Tíminn - 28.10.1966, Síða 14
14
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 28. október 1966
Hafnir og byggðakjarnar
;Framhald af bls. 5.
er 40%, verði hækkaður upp í 50, 60 og 70% með til
liti til þess, að fjárhagsleg aðstáða landsmanna verði
sem jöfnust. Jafnframt leggja Framsóknarmenn til, að
gerðar verði ráðstafanir til þess, að ríkið greiði upp 55
milljóna skuldahalann á þrem árum og borgi eftirleiðis
sinn hluta jafnóðum ár hvert og yrði sá hluti hærri en
nú eins og fyrr var sagt-
G.G. sagði, að jiér myndi verða um nokkur viðbótar-
gjöld að ræða fyrir ríkissjóð en þó íninni en í fljótu
bragði mætti virðast. Framsóknarmenn hafa ár eftir ár
hreyft þessu máli á þingi, en stjórnin lagzt á málið. Nú
mun vera einhver von um, að hún sjái sér ekki lengur
fært að draga það á langinn, og er þá vel, ef svo reynist
SAMDRÁTTUR
P'-arv'hu rt ir
lögum um að sjá hópnum fyrir á-
framhaldandi námi.
Um leið og starfsmenn Héðins
hverfa úr starfi. eiga þeir leið
framhjá Reykjávíkurhöfn og horfa
á margar sams konar vörur og
þeir hafa framleitt undanfarin ár
koma upp úr skipunum, sem eru
að koma frá útlöndum. Veldur
þessu bæði verðbólgan og hinn
geigvænlegi rekstrarf j árskortn r
og áhugi ríkisstjórnarinnar á
innflutningi á fullunninni erlendri
vöru. sem áður hefur verið fram-
leidd í landinu, af íslenzkum iS’n
fyrirtækjum.
Er blaðjð hafði samband við
Svein Guðmundsson, forstjóra
Héðins. í kvöld, sagði hann það:
rétt, að verkefni væru nú minni
en oft áður. Reyndar væru þessi
árstími oft erfiður, en við það bæt
ist, að nú væru verkefnjn i sam
bandi við togaraútgerðina lítil og
einnig minna að gera fyrir frysti-
húsin. Sveinn kvaðst að öðru leyti
ekki vjlja segja mikið um málið á
þessu stigi, en vísaði á aðalverk-
stjóra Héðjns h.f. varðandi manna
haid fyrirtækisins.
Sveinn Guðlaugsson, vélstjóri,
aðalverkstjóri í Héðni, sagði, að
þær tölur um starfsmannafjölda
fyrjrtækisins væru mjög nærri
lagi. Töluverður samdráttur væri
nú hjá fyrirtækinu. Verkefnin
væru minni á haustin en yfir sum-
arið og nú óvenju lítil vegna stór-
minnkaðrar vinnu við togarana og
frystjhúsin og við það bættist, að
síldarbátarnir koma nú miklu
seinna suður, héldu sig við Austur
land og verkefnin við þá þvj ekki
tilfallandi hér. All verulegur sam-
dráttur hefði og verið í nýsmíði.
Stafaði það fyrst og fremst af
auknum jnnflutningi erlendis frá
og væri þar þyngst á metunurn, að
erlendu aðilarnir gætu boðið
miklu hagkvæmari lánskjör og
væri eðlilegt að menn væru veikir
fyrir því í lánsfjárskortinum. Sam
drátturjnn í mannahaldinu hefði
þróazt smátt og smátt en stöðugt
Hjartkær eiginmaöur minn og faðir okkar,
Erlingur Pálsson
fyrrverandi yfirlögregluþjónn,
lézt laugardaginn 22. okt. Jarðarförin verður gerð frá rríkirkjunni
í Reykjavík, fösfudaginn 28. okt. 10.30 fyrir hádegi. Athöfninni
verður útvarpað.
Sigríður Sigurðardóttir og dætur.
Þökkum af alhug öllum þeim mörgu fjær og nær, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför, ástkæra sonar, bróðurs
og mágs,
Jóseps Hlöðverssonar
Guðbjörg Sigvaldadóttir, Hlöðver Bæringsson,
Jóhanna Hlöðversdóttir, Sigurjón Sigurjónsson,
Pálmi Hlöðversson, Guðmunda Helgadóttir,
Óskar Jafet Hlöðversson.
