Vísir - 29.12.1975, Page 7
VISIR Mánudagur 29. desember 1975.
7
(
Umsjón:
Guömundur Pétursson
)
Glœpoaldan
vex enn í USA
Edward Levi, dómsmálaráð-
lierra Bandarikjanna, skýrði frá
þvi i morgun, að meiriháttar
glæpum i Bandarikjunum hefði
fjölgaö um 11% á fyrstu 9 mánuð-
um ársins 1975 miðað við sama
timabil i fyrra.
Hafði þó alvarlegri tegundum
afbrota fjölgað um 16% á fyrstu
ni'u mánuðum ársins 1974 miðað
við sama timabil 1973, og þótti þá
keyra úr hófi.
En Levi ráðherra sagði samt,
að það væri huggun harmi gegn,
hve aukningin væri minni þetta
árið, miðað við sihækkandi ris
glæpaöldunnar á undanförnum
árum. „Þó má ekki gleyma, að
hér er enn um aukningu að ræða
og að glæpafjöldinn er óþolandi,”
bætti hann við.
Þessar upplýsingar eru byggö-
ar á skýrslum FBI, þar sem kem-
ur ennfremur i ljós, að
alvarlegustu glæpum eins og
morðum, nauðgunum, ránum,
likamsárásum og þjófnaði fjölg-
aði um 18% allt árið 1974 miðað
við árið á undan, en fjölgaði svo
um 13% á fyrstu sex mánuðum
1975 miðað við fyrri helming
siðasta árs.
I PÁFAGARÐI A JOLADAG
Páll páfi VI. flytur Rómverjum, sem safnast hafa saman á torginu fyrir
framan Péturskirkjuna í Páfagarði, jólaboðskapinn á jóladag. Að venju les páf i
,, Urbi et Orbi" blessun sína yf ir borgina og allt mannkyn.
UM 370 NAMAMENN
DRUKKNUÐU í KOLA-
NÁMU í INDLANDI
Björgunarsveitir hafa
gef ið upp nær alla von um
að nokkur sé lífs þeirra
370 námamanna, sem
lokuðust á laugardag
niðri í Chasnalla-kola-
námunum i Indlandi.
Vatn fiæddi inn í tvö
námagöng úr gömlum
námum, sem ekki hafa
verið í vinnslu lengi. Seig
vatnið 213 metra upp
fyrir þann stað í námun-
um, þar sem mennirnir
höfðu verið að störfum.
Neyð og sorg ættingjanna,
sem biðu uppi við námaopið án
þess að geta veitt ástvinum sin-
um niðri nokkra hjálp, var
meiri en orðum taki. Margir
biðu enn við námaopið i
morgun, þótt flestir væru urkula
vonar um að nokkur kæmist af,
Nokkur óvissa var um fjölda
mannanna, sem niðri voru i
námunni. Yfirvöld sögðu, að 372
manna væri saknað, en stéttar-
félagið á staðnum vildi halda
þvi fram, að oft væru allt að 700
menn niðri i einu. Námufélags-
stjórnin hélt þvi aftur á móti
fram að aldrei færu fleiri niður
á vaktinni en 400.
Það eina, sem hægt var að
hafast að,var að dæla vatni úr
námagöngunum. En þótt fimm
kraftmiklar dælur hafi verið
settar i gang, tekur það að
minnsta kosti fimmtán daga að
þurrka námuna — ef það er þá
hægt.
Enn er ekki vitað, hvað olli
vatnsflóðinu niðri i námunni. t
fyrstu var haldið, að sprenging
hefði orðið niðri, þvi að þaðan
heyrðust tveir dynkir. En sér-
fræðingar telja, að sá hávaði
hafi myndast, þegar loftið
þrýstist snögglega út úr
göngunum.
Þetta er versta námaslys sem
Indverjar hafa orðið fyrir. Þó
fórust 268 námamenn i spreng-
ingu i Dhorinámunni 1956, en
hún er ekki langt frá Chasnalla.
178 menn létu lifið i gasspreng-
ingu i Chinakurinámunni i
Vestur-Bengal 1958. — Allar
þessar þrjár námur eru með 80
km millibili á hinu auðuga kola-
belti, sem liggur um Bihar og
Vestur-Bengal.
Chasnalla-náman, ein sú
nýtiskulegasta i vinnubrögðum
á Indlandi, var tekin aftur i
gagnið fyrir 6 árum, eftir að
alþjóðabankinn veitti lán til að
starfrækja hana. Um 1500
manns hafi vinnu við hana
neðanjarðar.
