Tíminn - 28.10.1966, Síða 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið í síma 12323.
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
246. tbl. — Föstudagur 28. október 1966 — 50. árg.
Sveinn GuSmundsson, forstióri og
aðaleigandi HéSins h. f. alþingismaS
ur SiálfstæSisflokksins. — Ætlar
hann aS halda áfram aS leika á
vtSreisnarfiSluna á meSan fyrirtaeki
hans brennur?
Samdráttur og verkefna
skortur hjá HÉÐNI H.F
i
Starfsliðið nú aðeins þriðjungur af því, sem var fyrir fáum árum
Ætla V-þýzkir
kjamorkuvís-
indamenn að
hjálpa Peking?
MEB4Bönn, fimmtudag.
ESnn þingmanna jafnað-
axmanna í vestur-þýzka
þángmu, Gerhard Jahn
taxndi í dag þeirri spurn
ingn til stjórnarinnar, hvort
satt væri að vestur-þýzkir
vísindamenn stæðu í samn-
Ingaviðræðum við Kínverska
alþýðulýðveldið um aðstoð
Framhald á bls. 14
TK—Reykjavík, fimmtudag.
Blaðið fregnaði í dag, að stærsta vélsmiðja landsins, Vélsmiðj
an Héðinn h.f- ætti nú í erfiðleikum, hefði neyðzt til að segja upp
starfsmönnum í svo ríkum mæli, að nú störfuðu aðeins við fyrir-
tækið um þriðjungur þess fjölda, sem á undanförnum árum
hefði starfað hjá Héðni. Fyrir nokkrum dögum var flest öllum.
sem unnu hjá Garðahéðni h.f., sem er systurfyrirtæki Héðins
h.f. í Garðahreppi, sagt upp störfum vegna verkefnaskorts. í
viðtali við Tímann í kvöid staðfesti forstjóri og aðaleigandi Héð-
ins h.f., Sveinn Guðmundsson, alþingismaður, að verke'ni væru
minni nú hjá vélsmiðjunni en áður.
Vélsmiðjan Héðinn h.f. mun vera stærsta fyrirtækið hér á landi i járn-
iðnaðinum. Á undanförnum árum hafa unnið í þessari vélsmiðju 280 til*
300 menn. Þess utan munu all margir liafa unnið hjá systurfyrirtæki
Héðins h. f., sem starfar í Garðahreppi og heitir Garðahéðinn li. f.
f
Nú eru aðeins starfandi í Vél-
smiðjunni Héðinn verkstjórar,
nemar, 6 bílstjórar og 25 sveinar.
Nemarnir eru 60 og verkstjóra.mir
11, svo að samtals mun starfsliðið
rúmur þriðjungur af venjulegri
tölu. Vegna all langs uppsagnar-
frests hefur verfcstjórum og bíl-
stjórum enn eteki verið fækkað, en
mjög lítil vinna mun nú í vélsmiðj
unni fyrir þá menn, sem enn eru
þar. Fyrir nokkrum dögum var
Vélsmlðjan Héðinn í Reykjavík, stærsta íslenzka fyrirtækið
járnlðnaði.
meginhluta þeirra, sem unnu hjá
Garðahéðni h.f. sagt upp vegnn
verkefnaskorts. Rétt er þó að taka
fram, að þetta fyrirtækj hefur
sinnt aðallega þeim verkefnum,
sem mest eru tilfallandi yfir sum
armánuðina.
Talið er, að fyrirtækið muni á
næstunni komast í erfiðleika með
sinn nemendafjölda, en það er
bundjð af samningum og gildandi
Framhald á bls. 14-
SUF-þingið hefst í dag
EJ—Reykjavík, fimmtudag. Örlygur Hálfdanarson, for-
11. þing Sambands ungra maður SUF, mun setja þingið,
Framsóknarmanna liefst á og síðan verður skipuð kjor-
morgun, föstudag, kl. 14.00. Er bréfanefnd. Síðan mun Ólafnr
þingið haldið í Tjaruarbúð ■ Jóhannesson, prófessor, vara-
Reykjavík, og mun því Ijúka formaður Framsóknarilokksins
á sunnudagskvöldið. flytja ræðu. Framh. á 14.