Vigfús Bjarnason,
Þórsgötu 18,
andaðist að Landakotsspítala, miðvikudaginn 26. þ. m.
Guðbjörg Vigfúsdóttir, Sigurður Benediktsson.
Útför
Böðvars Magnússonar
Laugarvatni,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, laugardaginn 29. okt. kl.
10,30. Jarðsett verður á Laugarvatni,
Kveðjuathöfn þar, fer fram í Menntaskólanum kl. 3. Athöfninni f
klrkjunnl verður útvarpað. Þeir er vildu minnast hins látna, er vjn-
samlega bent á líknarfélög.
Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 1.
Ingunn Eyjólfsdóttir.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður
okkar ,tengdamóður ömmu, og langömmu,
Elísabetar Stefánsdóttur Hjaltalín
Börnin.
á undanfömum árum, því ekki
væri langt síðan starfsmenn í
Héðni voru um 300 talsins.
YFIRLYSING
Framhald af bls. 2.
arverkfallið, þar eð það taldi kröf
ur framreiðslumanna ekki rétt-
mætar.“
f sambandi við þetta vil ég taka
fram eftirfarandi.
1. Á fundi í Félagi íslenzkra
hljómlistarmanna og sameiginleg
um stjórnarfundum félaga þeirra
er að boðun og afboðun samúðar-
verkfallsins stóðu kom þetta sjón-
armið til málsins aldrei fram.
Samúðarverkföll eru til þess að
flýta fyrir lausn vinnudeilna en
í þessu tilfelli hefði það haft öf-
ug áhrif og er það forsendan fyr-
ir afboðun verkfallsins.
2. Þegar ég kynnti mér heim-
ild Loftleiða fyrir fullyrðingu þess
ari kom það í ljós að þessa til-
vitnun ráðherra er hvergi að finna
í bréfi fyrirtækisins til Samgöngu
málaráðuneytisins dags. 18. okt.
sl..
Þeim tveim félögum sem um
er að ræða hefur verið legið á
hálsi fyrir að vilja. styðja fram-
reiðslumenn í deilu þessarj m.a.
vegna þess að um beinar kaup-
kröfur væri ekki að ræða en á
það skal bent að í síðustu samn-
ingum Félags framreiðslumanna
og Sambands veitinga og gisti-
húsaeigenda svo og öðrum hlið-
stæðum samningum eru mörg
ákvæði um vinnutilhögun og að-
búnað á vinnustað og fráleitt að
væna framreiðslumenn um að vilja
yfirtaka stjórn á veitinga og gisti-
húsum eins og hefur verið látið
liggja að í umræðum um þessi
mál.
f.h. Félags ísl. hljómlistarmanna
Sverrir Garðarsson.
V-ÞÝZKIR
Framhald at bls. 1.
við smíði fjarstýrðra eld-
flauga.
Tilefni spurningarinnar
voru blaðafregnir þess efn-
is, að prófessor Wolfgang
Pilz, sá sem á sínum tíma
starfaði að eldflaugaáætlun
Arabíska sambandslýðveldis
ins (Egyptaland), væri kín-
verskum vísindamönnum til
aðstoðar við smíði fjar-
stýrðra eldflauga, sem far-
ið gæti um 650 kílómetra.
Prófessor Pilz stóð fremst
ur í flokki þýzkra vísinda-
manna, sem með störfum
sínum orsökuðu vandræða
ástand í samskiptum Þýzka
lands og ísraels, áður en
stjómmálasamband komst á
milli landanna.
Lögfræðingur Pilz í
Munchen, dr. ALfred Sidel
fullyrti í dag, að engar samn
ingaviðræður hefðu farið
fram milli Pilz og Kínverja.
Sagðist hann hafa vérið í
Peking fyrir nokkrum vik-
um en þá aðeins sem ferða
maður.
ERHARD
Framhald af bls. 1.
varakanslari og ráðherra fyri
al-þýzk málefni, Walte Scheel
efnahagssamvinnumálaráðherra
og Bucher, ibúðabygginga-
málaráðherra.