KINVERJAR SLEPPTU
ÞYRLUFLUGMÖNNUNUM
Þriggja manna áhöfn sovéskr-
ar þyrlu, sem kínverjar tóku til
fanga fyrir 21 mánuði, var send
heim loks i dag.
Jólin í
Betlehem
ísraelskur hermaður
stendur vörð yfir kirkju-
göngu kaþólskra pílagrima
í Betlehem á aðfangadag.
Patríarkinn, Giacomo Bel-
tritti, fer fyrir göngunni og
setur jólahátíðina.
Bandarískur Cl A-
erindreki skotinn
til bana í Aþenu
Leynileg grfsk samtök sem
kenna sig við 17. nóvember hafa
lýst á hendur sér vígi bandaríska
scndiráðsritarans, Richard
Welch. — Stjórn Hvita hússins
hefur gengist við þvi að Welch
hafi verið erindreki CIA, leyni-
þjónustunnar.
Welch var skotinn til bana af
þrem grimuklæddum mönnum
þegar hann var að koma heim til
sin i Aþenu úr jólagleði. Morð-
ingjarnir sluppu i bifreið.
„Samtök 17. nóvember”, sem
kalla sig svo eftir uppreisn
stúdenta 1973 gegn þáverandi
herforingjastjórn Grikklands,
gáfu eftir morðið út tveggja blaða
yfirlýsingu. Sögðust þau hafa
tekið Welch af lifi til að mótmæla,
að griska stjórnin og herinn væru
undir áhrifavaldi bandariskrar
heimsvaldastefnu. — Griska
þjóðin var þar og hvött til að risa
gegn stjórnvöldum.
Grisk blöð hafa siðan bent á
fjölda sendiráðsmanna Rússa og
Bandarikjamanna og sagt þá
vera erindreka KGB og CIA. —
Griska lögreglan gætir þessara
manna dag og nótt af ótta við
fleiri tilræði.
Jól og áramótafagnaður renna í eitt
Moskvubúar sjást hér arka i gegnum snjóinn heim á
leið með jólatré (sem kostar tvær rúblur), en í Sovétríkj-
unum halda menn jólin hátíðleg 7. janúar, og sameina i
tvennt jóla- og áramótafagnað. Rússar fara nefnilega
-ekki eftir gregoriska tímatalinu.
Flugmennirnir voru gráti næst,
þegar þeir föðmuðu aö sér sov-
éska sendimenn og kvöddu kin-
v’crska embættismenn með
handabandi, áður en þeir stigu
upp i flugvélina á Pekingflugvelli
á leið til Moskvu.
Mönnunum var sleppt úr haldi
á laugardaginn, þegar kinverska
stjórnin, öllum að óvörum, lýsti
þá frjalsa ferða sinna. Þar með
hefur Pekingstjórnin nánast
viðurkennt, að þyrlan hafi lent i
villu, þegar hún flaug yfir Norð-
vestur-Kina á sinum tima.
Til þessa hefur hún fullyrt. að
mennirnir hafi verið i njósnaleið-
angri, og lengst af hefur verið
gefið i skyn, að þeir yrðu dregnir
fyrir rétt.
Sovétmenn hafa haldið sig fast
við þá skýringu, að MI-4 könnun-
arþyrlan hafi verið i björgunar-
leiðangri, þegar hún villtist yfir
landamærin, þar sem hún neydd-
ist til að lenda vegna eldsneytis-
skorts.
Staðinn að
ólöglegum
veiðum
út af Long
Island
Bandariska strandgæslan
stóð pólska verksmiðjutogar-
ann ..Lepus” að olöglegum
veiöum innan tólf milna land-
lielgi USA i gær.
Þessi 2.700 smálesta togari
var þá staddur ellefu milur út
af Long Island, þar sem hann
vartekinn og færöur til hafnar
i New York. — Hugsanleg
viðurlög viö slikum landhelg-
isbrotum eru eignataka skips
og afla.
FLUGSLYS
í KLETTA-
FJÖLLUM
Niu manns fórust með flugvv .1
leið til skiðahótels i Kolor.
Vélin brotlenti i Klettafjölluia
eftir að hún hafði lent i blindb- '
Flakið fannst i gær. en v
innar hefur verið saknað frá þ a
annan i jólum. — Björgunári
tókst aö brjótast upp fjallið að
flakinu. en fann engan lifs.