Vísir - 15.10.1975, Blaðsíða 24
vísm
Miðvikudagur 15. október 1975.
Friðrik
sleginn
1600
smnum
Einvígisborðið
aðalvinningur S.í.
Svæðismótiö i skák hefst á
Hótel Esju á sunnudaginn.
Fyrsta skákin hefst kl. 14.00
þann dag, en alla aðra daga
verður teflt frá kl. 17.00 til 22.00.
Kcppendur verða 16, þar af sex
stórmeistarar og þrír alþjóðleg-
ir meistarar.
Skáksamband Islands og
Taflfélag Reykjavikur hafa i til-
efni af 50 og 75 ára afmælum
sinum látið slá minnispening til-
einkaðan Friðriki Ólafssyni.
Upplagið er takmarkað við 1600
peninga úr gulli, silfri og kopar
oger hver peningur númeraður.
Þá hefur S.l. efnt til happ-
drættis þar sem vinningar eru
að verðmæti 3,2 milljónir. Er
þar helst að nefna skákborð frá
heimsmeistaraeinviginu i skák
1972.
Forsala aðgöngumiða að
svæðismótinu hefst á fimmtu-
dagskvöld i' skákheimili T.R. við
Grensásveg.
— EB —
Sendiráðin
kosta
skilding
Til sendiráða fara um 0,5%
af útgjöldum rikisins skv.
fjárlagafrumvarpi þvi er nú
iiggur fyrir. Ekki er mikill
munur á hve stör upphæð fer
til hvers sendiráðs. Mest fer
þó til sendiráðs Islands i
Brussel og fastanefnd Isfands
hjá NATO eða 32,2 milljónir
króna. Næst kemur sendiráð
tslands i Kaupmannahöfn með
32,0 milljónir króna.
Minnstu fé er ráðstafað til
sendiráðsins i Moskvu um .26,6
milljónum króna.
—EKG
Kvennaár
og ráðherra-
bústaður
Ef einhver hefur gleymt þvi
má minna á að árið 1975 er
kvennaár. Þess vegna starfar
nú kvennaársnefnd og konur
undirbúa nú kvennafri af full-
um krafti. Og eitthvað hljóta
þessi ósköp að kosta. 1 frum-
varpi til fjárlaga er gert ráð
fyrir 1,9 milljón króna fjár-
veitinu.
Til gamans má geta þess að
rekstur ráðherrabústaöarins
við Tjarnargötu mun kosta
svipaöa upphæö.
EKG
Hvert renna útgjöld ríkisins?
Tæpur þriðjungur út-
gjalda samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu fer til
tryggingamála. 14.8% út-
gjaldanna fara til
menntamála. Þessirtveir
liðir eru lang stærstu út-
gjaldahliðar fjárlaganna.
En það er æði margt annað
sem athygli vekur við lestur
þeirrar gagnmerku bókar,
„Frumvarp til fjárlaga fyrir ár-
ið 1976.”
Sjávarútvegurinn fær i sinn
hlut 2,1%, iðnaður 1,3% og land-
búnaður 4,6%. I þessu dæmi er
yfirstjórn viðkomandi ráðu-
neyta ekki tekin með. Hinar
umdeildu niðurgreiðslur taka
sinn skerf af útgjöldunum. 7,4%
fara til greiðslna á þeim. I fyrra
voru það 8,1%.
Stór hluti fjárlaganna fer til
samgöngumála. Tæp 7% fara til
vegamála og 4,4% fara til „ann-
arra samgöngumála” eins og
það heitir i fjárlögunum.
En til þess að standa straum
af útgjöldunum þarf rikissjóður
að afla alls kyns tekna. Mestar
tekjur hefur sjóðurinn af
óbeinum sköttum eða 81,9%.
Þar af er söluskatturinn 54%
teknanna, og innflutningsgjöld
22,6%.
Af beinu sköttunum, sem eru
17,1% teknanna vegur tekju-
skatturinn umdeildi þyngst á
metunum, 11,7%.
Og eitthvað kostar þessi
skattheimta. 1% útgjalda i fjár-
lögum er varið til toll- og skatt-
heimtu.
EKG
VILJA LOKA REYKJA-
NESBRAUT AÐ HLUTA
Sveitarstjórnin i Njarðvlkur-
hreppi hefur farið þess á leit við
vegamálastjóra, að Reykjanes-
braut verðilögð niður sem aðal-
umferðaræð i gegnum Ytri
Njarðvik, og að umferðinni
veröi beint á Bolafót eða aðra
fullnægjandi götu ofan byggöar-
lagsins.
Þar til þessi skipulags-
breyting er komin á, vill
sveitarstjórnin, að dregið verði
úr aksturshraða ökutækja, áður
en þau koma i mesta þéttbýlið.
Einnig vill sveitarstjórnin að
komið verði fyrir umferðarljós-
um.
Þessi ósk er borin fram vegna
tiðra umferðarslysa, sem orðið
hafa á þeim hluta Reykjanes-
brautar, sem liggur um Njarð-
vfkur. -AG.