Stjórnmálafréttaritarar telja
þó, að hér sé aðeins um bráða-
birgðaráðstafanir að ræða og
muni þess ekki langt að bíða,
að Erhard, kanslari verði að
segja af sér.
Þótt ágreiningurinn út af
fjárlagafrumvarpi stjórnar-
innar sé opinberlega gefinn
upp sem ástæða fyrir stjórnar-
slitum eru flestir þeirrar skoð-
unar að annað og meira búi
hér að baki. Segja sumir, að
hér sé um að ræða herbragð
Frjálsra demókrata, sem óttist
væntanlegar kosningar í Hess-
en og Bayern.
Harðar umræður urðu um
fjárlagafrumvarpið í þinginu í
gær, en seint í gærkvöldi var
sagt, að stjómin hefði náð sam
komulagi um málamiðlunartil-
lögu. Þingflokkur Frjálsra
demókrata mun hins vegar
hafa hafnað samkomulaginu og
seinna var skýrt frá afsagnar-
beiðni ráðherranna fjögurra,
sem dr. Erhard, kanslari féllst
síðan Aðalágreiningsefnið í
sambandi við fjárlögin voru
skattahækkanirnar sem því
mundu fylgja, en alls námu
þær um 40 milljörðum þýzkra
marka. Vildu Frjálsir demó-
kratar jafna hallann á fjár-
lögunum með því að dregið
yrði veíulega úr opinbeitim út
gjöldum.
SUF
Framhald af bls. 1.
Að henni lokinni verður lagt
fyrir álit kjörbréfanefndar, og
kosnir starfsmenn þingsins —
1., 2., og 3. þingforseti, tveir
þingritarar og tveir varaþing-
ritarar.
Næst á dagskránni er skýrsla
stjórnar, sem skiptist í tvennt;
skýrslu formanns og skýrslu
gjaldkera. Síðan verður skipað
í eftirtaldar nefndir: Stjórn-
málanefnd, fjárhagsnefnd, alls
herjarnefnd, atvinnumálanefnd,
félags og fræðslumálanefnd,
samgöngumálanefnd, skipulags
nefnd og laganefnd og vorka
lýðsmálanefnd.
Störfum dagsins lýkur síðan
með almennum umræðum. Á
laugadaginn fara fram nefndar
störf fyrir hádegi, en eftir há-
degi verða nefndarálit lögð
fyrir og umræður haldnar um
þau. Fyrir hádegi á sunnudag
verða nefndarálit einnig lögð
fyrir, og um þau rætt.
Eftir hádegið mun Helgi
Bergs, ritari Framsóknarflokks
ins, flytja ávarp, en siðan
halda umræður um nefndaálit
áfram .Þinginu lýkur síðan með
kosningum samkvæmt sam-
bandslögum.
Á sunnudagskvöldið verður
haldinn kvöldfagnaður fyrir
fulltrúa og gesti þeirra.
mál að lækka fóðurvöruverðið,
eins fljótt og hægt er, sagði Helgi,
fórum við fram á það fyrir nokkru
að fá að flytja inn laust bygg frá
Bretlandi, sem á þeim tíma var
mun ódýrara en maís í Bandaríkj-
unum. Þessari umsókn var synjað
af viðskiptamálaráðuneytinu, vegna
samkomulags s ríkisstjópnarinnar
um PL-480 lánin. Eftir að hafa
fengið synjunina var strax farið
að athuga um kaup á heilum
maís í Bandaríkjunum, en þar
sem nýja uppskeran var þá ekki
tilbúin til sölu' í Philadelphiu, tók
nokkurn tíma að útvega viðun-
andi tilboð. Að lokum tókst að fá
viðunandi tilboð i Charleston í
Suður-Carolina og skip til flutn-
ings á 900 tonnum af heilum
maís. Samkvæmt samningi ætti
skipið að byrja að lesta i dag eða
á morgun, og ef allt gengur að
óskum ætti skipið að koma til
Þorlákshafnar um miðjan nóvem-
ber.
Mér er óhætt að fullyrða, að
samkvæmt því verði, sem greitt
er fyrir heilmaís farm þennan
og leigunni á skipinu, muni tak-
ast að lækka fóðurbætisverðið í
Þorlákshöfn allverulega, eða um
það bil 1500 krónur á tonn.
