Tíminn - 28.10.1966, Page 16
!
<$•
$mnm
246. fbl. — Föstudagur 28. október 1966 — 50. árg-
Asbeströrín / Eyjaveitunni
springa viS þrýstiprófunina
Sara Lidman (fyrir miðju) svarar spurningum blaðamanna. T. h. María Þorsteinsdóttir, t. v. Margrét
Sigurðardóttir. Tímamynd—GE.
Rá&tt viS Söru Lidman um heimsókn tii Norður Vietnam
„Halda Bandaríkjamenn að okkur þyki
vænna um dúkkur en um lifandi börn!“
EJ—Reykjavík, fimmtudag.
Hingða til lands er komiji
sænska skáldkónan Sara Lid-
man, og mun hún flytja fyrir-
lestra um Víetnam í Reykjavík
og á Akureyjri. Er hún hér á
vegum Menningar- og friðarsam
taka kvenna, sem kynntu hana
fyrir blaðamönnum í dag.
Sara Lidman er ættuð frá
Vestbotten í Svíþjöð. Hún lauk
fil. kand. prófi frá háskólan
um í Stobkhólmi. Fyrstu þrjár
bækur hennar segja frá æsku-
stöðvunum. Fyrsta bókin, Tjar
dalen, kom út 1953. Síðan komu
Hjortonlandet, Regnspira og
Bara mistrel.
Hún dvaldi hálft ár í Suður
Afríku og eitt og hálft ár í
Kenya og skrifaði bækur sem
gerast í þessum ríkjum. Kunn
ust íslenzkum lesendum tnun
vera „Sonur minn og ég“, sem
kom út í íslenzkri þýðingu, en
hin bókin kallast „Með 5
demöntum."
Þá dvaldi hún í einn mánuð
á síðasta ári í Norður-Vietnam,
og er nýkomin út bók um dvöl
ina þar — „Samtöl í Hanoi“.
Lidman var í Norður-Viet-
nam í októbermánuði 1965, og
ferðaðist nokkuð um landið.
Hún sagði, að hún hefði einna
helzt búizt við að sjá fátækt og
óreiðu, þar sem landið heíði
svo lengi verið undir daglegum
sprengjuárásum. Aftur á
móti hefði komið í Ijós, að
gott skipulag er á hlutunum
þar og gengur því hið daglega
líf furðuvel fyrir sig. Allir hafi
nóg að borða, og samstaða fólks
ins og baráttuvilji veki sérstak
lega athygli. Fólkið væri sam
stætt og ávallt viðbúið sprengju
árásum, og alltaf að gera við
brýr, svigi o.s.frv. eftir árásirii
ar .
Lidman sagði, að „mórall“
fólksins væri mjög góður, og
hún hefði hvergi orðið vör við
uppgjafaranda, heldur þvert á
móti.
Hún var spurð um þá fullyrð
ingu, að Bandaríkjamenn gerðu
einungis árásir á heniaðarleg
skotmörk, og sagðist víða hafa
séð merki um hið gagnstæða.
T. d. hafi hún séð sjúkrahús
fyrir berklasiúklinga, sem
hefði verið sprengt i tætlur —
en engin hernaðarmannvirki
hefðu verið þar í grennd. Svo
væri það einnig, að þegar
sprengja ætti hernaðarmann-
virki, lentu sprengjurnar oft á
íbúunum og byiggingum þeirra
í grennd við slík mannvirki.
Framhald á bls. 15.
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
Það kom fram í viðtali sem
TÍMINN átti við Hávarð Sigurðs
son verkstjóra við Iagningu vatns
veitunnar lir landi og til Vcst
mannaeyja að asbeströrin, sem not
uð eru þola ekki sem bezt þrýsti
prófunina, sem á þeinv er gerð,
og hefur fjöldinn allur af rörum
sprungið við prófunina.
Búið er að leggja svo til allt það
af leiðslunni sem verður úr
asbesti, en eftir er að leggja vatns
leiðsluna yfir Markarfljót og eins
undir smáár og læki. Verður sá
hluti leiðslunnar úr plaströrum.