Félagsmenn i ibúasam-
tökum Grjótaþorps hafa farið
þess á ieit við kjörna fuiltrúa
sina í borgarstjórn Reykja-
vikur, að hverfinu verði iokað
fyrir óviðkomandi umferð.
Vilja þeir, að hverfinu verði
fyrst lokað I einn mánuð til
reynslu, og bjóða fram starfs-
krafta sina, svo af þessu megi
verða.
Hvarf fyrir
mánuði —
fannst í gœr
Ráðuneytisstjórarnir
þaulsœtnir í nefndum
i gær fann rannsóknarlög-
reglan bil sem hafði verið
týndur i u.þ.b. mánuð.
Aðfararnótt 16. september sl.
var bii stolið. Eigandi bilsins tii-
kynnti þjófnaðinn til iög-
reglunnar en láðist að láta rann-
sóknarlögregluna vita. Það var
fyrst í gær sem rannsóknarlög-
reglan fékk vitneskju um
málið og auglýsti eftir bilnum i
fjölmiðlum. Fljótlega bárust
svo upplýsingar um þennan bil
til rannsóknarlögrcglunnar og
kom þá I Ijós að hann hafði
staðið drjúgan tíma upp við
Miklubraut.
EKG
Það er vinsæll leikur hjá
stjórnvöldum að skipa ráðu-
neytisstjóra I nefndir. Enda eru
þeir stjérar oft á tiðum mjög vel
inni I öllum málefnum viðkom-
andi ráðuneytis, oghandhægt að
nota þá til að stýra nefndum
sem fjalla um málefni ráðu-
neytanna.
En sjálfsagt má of mikið af
öllu gera. Ráðuneytisstjóramir
eiga annrikt við sin daglegu
störf. Sumir þeirra sitja þó i
fjölmörgum af nefndum
rikisins.
Samkvæmt lauslegri talningu
sem Visir gerði I skýrslu um
nefndir rikisins, á Birgir Thor-
lacius, ráðuneytisstjóri i
menntamálaráðuneytinu,
nefndametið. Hann á sæti I
a.m.k. tiu nefndum. Flestar eru
á vegum ráðuneytis hans.
Ami Snævarr lendir I öðru
sæti. Hann situr i sjö nefndum.
Baldur Möller og Páll Sig-
urtsson sitja i sex nefndum.
Höskuldur Jónsson er i fimm.
Þórhallur Asgeirsson, Pétur
Thorsteinsson, Hallgrimur Dal-
berg, Brynjólfur Ignólfsson og
Jón L. Arnalds eru hver fyrir sig
I þremur nefndum.
Þeir ráðuneytisstjórar sem
„sleppa” eru Guðmundur Bene-
dikts^on I forsætisráðuneytinu,
og Sveinbjörn Dagvinnsson i
landbúnaðarráðuneytinu.
Að sjálfsögðu sitja fleiri en
ráðuneytisstjórar i nefndum
rlkisins. Samtals eru það 2292
Islendingar sem hafa með
nefhdastörf á vegum ríkisins að
gera. Ekki eru allar þessar
nefndir launaðar.
Mikið er um að opinberir
starfsmenn og alþingismenn
sitji i nefndum. —öH
Ósköp venjulegt
eftirlitsflug
Voru 6 lofti í rúmo níu
tíma við erfið skilyrði
Flugliðar gæslunnar við
komuna til Reykjavikur I gær-
kvöldi. Innskotsmyndin er af
Sigurjóni Hannessyni, skip-
herra. Mynd Loftur Asgeirsson.
Floti Landhelgis-
gæslunnar var á
miðunum i gær og flug-
liðar hennar höfðu ekki
minna að gera. TF-
SÝR lagði upp klukkan
átta i gærmorgun og
var á ferðinni i rúma
niu tima samtals, lenti
einu sinni á Egils-
stöðum til að taka elds-
neyti.
Þeir töldu 73 skip að veiðum.
Þar af voru 50 breskir togarar
og voru 47 þeirra innan fimmtlu
milnanna. Þeir höfðu vel að
merkja leyfi til þess ennþá,
þegar SÝR flaug yfir. Sautján
þjóðverjar voru að veiðum en
varðskip héldu þeim utan
fimmtiu mólnanna. Þá sáu þeir
þrjá Belga og þrjá Færeyinga
en þeir voru á stöðum sem þeir
höfðu heimild til að fiska á.
Skipherra á SÝR var Sigurjón
Hannesson og Visir hitti hann að
máli þegar vélin kom til
Reykjavikur i gærkvöldi:
— Við fórum út á hrygginn og
svo austurum og alveg að Hom-
bjargi en þá var farið að dimma
svo mikið að það var
þýðingarlaust að halda áfram.
Það voru fremur erfið skilyrði,
skyggnið var um og undir þrem
mllum. Þaðerí rauninni ekkert
óvenjulegt, og það er heldur
ekkert óvenjulegt að við séum I
svona löngu flugi. Þetta var
eiginlega bara ósköp venjulegt
eftirlitsflug. Flugstjóri á SÝR
var Páll Halldórsson.
—ól