En með frjálsum innflutningi á
korni frá Vestur-Evrópu ætti að
vera hægt að lækka verðið enn
meira.
Að því er ég bezt veit þá er
þetta fyrsti heili skipsfarmurinn
af fóðurkorni, sem fluttur er til
landsins ómalaður. Þess má geta
í þessu sambandi að eitt af Sam-
bandsskipunum, Mælifell, er út-
búið með það fyrir augum að
flytja ósekkjað korn og gæti það
dreift slíkum förmum á ýmsar
hafnir á landinu.
Geta má þess, að þá mun nú
vera í athugun hjá nokkrum
stærstu kaupfélögunum, hvort þau
hafa aðstöðu til, eða geta komið
sér upp aðstöðu til móttöku á
ómöluðu fóðurkorni úr lausum
förmum.
KORN
Framhald af bls. 16
lega verða gefinn frjáls á næst-
unni. Ráðherra benti þá á að í
gildi væri milli ríkisstjóma Is-
lands og Bandaríkjanna samning
ur um kaup á fóðurvörum gegn
svonefndu PL 480 samkomulagi,
og sagðist ráðherra fastlega von-
ast eftir því, að þegar búið væri
að fullnýta þá samninga, teldi
hann eðlilegt að gefa innflutning
á fóðurvörum frjálsan. Þessi samn
ingur ríkisstjómarinnar er því
skilyrði háður að hann verði full-
nýttur fyrir n.k. áramót, sem var
ástæðan fyrir því að ekki var hægt
að veita innflutningsleyfi frá Ev-
rópu fyrir ómöluðu komi.
— Nú nýlega átti ég tal við
Þórhall Ásgeirsson ráðuneytis-
stjóra í Viðskiptamálaráðuneytinu
um málið, og staðfesti hann i
einu og öllu ummæli landbúnað-
arráðherra.
Samkvæmt því sem að framan
getur hefur Sambandið þegar pant
að allar nauðsynlegar vélar og
tæki til kornvinnslu og mölunar í
Þorlákshöfn, svo sem uppskipun-
ardælu snigla og færibönd í vöru
geymslu og kornunarvél. En fyr-
ir er þegar í húsinu fóðurblöndun-
arvél og kornmylla. Tækin, sem
pöntuð hafa verið eru væntanleg
til landsins á nasstunni og verðntj
uppsetningu þeirra væntanlega
lokið fyrir næstu áramót. í Þor ,
lákshöfn er nú verið að setja upp |
milligerðir f vömgeymsluhúsið til
móttöku á ósekkjuðu korni.
Þar sem okkur er mikið áhuga-
SKUTU Á LOFT
Framhaid af bls. 1.
menn hafa löngum haldið því fram
að kínverskir starfsbræður þeirra
stæðu langt að baki að því er varð
aði smíði langdrægra eídflauga og
fullyrt.'að Kínverjum myndi ekki
takast fyrir árið 1975 að smíða svo
fullkomnar eldflaugar og Vestúr
veldin ráða nú yfir.
Hins vegar minnast menn þess
nú, að McNamara, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði i marz
s. 1. að innan tveggja til þriggja
ára myndu Kínverjar ráða yfir e)d
flaugum, sem hæft gætu skotmark
í 1100 kílómetra fjarlægð og"
byggja varnir sínar upp á kerfi
með slíkum eldflaugum. Nú er
ekki vitað, hvort um svo lang-
; dræga eldflaug hafijverið að ræða
;við tilraunina í dag.
j Brezka utanríkisráðuneytið for
dæmdi tilraunina 1 dag og sagði
talsmaður þess, að hún myndi eitra
andrúmsloftið. Harmaði talsmaður
inn, að Kínverjar skyldu með til
rauninni storka þannig almennings
álitinu í heiminum.
Eins og kunnugt er undirrituðu
Bandaríkin, Bretland og Sivétrík
in árið 1963 samning um bann við
kjarnorkutilraunum í háloftunum,
hinu ytra rúmi og neðansjávar,
vegna hættunnar á eitrun.
Þennan samning hafa Kinveriar
og Frakkar ekki fengizt til að
undirrita.
Bolholti 6,
(Hús Belgjagerðarinnar).