Núna er unnið við uppsprettuna
sem vatnið til Eyja er tekið úr
AFTUR FUNDUR
VEGNA BÚRFELLS
SJ—Reykjavík, fimmtudag.
f dag var haldinn fundur með
fulltrúum samningsaðila í Búrfells
deilunni, en án árangursJ Annar
fundur þefur verið boðaður í dag,
en erfitt er að spá um hvort sam
komulagser á næsta leyti. Ef ekki
næst samkomulag fyrir helgi,
munu starfsmenn við Búrfellsvirkj
un efna til skyndiverkfalls á mánu
dag og þriðjudag.
FJÖGURRA TÍIVSA
YFIRHEYRSLA
SJ—-Reykjavík, fimmtudag.
í dga voru haldin sjópróf vegna
skemmdanna er urðu á SAAB bif
reiðunum 19 í finnska leigu
skipinu Keppo. Yfirheyrslur stóðu
yfir í fjóra tíma í dag en var síð
an frestað.
Það mun hafa komið fram við
réttarhöldin að skipstjórinn taldi
að gengið hefði verið frá bifreið
unum á nægilega tryggan hátt.
_ Skipið miin hafa hreppt vont veð
9 ur, en þó ekki neitt aftakaveður.
suðaustan við Syðstu—Mörk. Er
það erfitt verk, vegna staðhátt.a
og hefur þurft að handgrafa skurði
þar í kring.
Hávarður sagði að það tefði
verkið hve skipta þyrfti um mikið
af rörum, af því að þau þyldu ekki
þrýstiprófunina. Væru rörin próf
uð með 15 kílóa þrýstingi á fer-
sentimetra, og spryngju 4—6 rör
að meðaltali á hverjum 500 metra
kafla. Leiðslan er rúmir 20 km
á lengd alls, og er hvert rör fjög
urra metra langt og tíu tommur að
innanmáli. Rörin eru pólsk og ekki
meira en svo að magnið sem pant
að var sé nóg í leiðsluna.
Að öðru leyti hefur verkið geng
ið nokkuð vel, og verður unnið
núna eftir því sem veðráttan leyf
jr.
FYRSTi SKIPSFARMURINN AF 6-
MÖLUDU KORNi KEMUR í NÓV.
LÆKKAR FÓÐURBÆTISVERÐIÐ UM 1500 KR TONNIÐ í ÞORLÁKSHÖFN
KJ-Reykjavík, fimmtudag.
f tilefni áf grein hér í blað-
inu um verð á fóðurvörum hafði
Tíminn tal af Helga Þorsteinssyni
framkvæmdastjóra innflutnings-
deildar SÍS, og innti hann frétta
af því, hvað liði innflutningi á
ómöluðu korni í heilum skips-
förmum. Kom þá m.a. fram að
um miðjan nóvember kemur frá
Bandaríkjunum skipsfarmur af
j heilum maís til Þorlákshafnar,
‘sem mun lækka fóðurbætisverðið
þar allverulega eða um allt að
1500 krónur tonnið.
— Vegna ummæla Agnars
Guðnasonar í grein í Tímanum
25. okt. sl., sagði Helgi Þorsteins-
son, vildi ég vísa til greinargerðar
um fóðurblöndumálin sem birtist
í blaðinu 15. júní í sumar, en
þar er rakin allýtarlega sú athug-
f
Blaðburöarfólk óskast
á Leifsgötu, Laugarásveg, Vesturbrún, Miðbæinn,
Gunnarsbraut, Snorrabraut, Miðtún og Hátún.
Upplýsingar á afgreiðslu blaðsins í Bankastræti 7
sími 1-23-23.
un sem tæknideild SÍS hafði ver-
| ið íalið að gera um málið.
