæðina.
Unga fólkið kunni hins vegar vel aö meta aö fá tækifæri til aö stunda sklöalþróttina allt áriö um kring.
Myndin er tekin i bænum Hirschau i Vestur-Þýskalandi.
„En hver á
að leika
mig...?"
1 nokkur ár hafa veriö uppi
ráöageröir um aö gera kvik-
mynd um ævi hins góökunna
leikara Humphrey Bogart .
Ekkja hans, Lauren Bacaiþhef-
ur lagt sig á móti þessum fyrir-
ætlunum.
Hefur nú verið stungið upp á
þvl að Lee Marvin leiki hlutverk
Bogarts og lætur frúin sér það
vel lika.
— En, segir hún, ég get ekki
komið auga á hver getur leikið
mig, svo ekkert getur orðið úr
þessu fyrst um sinn.
Lauren Bacall, er tekin að
gamlast nokkuð i útliti, hún er
núorðin 51árs. Hefurhún fengið
hrós fyrir hreinskilni sina i
sambandi við útlitið, og er all-
sendis óhrædd við að sýna sig,
þrátt fyrir allar hrukkurnar.
Við verðum nú samt að viður-
kenna að þetta er frekar vond
mynd af Lauren.
Hin 51 árs Lauren er oröin all
hrukkótt.
Lee Marvin I hlutverk Hump-
hrey Bogarts??
28 leikhús fyrir
daufdumba í
heiminum í dag
Nýlega var haldiö i Washing-
ton I Bandarikjunum heimsþing
daufdumbra. Þar kom fram i
skýrslu frá UNESCO aö I heim-
inum í dag eru samtals 28 leik-
hús fyrir daufdumba. Fyrsta
leikhúsiö af þeirri gerð var sett
á stofn i Dortmund i Vestur-
Þýskalandi fyrir 25 árum. Var
þvi leikhúsi veitt verðlaun fyrir
sýningu á Faust eftir Göthe.
Alls eru 40 leikarar hjá leik-
húsinu, allt „tómstundaleikar-
ar”, úr hinum ýmsu stéttum, á
aldrinum frá 19 ára til 74 ára.
Fjárhagur Dortmund leik-
hússins hefur batnað verulega
slðan þeir hófu starfsemi sina,
en þá þurftu leikararnir sjálfir
að greiða alian kostnað við sýn-
ingarnar.
BKBBSnBnCHZB59eS3BBKBZ3BE9BMEE!lKlS
Núna er kostnaðurinn við sýn-
ingar I leikhúsinu frá 40-50 þús.
v.þýsk mörk (um rúml. 2 1/2
millj. ísl. kr.) auk 4-5 þús.
marka i laun.
A efnisskrá leikhússins hafa
aðallega verið sigild verk^ má
nefna höfunda eins og Shake-
speare, Göthe og Goldoni. Dort-
mund-flokknum hefur verið
boðið til Bandarikjanna næsta
sumar og mun flokkurinn taka
þátt i hátiðahöldum vegna 2ja
alda afmælis Bandarikjanna.
Flokkurinn mun siðan leggja
upp i leiklistarferð og m.a.
heimsækja Indland, Thailand,
Japan, Taiwan og Hong Kong.
Leikhússtjóri Dortmund leik-
hússins er Heinz E. Feuber-
■ji ,.iiiw——a.miwnM«aB—
Táknmál,
látbragðsleikur
og ballett
tengiliður
leikara
og áhorfenda
baum, 45 ára gamall, en hann
hlaut menntun sem óperu for-
stjóri. Leikarar hans koma
viðsvegar frá Þýskalandi. Tvö
verk eru sýnd árlega og alls 96
sýningar á hvoru um sig viðs
vegar um Þýskaland.
Táknmál daufdumbra er ekki
aðal tengiliðurinn milli leikend-
anna og áhorfenda. Lögð er
mikil áhersla á látbragðsleik.
Sérhver leikari flokksins fær 3ja
ára þjálfun i látbragðsleik og
klassiskum ballett. Bronislaw
Machalski, sem er lærisveinn
Marcel Marceau, hefur verið
aðal leiðbeinandi flokksins.
Nú er talið að um 1 1/2 milljón
daufdumbra sé i' Þýskalandi.
Á SKÍÐUM ALLT ÁRIÐ
VISIR. Miövikudagur 15. október 1975.