KÍNVERSKIR VÍSINDAMENN VÖKTU HEIMSATHYGLI í GÆR:
SKUTU Á LOFT ELDFLAUG
MEÐ KJARNORKUSPRENGJU
NTB—Peking, fimmtudag.
Fréttastofan Nýja Kína
skýrði frá því í dag, að kín-
verskir vísindamenn hefðu í
fyrsta sinn skotið á loft eld-
flaug með kjarnorkusprengju.
Hafi eldflaugin hæft í mark
og sprengjan sprungið og allt
gengið svo sem ráð var fyrir
gert. Hins vegar sagði frétta-
stofan ekkert um það, hvers
konar eldflaug þetta var, hve
langt henni var skotið, hvert
skotmarkið var, né nokkuð
annað það, sem nauðsynlegt
er að vita til að hægt sé að
að áætla hernaðarlegt gildi
þessarar tilraunar. Áður hafa
Kínverjar sprengt þrjár kjarn
orkusprengjur, en aldrei áður
skotið þeirin á loft með fjar-
stýrðri eldflaug.
Þessi tilraun hefur vakið al-
heimsathygli og í Washington var
sagt í dag, að hér væri um þýðing
armikið skref að ræða og ljóst,
að kínverskir visindamenn væru
til mikilla afreka líklegir, þegar
haft væri í huga, að aðeins tvö ár
eru síðan fyrsta kínver.ska kjarn
orkupsrengjan var sprengd.
Tilraunin í dag sýndi ótrúlegar
framfarir bæði að því er varðaði
smíði kjarnorkuvopna og eld-
flaugatækni. 1
Hins vegar segja sömu heimild
ir í Wasihington, að erfitt sé að
dæma um hernaðarlegt mikilvægi
tilraunarinnar, en hinu sé ekki að
neita, að góður tími áróðurslega
séð, hafi verið valinn til sprenging
arinnar, þar sem Johnson, Banda
ríkiaforseti er nú á ferðalagi um
Asíuríki.
Etftir fréttum að dæma kom
þessi tilraun Bandaríkjamönnum
á óvart en hins vegar vildu tals
menn varnar- og utanrikismála-
ráðuneytanna ekkert láta hafa eft
ir sér um málið. .
Hins vegar var vísað á bug
sögnum um, að kínverskir vísinda
menn myndu innan mjög skamms
tíma framkvæma enn eina kjarn
orkusprengingu.
Þetta er í fyrsta sinn, sem llanda
ríkjamenn hafa ekki haft veður
af kjarnorkutilraununum kín-
verskra vísindamanna fyrirfram,
að því er góðar heimildir segja og
að því leyti er tilraunin í dag
mikill sigur fyrir Kínverja og ó-
sigur fyrir bandarísku leyniþjón
ustuna.
Bandarískir kjarnorkuvísinda-
Framhald á bls. 14
Kristilegir demókratar ætla a3 mynda minnihlutastjórn í Bonn:
VALDATÍMA ERHARDS LOKIÐ?
NTB-Bohn, fimmtudag.
Stjómarkreppa ríkir nú í
Vestur-Þýzkalandi, eftir að
fjórir ráðherrar Frjálsra dernó
krata sögðu af sér, en seint
í kvöld var haft eftir áreiðan-
legum heimildum, að Ludwig
Erhard, kanslari hyggðist sitja
áfram með minnihlutastjórn
Kristilegra demókrata að bak
hjarli. í sömu heimildum segir.
að ráðherrar stjórnarinnar
muni fyrst um sinn taka að
sér störf ráðherranna fjög
urra og gegna þannig tvöföld-
um störium um tíma.
Kurt Schmiicker efnahags-
málaráðherra mun bæta við
sig störfum fjánmijlaráðherra,
Johann Babtist Gradl, flótta-
málaráðherra tekur við ráðu-
neytinu fyrir al-þýzk mál-
efni, Bruno Heok, félagsmála-
ráðherra við ráðunþyti fyrir
íbúðabyggingar og dr. Wern-i
er DoUinger, mun sjá um ráðu-
neyti fyrir efnahagssamvinnu
og aðstoð við þróunarlönd. Ráð
herrarnir, sem sögðu af sér
voru: dr. Rolf Dahlgriin, fjár-
málaráðherra, dr. Erik Mender
Framhald á bls. 14