Eins og fram kemur í þessari
greinargerð, hélt Helgi áfram, þá
er aðalforsendan fyrir lækkuðu
fóðurvöruverði að innflutningur-
inn á fóðurvörum verði gefinn
frjáls, enda samþykkti síðasti að-
alfundur Sambandsins svohljóð-
andi tillögu í þessu máli: „Aðal-
fundur Sambands ísl. samvinnufé
laga haldinn að Bifröst dagana
10.—11. júní 1966, skorar á ríkis-
stjórnina að leyfa frjálsan inn-
flutning á fóðurvörum.“ Að fund-
inum loknum sendi forstjóri Sam
bandsins Erlendur Einarsson
þessa tillögu ásamt öðrum frá
fundinum, forsætisráðherra
Bjama Benediktssyni til athugun-
ar.
Eins og fram kom í fyrrnefndri
greinargerð um fóðurvörumálin í
Tímanum komst tæknideild SÍS
að þeirri niðurstöðu að hagkvæm-
ast væri að hefja innflutning í
smæiri förmum frá Evrópu á ómöl
uðu komi.
Þar sem slíkur innflutningur
krefst allmildllar fjárfestingar
annað hvort með byggingu korn-
turna eða stórra geymsluhúsa sam
jþykkti stjórn Samb. ísl. samvinnu-.
j félaga að athuga tillögu taékni-
jdeildar um að hefja framkvæmd-
jir í Þorlákshöfn þar sem stórt
j vörugeymsluhús er fyrir hendi.
jÞetta var þó háð því skilyrði að
j innflutningur á fóðurvörum yrði
j gefinn frjáls. ,■
I Áður en hafizt var handa um
pöntun á vélum, sagði Helgi Þbr-
steinsson, átti ég því viðtal við
landbúnaðarráðherra Ingólf Jóns-
son og spurðist fyrir um hvort
innflutningur myndi ekki örugg-
Framhald á bls. 14
EKKI VARÐ
VART VIÐ
MÆÐIVEIKI
KJReykjavík, fimmtudag
í kvöld lauk slátrun á
fullorðnu fé í Borgarnesi,
og að því er Guðnrundur
Gíslason lœknir tjáði Tím
anum í kvöld þá hafa ekki
fundizt nein merki mn mæði
veiki í fémt, við lungnaskoð
un .
Alls voru lungu skcðuð úr
fimm þúsúnd fjár og er það
flest úr Mýrahólfinu, en
einnig nokkuð úr Borgar
fjarðarsýslu. Blóðsýnishom
eru tekin við skóðun á fénu,
og eftir að rannsaka sýnis-
homin.
Gamaveiki hefur fundizt
á alls 12 bæjum, 3 í Lunda
reykjardal, 4 í Stafholts-
tungum, 4 í Þverárhlíð og
1 í Norðurárdal. Em þetta
sömu bæimir og gamaveiki
hefur fundizt á áður. Sýnir
þetta að sýking helzt á bæj í$
um þótt bólusett sé, en
. breiðist aftur á móti ekki
út.
Mæðiveiki fannst í fé frá
einum bæ í Norðurárdal í
fyrra, og var allt fé skorið
þar niður.
Samkvæmt framangremd
um upplýsingum eru horfur
á því að þurramæði komi
ekki fram á þessu hausti í
Mýrahólfinu, en þó verður
ekkert um það fullyrt með
vissu fyrr en blóðsýnishorn
in sem tekin voru úr fénu
hafa verið rannsökuð.
Framsóknarkonur
Félag Framsóknarkvenna heldur
aðalfund sinn að Tjamargötu 26
mánudaginn 31. okt. kl. 8.30 síð
degis. Fundarefni: 1. venjuleg að-
alfundar störf og 2. Frú Sigríður
Thorlacius flytur erindi um Nor-
egsferð.
Stjórnin.
Þjóðmálanámskeiðið
Fyrsti fundur þjóðmálanáinskeiðs Framherja og Félags ungra Fram
sóknarmanna í Reykjavík verður næstkomandi sunnudag að Tjarnar-
götu 26. kl- 13.30. Skráðir þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að
koma stundvíslcga.