^mmmmmmmmmi^mmmmi^mmmi^mmmmmmmmmmmm^m^mmmm^mmm^í
Fyrrverandi S.S. foringi háttsettur
stjórnmálamaður í Austurríki
Neitar að hafa
átt þátt í
gyðingamorðum
Simon Wiesenthal er
maður nefndur. Hefur
hann gengið mjög ötul-
lega fram i að ieita
uppi fyrrverandi nas-
ista og koma þeim und-
ir manna hendur. Það
var hann sem fann
Adolf Eichmann á sin-
um tima.
Nú hefur Wiesenthal sakað
leiðtoga þriðja stærsta stjórn-
málaflokks Austurríkis, Friede-
rich Peter.að nafni, um að hafa
verið I S.S.sveitunum og tekið
þátt i að fremja grimmdarverk i
slöari heimstyrjöldinni.
Þessi ásökun Wiesenthal kom
fram á blaðamannafundi og var
mótmælt jafnskjótt af Fried-
erich Peter.
Wiesenthal heldur þvifram að
Peter, sém er 54 ára gamall,
hafi verið liðsforingi i 1. storm-
sveit fótgönguliðsins, sem hafi
ásamt öðrum sveitum borið
ábyrgð á morðum meira en 10
þús. óbreyttra borgara, þ.á.m.
konum og börnum árið 1942.
Friederich Peter hefur aldrei
mótmælt að hann hafi verið i
stormsveitunum frá 1941 til
1945, en hefur alltaf haldið þvi
fram að hann hafi verið i
fremstu viglínu.
— Hvorki á þessu timabili, né
öðru, segir hr. Peter, — hef ég
tekiö þátt I refsiaðgerðum. Ég
neita þvl harðlega ásökunum
Dr. Wiesenthal og visa dylgjum ’
hans á bug.
Dr. Wiesenthal sagði á blaða-
mannafundinum að hann hefði
ekki skýrt frá þessu fyrr, þvi
hannhefði viljað komast hjá að
þetta hefði áhrif á úrslit nýaf-
staðinna kosningar i Austurriki.
Flokkur Peter hefur 10 þing-
sæti og hann hefði verið llklegur
til þess að mynda samsteypu-
stjórn með Bruno Kreisky
kanslara, ef jafnaðarmenn
hefðu misst meirihluta sinn.
Dr. Wiesenthal heldur þvi
fram, að alkunna hafi verið að
Peter hefði verið i S.S.sveitun-
um en að hann hefði verið i 1.
deild fótgönguliðsins væru nýjar
upplýsingar.
Hann lagði fram ljósrit frá
1941 af skipun frá Heinrich
Himmler, yfirmanni S.S., þar
sem svo er lagt fyrir að 1. deild
fótgönguliðsins skuli ekki send á
vlgstöðvarnar heldur látin
„hreinsa til”, að baki viglínunn-
ar.
„Nasista-veiðarinn” sagðist
hafa rekist á nafn Friederich
Peter af tilviljun á lista 17 S.S.-
liösforingja úr 1. fótgönguliðs-
sveitinni, sem kjörnir voru 1941
til þess að fara á sérstakt
foringjanámskeið.
Dr. Wiesenthal lagði einnig
fram sönnunargögn um að þessi
umrædda deild hefði tekið þátt I
tveimum atlögum i Rússlandi.
Aðgerðir þessar, skv. skjölum
S.S., sagði hann beindust gegn
„glæpamönnum, gyðingum og
grunsamlegu fólki”.
Hann lagði ennfremur að i að-
gerðunum i ágúst-september
1942 hefðu yfir 10 þús. óbreyttir
borgarar iátið lifið, þar með
taldir 8350 gyðingar. 1 hinni að-
gerðinni i nóvember 1942, eru
skráð 715 dauðsföll. Er þetta
skv. skjölum S.S.sveitanna.
Friederich Peter kom fram i
útvarpsviðtali og kvaðst alsak-
laus af þessum ákærum, þvi
þótthannhafi veriði 1. deild fót-
gönguliða S.S. hafi hann aldrei
heyrt minnst á þessa atburði
sem Wiesenthal minnist á.
— Ég myrti engan, sagði hr.
Peter, — ég gerði aðeins skyldu
mina sem hermaður, sumpart i
fremstu viglinu og sumpart að
baki viglinunnar.
Hann skoraði siðan á Wiesent-
hal að leggja fram frekari sönn-
unargögn.